Morgunblaðið - 17.08.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1‘9‘88
27
Haraldur J. Hamar, ræðir við Bjarna Benediiasson, forsætisráðherra í sjónvarpssal i gærkvöldi.
— Stjórnmálaflokk.
Framh. af bls. 1
þetta að hafa áhrif á afkomu
fólksins í landinu sagði forsætis
ráðherra og spurningin nú er sú,
hvort menn vilja sameinast um
lausn, sem leiði til þess, að nei-
kvæð áhrif verði sem minnst
eða hvort fljóta á sofandi að
feigðarósi. Það verður ekki eytt
meiru en aflað er. Mjög hefur
gengið á gjaldeyrissjóðinn og gó'ð
afkoma ríkissjóðs í upphafi erfið
leikanna var notuð til þess að
koma í veg fyrir alvarlega lífs-
kjaraskerðingu strax. Atvinnu-
vegirnir hafa tekið á sig miklar
byrðar og mega ekki við meiru
og almenningur hefur brugðizt
vel við. Verkalýðssamtökin hafa
sýnt mikinn skilning á erfiðleik
unum.
Bjarni Benediktsson kvaðst
hafa lýst því yfir á Alþingi í
fyrra að stjórnarflokkarnir teldu
sem ví'ðtækast samstarf æskilegt,
það hefði að vissu marki tekizt
við atvinnurekendur og verka-
lýðshreyfinguna en ekki við
stjórnarandstöðuflokkana.
Forsætisráðherra sagði að und-
anfarnar vikur hefði verið unnið
af kappi að því að kanna ástand
ið. Hann kva'ðst ekki telja tíma-
bært að ræða hugsanlegar að-
gerðir, þær mundu ræddar innan
ríkisstjói-narinnar og stuðnings-
flokka hennar og síðan væntan-
lega við stjórnarandstÖðuflokk-
— Papandreou
Framh. af bls. 1
dopoulosar. Nicolaidis flúði
Grikkland í maí í fyrra með
þeim ummælum, að það gæti
orðið „Vietnam við Miðjarð-
arhaf.“
Andreas Papandreou býr nú í
Stokkhólmi og fagnaði hann til-
ræðinu við Papadopoulos. Hann
kvaðst hafa bein og óbein sam-
bönd við frelsishreyfingar í
Grikklandi, en minntist ekki á
þá fullyrðingu, að þeir Panagoul-
is hefðu hitzt í París.
Gríska lögreglan fann 13.000
drökmur í plastpoka sem Pana-
goulis bar á sér, þegar ha&n
reyndi að komast undan eftir
mor’ðtilraunina, og annan gildari
sjóð heima hjá foreldrum hans
í úthverfi Aþenu.
Panagoulis var skrafhreyfinn
við yfirheyrslurnar og vísáði lög
reglunni á ýmsá staði í Aþenu,
þar sem hann hafði komið fyrir
litlum tímasprengjum. Að sögn
Stamatopoulosar áttu þessar
sprengjur að koma á ringulreið
og gefa í skyn að mikil sam|ök
ættu í baráttu við stjómina. —
Þetta eru klassísk hryðjuverk,
sagði talsmaðurinn, klassiskt
dæmi um fasisma í framkvæmd.
Mikil sprenging varð á bygg-
ingarlóð í m?ðri Aþ^mu í dag.
Engin slys urðu á fólki, en miklar
umferðartruflanir. Þetta var
fjórða sprengingin í Aþenu síðan
reynt var að myrða Papadopoul-
os.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að Konstantín Mitsotakis, fyrr-
verandi ráðherra, hafi nýlega
flúið land, en gríska lögreglan
hefur leitað hans í þrjár vikur.
Hann gagnrýndi í síðasta mán-
uði stjórnarskráruppkast stjórn-
arinnar og skoraði á hana að
segja af sér og leyfa Konstantín
konungi a'ð snúa heim.
Konstantín konungur, sem er
í útlegð í Róm, sendi í dag heillá
óskir til Papadopoulosar í til-
efni þess að hann slapp heill á
húfi.
Hinn ólöglegi kommúnista-
flokkur Grikklands (KKE) hef-
ur látið að því liggja í útvarps-
sendingu frú Búkarest eða Sofia,
að morðtilraunin hafi verið vand
lega undirbúin leiksýning til
Tilræðismaðurinn — Alexander
Panagoulis.
þess að vekja athygli almenn-
ings á Papadopoulosi. Fyrrver-
andi stjórnmálamaðux í Grikk-
landi, sem er harður andstæð-
ingur herforingjastjórnarinnar,
sagði í dag að nú væri tækifær-
ið fyrir Papadopoulos að hafa
almennar kosningar, ef hann
ætláði sér nokkurn tíma að vinna
sigur í kosningum. Papadopoulos
hefur þó ekki gefið imina vís-
bendingu um að hann hyggist
efna til kosninga, þótt hann
njóti nú meiri vinsælda en
nokkru sinni síðan hann komst
til valda 21. apríl í fyrra.
