Morgunblaðið - 11.10.1968, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 196«
Júlíus Bernburg, bifreiðaeftirlitsmaður, og Skuli Sveinsson, varðstjóri, athuga ljósastillingar
með einum af starfsmönnum Ljósastiliingastöðvar FÍB. (Ljósm. Mbl.: Sv. í>orm.)
Spennandi körfu-
knattleikur í kvöld
— Tekst körfuknattleiksmönnum okkar
að halda í bandarísku atvinnumennina?
Mistök
í Ijósa-
stillingu
AÐ undanförnu hefur herferð
gegn vanstilltum bílljósum ver-
ið háð hér í Reykjavík. Hefur
mönnum verið gefinn kostur á
að láta athuga ljós bifreiða
sinna endurgjaldslaust. Allmörg
verkstæði tóku þátt í þessari
herferð, en brátt kom í ljós, að
mikið af bifreiðum, sem stilltar
höfðu verið á Ljósastillingastöð
Félags íslenzkra bifreiðaeigenda
voru ekki eins og þau áttu að
vera.
Samkvæmt upplýsingum
Skúla Sveinssonar, aðalvarð-
stjóra á lögreglubílaverkstæcl-
inu, tóku starfsmenn verkstæðis
ins eftir því að bílar, sem þang-
að komu og stilltir höfðu verið
hjá FÍB höfðu ekki rétt stillt
ljós. Bifreiða.ftirlitið gekk í
málið og kom þá í ljós, að 2 af
3 stillingarspjöldum verkstæðis-
ins voru röng og gáfu ekki rétta
útkomu. Var annað ljósið mikl-
um mun lægra, en hitt og alls
ekki eins og það átti að vera.
Þessi mistök voru þegar í stað
leiðrétt og spjöldin lagfærð.
Hafa vafalaust allmargir látið
stilla ljós sín á verkstæðinu og
þyrftu þeir að athuga, hvort þeir
hafi lent á hinum gölluðu spjöld
um. Starfsmenn FÍÐ voru algjör-
lega grandalausir og vissu ekki
um galla spjaldanna.
ALLS voru í árslok 2730 sjúkra-
rúm á öllu landinu, samkvæmt
upplýsingum úr nýútkomnum
Hagtíðindum. Flest sjúkrarúmin
eru í Landsspítalanum eða 310.
Næstflest sjúkrarúm eru á geð-
I KVÖLD leika í íþróttahöllinni
í Laugardal bandaríska atvinnu-
manna körfuknattleiksliðið frá
Gilette-verksmiðjunum og úr-
valslið, sem landsliðsnefnd KKÍ
hefur valið. Þótt vertíð körfu-
knattleiksmanna sé ekki hafin,
þá hafa þeir æft sérstaklega fyr-
ir þennan leik, og má því gera
ráð fyrir góðum leik í „Höli-
inni“ í kvöld.
íslenzka úrvalsliðið skipa
eftir taldir menn: Agnar
Friðriksson ÍR, Birgir Ö. Birgis
Á, Birgir akobsson ÍR, Gunnar
Gunnarsson KR, Hjörtur Hans-
son KR, Jón Sigurðsson Á, Kol-
beinn Pálsson KR, Kristinn
Stefánsson KR, Ólafur Thor-
FYRIR nokkru vakti ég mál á
því, að stofnaður yrði stynktar-
sjóður til h jálpar heyrnardaufum
bömum, mieð minningargjöf,
veikrahælinu á Kleppi eða 280.
í þriðja sæti, hvað varðar
fjölda sjúkrarúma er Elliheimilið
Grund, sem er sjálfseignarstofn-
un með 200 sjúkrarúm.
St. Jósefsspítali við Túngötu
í Reykjavík er næstur í röðinni
með 190 sjúkrarúm. Spítalinn er
sjálfseignarstofnun, en á eftir
honum er Fávitahælið í Kópa-
vogi með 145 sjúkrarúm. Stærsta
sjúkrahúsið úti á landi er Sjúkra
hús Akureyrar með 128 sjúkra-
rúm. Fæst eru sjúkrarúm í
Sjúkraskýlinu á Þórshöfn — að-
eins 3.
lacíus KFR, Sigurður Helgason
KFR, Örn Þorsteinsson KR og
Þórir Magnússon KFR.
