Morgunblaðið - 21.09.1968, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.09.1968, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPT. 1968. fHmgtiitfrlftfrtfe Utgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltríii. Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald kr 120.00 I lausasölu. Hf Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjamason frá Vigur Matthias Johannessen. Eyjólfux Konráð Jónsson. Þorbjöm Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Ami Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími 10-100. Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. á mánuði innanlands. Kr. 7.00 eintakið. TOGARARNIR LANDA HEIMA Dæjarútgerð Reykjavíkur ® hefur ákveðið, að togar- ar fyrirtækisins landi afla sín um til vinnslu hér heima en sigli ekki með hann. Þessi ákvörðun BÚR er mjög þýð- ingarmikil og stuðlar að auk- 'inni atvinnu í borginni. Landanir togaranna heima eru eitt af mörgu, sem hægt er að gera til þess að örva atvinnu í landinu. Ríkisstjórn in hefur ákveðið að takmarka mjög heimildir til þess að láta fara fram viðgerð á skipum erlendis en beina þeim verkefnum í þess stað til innlendra dráttarbrauta og vélsmiðja. Um þessar mundir er rætt um það, hvort strandferðaskipið Esja verði sent utan til viðgerðar. Þess ber að vænta, að unnt reyn- ist að framkvæma þá viðgerð innanlands. Ríki og sveitarfélög geta einnig átt verulegan þátt í því að örva atvinnu með því -^að beina verkefnum til inn- lendra aðila, jafnvel þótt kostnaður sé nokkru meiri en ef verkið væri framkvæmt erlendis. Þannig hljóta allir aðilar að leggjast á eitt um að bægja vofu atvinnuleysis frá í haust og vetur. Með samstilltu átaki allra aðila er það unnt. TVÆR TILLÖGUR A ndstæðingar Sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykjavíkur halda því oft fram, að borgarstjórnarmeiri- hlutinn felli allar tillögur minnihluta flokkanna í borg- arstjóm. Á fundi borgarstjórnar í fyrradag voru samþykktar tvær tilögur frá borgarfull- trúum Alþýðubandalagsins, um skipun atvinnumálefna og um borgarmálaráðstefnu. Samþykkt þessarar tveggja tillagna sýnir, að borgarstjórn armeirihluti Sjálfstæðis- manna vegur og metur hvert mál eftir efni þess, en ekki eftir því hver flytur það. HÁTT TIL LOFTS OG VÍTT TIL VEGGJA A ukaþing ungra Sjálfstæðis- manna hefst eftir viku. Undirbúningur að þingi þessu hefur þegar vakið mikla at- hygli og má búast við, að þingið valdi nokkrum straum hvörfum meðal ungs fólks. 1 viðtali sem Mbl. birti í gær við Jón E. Ragnarsson, annan af varaformönnum Sambands ungra Sjálfstæðismanna sagði hann m.a.: „Við teljum okkur standa á tímamótum og um leið og við krefjumst siðbót- ar í stjórnmálum teljum við nauðsynlegt að efla á þess- um síðustu og verstu tímum samstöðu þess unga fólks, sem el^ki óskar þess að vera tann- hjól í ríkismaskínunni en trú ir á mátt sinn og megin, á framtak einstaklingsins, frelsi hans, land sitt og þjóð.