Morgunblaðið - 26.07.1968, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLJ 1968
/—:--*BflA££/GAM
Slmi 22-0 22
Rauðarárstig 31
ÍV1AGIMÚSAR
SKIPHOLTJ 21 SJMAR21190
i eftir Jolcun sími 40381
■ ^ sfnr i_44_44
mfíiF/o/ff
Hverfisgötu 103.
Sími eftir iokun 31160.
LITLA
BÍI.ALEIGAN
BergstaSastræti 11—13.
Hatrstætt leigmgjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónssen.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegf 12. Sími 35135.
Efti. lokun 34936 ©g 36217.
BÍLALEIG AN
AKBRAIJT
SENDUM
SÍIMfi 82347
Vm iALl.
(jaskris
Vélopakknlngor
De Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, flestar tegundir
Dodge
Bedford, disel
Ford, enskur
Pord Taunus
GMC
Bedford, disel
Thames Trader
Mercedes Btni, flestar leg.
Gaa '59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renantt Dauphine
Þ. Jónsson 8 Co.
Siml 15362 og 19215.
Brantarholti >.
’jAf Vandamál
æskunnar
„Góði Velvakandi.
Skúli á Ljófcunarstö&um
kastaði nýlega í Þjóðvilj anum
hálfgerðum hnútum að ófeigi
lækni fyrir að hafa amazt við
því, að allur hans trjágróður
við sumarbúsfcað hans og hú-
staðurinn sjálfur var eyðdlagð-
ur af unglingum, eftir að lækn-
irinn hafði í tómstundium sín-
um fxá því að koma íslending-
um til nokkurrar heilsu reynt
að fegra og rækta land sitt.
Hvort slík skemmdarstörf eru
leyfð átölulaust í Sovét, nefndi
Skúli hins vegar ekki.
Nú hafa menn undir manns-
hönd í blöðum og útvarpi ráð-
izt á hiugmynd um þegnskapar-
vinnu unglinga, sem fram hef-
ur komið á Alþingi, talið hana
að mér skilst árás á hina „fal-
legu, velþroskuðu æsku", sem
flokksblöðin tala svo títt um,
jafnvel „Bóndd“ nýlega í dálk-
um þínum kennt harna við
Hitlerisma eða fasisma, svo að
minnzt sé atbugasemda um
hugmyndina, og finnst mér
ihart aif „bónda" að leggja að
jöfnu þjálfun unglinga til að
drepa menn í styrjöldum og
þjálfun í ræktunar- og upp-
bygginigarstörfum fyrir samtíð
og framtíð.
^ Snobb fyrir
æskunni
Alþjóð veit, að nokkur
hluti æskunnar hefur af skorti
á þroskandi verkefnum leiðzt
út í að valda ferlegum spjöll-
uim á gróðri og eignum með þvi
mölva, raena og brenna sumar-
bústaði eða önnur mannlaus
hús, oft fyrir því fólki, sem
ólst upp við hungurkjör, en
vann sig af litlum efnum upp
í það að vinna þjóð sinni gagn
á sviði menningarþjónustu eða
atvinnumóla. Illa rættur ungl-
ingur, sem hvorki foreldrar eða
skólar hafa getað gert að góð-
um þegni í samfélaginu, er
ebki aðeins tapaður sjáHum
sér, heldur og þjóðinni, ef ekki
má fá honum önnur störf í
henidur en þau, er 'hann sjálfur
kýs sér á bverjtum tíma. Og
hvað verður um þessa tegund
hinnar „þróttmiklu, íslenzku
æsbu“, s. b. snobbið í blöðum
og fjölmiðlunartækjum öðrum,
ef henni er ætlað einvörðungu
að vinna skeanmdarverk í stað
þeirra nytjaverka, sem stungið
hefur verið upp á.
Þegnskaparhugsjónin átti
drjúgar rætur í ungmennafé-
lögunum gömlu framan af öld-
inní, enda var kjötrorð þeirra
íslandi allt. Að eiga hugsjónir
nú til dags er illa liðið, nema
ef vera skyldi hiugsjón „hippó-
anna” í vestrinu og gúmjórtr-
enda og 'hampreykjenda úti um
heim. Hér virðist almennings-
álitið faneigjast að Því, að
börnin segi foreldrum sínum
og uppalendum fyrir verkum,
áður en ungviðið kann að
hneppa upp um sig- Einu sinni
var sagt: Sá sem ekki kann að
hlýða, getur ekki lært að
stjórna.
Er ekki rétt, að við miðum
kosningairétt og kjörgengi fram
vegis við 13—35 ára aldur? Það
er þó andsk.... enginn Hitler-
ismi. ^
16. júlí 1967,
J. Ó. P
'A’ Rottugangur í
Vesturbænum
Húsmóðir í Vesturbæ skrií-
ar:
„Reykjavik, 8. 7. ’68.
Kæri Velvakandi!
Fyrir nokkrum dögum var
sagt frá því hér í blaðinu, að
mikill rottugangur vaeri við
Tjörnina. En það er ekki eini
staðurinn, þar sem vairt hefur
orðið við rottur; þær eru mjög
víða um bæinn; en mér er
kunnugt um, að mikið er um
þær í Vesturbænum og hafa
þær grafið um sig í húsagörð-
ium.
Því langar mig að spyrja:
Hve oft er eitrað hér reglulega
fyr,ir rottur, þa,r sem líkur eru
til að þær séu, t.d. við höfn-
ina?
