Morgunblaðið - 17.08.1968, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST l'96ö
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritst j ór narf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
í lausasölu.
Hf Arvakur. Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 7.00 eintakið.
MYNDLISTARHÚS -
BORGARLEIKHÚS
Ij^yrir nokkrum dögum af-
* hentu forráðamenn Kjar
valssýningarinnar, borgar-
stjóranum í Reykjavík, nær
700 þúsund krónur, sem renna
eiga til byggingar myndlistar
húss á Miklatúni en þessi upp
hæð er ágóði af Kjarvalssýn-
ingunni, sem haldin var fyrr
í sumar. Þetta myndarlega
framlag sýnir glögglega þær
miklu vinsældir sem Meistar-
inn nýtur meðal fólks og jafn
framt skemmtilegt að mynd-
listarhúsið á Miklatúni skuli
að töluverðu leyti rísa upp í
krafti þeirra traustu tengsla
sem skapast hafa með Kjar-
val og þjóðinni.
í hinu nýja myndlistarhúsi
á Miklatúni verða aðallega
tveir sýningarskálar, annar
eingöngu fyrir sýningar á
verkum Kjarvals, hinn fyrir
almennar sýningar, en með
þessum hætti er ætlunin að
tengja nýja kynslóð myndlist
armanna og raunar einnig
samtíðarmenn Kjarvals sem
traustustum tengslum við
þann listamann, sem þjóðin
hefur tekið einna mestu ást-
fóstri við. Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri skýrði frá því á
blaðamannafundi fyrir nokkr
um dögum, að annar sýningar
salurinn yrði væntanlega full
búinn til notkunar næsta
haust, en húsið allt á að vera
fullgert á árinu 1970. Auk
sýningarsalanna tveggja verð
ur aðstaða til þess að koma
fyrir listaverkum í anddyri
hússins og einnig utan dyra.
Með tilkomu hins nýja mynd
listarhúss verður bætt úr
brýnni þörf fyrir aðstöðu til
myndlistarsýninga í borginni,
því að Listamannaskálinn
gamli er löngu orðinn ónot-
hæfur.
Um svipað leyti og þannig
sést fyrir endann á byggingu
nýs myndlistarhúss í borg-
inni gætir greinilega vaxandi
áhuga á því að koma málefn-
um borgarleikhúss á nokkurn
rekspöl. Lengi hefur verið
rætt um slíka byggingu fyrir
starfsemi Leikfélags Reykja-
víkur og ýmsir staðir verið
tilnefndir, en vafalaust er það
vilji borgarbúa, að nýtt borg-
arleikhús rísi við Tjörnina,
hvort sem það yrði tengt
væntanlegri ráðhúsbyggingu
eða ekki.
Leikhúslíf er mjög fjöl-
breytt í borginni og áhugi í
leiklist er mikill. Það hefur
greinilega komið í ljós á und-
anförnum árum, að góður
grundvöllur er fyrir rekstur
annars leikhúss í borginni.
Með byggingu myndlistar-
hússins á Miklatúni hefur
mikið átak verið gert til þess
að stuðla að frjósamara menn
ingarlífi í höfuðborginni og
virðist liggja beint við að
Bygging borgarleikhúss verði
næsta stórátakið í þeim efn-
um.
Það á að vera kappsmál
Reykvíkinga að hlú að og efla
það grózkumikla menningar-
líf, sem lengi hefur sett sterk
an svip á borgina og þar eiga
fáir einstaklingar stóran hlut
að máli. Hinn ágæti hljóm-
sveitarstjóri Bohdan Wodisco
varaði við því í vor, að menn
mættu ekki vera „nízkir við
menninguna“. Þrátt fyrir þá
efnahagserfiðleika sem nú
steðja að er rétt að hafa þau
orð í huga. Auðlegð borgar-
anna er þrátt fyrir allt orðin
svo mikil, að þeir hafa góð
efni á að veita listum í borg-
inni góða starfsaðstöðu og
bygging borgarleikhúss er
einn liður í því.