“ í framhaldi af þessum hressilegu ummælum, er rétt að undirstrika það, að Sjálf- stæðismenn hafa jafnan fagn að nýjum hugmyndum, sem komið hafa fram innan flokks þeirra, ekki hvað sízt frá sam tökum ungra Sjálfstæðis- manna. Þess vegna eru líka miklar vonir tengdar við auka þing SUS, sem kemur saman eftir nokkra daga. Ekkert er eðlilegra en að ungt fólk gagnrýni samtíð sína, og krefjist þess að í þjóð félagi þess sé hátt til lofts og vítt til veggja. Um þá krötfu skipa allir Sj álfstæðismenn sér, hvort heldur þeir eru ungir eða gamlir. Það er líka eðlilegt að irnga fólkið óski aukinna áhrifa. En að sjálfsögðu hljóta áhrif þess að fara eftir lífsmætti hug- sjóna þess og hætfileikum til þess að skilja þarfir þjóðar sinnar. ATHYGLISVERÐ- AR KOSNINGAR ¥ fyrradag fóru fram ákaf- * lega athyglisverðar kosn ingar í Starfsmannafélagi stjórnarráðsins, er kosnir voru fulltrúar á þing B.S.R.B. Formaður B.S.R.B., Kristján Thorlacíus, sem verið hefur fulltrúi Starfsmannafélags stjómarráðsins á þingum B. S.R.B. kolféll við fulltrúakjör ið og hlaut aðeins 4 atkvæði en þeir sem kosnir vora hlutu 40—43 atkvæði. Mun sjald- gæft að forastumaður í félags samtökum hljóti <Pvo algjört vantraust þeirra, sem áður hafa kjörið hann til trúnaðar starfa. minnir einna helzt á persónur úr kvikmyndum frá 1920. Wallace er hörundssár og það er eitur í hans beinum, ef skopazt er að honum. Hann tekur gamanmál og brandara óstinnt upp, að minnsta kositi ef það er á hans kostnað. Hann bar það mjög heiftug- lega til baka fyrir skemmstu, að hann burstaði tennurnar með skítugum tannbursta, eins og TIME hafði sagt frá. Og ekki fór það siður í taugarnar á honum, er News- fylgi hans fer stöðugt vaxandi komast hjá flóknum lausnum á málunum. Speki Wa'llaoe ristir ekki djúpt. Hugmyndir hans í þjóðfélagsmálum sverja sig í ætt við sósial- isma. Það kom berlega í ljós meðan hann var ríkisstjóri í Alabama, en þá varði hann TÆPLEGA ár er liðið síðan George C. Wallace, fyr- verandi ríkisstjóri í Alabama, ákvað að takast á við það verk, sem flestir töldu von- laust og fyrirfram dauða- dærnt, að koma flokki sínum, sem er kallaður Flokkur ó- háðra bandarískra kjósenda, á kjörseðilinn í öllum ríkjum Bandaríkjanna við næstu for- setakosningar. í næstu viku hefur hann fullnað þetta verk. Honum hefur tekizt það, sem engum þriðja forseta- frambjóðandanum um forseta Bandaríkjanna, hefur tekizt síðan Teddy Roosev/elt '1912. f fyrsta skipti í meira en hálfa öld fara fram kosningar milli þriggja frambjóðenda, og það í fullri alvöru. George Wallace hefur neytt meðfram bjóðendur sína til að viður- kenna, að þeir verða að reikna með honum. Það er ekki hæðzt að Wallace lengur, menn geta ekki lengur leitt hann hjá sér sem ofstopa- mann og öfgasegtg, sem að- eins fáir einir muni fylgja. Margir horfa frekar á með skelfingu, að barátta hans virðist ætla að bera ávöxt. Vaxandi fylgi Wallace á undanförnum vikum í flest- ríkjum Bandaríkjanna hefur gert þeim ljóst, sem stjórna kosninga baráttu hans, að hann hefur nú orðið raun- verulega möguleika á því að verða forseti. Wallace leggur aðaláherzluna á, að afla sér fylgis í þeim 25 ríkjum, sem ráða yfir 357 kjörmannaat- kvæðum, en ti'l þess að sigra þurfti hann stuðning 270. Leið Wallace að því marki, sem hann hefur náð hefur að sjálfsögðu verið erfið og mörgum þyrnum stráð. Hann er fæddur í Barbour í