Morgunblaðið - 11.10.1968, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.10.1968, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 196« Þingsetningarrœða forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns: „Til Alþingis lítur þjdöin um úrræði og forustu“ Fyrsti stórviðburður sögu vorr ar næst landnáminu sjálfu var stofnun Alþingis, sem vér höf- um fyrir satt að yrði ári’ð 930 á Þingvöllum við Öxará, ag eru þá liðin 1038 ár síðan. En frá því Alþingi var endurreist hér í Reykjavík eftir að hafa legið niðri um skeið, eru 123 ár. Frá þeim tímamótum er þetta 104. samkoma Alþingis, en síðan Al- þingi fékk löggjafavald 1874 er þetta hið 89. þing í röðinni, en 71. aðalþing. Hálf öld er nú liðin, siðan ís- land varð, fullvalda ríki. Árfð 1918 ber hátt í sögu þings og þjóðar, og vér mmnumst þess sérstaklega á þessu ári. '' Upprifjim nokkurra ártala við setningu Alþingis er til þess fall in að minna á hina löngu og merku sögu, sem þessi stofnun á að baki. í þjóðfélagi voru eru flestar stofnanir ungar að árum, þar á meðal margar af mikil- vægustu og virðulegustu stofn- unum landsins. Alþingi er hins vegar nokkum veginn jafngamalt þjóðinni sjálfri. Þótt saga þess sé ekki með öllu í órofnu sam- hengi og gengið hafi á ýmsu um völd þess og virðingu á ýmsum skeiðum þessa langa tíma, er það eigi að sfður sama stofnunin frá upphafi vega og fram á þenn an dag. Hlutverk þess nú er hið sama og þá, að setja þjóðinni lög, greiða veg hennar í hverjum vanda, sem að höndum ber og finna nýjar leiðir henni til heilla í veraldlegum og menningarleg- um efnum. Til Alþingis lítur þjóðin um úrræði og forustu, og þeirrar ríkisstjórnar, sem ábyrgð ber fyrir þvi, til þess sækja aðr- <ar stofnanir styrk sinn. Hjá Al- þingi vonast þjóðin eftir frum- kvæði að góðum málefnum og stúðningi við góð málefni, sem fram koma utan þingsala. Störf og áhrif Alþingis varða líf og hag hvers manns í landinu, þau ráð, sem það ræður, eru sam- tvinnuð öllu þjóðlífinu. En hagur og viðgangur þjóðar á hverri líðandi stund er undir ýmsu kominn. Margt er í því efni, sem mannlegur máttur fær ekki við ráðið. Veður ræður akri, sögðu fommenn, og það gerir þáð enn. Auðlindir nýtast misjafnt frá einu skeiði til ann- ars og frá ári til árs, og um það getum vér íslendingar úr flokki talað, sem búum við harla mis- jafnt árferði til lands og sjávar. - Liggur í augum uppi, hve mjög heill og gengi þjóðarinnar er háð áhættusömum atvinnuveg- um vorum. Þótt nú ári ekki vel, kennir sagan oss, að harðari veðr áttu geti verið að vænta en nú er þessi árin, og er rétt að láta sér ekki sjást yfir það. En sagan kennir einnig, að góð og vond ár, erfi'ð og hagsæl tímabil, skiptast á. Góðu árin eiga að bæta hin upp, og það er stjórnvizka að stuðla að því, að svo verði. Veð- ur ræður akri, en vit syni, kváðu fornmenn og vissu, að hvort tveggja gat brugðið til beggja vona. Það vitum vér einnig og reyndar meira. Vér vitum, að vit sonarins, í vfðri merkinigu, á að bæta úr þeim misbresti, sem óhjákvæmilega verður á akr inum öðru hverju. Vér eigum að vísu mikið undir veðri og vind- um, en þó á þjóðin, þegar á allt er litið, mest undir sjálfri sér, hvemig hún vinnur verk sín, að hver hönd njóti sín að hagnýtu starfi og njóti sín sem bezt. Það skiptir mestu máli. Búið þarf margs við, og störfin em marg- vísleng, en öllum er þeim það sameiginlegt, að svo farnast bú- inu bezt, að þau séu vel unnin. Til þess þarf menntun og kunn- áttu í starfi, hvert sem það er, og það siðferði að vilja vinna verk sitt vel og kunna að meta það sem vel er gert. En þótt satt sé, að vel unnin verk, hverju nafni sem þau nefn- ast, séu undirstáðan að góðu gengi þjóðarinnar, er því ekki að neita, að misjafnlega mikil