Sundþjólfun
hjd ÍR
ÆFINGAR hjá sunddeild Í.R.
eru nú hafnar. Fara þær fram
í Sundhöll Reykjavíkur, mánu-
daga kl. 20—21, miðvikudaga kl.
20—22 og föstudaga kl. 20—22.
Þjálfari sundfólksins er ólafur
Guðmundsson.
sem boðin var fram í þessu
skyni.
Uppástunjgumni var vel tekið,
sjóðurinn er nú stofnaður og
fjársöfnun hafin.
í því sambandi hefur Austur-
bæjarbíó ákveðið að gefa í sjóð-
nn það sem nn kemuir fyrir eina
bíósýningu. Það verður kvöld-
sýning n.k. föstudag á hinni
ágætu mynd Austan Edens,
eftir heimsfrægri skáldsögu John
Steinbeek. Með aðalhlutverk
fer James Dean, sem á sínum
tíma var einn af þekktustiU og
vinsælustu leikurum Banda-
ríkjanna.
Ennfremur verður þá og
næstu kvöld á sama tírna, happ-
drætti í forsal hússins um
nokkrar fallegar brúður, sem
litlum telpum þykir sérlega
gaman að, og geta orðið minja-
gripir vegna þess, hvernig til
þeirra er stofnað.
Það er von þeirra, sem eru
að reyna koma máli þessu áleið-
is, að almenningur leggi því lið,
með því að sækja sýninguna
og fá sér þá happdrættismiða
um leið.
Aðalbjörg Sigurðardóttir.
2730 sjúkrarúm voru
á landinu um áramót
Styrktarsjóður fyrir
heyrnardauf börn
Minna veiðarfæra-
slit í Norðursjó
— segir Einar Árnason, skipstjóri,
— sem nýkominn er af miðunum
EINAR Árnason, skipstjóri á
Ólafi Sigurðssyni frá Akranesi,
kom heim af miðunum í Norð-
ursjó sl. sunnudag. Mbl. hafði
tal af Einari og spurðist fyrir
um veiðarnar.
— Ég fór suður eftir þegar
ég hafði reynt til þrautar við
Spitsbergen og var kominn á mið
in 25. júlí. Fyrstu tveir túrarn-
ir voru lélegir, enda vorum við
ekki með kassa til þess að ísa
í síldina. Mér líst ákaflega vel
á þessar veiðar, því að þær hafa
alla kosti fram yfir veiðarnar
norðurfrá. Við þessar veiðar er
mjög lítið veiðarfæraslit, þar eð
nóg er að fá 40 til 50 tonn á
viku — eitt kast í túr.
Á þessum slóðum voru 14 til
15 íslenzkir bátar og auk þess
eitthvað af Færeyingum, en þeir
veiddu allir í bræðslu. Heildar-
ssilan hjá okkur var fyrir 107
Hæstn vinn-
ingnr í HHÍ
FIMMTUDAGINN 10. október
var dregið í 10. flokki Happ-
drættis Háskóla Islands. Dregnir
voru 2,400 vinningar að fjárhæð
6,900,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500,000
krónur, kom á heilmiða númer
42.523. Voru báðir heilmiðamir
seldir í umbo'ði Frímanns Frí-
mannssonar, Hafnarhúsinu.
100,000 krónur komu á hálf-
miða númer 17.005. Tveir hálf-
miðar voru seldir í umboði Am-
dísar Þorvaldsdóttur, Vesturgötu
10, einn hálfmiði hjá Frímanni
Frímannssyni í Hafnarhúsinu og
sá fjórði á AkranesL
10,000 krónur:
5358 6920 7594 7655 8453
9826 12506 12981 17196 17994
18237 19115 19335 19788 21649
22106 22294 22926 23378 24151
24398 27005 27275 27448 27675
29461 32196 32665 35154 36756
40660 41977 42496 42522 42524
43585 44218 44634 45514 45718
45954 46735 48865 49573 50711
50711 52112 52832 54006 54144
55579 55826 55993 56404 56621
56849 58006 58378 59754.
(Birt án ábyrgðar).
Rjúpnoveiði
leyfð eftir 15. okt.
HINN 15. október næstkomandi
hefst veiðitímabil rjúpnaveið-
anna og er þá leyfilegt að skjóta
rjúpur fram til 22. desember.
Morgunblaðið hefur frétt að
nokkur brögð hafi verið að því
að undanfarin ár, — og farið
vaxandi, að skyttur fari til
rjúpna áður en leyfistímabilið
hefst. Taldi heimildarmaður blaðs
ins ástæðu til að vekja athygli
þeirra er gæta skulu laga og rétt
ar, á þessu.