Ala- bama, árið 1919. Faðir hans var fátækur bóndi, og móðir hans fékkst við tónlistar- kennslu. Wallace hefur orðið að berjast fyrir ödlu, sem hann hefur öðlazt, enda hef- ur hann ekki hlíft sér. Frá því er sagt sem dæmi um fá- tækt hans á yngri árum, að þegar hann giftist Lurleen konu sinni var hann svo fé- vana, að hann gat aðeins boð- ið brúði sinni og tengdamóð- ur upp á samloku með kjúkl- ingasálati á ódýru kaffihúsi. Ekki er vafi á því, að utan Bandaríkjanna, er Wallace einkum þekktur fyrir einstr- engislega afstöðu sína til kyn þáttamála. Sú afstaða hans hefur valdið því, að haturs- menn á hann fleiri en flestir bandariskir stjórnmálamenn, en þessi afstaða hans hefur einnig aflað honum mikils fylgis meðal íháldsafla og öfgamanna sem eiga mikil í- tök í Bandaríkjamönnum ein- kum í Suðurríkjunum. Stefna Wallace og skoðanir eru einfaldar og liggja ljósar fyrir og höfða mjög til þeirra fáfróðari og þeirra sem, vilja George Wallace hærri fjárupphæðum til heil brigðismála en pokkur ann- ar fyrirrennari í embætti í Alabama hafði gert. George Wallace er langt frá því að vera glæsimenni á ve'lli hann er lágvaxinn og lítill fyrir mann að sjá og sópar hvergi að honum. Göngulagið ^iiOuer'ÝifFiEi ÍlirtVore tfímu'PiJWMi’* 19 fOtfM’ é'lilnieVfiífioe. 7f5r fnoote ftíllU í'.'Por 6mm(ötirT lnlnl. ýlirRnfrtffcíf IhJáii. Io^ítIau ?ut> Cnotft. '}6trh Pmés Baráttumál frambjóðandans samkvæmt grein í Newsweek: Akið bílnum yðar yfir Hippa Vinnið stríðið — með ein- hverju móti. Hendið skjalamöppum skrif- finnanna í fljótið. Akið bílnum ykkar yfir Hipp ana. Hendið skriffinnum í fijótið. Veifið fánum Setjið svindlara í fangelsi Setjið Hæstairétt í fangelsS Setjið bleiku pressuna í fang- elsi. Komið á lögum og reglu Látið lögguna stjórna land- week sagði frá því fyrir skemmstu, að ein mesta raun, sem siðfágaður maður gæti lent í, væri að sitja til borðs með Wallace, þar s : m kjamsið og smjattið heyrðist langar leiðir. Þó að Wallace og stuðnings menn hans geti þegar hrósað nokkru happi og stöðugt auk- ist fylgi hans, mun Wallace sjálfur varla vera trúaður á að hann uppskeri þau laun erfiðis síns að komast inn í Hvíta húsið. En hann hefur unnið það mikla afrek að ráða aðalbaráttumáli kosning anna, það sem snýr a lögum og reglu og aga í landinu. Allir frambjóðendurnir eru sér fullkomlega meðvitandi um, að það mál skiptir banda- ríska kjósendur megin máli, afstaðan til Víetnamstyrjald- arinnar hefur orðið að þoka um set. Skoðanakannanir undanfarið hafa spáð Wallace 15-22 prósent atkvæða. Flest mun hann sjálfsagt fá í Suður ríkjunum, fleiri mun hann hijóta frá .Humphrey en Nix- on. Óeirðirnar sem urðu meðan flokksþingið í Chieago stóð yfir, svo og horfur á átökum og ólgu víða í Bandaríkjunum á næstunni verða vatn á myllu Wallace, sem boðar af- dráttarlausari og harðari stefnu í þeim málum, en keppinautar hans tveir. Hver svo sem úrslit kosning anna verða hefur George Wallace tryggt sér sess í bandarískri stjórnmálasögu FeriTl hans er einstakur, frami hans lygilegur svo að hliðstæða fyrirfinnst varla. ||1 AN IÍR HFIMI \iiiv U1 nli Ul\ ÍILIIVII

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.