ábyrgð fylgir störfum manna. Þeir, sem hljóta að taka mikils- verðar ákvarðanir, sem varða hag allrar þjóðarinnar, em í sérstöðu að þessu leyti, því að árangurinn af góðri viðleitni hinna getur far ið eftir því, hvemig þeim tekst tiL Alþingismenn eru öðrum fremur í slíkri ábyrg'ðarstöðu. Þjóðin hefur kjörið yður, góðir alþingismenn, sem fulltrúa sína og trúnaðarmenn til vandasamra starfa í elztu og virðulegustu stofnun sinni. Þar vinnið þér yðar verk. Stundum er á orði haft, að Alþingi njóti ekki þess álits í vitund almennings, sem það ætti að gera og eitt sinn var. tJr því held ég sé of mikið gert. Hitt er heldur, að menn hafa ef til vill ekki hlítar áttað sig á, að Alþingi vinnur nú öðru vísi en áður, meðan viðfangsefni voru færri og fábreyttari en nú. Alþingi styðst nú í rikara mæli en áður var við sérfræðilega þekingu utanþingsmanna, og störf þingmanna gerast fullt eins mikið á umræðufundum og í nefndum eins og í málstofum - MINNING Framhald af bls. 22 ur þá mörgum erfið landtakan á ströndum himnaríkis, ef honum hefur hlekkzt á í lendingunni, svo mikill indælisdrengur sem hann var. Þegar ég fór til ekkju Guð- mundar vinar míns til að fá tíma sett ýms æviatriði, þá kom á dag inn, að ég hafði gleymt gleraug- unum mínum, en ég þarf orðið all-sterk gleraugu við lestur eða skriftir og sé ekki staf án þeirra. Ég hafði strax orð á því að ég yrði að snúa heim aftur til að sækja gleraugun og stóð upp til að fara. Áður en ég varð var við gleraugnaleysið, hafði ég tekið upp blokk, sem ég hafði párað á áður en ég fór að heiman nokk- ur atriði, sem ég þurfti að spyrja um. Þegar ég nú ætlaði að stinga blokkinn á mig um leið og ég færi, þá blasti við mér það sem ég hafði punktað hjá mér heima og það var þá eins læsilegt fyrir mér eins og ég hefði mín sterku gleraugu. Ég varð skiljanlega meira en lítið hissa, settist aftur og tók til að skrifa eins og ég hefði fulla og ágæta sjón, og lauk erindinu. Þegar ég kom heim var það mitt fyrsta verk að taka hand- skrifaða örk, sem lá á skrifborð- inu til að fullvissa mig um, hvort sjón mín hefði tekið einhverjum verulegum breytingum og skyndi legum til bóta og það væri til frambúðar. Það rann allt útí eitt fyrir mér á þeirri örk. Það hafði þá ekki verið nema meðan ég var að hripa niður æviatriði Guð- mundar vinar míns að sjón mín hafði skerpzt. Það er margt furðulegt í þessum heimi og þetta var ekki einleikið. Það hefði ekki verið ólíkt þeim látna að vilja taka af mér krókinn við að hlaupa eftir gleraugunum, eða kannski hefur hann víljað láta aðstandendur sína vita, að hann væri ekki eins langt í burtu og þeir máski héldu í sorg sinni. Ásgeir Jakobsson. þingsins. Þótt þannig beri minna á einstökum alþingismönnum en áður var, hygg ég að fólk viti, að þeir skilja veg sinn og vanda, og líti í trausti til þeirra um for- ustu mála sinna. Ég veit, a’ð alþingismenn þurfa engrar brýningar við eða áminningar um þær skyldur, sem á þá eru lagðar. En það get- ur aldrei verið ófyrirsynju að minna á, hve mikið þjóðin á undir því, að Alþingi og ríkis- stjóm farnist giftusamlega störf sín. Og allra sízt er það ófyrir- synju nú við setningu þessa þings, sem á fyrir höndum að glíma við alvarlegri vandamál en við hefur verið að etja lengi. Um þau vandamál hafa rá’ða- menn þjóðarinnar rætt opin- skátt mánuðum sarnan. Engum dylst, að þjóðin á í miklum efna hagsörðugleikum og þarf mikils með til að verjast stóráföllum. Og það dylst heldur engum, að þetta þing verður að takast á við vandann. Þá bjartsýni verð- ur að leyfa sér, að vona að því aúðnist að finna þær leiðir, sem færastar eru, eftir öllum mála- vöxtum. Sú er von þjóðarinnar og sú er ósk mín þessu þingi til handa. Eins og yður er kunnugt, er ég fyrir