Morgunblaðið - 11.10.1968, Blaðsíða 32
Óbreytt hlutdeild Fl
í Færeyjaflugi
EINN framkvæmdastjóra SAS
Johannes Nielsen hefur neit-
að frétt, sem birtist í Mbl. sl.
laugardag, og höfð var eftir
Arge, fréttaritara blaðsins í
Þórshöfn, um það að SAS
hafi boðið Flugsambandi
Færeyja hluta Flugfélags Is-
lands í Færeyjafluginu, en
þær upplýsingar komu fram
á aðalfundi Flugsambands-
ins. Kom þetta fram í fær-
eyska útvarpinu í gær, en þar
var viðtal við Nielsen.
Samkvæmt upplýsingum
Arge fréttaritara Mbl. í Fær-
eyjum sagði Nielsen að slíkt
tilboð hefði aldrei komið
fram, þar eð SAS hefði ekki
getað hafið beina samninga
um málið á meðan lands-
stjóm Færeyja hefði ekki til-
kynnt SAS hvaða aðilar
hefðu umboð til að semja fyr
ir landsstjórnina og Flugsam
bandið. „Tilboð þessi hafa
hins vegar alls ekki verið
borið fram“, sagði Nielsen,
„og við höfum samning við
Flugfélagið um samvinnu í
Færeyjafluginu til 1. apríl
1971“.
Ólafsvíkurbátar
sigla utan
ÓLAFSVÍK. 10. öktóber. — Bát-
ar hafa ekkert róið frá Ólafsvík
síðan um helgi, vegna þrálátrar
norðanáttar. Einn bátur er nú
tilbúinn að hefja síldveiðar hér
sunnanlands strax og veður leyf-
ir og munu sennilega fleiri bátar
byrja síldveiðar héðan, ef sýnt
þykir að um eitthvert magn síld-
ar verður um að ræða.
Tveir bátar eru nú í söluferð-
um með fisk á erlendan markað
og hefur annar þeirra Lárus
Sveinsson þegar selt í Grimsby
og fékk hann gott verð fyrir
afla sinn. Var hann með um .36
tonn, sem hann seldi fyrir 6089
sterlingspund eða að jafnaði 23
krónur á hvert kg, en mikill
hluti aflans var flatfiskur. Hinn
báturinn Jón á Stapa, fór héðan
í gær til Englands.
Bæði frystihúsin, sem tekið
hafa á móti fiski til vinnslu í
sumar og haúst eru nú starf-
rækt, en annað þeirra, Kirkju-
sandur htf, var lokað fyr-
ir nokkru, vegna vangoldinna
vinnulauna og annarra fjárhags-
örðugleika. Nú hefur eitthvað
'raknað úr þessu og var húsið
opnað á ný fyrir skömmu.
— Hinrik.
„Dögun“ seldist á 110 þúsund kr.
,,Dögun" seldist
á 110 þús. kr.
— Hœsta verð sem um getur á
listaverkauppboði hérlendis
51 hús rifið á árinu
— Gömlu húsin í Kvosinni týna tölunni
AFSTEYPA af höggmynd Einars
Jónssonar, „Dögun“, seldist fyrir
110 þúsund krónur á uppboði
Sigurðar Benediktssonar á Hótel
Sögu í gær. Mun það vera hæsta
verð sem listaverk hefur selzt á
uppboði hérlendis. Fyrsta boð
sem í höggmyndina kom hljóð-
aðj upp á 50 þúsund krónur, en
síffan hækkuðu boðin jafnan um
5 þúsund krónur unz myndin var
seld Emi Johnson fyrir 110 þús.
kr.
Stóra Kjarvalsmálverkið, „Álfa
björg“, seldist á 72 þúsund kr„
en yfirleitt fóru minni Kjarvals-
málverkin á 8—10 þúsund kr.
Málverkin tvö eftir Ásgrím
Jónsson, Úr Húsafellsskógi og
Frá Bildudal seldust á 40 og 43
þúsund krónur. Málverk Jóns
Stefánssonar: Hestar j sumar-
haga seldist á 40 þúsund krónur,
og málverk Kristínar Jónsdóttur,
„Nature morte“ og Við Njarðar-
götu seldust á 20 þúsund krónur
hvort.
Slökkviliðið enn
nð Þdrustöðum
EKKERT hefur komið fram,
sem skýrt getur óyggjandi elds-
upptök á Þórustöðum í Ölfusi í
fyrnadag, en þar bnann fjós og
hlaða, á þriðja hundrað svín
köfnuðu og bóndinn varð fyrir
stórfelldu tjóni. Slökkviliðið var
enn á staðnum síðdegis í gær.
Rannsókn málsins heldur áfram.
