Morgunblaðið - 26.07.1968, Síða 12
Búizt við fleiri byltingum i Arabaheiminum
A1 Bakr, hinn nýi forseti.
' BYLTINGIN í írak á dögun-
um var mikið áfall fyrir Nesser
Egyptalandsforseta og kommún-
ista. Nýju valdhafarnir í Bagd-
had eru hófsamir þjóðernissinn-
ar, sem eru andvígir kommúnist
um og svarnir fjandmenn sýr-
lenzku stjórnarinnar, sem er
vinstri sinnuð og háð Rússum.
En það sem veldur valdamönn-
um í öðrum Arabalöndum mest-
um áhyggjum er, að nýju vald-
hafarnir hafa kennt Aref forseta
og stjórn hans, sem þeir steyptu
af stóli, um að hafa átt þátt í
ósigri Araba í styrjöldinni við
ísraelsmenn í fyrrasumar.
Þannig hefur nýja stjórnin
óbemt kennt Nasser og sýr-
lenzku stjórninni um ósigurinn,
og getur þetta haft afdrifaríkar
afleiðingar. Nú þegar er um það
rætt, að byltingin i írak geti
leití til fleiri stjórnarbyltinga í
Arabaheiminum, og svo mikið er
Aref, sem steypt var af stóli
vist að sýrlenzka stjórnin er í
alvarlegri hættu. Hún hefur ver
ið völt í sessi í marga mánuði,
og síðan byltingin í frak var
gerð hefur hún gripið til víð-
tækra öryggisráðstafana til þess
að koma í veg fyrir keðjuverk-
anir af völdum byltingarinnar í
Bagdhad.
Valdamennirnir í Sýrlandi
heyra flestir til Alawite-sértrú
arflokknum. Þeir hafa að und-
anförnu sent vopn til þorpa Ala
witemanna i Vestur-Sýrlandi til
þess að tryggja öryggi trúbræðra
sinna, ef svo kynni að fara að
stjórn þeirra yrði steypt af stóli.
Ekki er ósennilegt að byltingin
þess að valdhöfunum í Dama-
í Bagdhad leiði endanlega til
skus verði steypt af stóli, enda
eru þéir almennt svo óvinsælir
i Sýrlandi, að það gengur krafta
verki næst að þeir skuli hafa
haldizt við völd í tvö ár.
Nassersinnar handteknir
í frak hefur greinilega komið
i Ijós undanfarna daga, að nýju
valdhafarnir eru staðránir í að
útrýma öllum áhrifum: Nasser-
sinna í landinu. Stjórnmálamenn
og herforingjar, sem hafa fylgt
Nasser að málum, hafa verið
handteknir og engir sem samúð
hafa með Kaíróstjórninni, hafa
verið teknir í nýju stjórnina. Ar
ef fyrrverandi forseti var mjög
háður Nasser, og þess vegna er
fall hans svo mikill ósigur fyrir
egypzku stjómina.
Almenningur í frak, sem aldrei
hefur haft áhrif á stjórn lands-
ins, litur á stjórnarbyltinguna
sem enn eina valdastreitu öfund
sjúkra og metnaðargjarnra her-
foríngja, sem hafa drottnað yfir
þjóðinni síðan konungsdæminu
var kollvarpað fyrir tíu árum, en
hins vegar bendir margt til þess,
að nýja stjórnin verði raunsærri
hagsýnni og kredduminni en
fyrri stjórnir, ef komizt verður
hjá sundurlyndi og ef hún
stenzt árásir Nassersinna og
öfgasinna lengst til vinstrL
Við mörg vandamál er að
stríða, því að landinu hefur ver-
ið illa stjórnað. Meirihluti þjóð-
arinnar, hægrisinnar jafnt sem
vinstrisinnar og herforingjar
jafnt sem verkalýðsleiðtogar,
voru sammála um, að ástandið
væri orðið óþolandi undir stjórn
Abdel Rahman Arefs forseta,
sem tók við af bróður sínum Ab
del Salam Áref þegar hann
fórst í flugslysi i apríl 1966.