FEGRUM
BORGINA
L sama tíma og ferðamenn
eru hvattir til þess að
ganga vel um landið, hafa
Reykvíkingar verið hvattir til
að hafa hreinlegt og snyrti-
legt í kringum hús sín og
hreinsunarmenn hafa verið á
ferðinni frá borginni.
Borg í byggingu eins og
Reykjavík verður auðvitað
aldrei svo snurfusuð að þar
megi ekkert að finna. Og
einnig verður að hafa í huga,
að lóðagerð kostar oft mikið
fé, sem húsbyggjendur hafa
ef til vill ekki efni á, fyrst
eftir að byggingu lýkur. En
það kostar oft lítið fé að hafa
hreinlegt og snyrtilegt í kring
um húsin og þess vegna er
ástæða til að hvetja borgar-
búa að fjarlægja allt ónauð-
synlegt drasl, sem vera má
að hafi safnast saman en látið
liggja óáreitt.
VŒJ UT AN 0 R H Elf ril
Gífurle; gar ör yggisrí ÍÖSti ifan ir
I Chicago er um þessar
mundir unnið að því af kappi,
að undirbúa flokksþing demó-
krata, sem þar hefst hinn 26.
ágúst næstkomandi. Búizt er
við gífurlegum fjölda fólks
til borgarinnar auk flokksfull
trúanna sjálfra 5.611 talsins.
(Þar af eru þrisvar sinnum
fleiri blökkumenn en á síðasta
flokksþingi, 1964, eða 176 auk
varafulltrúa, 125 að tölu).
Meðal annars er gert ráð fyrir
tugþúsundum manna, sem
ætla að láta til sín taka hin
margvíslegustu mál og halda
hópfundi og fjöldagöngur með
þeim eða móti. Óttast margir,
a'ð til óeirða og átaka geti
komið. Af hálfu yfirvalda er
því mikill viðbúnaður og í
undirbúningi öflugri öryggis-
ráðstafanir en dæmi eru til
áður við flokksþing í Banda-
ríkjunum. Verða gerðar sér-
stakar ráðstafanir til þess að
afmarka ákveðið svæði um-
hverfis þingstaðinn, þar sem
ekki fái aðgang nema þeir,
sem þangað eiga vi'ðurkennt
erindi. Um 8.000 lögreglumenn
6.000 hermenn úr þjóðvarð-
liðinu og um 10.000 alríkis-
lögreglumenn hafa að undan-
förnu starfað við að athuga
þá staði í borginni sem reynzt
getur nauðsynlegt að verja
með vélbyssum, brynvörðum
bifreiðum, vatnsdælum og
táragasi og einnig verða kann
aðir allir þeir stáðir, sem
freistað geta leyniskyttna, er
hafa illvirki í huga. Eitt mikil
vægasta hlutverkið er að sjá
þingstaðnum sjálfum, sem er
ekki langt frá fátækrahverfi
blökkumanna og gistihúsun-
um, þar sem fulltrúar og
starfslið þeirra munu dveljast,
fyrir nægilegri vernd. Er gert
ráð fyrir, að um hundrað
þúsund manns, lögreglu- og
hermenn, taki þátt í öryggis-
ráðstöfunum meðan á þinginu
stendur. Er haft eftir yfir-
manni lögreglunnar í Chicago
að þar biðji menn þess „með
krosslagða fingur“ að flokks-
þinginu ver'ði ekki breytt í
blóðbað.
Til þess að auðvelda að-
gang að þingstaðnum verða
útbúnir lendingastaðir fyrir
þyrlur á húsþökum og þurfa
frambjóðendurnir og fulltrú-
arnir þá ekki að brjótast gegn
um múg og margmenni á nær
liggjandi götum. Á þingstaðn-
um sjálfum verður komið fyr
ir palli í um 30 metra hæð,
þar sem lögreglumenn vopn-
áðir byssum, kíkjum og
„rabb—labbtækjum“ fylgjast
með öllu sem fram fer. Þá
munu leynilögreglumenn
dreifa sér meðal mannfjöldans
á staðnum. Tvö hundruð
slökkviliðsmenn og sprengi-
efnasérfræðingar verða á vakt
allan sólarhringinn og til þess
að vera viðbúnir fjöldahand-
tökum, hefur lögreglan kom-
ið upp tjöldum í garði Cook
fangelsisins.
