Morgunblaðið - 21.09.1968, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPT. 1968.
13
Grískur harmleikur
á íslenzku leiksviði
í Morgunblaðinu, 18. sept.
1968, skýra forráðamenn Leik-
félags Reykjavíkur frá verkefn
um þeirra samtaka á leikári því
sem nú fer í hönd.
Þar stendur m.a. orðrétt: „Má
þar af nefna Antigónu Sófokles-
ar, og verður það í fyrsta sinn,
að grískur harmleikur er tekinn
til sýningar á íslenzku sviði“.
Við þessi ummæli vildi undir-
ritaður koma á framfæri eftir-
farandi athugasemd: Hinn 9. feb.
1954 sýndu nemendur í 6. bekk
Verzlunarskóla fslands harm-
leikinn „PERSA“ eftir Aiskýlos
á árshátíð skólans, nemendamót-
inu, í Sjálfstæðishúsinu og síðan
var þessi sýning endurtekin í
Austurbæjarbíói fyrir foreldra
og aðra aðstandendur nemenda.
Leikstjórn hafði Klemens
Jónsson leikari, annast af ein-
stakri alúð og vandvirkni, en
þýðinguna hafði undirritaður
gert. Þetta er, að því er ég bezt
veit í fyrsta skipti, sem grískur
harmleikur er sýndur á íslenzku
sviði. Þótti nemendum hafa
tekizt svo vel flutningurinn, að
forráðamenn Ríkisútvarpsins
fengu þá til að flytja leikinn
einnig þar í útvarp. Gazt hlust-
endum hið bezta að leiknum og
flutningi hans, eins og fram kom
m.a. í ummælum blaða.
Síðan flutti Ríkisútvarpið
harmleikinn Antigónu eftir Só-
fókles í þýðingu undirritaðs.
Leikstjórn annaðist Indriði
heitinn Waage af sinni alkunnu
vandvirkni og snilld.
Kom hér hið sama á daginn og
þegar harmleikurinn PERSAR
hafði verið fluttur áður, aðhlust
endur tóku leiknum mjög vel og
var farið lofsamleg'um orðum um
hann, flutning hans og þýðingu
í dagblöðunum.
Síðar gaf ísafoldarprentsmiðja
út þessa þýðingu á Antigónu.
Tilgangurinn með þessum lín-
um er auðvitað engan veginn sá
að skyggja á nokkurn hátt á hið
lofsverða framtak Leikfélags
Reykjavíkur, heldur hinn, að
sjálfsagt er að hafa það í hverju
máli, er sannara reynist.
Jón Gíslason
Fjáröflunardagur
Sjálfsbjargar
Sunnudaginn 22. september er
hinn árlegi fjáröflunardagur
Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra.
Þá munu félagar selja merki
og blöð samtakanna. Tíu ár eru
á þessu ári liðin frá stofnun
fyrstu félaganna, og er starf-
semi samtakanna mikil og vax-
andi og félagatala hátt á ní-
unda hundrað.
Helztu kappsmál samtakanna
er bygging Vinnu- og dvalar-
heimilis Sjálfsbjargar við Hátún
12 í Reykjavík. Verður það
byggt í tveimur áföngum, og var
lokið við að steypá hinn fyrri í
júlí s.l.
Vonast félagsmenn til að geta
tekið bygginguna í notkun á ár-
inu 1971. Þar eiga að vera 45
einstaklingsherbergi, fyrir mik-
ið fatlað fólk, matsalur og setu-
stofa. Fullkomið eldhús fyrir
alla bygginguna, æfingastöð,
húsnæði gervilimasmiðs og orto-
pedisks skósmiðs.
Fólk, sem þarna verður, er nú
í svipinn, niðurkomið á elliheim-
ilum, sjúkrahúsum, eða í heima-
húsum, þar sem lítil aðstaða er
til að veita þeim aðhlynningu.
Bíður þessi hópur með eftir
væntingu þess, að geta fengið
Vestfirðingar
sækja beitu
á sildarmiðin
BEITULAUST er nú á Vestfjörð
um og því hafa frystihúsin þar
gripið til þess ráðs að senda skip
á síldarmiðin til að afla beitu.
Eru Guðrún Jónsdóttir ÍS og Mím
ir ÍS farin á miðin með ís og
munu skipin kaupa síld á míð-
unum og flytja hana ísaða til
Vestfjarða. Á laugardag mun
Guðbjartur Kristján leggja af
stað í beituöflun og einnig er ætl
unin, að Hafrún frá Bolungarvík
flytji beitusíld til Vestfjarða.
Baldux Jónsson. fr.kv.stj. Hrað
frystihússins Norðurtanga hf. á
ísafirði, tjáði Morgunblaðinu í
gærkvöldi, að þessar aðgerðir
kæmu ekki til með áð leysa öll
beituvandamál Vestfirðinga í
haust, vetur og vor, en áætluð
beituþörf er ekki undir 1500 tonn
Fyrsti áfangi byggingar Sjálfsbj argar við Hátún.
sama^tað, sem sniðinn er eftir
þörfum hans.