Jeon Poulhnn
lntinn —
JEAN Paulhan, sem talinn hef-
ur verið með fremstu rithöfund-
um Frakka á síðari tímum ,lézt
i París í dag 83 ára að aldri eft-
ir langvarandi veikindastríð.
Paulhan átti sæti í frönsku aka-
demíunni.
þúsund mörk eða um það bil
1.530.000 krónur. Seldum við að
allega í Bremenhaven eða 4 sinn
um og einu sinni í Cuxhaven. í
fyrsta túrnum fengum við 70
tonn af makríl. Torfan leit út
sem væri um síld að ræða áður
en við köstuðum, en aflann gát
um við þó selt í bræðslu í Leir-
vík á Hjaltlandi.
— Nú ætla ég að reyna við
síldina hér suðvestanlands. Ég
er nokkuð vongóður, því að síð
astliðinn sunnudag fengu tveir
bátar ágætan afla, Geirfugl og
Hamravík 100 og 70 tonn. Ekk-
ert hefur fengizt síðan, þar eð
bræla hefur verið.
— Á Norðursjó var einnig mik
ið af Þjóðverjum. Virtust þeir
fá betri síld en við íslending-
arnir. Síldin, sem þeir fengu var
Öll hrognfull. Þeir voru á dálft-
ið öðrum stað en við, sem vorum
við norðurodda Hjaltlandseyja,
sagði Einar að lokum og bætti
við:
— Nú ef ekkert fæst hér suð
vestanlends, fer maður auðvitað
austur.
- LITVINOV
Framhald af bls. 1
það yrði ekki á neinum fjölförn-
um stöðum né í nágrenni
Moskvu.
Fimmmenningarnir voru á-
kærðir samkvæmt tveimur
greinum í sovézku hegningarlög-
gjöfinni, og er samkvæmt þeim
er hægt að dæma ákærðu í alit
að þriggja ára fangelsi. Alazov
sagði, að höfð hefði verið hlfð-
sjón af annarri grein í sömu lög
um, þar sem heimilað er, ef sér-
stök ástæða þykir til, að fara
fram á vægari refsingu. Sagði
hann að þessi heimild hefði ver-
ið notuð varðandi þau dr. Lit-
vinov, Larissu Daniel og Bab-
itsky, þar eð ekkert þeirra hefði
hloti’ð dóm áður. Delone hefur
aftur á móti verið dæmdur áð-
ur í svipuðu máli, eftir að hann
mótmælti réttarhöldunum yfir
þeim Alexander Ginsburg og
Juri Galanskv í janúar sl. Tass
fréttastofan segir, að fimmti sak
borninguriinn Dramljuga hafi
áður verið dæmdur fyrir svarta
markaðsbrask.
Þegar Almazov var spurður að
því fyrr í dag, hvart lögð myndi
áherzlu á pólitísku þýðingu mót-
mælaaðgerða sakbominga, sagði
hann: „Hér er verið áð fjalla um
mál sem snertir lög og reglu og
óspektir á almannafæri. Þetta
er ekki pólitískt mál og hvergi í
yfirheyrslum hefur verið minnzt
á stjórnmál né stjómmálaskoð-
anir.“ Almazov sagði við sama
tækifæri að fimmmeningunum
hefðu verið ljósar staðreyndir
málsins, en þau teldu sig þrátt
fyrir það vera saklaus.
í gær sagði Larissa Daniel við
yfirheyrslu, að hún hefði talið
nauðsynlegt að sýna andúð á
innrásinni og hún gæti ekki séð
að hún hefði brotið lög.
Fyrir utan dómshúsið höfðu
um fjörutíu aðstandendur og
stuðningsmenn sakborninga safn
azt saman. Þá þyrptust allmargir
ungkommúnistar, verkamenn og
embættismenn, sem létu óspart
í Ijóst fyrirlitningu á fimmmenn
ingunum, sem inni voru yfir-
^eyrð, kölluðu þá fasista og hylltu
sovétstjórnina fyrir að hafa grip
ið til hernaðaríhlutunar í Tékkó
slóvakíu. NTB fréttastofan seg-
ir, að allmargir úr síðarnefnda
hópnum hafi gert hrpp að vest-
rænum blaðamönnum, sem þarna
voru fyrir.