Hann gerði lítið serh ekkert til
að leysa vandamál landsins, en
þrátt fyrir olíuauðlegð þess og
ágæta ræktunarmöguleika, eru
lífskjör fólksins mun lakari en
í grannríkinu íran.
Mikil ólga hefur verið meðal
stúdenta og óánægja hefur ríkt
að þau líta svo á að einræðis-
í verkalýðsfélögum vegna þess
stjórn Arefs hafi skert völd
þeirra. Þá hafa deilur hinna
tveggja múhameðsku sértrúar-
flokka, Shíta og Sunna, blossað
upp að nýju. Allt þetta átti mik
inn þátt í byltingunni á dögun-
um, en þar við bættist sú al-
menna skoðun, að þróunin í efna
hagsmálunum væri alltof hæg-
fara, að alger kyrrstaða ríkti í
þjóðfélaginu og að landið gegndi
ekki því hlutverki sem því bæri
að gera í málefnum nálægari
Austurlanda.
Klofningur Baathista.
Hinn nýi forseti, Ahmed Hass
an A1 Bakr, og byltingarstjórn
hans hafa heitið því að ráða bót
á þessum vandamálum en það
verður erfitt verk. Umbætur
krefjast geysimikillar atorku, og
ef hafizt verður handa um um-
bætur eins og allar líkur benda
til, mun það draga úr áhrifum
vinstrisinna að minnsta kosti
fyrst í stað, og minni áherzla
verður lögð á utanríkismál, ef
innanlandsmál verða látin sitja
í fyrirrúmi.
Vitað er, að hinn nýi forseti
er andvígur nánu pólitísku sam-
starfi við Sýrlendinga og Egypta
frá gamalli tíð. Hann er félagi
í flokki Baathista, sem er við
yöld í Sýrlandi og starfar í Líb-
anon og fleiri Arabalöndum, en
heyrir til þeim armi flokksins,
sem vikið var frá völdum í Sýr-
landi í febrúar 1966. Hassan A1
Bakr var í hópi þeirra herfor-
ingja, sem kollvörpuðu konung-
dæminu í frak 1958 og myrtu
Feisal konung. Einnig gegndi
hann dularfullu hlutverki þeg-
ar Abdel Karem Kassem hers-
höfðingja var steypt af stóli
1963. Hann var um skeið forsæt-
isráðherra þegar Baathistaflokk
urinn var við völd í írak.
Baathistaflokkurinn berst fyr-
ir sameiningu Araba og stofnun
sambands Arabaríkja, og eru
Baathistar því keppinautar Nass
ers, sem einnig berst fyrir sam-
einingu Araba. Baathistar líta á
sjálfa sig sem eina einingarafl
Araba en Nasser vill sameina
Araba undir forystu Egypta.
Baathflokkurinn var stofnaður í
Sýrlandi fyrir 25 árum, og var
í upphafi öfgasinnaður, bylting-
arsinnaður og marxistískur, en
klofnaði fljótlega, og er hægri
armurinn hófsamur og vill koma
til leiðar skjótum breytingum og
ná völdum. Vinstri armurinn
heldur fast við byltingarkenn-
ingar sínar og hefur löngum ver
ið andvígur Nasser, en hægri
armurinn hefur verið það raun-
sær að hann hefur stundum tal-
ið hagkvæmt að hafa samvinnu
við hann. Baathistar líta á Ar-
aba sem eina þjóð, og stefna
þeirra er sósíalismi, sameining
Araba og arabískt lýðræði, sem
á að grundvallast á einum flokki
Baathistum. Á ýmsu hefur geng-
ið í sambúð þeirra við Rússa og
þeir hafa ímugust á Kúrdum,
því að þeir vilja ekki líta á sig
sem Araba. Að sjálfsögðu hata
þeir fsraelsmenn.
Vinir Bússa í erfiðleikum.
Þar til Aref var rekinn frá
völdum og flæmdur í útlegð var
frak í hópi þeirra Arabaríkja
sem kalla sig framfarasinnuð og
sósíalistísk auk Egyptalands. Sýr
lands, Alsírs, Jemens og Súdans.