Byggingin hefur nú þegar
kostað sautján og hálfa milljón.
Kostnaðaráætlun fyrri áfanga
var fyrir gengisfellingu fimmtíu
milljónir króna, og má gera ráð
fyrir nokkurri hækkun. Má því
sjá, að mikið átak er framund-
an við öflun fjár til framkvæmd
anna.
í fjárlögum 1968 var samtök-
unum veitt ein og hálf milljón
króna, og vonast forráðamenn
samtakanna til þess, að ekki
verði þar staðar numið.
Danir gáfu sexhundruð tutt-
ugu og fimm þúsund ísl. krón-
ur, og Svíar gefa fimmtíu þús-
und sænskar krónur til bygging
arinnar, en Sjálfsbjörg er í nor-
rænu sambandi fatlaðra.
í ágústbyrjun hóf Sjálfsbjörg
á Akureyri rekstur plastverk-
smiðju á Akureyri, sem ber sama
nafn og félagsheimili Sjálfsbjarg
ar á staðnum, Bjarg.
Verða þar framleiddar fyrst
um sinn tengidósir fyrir raflagn
ir, bæði í loft og veggi. Ætlun-
in er að leggja áherzlu á að
framleiða sem flesta plasthluti,
sem notaðir eru í raflögnum.
Vænta samtökin mikils af rekstri
verksmiðj unnar.
Tímaritið Sjálfsbjörg, fjöl-
breytt að efni kemur nú út í 10.
sinn. Verður það og merki Sjálfs
bjargar selt um allt land, sölu-
staðir eru rúmlega fimmtíu.
Félagsdeildir Sjálfsbjargar ann
ast söluna, hver á sínum stað.
Þar sem ekki eru starfandi deild
ir, sjá velunnarar samtakanna
um söluna.
í Reykjavík, Kópavogi, Garða
hreppi og Hafnarfirði verða
merkin afhent í barnaskólum.
Einnig verða sölubörn afgreidd
að Marargötu 2, og á skrifstof-
um Sjálfsbjargar, Bræðraborgar
stíg 9, Reykjavík.
Aðalfundur Presta-
félugs Austurlunds
AÐALFUNDUR Prestafélags
Austurlands var haldinn að Eið
um dagana 14. 15. september s.l.
Formaður félagsins, séra Þor-
leifur Kjartan Kristmundsson,
flutti skýrslu um starf félags-
ins á árinu. Vék hann m.a. að
fermingarbarnamóti, sem félagið
stóð fyrir s.l. vor og að sumar-
búðastarfi, en sumarbúðir á veg
um þjóðkirkjunnar voru reknar
í fyrsta sinni í Austfirðinga-
fjórðungi á þessu sumri. Sumar-
búðastarfið hafði gengið vel, en
þó orðið nokkur halli á rekstr-
inum.
Á fundinum fluttu erindi: Séra
Tómas Sveinsson, er talaði um
ráðsmennsku kristins manns, séra
Ágúst Sigurðsson, en hann
ræddi um sögu kirknanna undir
Ási og að Valþjófsstað, og séra
Kolbeinn Þorleifsson, sem gerði
grein fyrir rannsóknum sínum á
sögu Jóns Þorkelssonar, skóla-
meistara.
í stjórn félagsins á næsta
starfsári voru kjörnir þeir séra
Sigmar Torfason, formaður, en
séra Trausti Pétursson og séra
Kolbeinn Þorleifsson, meðstjóm-
endur.
Að kvöldi laugardags var al-
menn guðsþjónusta í Eiðakirkju,
en á sunnudag fóru prestar að
Ási og tóku þátt í afmælishátíð
sóknarkirkjunnar þar.
(Frá Prestafélagi Austurlands)
VORtGEYIUSLA
Verzlunarfyrirtæki vil taka á leigu 300—400 fermetra húsnæði
á jarðhæð. Upphitun æskileg en ekki nauðsynleg, ef húsnæðið
er vel loftræst.
Upplýsingar um leiguskilmála o.þ. h., sendist blaðinu fyrir 30.
þ.m. merktar: „Vörugeymsla — 6815“.
Heimamyndatökur
við öll tækifæri. Á stofu
barna- og fjölskyldumyndir í
correct coloux, á laugardögum
kirkj-uat'hafnir og brúðkaup.
Eina stofnun er boðið getur
correct colour hér á landi.
Pantið með fyrirvara.
Stjörnuljósmyndir
Flókag. 45, sími 23414.
Sendisveinn
ósknst
strax allan eða hálfan da-ginn.
SiudgömlíónssoiiaQihi
Hafn-arstræti 9.
ÍSFIRÐINGAR OG NÁGRENNI.
Snyrtisérfræðingur
frá
ORLAN E
verður til viðtals og leiðbeininga
í verzluninni föstudaginn 27. og laugar-
daginn 28. september.
Snyrtivöruverzlun ísafjarðar
Hafnarstræti 1, ísafirði.