Talsmaður stjórnarinnar segir,
að símskeyti hafi borizt þúsund-
um saman frá Grikkjum og út-
lendingum, sem láta í ljós van-
þóknun sína á tilræðinu.
- LANDSPITALINN
Framhald af bls. 28
sjúkrahúsinu í Lundi gerfinýra
ásamt tilheyrandi búnaði, enn-
fremur aðstoð íslenzks læknis,
Þórs Halldórssonar, einis tækni-
fræðings og sérmenntaðrar
hjúkrunarkonu. Þór Halldórs.son
hefur starfað hjá prófessor Al-
wall í Lundi síðastliðið eitt og
hálft ár.
Til að byrja með er gert ráð
fyrir að Þór Halldórsson verði
hér í tvo mánuði, og ter á meðain
í orlofi frá sjúkrahúisinu í Lundi.
Um framhald á þessari þjónustu
í Landspítalanum má geta þess,
að sótt hefur verið um leyfi til
stjórnvalda að ráða að spítal-
anum sérfræðing í nýrna-
sjúkdómum og sköpuð verði
nauðsynleg starfsaðstaða.
Atvikin hafa nú gripið svo
inn í afgreiðslu þessa máls, að
það þolir illa bið. Til bráða-
birgða hefur orðið að leggja nið
ur sex rúma sjúkrastofu í eldri
spítalanum, og er gerfinýranu
komið þar fyrir og gerfinýra-
meðferðin framkvæmd þar.
Þeir tveir nýrnasjúklingar,
s:im komu heim frá London síð-
astliðinn þriðjudag og garnga
undir þessa meðferð, liggja ekki
á siúkmhúsinu. Hver einstök
gerr .amieðferð standur yfir
í um það bil sjö klukkustundir
og er gert ráð fyriir að hvor
sjúklingur gangi undir slíka með
ferð tvisvar í viku. Sjúklingur-
inn kemur í spítalann að morgni
til, en fer síðan heim til sín að
kvöldi til.
(Frá skrifstofu ríkisvpítalanna)
Bræln ó síldor-
ntiðunum ullo
síðusíu viku
BRÆLA hefur verið á síldarmið
unum og hefur ekkert skip til-
kynnt um afla síðan á mánudag.
Flest munu skipin halda sig á
miðunum, en nokkur eru á leið
tll lands.
Síldarleitin á Raufarhöf gaf í
gær þær upplýsingar, að tvö síld
arflutningaskip, Haförninn og
Nordgard væru nú á miðunum
ásamt mörgum veiðiskipum og
væri ekkert aflað vegna brælu.
Síðast hefði verið tilkynnt um
afla sl. mánudag Oig hefðu það
verið fjögur skip.
- SALTVÍK
Framhald af bls. 28
verður flugeldasýning og varð-
eldur og dansað verður til kl. 2.
Á sunnudeginum er búist við að
borgarbúar fjölmenni í Saltvík,
en þar verður þá skemmtidag-
skrá, sem hefst kl. 2 með knatt-
spyrnuleik Mbl. og Sjónvarps-
en í því liði eru margir þjóð-
kunnir menn fyrir margt annað
en knattspyrnu. Matthías Jó-
hannessen les ljóð og Hljómar
flytja lög etfir Árna Johnsen
við ljóð Matthíasar, Gunnar oig
Bessi skemmta og Ómar Ragnars
son skemmtir, Roof Tops og Trix
leika og syngja og á Saltvíkur-
svæðinu er góð aðstaða til leikja
úti og inni, kriket, borðtennis, í-
þróttir o.fl.
Sætaferðir verða frá B.S.f. á
laugardag og sunnudag eft-
ir þörfum. Nokkuð hefur verið
um það undanfarið að fjölskyld-
ur kæmu á laugardögum og
sunnudögum í Saltvík og dveldu
þar daglanigt og einnig hafa
margir tjaldað.
- BIAFRA
Framh. af bls. 1
með Haile Selassie keisana. Líf-
ið hefur miðað í samkomulaigB-
átt á fundunum, og ákvað keiis-
arinn því að. reyrna að fá leiðtoga
deiluaðila, þá Gowon henshöfð-
ingja og Ojukwu ofunsta, til að
korna samam til fumdar leiðtoga
fimm hlutlausra Afríkuríkja. Nú
þegar Gowon hershöfðinigi hefur
neitað að vierða við tilmælum
keisarans, verður að sjálfsögðu
ekkert úr fundinum.
f útvarpi frá Biafra í dag er
skýrt frá lofbárásum Nígeríu-
stjórnar á þorp á norður-víg-
stöðvunum. Segir þar að 12
mannis, þeirra á meðal fjórar
konur, hafi beðið bama í árás-
unum, en að öðru leyti hafi flug-
vélunum orðið lí'tið ágengt. Seg-
ir útvarpið eninfremur að Níger-
íuher hafi ekki tekizt að ná þuml
ungi lands úr höndum varnar-
sveita Biafrastjiórnar í bardög
unum undanfaTÍnn hálfan mán-
uð, en tilraunir þeirra hafi kost-
að þá 450 maimmslíf.