Borgarstjórinn í Ohicago,
Richard J. Daley, hefur sagt
að tekið verði hart á götu-
óeirðum og þeim, sem að
þeim stúðla. Engu að síður
hafa boðað komu sína til borg
arinnar margskonar hópar
manna, friðarsinnar, hipyar
og yppar, stuðningsmenn
Eugenes McCarthys, samtök
blökkumanna, m.a. fylgismenn
baráttu hinna snauðu og þar
fram eftir götunum. Vietnam
samtökin hafa tilkynnt, að um
100.000 manns muni á þeirra
vegum fara hópgöngu til þing
staðarins að kveldi 28. ágúst,
þegar endanlega verður val-
inn frambjóðandi flokksins.
Hippar og Yppar segjast aðal
lega ætla að skemmta sér að
sínum sið, þeir ætli að hafa
fjöldarökræður, nektarsam-
komur, dans- og söngsamkom
ur hvar sem þeir komi saman.
. Minni glaum, meiri alvöru
Þing bandarísku stjórnmála
flokkanna hafa löngum verfð
hávær mjög og mikið um
glys, myndir, spjöld, blöðrur,
konfetti og annað þess háttar.
Var til þess tekið á þingi
repúblikana á dögunm, að
einn af fáum ræðumönnum,
sem hefði fengið hljóð, hefði
verið leikarinn John Wayne.
Þar var tilskilinn tími ætlað-
ur til fagnaðarláta eftir að til
kynnt höfðu verið frambo’ð
og er eftir ýmsum haft, þar
á meðal Richard Nixon, að
þeim hafi þótt nóg um lætin.
Nú hafa tveir af keppinaut-
unum um forsetaframboðið í
demókrataflokknum, þeir öld-
vegna flokksþings demoKrata
- Humphrey og McGovern vilja draga úr látum og gauragangi
á þinginu en œtla meiri tíma til alvarlegra umrœðna
ungadeildarþingmaðurinn Ge
orge McGovern og Hubert
Humphrey, varaforseti, gerzt
talsmenn þess, að dregið verði
úr þessum látum á flokk^þing
inu. Governs sagði, að fram-
koma ungra og aldinna, eins
og hún gerðist á flokksþingi
væri ósmekkleg og í engu
samræmi við þau alvörumál,
sem þar væru rædd og tekn-
ar ákvarðanir um. Humphrey
hefur tekið undir þetta og
einnig lagt til, að tíminn á
flokksþinginu verði betur not
aður en áður til rökræðna og
ákvarðana um hin alvarlegu
mál, sem fyrir þinginu liggi,
að stefnuskrá flokksins verði
birt opinberlega sólarhring
áður en hún er tekin til um-
ræðu, að rétt áður en umræð-
ur um stefnuskrána hefjist
verði lesinn upp á að gizka
hálftíma úrdráttur úr henni,
þar sem saman séu tekin áðal
atriðin, að ræður við tilkynm
ingar um framboð verði tak-
markaðar við tíu mínútur, og
að hver frambjóðandi fái að-
eins að taka tvisvar til máls.
Loks vill Humphrey banna
hinar hávaðasömu hyllingar
frambjóðenda og fulltrúa.
Verði farið áð þessum tillög-
lögum, sem sennilegt er talið
að allir frambjóðendurnir séu
fylgjandi, a.m.k. McCarthy
auk hinna tveggja fyrrnefndu,
verður flokksþingið í Chicago
líklega með nokkru öðru sniði
en menn hafa átt að venjast
undanfarin ár.