Morgunblaðið - 17.08.1968, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1968
lengur. Hún veit ekki, hvað
hún eigi til bragðs að taka. Hún
heldur, að hún verði alveg brjál
uð, af eintómu meinmanaleika.
Pam tautaði eitthvert viðeig-
andi svar við þessu. Hana hefði
mest langað til að minna hann á,
að meðan eiginmaður Phyllis var
á lífi, hafði hún, að því er hún
bezt vissi, haft óbeit á honum
af öllu hjarta. En nú, þegar
hann var dauður lét hún eins og
þau hefðu verið afskaplega sam
rýmd hjón.
— En hún þarf sjálfsagt ekki
að vera einmana, sagði Pam. —
Getur hún ekki setzt að hjá ein-
hverju kunningjafólki sínu?
Hann stakk höndum í vasa og
horfði niður á fæturna á sér.
— Ég stakk einmitt uppá því
við hana, en hún vildi ekki
heyra það nefnt. Hún segist
ekki vilja vera hjá einum né
neinum. Til þess sé hún of stolt.
Hún vill horfast í augu við
þetta, ein síns liðs. Mér finnst
það hugrakkt af henni, finnst
þér það ekki líka? Og ég dáist
að henni fyrir það. En sem bet-
ur fer, verður hún ekki alveg
ein. Plantekran okkar er í ná-
grenni við hana, og ég hef lof-
að henni að riða þangað öðru
hverju og heimsækja hana.
— Nú, hefurðu það? hugsaði
Pam með sjálfri sér, og hún
brosti, en það var ekkert gleði-
bros. Phyllis ætlaði að nota
dauða mannsins síns, til þess að
ná fullkomnu taki á Jeff. Kverka
taki, hugsaði hún gremjulega.
Og hún mundi aldrei sleppa
honum aftur, ef hún gæti annað.
Pam furðaði sig á því, að Jeff
skyldi ekki sjá gegnum hana.
Hvað karlmenn gátu verið stein
blindir, þegar fögur kona var
annarsvegar!
Hún fylltist örvæntingu og
það meir 'en hún hafði nokkru
sinni áður gert. Var hún búin
að missa Jeff fyrir fullt og allt?
Átti hann að lenda i klónum á
Phyllis? Og við tilhugsunina
eina komst hún í frumstætt
hugarástand, jafnvel morðhug.
Phyllis var honum alls ekki sam
boðin. Hún var grknm, svikul
og fullkomlega eigingjöm. Hún
kærði sig ekki um eitt eða neitt,
nema sjálfa sig. Hún þóttist
vita, að ef Jeff giftist henni ein
hverntíma, yrði tilvera hans
hreint helvíti á jörðu. Gæti hún
bara einhvernveginn bjargað
honum úr klóm hennar! En
hvernig gat hún það? Hann
hafði ekki farið frá Phyllis
meira en örfáar mínútur, allan
daginn, og bráðum yrðu þau
komin til Rio. Og hvað gat hún
þá sjálf gert annað en taka sér
far með fyrsta skipi til Eng-
lands?
Hún hafði svo miklar áhyggj-
ur af þessu, að hún varð and-
vaka á nóttunni.
— Þú ættir að reyna að
hrista þetta af þér, Pam, sagði
Betty við hana, vingjaynlega.
Þú hefur svo miklar áhyggjur,
að það er farið að sjá á þér.
BEIMDIX
Vinsælasta hljómsveit unga fólksins.
Kynnt verður ný hljómsveit: Capri.
Fjerið verður í IÐNÓ í kvöld kl 9—2.
ÐMO
I
FANNHVÍTT FBÁ FÖNN
Húsmæður, hvílist frá dagsins önn,
hringið í FÖNN.
Þar sækja þeir og senda
þvottinn bæinn á enda.
Langholtsvegi 113 — Sími 82220.
Það eru komnir skuggar undir
augun í þér og þú hrekkur í
kút, hViinær, sem einhver ávarp
ar þig.