Fjandskapur nýju stjórnarinnar
í írak við Nasser, sýrlenzku
stjórnina og kommúnista gerir
það að verkum að frak hverfur
úr hópi þessara ríkja, sem áttu
það einnig sameiginlegt, að þau
voru eindregnir andstæðingar
Bandaríkjamanna, háð Rússum
og harðskeyttustu fjandmenn
fsraelsmanna.
Annað, sem er þessum ríkjum
sameiginlegt, eru efnahagserfið-
leikar, sem tekizt hefur að draga
nokkuð úr með sovézkri aðstoð,
efnahagslegri og tæknilegri.
Frá sjónarmiði kommúnista
hlýtur það að teljast mótsagna-
kennt, að í Arabaheiminum eru
það ríkisstjórnir, sem ekki að-
hyllast sósíalisma, hófsamar rík
isstjórnir og jafnvel konungs-
stjórnir, sem hafa komið til leið-
ar efnahagslegum og þjóðfélags-
legum framförum. Þetta á ekki
aðeins við um hin miklu olíu-
ríki eins og Líbýu, Saudi-Ara-
bíu og Kuwait heldur einnigum
Túnis og Marokkó, þar sem lítil
sem engin olía finnst í jörðu.
Á hinn bóginn eiga Egyptaland,
Alsír, frak og önnur framfara-
sinnuð ríki við stöðuga efna-
hagsörðugleika að etja þrátt fyr-
ir gífurlega aðstoð frá Sovét-
ríkjunum.
Þess vegna_ er hægt að túlka
byltinguna í frak þannig, að hér
sé um að ræða tilraun til að
losna við áhrif Rússa og taka
upp sjálfstæðari stefnu. Aðsjálf
sögðu er ekki hægt að búast við
því, að A1 Bakr og stjórn hans
láti af opinberum fjandskap sín
um við ísrael og kröfunum um
brottflutning ísraelskra hersveita
frá arabiskum landsvæðum, en
í reynd er sennilegt að hægri-
sinnuð stjórn í írak fái til fylg-
is við sig óánægt miðstéttarfólk,
sem vill miklu heldur framfarir
en útistöður við ísraelsmenn.
Þannig virðist allt benda til þess
að frak sé að hverfa frá vinstri
stefnu og Nasserisma til raun-
særrar og hófsamrar umbóta-
stefnu.
Utungunarvél
óskast, ekki minni en 1000 eggja. Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir 8. ágúst nk, merkt: „Útungunarvél — 5148“.
UTANHÚSSMÁLNING
1. Hefur málningin ckki flagnað af húsi yðar?
2. Hefur málningin ckki upplitazt og orðið flekkótt?
3. Eru fasteignir yðar ekki lekar gegnum sprungur
og víðar?
4. Hefur málningarviðhaldskostnaður yðar ekki verið
alltof hár eða fasteignir yðar verið Ijótar útlits, svo
árum skiptir vegna lélegrar málningar?
Allt sem bér að framan er talið getið þér losnað við und
antekningarlaust með því að nota hin sérstæðu efni
Perma-Dri og Ken-Dri
(oliuvatnsverji) og
Kenitex kítti
Heildsala — Greiðsluskilmálar.
Ný sending var að koma í dag Pantanir óskast sóttar.
Flestir litir eru til á lager. Birgðir takmarkaðar.
Opið allan daginn á morgun.
Einkaumboðsmaður á íslandi
Sigurður Pálsson byggingameistari
Kambsvegi 32. — Simar 34472 og 38414.
r---------------------------------------------
Símanúmer vort er nú
2-20-90
ÁLAFOSS HF.
Kenn arastö ð ur
Tvo kennara vantar við barnaskólann á Selfossi, einn
við almenna kennslu og handavinnukennara pilta.
Upplýsingar gefur skólastjórinn, Leifur Eyjólfsson.
Umsóknir sendist formanni skólanefndar, Selfossi.
SkóJanefndin.