Þes-si ófögnuður er fljótur að
margfaldast, ef ekkert er að
gert, eða hvað finnst þessum
góðu mönnum hjá heilbrigðis-
eftirlitinu eðlilega mikill rottu-
gangur?
Fólk er beðið um að ganga
vel og þrifalega um, ég vil
biðja um herferð gegn rottum.
Áslaug Sigurðarclóttir,
Reynimel 87,
Reykjavík“.
Velvakanída hafa borizt fleiri
sams konar bréf úr þessu
hverfi, og er reyndar kvartað
undan fleiri „löglausum" dýr-
um en rottum i sumum bréf-
anna, en birting þessa bréfs
verður að naegja í bili. Hinum
verður þó ekki fleygt.
Meindýraeyðum borgarinnar
og borgarlækni er velkomið að
svara í þessum dálkum.
★ Mat á nýjum
fbúðum
Borgari skrifar:
„Velvakandi góður!
Um þessar mundir, er
mikið rætt og rrtað um hinax
svokölluðu Breiðholtsblokkir.
Gamga þar sögur um, allmis-
jafnar, bæði sannar og lognar.
í Ijós hefur konrið, að a.m.k.
einn aðili hafi afþa'kkað ibúð
í þessu fræga húsi. Kennt var
um stórgöllum á mnanihús-
smíði í íbúðinni, svo sem á
skápum, haxðviðargólfi og
fleiru.
En hæstvirt framkvæmda-
nefnd ætlar að 'hún sé nú búin
að hreinsa sig og verktaka af
öllum áburðL
Buðu þeir á sirnn fund sér-
hæfðá blaðamenn í trésmíði,
til að kanna smíði á fbúð þess-
ari. Vitum vér, að blaðamenn
eru vel menntaðir allflestir (en
ég held nú samt, að þetta sé
nú fyrir utan þeirra verksvið),
þar sem fcvær stéttir manma
vinna við þessi verk og eru
með sérþekkingu á þessum
málura.
Meistarafélögin í viðkomandi
greimum hafa, að ég held í sam
vinmu við Neytendasamtökin,
opimbera og algjörlega hlut-
lausa matsnefnd til höfuðs þess
■um máluan. Hingað til finnst
xmér alltof lítið 'hafa verið gert
af því að meta unnin verk. Það
er þess vegna af fljótfærni igert
að afþakka íbúð á þessum for-
sendum, án þess að láta meta
vinmuna.
Sem dæmi má geta þess, að
í einu frægu fjölbýlishúsi við
Reynimel hér í borg kom upp
svipað mál I sambandi við
skápa í eld'húsi.
Skiluðu verktakar þar hálf-
unmum stykkjum og eftir því
'gölluðum. Verkið var metið og
verktökum gert að greiða við-
gerðarkostnað og smíði nýrra
stykkja.
Þess vegna vil ég skora á
framkvæmdanefnd, að láta
meta a. m. k. þessa, ef ekki all-
ar íbúðir, sem afhentar enu.
Verður það öllum til góðs,
framkvæmdanefndinni, íbúðar-
eigendum tilvonamdi og verk-
tökum.
Með beztu kveðju,
borgari“.
ýkr Spílltur af Kefla-
víkursjónvarpinu
„Tryggvi eldri“ gkrifar:
„Herra Velvakamdi!
Piltur einn fékk birt bréf
í dálkum þínum fyrir nokkru,
þar sem hann tók upp að nýju
gömlu skammaþuluna um
Keflavikuxsjónvarpið og takii
því allt til foráttu. Skömmu
síðar hlýddi ég á þátt, sem
sami piltur flutti um Afríku í
Ríkisútvarpið. Þótti mér kyn-
lega við bregða, að heyra alls
staðar hráa ensku glymja 1
gegnum fremur Iélega þýddan
texta, þar sem allt var tengt
með eignarfalli, en forsetning-
um sleppt (t.d. alltaf „ríki Afr.
í'ku“ í stað „ríki í Afríku“ o. s.
frv.). Þungi veiðidýra var veg-
inn í enskum pundum, og jafn-
vel orð eins og UNESCO og
Gínea (Guinea) var reynt að
bera fram eftir enskum fram-
burðarreglum!
Svo sannarlega var komið
fram á elleffcu stundu með að
bannfæTa blóraböggulinn mikla
suður í Keflavík, fyrst aðrir
eins menn eru orðnir engilsax-
neskir í orðavali, orðaröð og
orðaframburði.
Með kveðju,
Tryggvi eldri“.
NÝ VERZLUN
Nœg bílastœði
Laugavegi 765
VINSÆLUSTU L.P.
Sextctt Ólafs Gauks og Oddgeir Kristjánsson.
Tom Jones Delilah
Engilbert Hnmperdinck A man without love.
The Sound of Music Soundtrack
Mary Poppins Soundtrack.
My Fair Lady. Soundtrack.
HLJÓÐFÆRAHÚS REYKJAVÍKUR H.F
Laugavegi 96, við hlið Stjörnubíós.
15-88-5
— Búð án dýrtíðar —
Fallegir munir. — Góðar bækur.
Þjóðlegir munir frá ýmsum löndum.
Tækifærisgjafir. — Góðar bækur og nýjar á tæki-
færisverði.
Bækur og munir, Bókamarkaðurinn, Hverfisgötu 94.
Hornið á Frakkastíg. — Sími 15-88-5.