Pam píndi sig til að brosa. —
Fyrirgefðu Betty. Ég skal
reyna að taka mig á.
— Þú hefur verið svo hræði-
lega ofsakát, að það hefur farið
hrollur um mig, hélt Betty á-
fram. — Ef þú ert alvarlega
skotin í honum Jeff Maitland,
hversvegna reynirðu ekki að
ná honum frá þessari kvensu?
Pam hló vandræðalega. —
Þessi var góður! Heldurðu ekki
að ég mundi reyna það, ef ég
gæti? En hún er að nota sér af
vorkunnsemi hans.
— Jæja, þá ræð ég þér til að
fara eins að. Þegar við svona
kvenmann er að eiga dugar eng-
in samvizkusemi, og kannski
blekkir líka þessi uppgerð-
arkæti þín hann Jeff. Kannski
heldur hann, að þú skemmtir
þér prýðilega án hans. Láttu
hann sjá, að þú saknir hans.
Vertu ekkert hrædd við að láta
tilfinningar þínar í ljós. Stúlk-
ur tapa miklu meira á stolti, en
þær græða á því. Hafðu mín
ráð. Ég er búin að fara gegn
um þessa kvörn áður.
30
-- i
Pam hugsaði um þetta, og á-
kvað að fara að ráðum Betty.
Vitanlega þýddi ekkert að vera
með sorgarsvip, en daginn áð-
ur en komið var til Rio og hún
hitti Jeff og hann spurði hana:
„Jæja þá fáum við víst að
dansa í kvöld“ — því skipstjór
inn var að hafa einhvern gl'eð-
skap, í lok ferðarinnar, þá svar
aði hún: — Ég held mig langi
ekkert til að dansa í kvöld,
Jeff.
— Hversvegna ekki? Þú ert
MVKOIVIIÐ
f BEDFORD VÖRUBÍLA:
Húspúðar
Húspúðafestingar
Vatnshosur, allar st.
Hitamælar
Olíurofar
Bremsuljósarofar
Stefnuljósarofar
Númeraljós
Parkljós
Aðalljós
Hurðaskrár
Hurðalamir
Upphalarar
Rúðugúmmí
Vélahússlamir
o. m. fl.
VÉLVERK HF.
Bíldshöfða 8 - Simi 82452.
STANLEY
RAFMAGNS-SMERGEL
ÝMSAR STÆRÐIR
FYRIRLIGGJANDI
GAMALT VERB
. STORR.
Laugavegi 15, - Simi 1-33-33
HeyrirSu bergmálið.
orðinn betri í bakinu, og þér er
víst alveg óhætt að dansa.
— Jú, læknirinn sagði, að mér
væri óhætt að dansa dálítið,
svaraði hún, — en ég hef bara
engan herra.
Hann lyfti annarri augnabrún
inni og hleypti ofurlítið brúnum
— Hvað áttu við, Pam? Hér er
fullt af herrum um borð, sem
mundu með ánægju fara með þér
Þú, sam ert ein eftirsóttasta
stúlkan hérna um borð
Hún brosti ofurlítið — Já en
ég vil bara ekki fara með nein-
um þeirra, Jeff Ég vildi helzt
losna við það Ég ætla að fara
snemma í háttinn
— Já, en þú verður að fara,
Pam, nauðaði hann — Þú hefur
ekki nema gott af því að skemmta
þér eitthvað, eftir þessa bölvuðu
slysni með bakið á þér Viltu
fara ef ég bið þig að koma með
mér?
— Hvort ég vildi!
— Pam! Sem snöggvast brá
fyrir glampa í augum hans, s:m
líktist mest þeim, sem var í henn
ar augum Það varð stutt þögn
Og spenna En svo sagði hann
og röddin skalf ofurlítið:
— Þetta er stórkostlegt, Pam!
