Morgunblaðið - 11.10.1968, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 196«
11
1111
Forsíða bókarinnar Vor við sæinii. Myndin á kápnnni er
eftir Sverri Haraldsson listmálara.
26 lög Oddgeirs
ÁÐUR en Oddgeir Kristjáns-
son lézt hafði hann gengið frá
handriti að bók með 26 söng'-
lögnm, sem hann hafði gert.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
var þá búin að samþykkja að
styrkja útgáfu á lögum Odd-
geirs. Nú er þessi bók að
koma á markaðinn, en hún
var prentuð í Austurríki.
Bókin heitir Vor við sæinn,
og á forsíðu bókarinnar er
mynd frá Vestmannaeyjum
eftir Sverri Haraldsson, list-
málara.
Svava Guðjónsdóttir, kona
Oddgeirs, er útgefandi bók-
arinnar, en bókin verður seld
í hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur.
Oddgeir Kristjánsson varð
þjóðkunnur maður fyrir sín
vinsælu lög, sem mörg hver
voru samin í tilefni þjóðhá-
tíðar Vestmannaeéja ár hvert,
en þau hafa margoft orðið
landfleyg og nú síðast með
flutningi sextetts Ólafs Gauks
á Oddgeirshljómplötunní í
sumar. Lög Oddgeirs hafa
unnið hug bæði eldri sem
yngri, gömul og ný.
í bókinni Vor við sæinn,
eru textar við lögin eftir hina
ýmsu höfunda og má þar
nefna m. a. : Ása í Bæ, Jóhann
Sigurjónsson, Árna úr Eyjum,
Loft Guðmundsson og Tómas
Guðmundsson.
Færð yfirleitt sæmileg
á helztu þjóðvegum
— Unnið að mokstri nokkurra fjallvega í gœr
FÆRÐ var í gær allgreið á
helztu þjóðvegum landsins nema
á nokkrum fjallvegum. Verið var
í gærdag að moka veginn yfir
Möðrudalsöræfi, Fjarðarheiði og
Oddsskarð, og einnig var vegur-
inn milli Raufarhafnar og Þórs-
hafnar opnaður. Þá var Ólafs-
fjarðarmúúli þungfær, og aðeíns
fær stórum bílum.
Að öðru leyti er færðin milli
Reykjavíkur og Akureyrar all-
sæmileg. Þó þarf að fara yfir
Stóru-Giljá í Húnavatnssýslu á
vaði, vegna viðgerðar á brúnni.
Er veitt þar aðstoð á venjuleg-
um vinnutíma ef þörf krefur.
Á Vestfjörðum er vegurinn yf
ir Þingmannaheiði ófær, en verð
ur mokaður í dag, ef veður leyf
ir. Þá var í gær verið að aðstoða
fjárflutningabíl yfir Þorskafjarð
arheiði úr Djúpinu.
Viðskiptolræðingur óskost
Hálfopinber stofnun óskar að ráða viðskipta- eða
hagfraeðing til starfa nú þegar eða fljótlega.
Sá sem ráðinn verður mun einkum vinna við data-
söfnun, úrvinnslu þess og birtingu niðurstaða, ásamt
skipulagningu á framtíðarverkefnum stofnunarinnar.
Góð laun fyrir góðan mann.
Þeir sem vilja kynna sér starfið, leggi nákvæmar
upplýsingar um eigin persónu og starfsferil inn & «f-
greiðslu blaðsins merktar: „Trúnaðarmál — 2072“.
18 mánaða fangelsi
fyrir að eiga byssu
Aþenu og London 8. október
NTB—AP
FYRRVERANDI sjóliðsforingi í
gríska flotanum, Konstantin
Loundras, er áður hafði hlotið
viðurkenningu sem striðshetja,
var í gærkvöldi dæmdur í 18
mánaða fangelsi, þrátt fyrir það,
að ákæruvaldið hefði einungis
farið fram á, að hann hlyti 6
mánaða fangelsi. Það var herdóm
stóll, sem kvað upp þennan dóm
og var Loundras gefið að sök
að hafa haft í fórum sínum
skammbyssu og eitthvað af skot
færum. Loundras er kvæntur
Helenu Vlachos, kunnum blaða-
útgefanda og andstæðingi grísku
herstjórnarinnar. Flýði hún til
London, eftir að herstjómin
komst til valda.
„Þetta sýnir tómt hatur“, sagði
Helena Vlachos um dóminn yfir
manni sínum. „Hér er í raun-
inni alls ekki um það að ræða
að hafa átt skammbyssu", bætti
hún við, „heldur er þetta það
réttlæti, sem nú er sýnt foringj
um, sem innt hafa af hendi
skyldu sína alla æfi“.
Loundras var dæmdur sam-
kvæmt lögum, sem sett vom af
herstjórninni, daginn eftir að
herinn hrifsaði til sín völdin.
Skammbyssu sína kvaðst Lound
ras hafa keypt 1947, þegar hann
var í flotanum, og fannst hún,
er lögreglan gerði húsrannsókn
í íbúð hans eftir morðtilraunirua
í George Papadopoulos forsætis-
ráðherra herstjórnarinnar í
ágúst sl.
Frú Vlachos skýrði frá því,
að venjuleg refsing fyrir að
hafa undir höndum skotvopn án
leyfis væri þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. „Hver og
einn getur dæmt um það sjálfur,
að þetta er gert af eintómu
batri“, sagði hún. Áður fyrr átti
hún tvö dagblöð í Grikklandi,
sem hún hætti útgáfu á, er hún
flýði til Bretlands.
NÝKOMIÐ
plastskúffur og
virgrindur i skápa
4 J. Þorláksson & Norðmann hf.
Látið okkur snjónegla alla hjólbarða yðar með hinni sjálfvirku, full-
komnu O.K.U. neglingarvél, sem við höfum í notkun á hjólbarða-
vinnustofu okkar. Með vélinni má snjónegla allar tegundir snjó-
hjólbarða. Nákvæmni hennar tekur öllum öðrum vélum fram.
Af annarri þjónustu okkar má nefna að við:
Skerum snjómynstur í hjólbarða, eins og undanfarna vetur.
Höfum sérstaka vél til að losa hjól undan stórum bifreiðum.
Höfum fullkomna ballancevél til að jafna misþunga í hjólbörðum
fólksbíla.
Seljum allar stærðir af snjóhjólbörðum. Sendum um allt land gegn
póst.kröfu. — Viðgerðarverkstæði okkar er opið alla daga kl. 7.0—22.
Gámmívinniastofan
Skipholti 35. — Reykjavík. — Sími 31055.
BIFREIDASTJÓRAR
hjólbarðaverksmiðjurnar nota eingöngu þessa vél við að snjónegla
alla sína vetrarhjólbarða.