Morgunblaðið - 26.07.1968, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1968
Flókatindur í Vatnsfirði
Glœsilegur og fagur gististaður
Patreksfirði 17. júlí.
ER FLÓKI Vilgerðarson kom til
íslands fyrst, leizt honum bezt
tii búsetu í Vatnsfirði við Breiða
fjörð. Ekki búnaðist honum þar,
sem skyldi, og átti sinn þátt í
því harður vetur. Á þeim tíiha,
ekki síður en nú, er ekki ómögu
legt að margt hafi dregið hug-
ann frá brauðstriti og fyrir-
hyggju yfir sumartímann, við
stórbrotna og fagra náttúru. Svo
er enn.
Vatnsfjörður mun vera með
allra fegurstu stöðum landsins.
Þar er skóglendi frá sjó að fjalla
brúnum, með fögrum rjóðrum í
milli . Ágætur baðstaður við
ströndina, víða. Ágætt silungs-
vatn. í námunda eru fjöll þau er
Flóki gekk á er hann gaf land-
inu það nafn er það nú ber.
Þar sér eftir af tættum þeim,
er Flóki byggði skála sína til
vetursetu. Þar er Smiðjunesið,
er Gestur Oddleifsson hafði sinn
rauðablástur. Þar er og Hörgs-
nesfð, mjög fagurt skógi vaxið
nes, eitt hinna örfáu örnefna vest
an Þingmannaheiðar, er minna
á heiðinn sið. Náttúsuverndar-
ráð kvað hafa tekið nesið að
sér til verndar fyrir öllu jarð-
raski. Úr Vatnsfirði utarlega
blasa við Breiðafjarðareyjar, ó-
teljandi, og hinumegin rís Snæ-
fellsnesfjallagarðurinn, með kon
ungi sínum samnefndum jökli.
Á fögrum stað í VatnsfirBi,
nánar til tekið við Hellu, sem
er við ána Pennu, hefir Barð-
strendingafélagið reizt myndar
lega veitinga og gistiskála, og
nefnt staðinn Flóka'lund. Er
þetta einn af mörgum, viðkunn
legasti staður fjarðarins, og er
við vegamót til þriggja átta. —
Patreksfjarðar um Barðaströnd
og Kleifaheiði, allra annara
Vestfjarða, allt til Bolungarvík-
ur, og áleiðis su'ður til Reykja-
víkur um Þingmannaheiði.
Guðbjartur Egilsson, formaður
Barðstrendingafélagsins um 12
ára skeið, og framkvæmdastjóri
þess, skýrði fréttamönnum blaða
og útvarps frá framkvæmdum og
framtíðaráformum félagsins í
sambandi við þennan stað, svo
og Bjarkarlund.
Fyrir um aldarfjórðungi kom
fram allmikill áhugi meðal burt-
flutra og annara Barðstrendinga,
Um að koma upp gisti- og veit-
ingastöðum í báðum sýslufélög-
um Barðastrandasýslu. Forustu
alla hafði á hendi átthagafélag
Barðstrendinga, Barðstrendinga-
félagið. Fljótlega urðu fyrir val
inu 2 staðir. Annar er sá er
Bjarkarlundur er nú, en hinn
var við Brjánslæk:
Von bráðar var hafist handa
að koma upp veitingaskála í
Bjarkarlundi. Hin fyrsta veit-
ingasala hófst þar, í bragga, ár-
ið 1945, jafnhliða var hafizt
handa um byggingu hins fyrsta
áfanga að .veitinga- og gistiskála,
og hann opnaður tii veitinga
1947. Veruleg aukning við þa'ð
húsrými hefir nú farið fram og
eru þar nú 14 herbergi 2ja og
4ra manna. Starfsfólk þar nú,
er um 9-10 manns. Hótelstjóri
hin síðustu ár hefir verið og er
Svavar Ármannsson. Hótelið er
opið frá 1. júní til 10. okt. ár
hvert.
Framkvæmdir við Brjánslæk
hófust nokkru síðar, en frá þeim
var fljótlega horfið, en undir-
búnings-framkvæmdir hófust við
Flókalund, sem af flestum er tal
inn heppilegri staður.
Magnús Ólafsson frá Botni,
vegavinnuverkstjóri, skipulagði
staðinn, og braut landið áður en
byggingarstarf var hafið. Mun
það fátítt hér á landi að um-
hverfi sé skipulagt áður en fram
kvæmdir hefjast.
Fyrsta veitingasala í Flóka-
lundi hófst í litlum skála árið
1961. Ári síðar hófst bygging
grunns undir þær byggingar,
sem nú hafa risið. Hús það, er
nú hefir verið reizt, er flutt inn
frá Noregi. Það er 260 ferm. Er
þar stór matsalur, stórt og rúm
gott eldhús ásamt geymslu. Al-
mennt afgreiðsluherbergi, 4 gisti
herbergi fyrir 2, snyrtiherbergi
og mjög rúmgóð forstofa. Enn-
fremur er í ráði að innrétta 4
gistiherbergi í viðbót í gamla
veitingaskálanum, og telur for-
maður að þá ætti að vera sæmi-
lega séð fyrir gisitiplássi þarna.