Eftir þetta fór hepni að standa
meira á sama um Phyllis Jeff
hafði beðið hana að verða dam-
an sín á dansleiknum Hann
hafði sýnt það með augnatilliti
sínu, að honum stóð ekkl á sama
um hana Og hver gat vitað,
hvað mundi gerast í kvöld?
Þetta átti að vera grímudans-
lieikur Hún var í mesta æsingi
allan daginn að búa sig undir
hann Hún gerði sér búning úi
grænum kjól, með festum úr
marglitum skeljum og perlum,
sem hún keypti af rakara skips-
ins Betty hjálpaði henni að
sauma búninginn Hún hló og
sagði:
— Jæja, nú er hið mikla tæki-
færi hjá þér kelli mín! Reyndu
nú að nota þér það til hins ítr-
asta! Þessi déskotans Bevans-
kvensa tekur hann, ef þú gerir
það ekki
Og Pam var ákveðin í að nota
tækifærið Hún byrjaði snemma
að búa sig, til þ;®s að líta sem
bezt út Og þessi búningur fór
henni virkilega vel Hún átti að
vera dóttir Neptúnusar
Hún var albúin því að Jeff
færi með hana upp í reyksaliinn
til að gefa henni eitt glas fyrir
kvöldverðinn, þegar þjónninn
barði að dyrum og rétti henni
orðsendingu Hún þekkti strax
rithönd Jeffs á henni Hún flýtti
sér að opna hana, en áður en
hún hafði lesið fyrstu línuna
heyrðist örvæntingaróp frá vör-
um hennar. og hún hneig niður
á legubekkinn og horfði örvænt
ingaraugum á blaðið
„Pam, elskan viltu afsaka
mig, að_ ég verð að svíkja þig í
kvöld Ég get loksins ekki far-
17. ÁGÚST.,.Hrúturinn 21. mrz — 19. apríl.
Freistandi er að gera einhver viðskipti, en það er ekki líklegt,
að þau beri tilætlaðan arð. Ljúktu bréfaskriftum.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Yngri kynslóðin tefur þig óþarflega í dag, haltu þig nærri heim-
kynnum þínum, og hlýddu ekki á söguburð.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júni.
Þú hefur mikið starfsþrek 5 dag, og mikið að starfa, en reyndu
ekki of mikið á þig.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Hvíldu þig, og farðu yfir liðnar vikur, og athugaðu rás atburða,
þér verður eitthvað gagnlegt ljóst. Farðu varlega í innkaupum.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Þér hættir til að eyða um efni fram, þótt enginn fari framá
slíkt við þig. Ráðgaztu um framtíðaráætlanir við ættingjana.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Það lifnar yfir félagslífinu, þú verður í sviðsljósinu. Taktu
lofi með hógværð.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Þótt þú sjáir eitthvað girnilegt, skaltu treysta varlega á gæðin.
Sá er vinur, sem í raun reynist, en ekki er komið að því enn, svo
að þú skalt bíða átekta.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Farðu vel með einkamálin, því að jafnvel vinir þínir kunna að
bregðast. Skemmtu þér eitthvað í kvöld.
Bogma®urinn 22. nóv. — 21. des.
Sumir eru gjarnari á að seilast í vasa þér, en góðu hófi gegnir
svo að þú skalt fyrir alla muni láta fjármálin liggja í láginni.
En reyn við einhverja útiiþrótt.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Þetta verður mjög erfiður dagur, þvi að alskyns tilviljanir
hafa áhrif á málin. Taktu vel etftir því, sem lerizt, og notaðu það
til staðfestingar, eða sem sönnunargögn.
Vatnsberinn 20. jan — 18. febr.
Sameignir, og aðrar auðlindir kunna að vera óáreiðanlegar 1
dag. Staðreyndir eru ruglingslegar. Gerðu einungis, það sem
hagkvæmt er.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Kastaðu ekki steini i náungann. Gættu fyllstu varúðar, heime
og að heiman. Reyndu að skipul*ggja mál þín betur.