Erfitt var um vik, vegna roks
og var ekki unnt að bylta heyj-
um af þeim sökum. f gær var
hins vegar lygnara, en segja má
að allt hafi brunnið sem brunn
ið gat. í gær voru trygginga-
menn að kanna tjónið.
FRÚ Elísabet • Friðriksdóttir,
ekkja Jóns Betúelssonar, skó-
smiðs hefur gefið Hinu íslenzka
biblíufélagi húseignina Bræðra-
borgarstíg 34 í Reykjavik. Hér er
um veglega gjöf að ræða, en þau
hjón höfðu ákveðið þetta áðúr
en Jón lézt fyrir um það bil
tvemur árum.
Ekki muai afráðið, hvenær
Bibliufélagið flytzt í húsið, en
aðsetur þess í tuirni Hallgirims-
kirkju, er e<nn fullnægjamdi
félaigitnu.
ÞJÓFURINN, sem stal sprengi-
efninu í Kópavogi og brauzt
skömmu síðar inn í Ingólfs
Apótek og stal þaðan miklu
magni af taugaróandi töflum,
hefur nú játað á sig- átta innbrot
til viðbótar.
í flestum þessara innbrota
hafði hann lítið sem ekkert upp
úr krafsinu, en í eitt skiptið
komst hann yfir 10 þús. krónur
VERIÐ er að*rífa gamalt hús
í Gr jótaþorpi — Mjóstræti 8, en
húsið hefur verið eign Reykja-
víkurborgar í nokkur ár. Hefur
borgin leigt það út til íbúðar.
Hús þetta hverfur vegna affal-
skipulags borgarinnar, en sam-
kvæmt því á Suðurgata að liggja
um Grjótaþorp eins og kunnugt
er.
Samkvæmt upplýsingum Pét-
urs Hannessonar hjá borgarverk
fræðingi, verða fleiri hús rifin í
Fundum 30. Iðnþings íslend-
inga var haldið áfram í Félags-
heimilinu Stapa í Ytri-Njarðvík
í dag.
í morgun voru tekin fyrir álit
nefnda .Álit allsherjarnefndar
um erindi Félags réttingamanna
um að bifreiðaréttingar verði
gerðar að sérstakri löggiltri iðn
grein var samþykkt samhljóða
eftir miklar umræður, en alls-
herjarnefnd lagði eindregið gegn
því að erindi félagsins yrði 3am
þykkt, enda tilheyra bifreiða-
réttingar nú þegar tveim iðn-
greinum, bifreiðasmíði og bif-
vélavirkjun.
Síðdegis var rætt um skipu-
lagsmál landssambandsins og
var því máli vísað aftur til
nefndar og annarrar umræðu.
í peningum.
Svo sem Morgunblaðið hefur
skýrt frá, er aðeins litill hluti
töflumagns þess, sem stolið var
úr Ingólfs Apóteki, kominn í leit
irnar. Þjófurinn ber því við, að
hann hafi grafið þýfið L malar-
bing fyrir utan hús sitt, en þrátt
fyrir leit þar hefur ekkert frek-
ara fundizt.
Grjótaþorpi á næstunni. Tölu-
verðar tilfæringar þurfti til að
geta rifið húsið. Þurfti m.a. að
flytja háspennulínu, svo að unnt
væri að koma að kranabíl.
Það sem af er árinu hefur 51
hús verið rifið á vegum Reykja-
víkurborgar á árinu. Að vísu er
ekki alltaf um að ræða íbúðar-
hús, en mikil hús engu að síður.
Niðurrif húsanna eru vegna
skipulags.
Þá var tekið fyrir álit fjármála-
nefndar og gerðar ályktanir um
Iðnaðarbanka fslands h.f. ,Iðn-
lánasjóð, endurkaup framleiðslu
víxla, iðnfyrirtækja og innflutn
ings- og tollamál iðnaðarins. Enn
fremur beindi iðnþingið þeim til
Framhald á bls. 31
Þrengingar hjá
kaupfélaginu i
Ólafsvik
ÓLAFSVÍK, 10. október. —
Laugardaginn 5. október sl. fór
fram uppboð á vörulager í þrota-
búi Kaupfélags Snæfellinga, Ól-
afsvik. Var lagerinn boðinn upp
í einu lagi að beiðni Sambands-
ins og fór uppboðið þannig fram.
Tveir aðilar buðu í góssið, Sam-
bandið og Hjörtur Guðmundsson,
Ólafsvík. Lagerinn var sleginn
Sambandinu á kr. 810 þúsund,
en var talinn að verðmæti á
útsöluverði um 2 milljónir.
í gær miðvikudaginn 9. okt.
var verzlunarhús Kaupfélagsins
selt á uppboði og hreppti Sam-
bandið það einnig. Var það sleg-
ið því á krónur 2,2 milljónir.
— Hinrik.
Jntnði ó sig 8 innbrot
Iðnþingi lýkur í dag