Á veröndinni við aðalinngang-
inn er skemmtilegur staður til
að sitja á, á sólheitum dögum.
Er þar með sóltjaldi hægt að
fyrirbyggja alla golu ef einhver
væri. Herbergi eru öll með heitu
og köldu vatni svo og fatageymsl
um. öll bera þau nöfn staða í
nágrenninu. Eldhús er ákaflega
rúmgott og vistlegt, og búið
fyrsta flokks tækjum. Raforka
er frá 36 kw. Lister-diesel vél,
og er því atriði því vel fullnægt.
Talsamband, enn sem komið er,
er í gegnum Gufunes-radíó. Tal
sími er við útidyr og er hann í
sambandi við næturvakt húss-
ins. Húsbúnaður allur er hinn
smekklegasti og innrétting öll
og smíði ber fögru handbragði
viini.
Eftir að húsið hafði verið
reizt, en fyrir því stóðu tveir
Norðmenn, hefir Björn Guð-
mund3son, húsam.meistari staðið
fyrir byggingunni ásamt Bolla
A. Ólafssyni, húsgagnasm.m.
Reykjavík. Um raflögn sá Bald
vin Kristjánsson, rafv.m. Pat-
reksfirði o.fl. o.fl. sem lagt hafa
hönd að byggingu þessari.
Sem stendur starfa þarna 5
manns, Kristinn Óskarsson, hót-
elstjóri, Heba og Sjöfn A. Ólafs
son, matráðskonur og tvær að-
stoðarstúlkur
Olíufélagið h.f. og Skeljung-
ur h.f. hafa sameinast um benz-
ín- og olíusölu á staðnum.
í stjórn ’Barðsterndingafélags-
ins eru þeir: Guðbjartur Egils-
son, form. Guðmundur Jóhannes
son, varaform. Ólafur Jónsson
gjaldkeri, Alexander. Guðjónsson
Kristinn Óskarsson og Bolli A.
Ólafsson, meðstjórnendur.
Aðspurður kvað Guðbjartur
kostnað við Flókalund hafa ver
ið orðinn, með húsbúnaði 2.5
millj. krónur, við lok síðasta
reikningsár.
Eins og að líkum lætur er
bygging og starfræksla beggja
þessara mikið átak fámennu átt
hagafélagi, en fyrir samhug, fóm
fýsi og skilning, er nú þessum
málum komið eins og raun ber
vitni. Allir aðilar, segir Guð-
hjartur, sem leitað hefir verið til
hafa af alhug veitt máli þessu
lið. Alþingi, sýslusjóðir Barða-
strandar og ísafjarðarsýslna, ísa
fjarðarkaupstaður og Suðureyr-
arhreppur í Súgandafirði. Síðast
en ekki sízt, allir hinir fjöl-
mörgu Barðstrendingar og aðrir,
sem til hefir verið leitað, og
brugðist hafa þannig við að
hver erfiður hjalli hefur verið
yfirstiginn, og forustunni gert
ljóst að fórnfúst lið fylgdi fast
eftir.
Fyrst um sinn hefir verið
ákveðið að hótel Flókalundur
starfi frá miðjum júní til 20.
sept. Framkvæmdastjórninni er
ljóst að fyrsti og síðasti hluti
þessa tímabils er eingöngu þjón
usta við þá er eru á ferðalögum
þá, og af þeim orsökum Iítil
hagnaðarvon. Er ekkert við þv£
að segja, ef reksturinn gengur
vel yfir sumarið.
Ferðafólk! þið sem eruð að
leggja upp í sumarferðalög, og
hafið ekki fyrirfram ákveðið
hvert halda skuli, takið Flóka-
lund til athugunar ásamt þeim
stöðum, sem til greina koma.
Leggið leið ykkar um Vatns-
fjörð. Gistið í Flókalundi, eða
fáið þar tjaldstæði. Njótið þar
ágætra veitinga og prýðilegrar
þjónustu. Eftir dvölina þar mun
uð þið geta sagt: Við komum og
sáum en Vatnsfjörður sigraðL
Trausti Árnason.
Einbýlishús
á góðum stað í Kópavogi er til ieigu. — Vinsamlegast
sendið tilboð, merkt: „8446“ fyrir 1. ágúst nk.
STRIGASKÓR
Allar stærðir. — Frá 2ja ára til 102ja ár,-
SKÓBUDIN
ÁLFHEIMUM 6
Síini 37541.
Sumarkjólar
Fjölbreytt úrval
Lækjargötu.
. ÁGI22-24
1:30280-32282
DL
w
LITAVER
PLASTINO-KORK
Mjög vandaður parket-
gólfdúkur.
Verðið mjög hagstætt.
Starfsstúlkur í Flókalunði í hinu rúmgóða eldhúsi gististað-
arins. Ljósm. Sævar Halldórsson.