skömmu kominn til þess embættis, sem færir mér þá skyldu og virðingu að höndum að setja Alþingi Islendinga. Margir yðar, sem ég nú stend frammi fyrir, eigið að baki yðar langan feril í þessari stofnun. En þó að ég sé nýliði hér, er mér það ánægjuefni að hafa um langt skeið verið persónulegur kunningi margra alþingismanna, þar á meðal margra ýðar, sem nú eigið sæti á Alþingi. Og vegna þess embættis, sem ég gegndi áð- ur, hef ég átt góð samskipti við marga yðar, alþingismenn úr öll- um stjórnmálaflokkum. Það embætti, sem þjóðin hefur nú kjörið mig tiL felur í sér nýtt og annars konar samstarf við yður. Til þess samstarfs hygg ég gott eitt. Ég býð yður alla heila til þings komna. Ég óska þess, að heill og blessun megi fylgja störfum Alþingis. Ég bið yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar Dr. Kristján Eldjárn, forseti lslands flytur þingsetningar- ræðu sina. Rússneskur diplomat rekinn frá Italíu Sakaður um njósnir, 4 ítalir handteknir Róm 7. október NTB-Ap. ITALSKA stjórnin hefur vís- að rússneskum sendiráðsstairfs- manni úr landi fyrir njósnir og janfframt hafa fjórir ítalir verið handteknir. Þetta er í þriðja skipti á þrem árum sem Rússa er vísað úr landi fyrir njósnir. Sendiráðið í Róm neitaði að gefa nokkra umsögn um málið. Tveir ítalanna störfuðu í utan ríkisráðuneytinu, en hvorugur var í hárri stöðu. Annar þeirra annaðist fjölprentunarvél, en hinn var spjaldskrárritari. Sá sem annaðist fjölprentunarvél- foa gerði aukaeintök af mikil- vægum skjölum, sem hann fékk miíligöngumanni í hendur, en sá kom þeim aftur til Rússa. Það var ítálska gagnnjósnastofnun- in sem handtók hann þegarhanm var að afhenda milligöngumanm- inum leyniskjal. Eftirlit hefur verið haft með honum síðan í maí, þegar í ljós kom að hann gerði aukaeintök af sumum skjölum. Hann hefur ekki verið handtekinn fyrr því gagnnjósnastofnunin vildi afla frekari gagna og reyna að finna fleiri sem væru viðriðnir njósna- starfsemina. Mennirnir tveir, sem voru utan ráðuneytisins eru verzlunarmenn, en hafa ekki verið nafngreindir, búizt er við fleiri handtökum innan skamms. Þau skjöl sem ítalarnir seldu Rússum fjölluðu m.a. um utan- ríkisverzlun- og sambönd Ítalíu og um samninga landsins við NATO. Að sögn munu ítalarnir aðeins hafa njósnað fyrir pen- inga, ekki af stjórnmálaástæðum. Tvær Starfighter þotur furust Bonn, 9. okt. (AP-NTB9 Tvær vestur-þýzkar orustu- þotur af Starfighter-gerð fórust í dag, og með þeim að minnsta kosti tveir flugmenn. Þotur þess ar eru smíðaðar í Vestur-Þýzka- landi samkvæmt bandarískum teikningum og hafa reynzt mestu gallagripir. Alls hafa nú 90 þotur af þessari gerð farizt, og með þeim 46 flugmenn. Önnur Starfighter-þotan fórst 'í Westfalen nálægt Lúhnen í Ludingshausenhéraði. Fórst flug maðurinn, sem í henni var. Hin þotan var kennsluvél, og í henni tveir menn. Hrapaði vélin við Weser-ósa og fannst lík annars flugmannsins í brakinu, en hins er saknað. Sjómenn varaöir viö — að fara til Noregs í atvinnuleit Sendiráðið í Osló hefur mælzt til þess, að sjómenn og aðrir verði varaðir við því að fara til Noregs í atvinnuleit, nema þeir hafi tryggt sér atvinnu, enda hafi þeir öll skilríki í lagi. Talsverð brögð eru að því, og virðist færast í vöxt, að íslenzk- ir sjómenn komi til Noregs í at- vinnuleit. Eru þeir venjulega vegalausir og án nauðsynlegra gagna, en til þess að fá skip- rúm verða þeir fyrst og fremst að leggja fram skilríki, sem sýna siglingatíma þeirra (sjóferða- bók) og hegningarvottorð. Atvinnuástandi á norskum skipum er nú þannig háttað, að mjog erfitt er fyrir erlenda sjó- menn a'ð fá skiprúm, enda þótt öll skilríki þeirra séu í lagL (Frá utanríkisráðuneytinu).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.