Ástaindið í flóttamainniabúðum
í Biafra fer dag-versnaindi, og í
frétt frá aðalskrifstoíum Rauða
krossins í Geinf segir að milljón
ir mamna í Biafra líði sult og
þurfi nauðsynlega á skjótrihjálp
að halda. Hafa tvær kristilegar
líknarstofnanir og Barnaihjálpar
sjóður SÞ (UNICEF) samvinnu
við Alþjóða Rauða krossinn um
að reyna að koma vistum til bág
staddra í Biafra, og segja þessi
samtök að tvær til þrjár mill-
jómir búi nú við sáran siult í Bi-
afra. Um 500-750 þúisund manns
búa i flóttamannabúðum, og í
sumum þessara búða er ekki mat
arögn til. Verst leikur sulturinn
smábörn.
Ný flugleið
Flugi með matvæli til Biafra
hefur að mestu verið hætt i bili
vegna þess að loftvarnarskyttur
Nígeríustjórnar bafa skotið á all
ar flugvélar á leið þangað, jafn
vel á flugvélar merktar Rauða
krossinum. Ein flugvél fiutti þó
tíu tonn af matvæ^um til Biafra
á þriðjudag, og var sú flugvél á
vegum kaþólsku líknarstofn-
unarinnar Caritas. Stjórnandi vél
arinnar var sænski greifinn Carl-
Gustav von Rosen, og áhöfnin
ö’l sænsk. Fann von Rosen að
sögn nýja flugleið til Biafra, og
komst fram og til baka án þess
að verða fvrir skothríð frá loft-
varnarskyttum Nígeríustjórnar.
Flugleiðinni er haldið leyndri,
en voin Rosen hefur heitið því að
skýra öðrum flugstjórum, sem
vilja flyt.ja vistir til Biafra, frá
henni í trúnaði. „Og mér er sama
hvort þeir ætla að flytja vopn
eða matvæli, Biafrabúar þarfn
ast hvors tveggja ef þeir eiga að
halda ;ífi“, sagði greifiinn.
Von Rosen greifi er ýmsu van
ur og þaulæfður flugmaður. Ár-
ið 1935 hóf hann sjúkraflug til
Eþíópíu á vegum Rauða kross-
ins, og hélt því flugi áfram eftir
að hersveitir Mussolinis höfðu
lagt landið undir sig. 1939 flaug
hann sem sjálfboðaliði í finnska
flughernum, og fór margar
sprengjuferðir til Sovétríkjanna.
Að styrjöldinni lokinni stundaði
hainn flutninga á vegum Rauða
krossins, og flaug með Gyðinga,
sem verið höfðu í útrýmingar-
búðum Hit'ers. Síðan vann hann
að þjálfun flughers Eþíópíu sam
kvæmt beiðni Haile Selassies keis
ara, og loks var hann í tvö ár
flugstjóri á vegum Sameinuðu
þjóðanna í Kongó.
Flugvél von Rosens hélt af
stað í aðra ferð sína til Biafra í
dag frá Malmö, og var Bengt
Lundwall nú flugstjóri, en hann
var aðstoðarflugstjóri í ferðinni
á þriðjudag. Seinkaði vélinni
um tvær klukkustundir á flug-
vellinum í Malmö vegna þess að
hringt var í flugturninn þar
skömmu fyrir áætlað flugtak og
kynnt á ensku að sprengja
væri í vélinni. Var leitað í vél-
inni, en þar var enga sprengju
að finna.
Ræðir við U Thant
Carl-Gustav von Rosen greifi
er nú heima í Svíþjóð, og átti í
dag samtal við Tage Erlander,
forsætisráðherra. Bað hann for-
sætisráðherrann að aðstoða sig
við að ná fundi U Thants fram-
kvæmdastjóra SÞ. Hefur sænska
stjórnin falið sendifulltrúum sín
um hjá SÞ að koma þessari ósk
von Rosens áleiðis til skrifstofu
U Thants, að því er segir í til-
kynningu utanríkisráðuneyt-
isins.
Olof Stroch, framkvæmda-
stjóri sænska Rauða krossins,
skýrði fréttamönnum frá því í
Stokkhólmi í dag að samtökin
hefðu ákveðið að senda lækna
og hjálparsveitir, alls um 100
manns, til Biafra. Flytja sveitirn
ar með sér matvæli, bifreiðar og
tjöld. Verða sveitirnar fluttar
flugleiðis til Biafra frá eynni
Fernando Po þrátt fyrir hótan-
ir yfirvalda í Nígeríu um að
skotið verði á allar flugvélar
á leið til Biafra.
Carl-Gustav von Rosen (þriðji frá vinstri) og félagar hans úr fyrstu ferðinni til Biafra