Morgunblaðið - 11.10.1968, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 196«
hafa þeir yfirburði með Randy
Mattson í broddi fylkingar. Allt
virðist líka benda til þess að þeir
hreppi gullið í kringlukasti. Að
alkempa Bandaríkjanna í þeirri
grein, Joy Silvester, virðist í
mjög góðu formi, og baetti heims
met sitt fyrir aðeins þremur vik-
um. Og ekki má gleyma stang-
arstökkinu — þar eiga Banda-
ríkin tvo beztu afreksmennina
-— Bob Seagren og John Pennel.
Hinn fyrrnefndi setti nýlega
nýtt heimsmet í greininni, stökk
5.43 og sló met hins síðarnefnda,
sem var 5.35.
RÚSSAR STERKIR f
STÖKKUM OG KÖSTUM
En látum þetta naagja um
Bandaríkjamennina og víkjum
þessu næst að Rússum. Þeir hafa
oft komið sterkari til Olympíu-
leika en að þessu sinni. f sprett-
hlaupunum eiga þeir enga
menn, sem líklegir eru taldir til
að blanda sér í baráttuna um
gultverðlaunin, né heldur í milli
vegalengdunum. Þeir hafa jafn-
an átt góða langhlaupara, en þó
engan framúrskarandi núna, sem
menn vi'lja spá sigri. Sterkasta
grein þeirra er þrístökkið, og
ennfremur má ætla að þeir geti
fengið fyrstu menn í langstökki,
hástökki, spjótkasti og sleggju-
kasti.
Ter-Ovanesyan — keppir í
fjórða sinn á OL í langstökki.
Enginn firra væri að ætla að
Rússar geti hreppt öll þrjú verð-
launin í þrístökkinu. Þar eiga
þeir Viktor Saneyev, Alexander
Zolotaryov, og Nikotai Dudkin.
Flestir munu spá hinum fyrst-
nefnda sigri. í ársbyrjun 1967
mátti hann heita óþekktur, en
það ár reyndist honum happa-
drjúgt. Hann náði 16 metra mark
inu í marzmánuði í fyrra, en á
alþjóðlegu móti í Hojiwa sigr-
aði hann heimsmethafann Juzef
Scmidt frá Póllandi í fyrstu
viðureign þeirra. Ekki varð
hann þó sigurvegari þar því að
hann varð að lúta í lægra haldi
fyrir landa sínum Zolotarjov
sem setti við þetta tækifæri nýtt
landsmet 16.92 m. Saneyev byrj-
aði olympíuárið vel og setti ftjót
iega persónulegt met, 16.67 m.
Og á Evrópumeistaramótinu í
Lusis — ætlar að vinna gullið
og kasta 95m næsta ár.
Madrid innanhúss bætti hann sig
um tvo sentimetra en náði þó
ekki nema öðru sæti, þar sem
landi hans Dudkin stökk tveim-
ur sentimetrum lengra. En í júlí
sl. náði hann sínum bezta ár-
angri, sem jafnframt er bezti ár-
angurinn í ár, og stökk 16.87.
Fáeinum dögum síðar stökk hann
16.84. Saneyev er 23 ára að aldri.
Zolotaryov eir 28 ára að aldri, og
hefur í sl. átta ár verið í fremstu
röð í þrístökki, enda þótt hann
hafi aldrei unnið meistaratign
heima fyrir né á olympíuíeikum,
en hann var meiddur fyrir leik-
ana í Tokya Hann hóf æfingar
seint í ár, en náði þó fljótlega
að stökkva 16.67, og mun núna
vera að komast í sitt bezta form.
Dudkin er 21 éirs, og hefur náð
beztum árangri í ár 16.77.
Igor Ter-Ovanesyan tekur nú
þátt í odympíuleikjum í fjórða
sinn, þrítugur að aldri. í tíu ár
hefur hann verið í hópi beztu
langstökkvara veraldar en
aldrei tekizt að sigra á Olym-
píuleikjum. Hann hlauit bronz-
verðlaun bæði í Róm og í Tok-
yo. Margir höfðu spáð honum
sigri í Tokyo, og nú spá ftestir
honum sigri, enda þótt sigurveg-
arinn frá Tokyo, Lyn Davis, frá
Rretlandi verði nú einnig meðal
keppenda. Ter-Ovanesyan hefur
sýnt það í ár, að hann hefur
aldrei verið í eins góðri þjálf-
un, og hefur á þessu ári stokkið
8.23 m, sem er jafnt heimsmeti
Bostons. Og þessum árangri náði
hann einmitt í Mexikó.
Konungur hástökkvaranna,
Brumel, mun ekki stökkva fram-
ar vegna meiðsla, sem hann
hlaut. Skarð hans er vandfyllt,
en þó er það Rússum nokkur
sárabót að þeir virðast sjálfir
eiga manninn, sem það gerir. Val
entin Gavrilov heitir sá, 22 ára
að aldri. Hann verður að telja
ííklegastan sigurvegara í þess-
ari grein, hann héfur verið
í mjög góðri þjálfun í ár og á
eitt bezta afrekið, 2.20 m.
Þá er komið að köstunum, og
við skulum taka sleggjukastið
fyrir fyrst. Þar hefur Romuald
Klim verið spáð sigri af flestum.
Hann sigraði í þessari grein í
Tokyo. íþróttaferill hans hefur
verið ævintýralegur. f tíu ár
reyndi hann án afláts að kom-
ast í röð beztu sleggjukastara
veraldar, en árið 1963 einmitt
þegar allar dyr virtust honum
íokaðar, var hann valinn í lands
lið Rússa — þá þrítugur að
aldri. Ári síðar hafði honum þó
ekki tekizt að skapa sér nafn í
íþróttaheimimim nema rétt inn-
anlands, en var samt sendur á
fyrstu Olympíuleika sína í Tok-
yo, og hann kom þar, sá og sigr-
aði. En hann lét ekki staðar
numið. Stöðugt bætti hann ár-
angur sinn, sleggjan flaug
lengra og lengra, og í ár er svo
komið að hann hefur fimm sinn-
um þeytt henni yfir 70 metra
markið. Bezti árangur hans er
73.18, en heimsmetið í greininni
á Ungverjinn Gyula Zsivotski
73.76 m. Þeir hafa mætzt sjö sinn
um í keppni, og Rússinn hefur á-
valt unnið.
Spjótkastarinn Janis Lusis er
einn af reyndustu frjálsíþrótta-
mönnum Rússa, 29 ára að aldri,
og er nú taMnn líklegastur sig-
urvegari í spjótkasti. Þrátt fyr-
ir aldurinn stendur hann einmiitt
Klim — sigrar hann ungverska
heimsmethafann nú í áttunda
sinn.
núna á hátindi frama síns. Lus-
is kastaði fyrsí spjóti 1957 og
mæ'ldist kastið 44.52 m. Hann jók
smátt og smátt árangur sinn, og
komst í raðir beztu spjótkast-
ara veraldar. Norðmaðurinn
Terja Pedersen varð fyrstur
allra til að kasta spjótinu yfir
90 metra markið skömmu fyrir
Tokyo-leikana, og stóð það meit
(91.72) óhaggað í langan tíma.
Margir urðu til þess að reyna að
slá þetta met og Lusis var einn
þeirra. Hann kastaði í fyrra tví-
vegis yfir 90 metra markið, en
loks í ár tókst honum að
hnekkja heimsmetinu — kastaði
91.98 metra. Og Lusis hefur lýst
því yfir að hann ætli ekki að
láta staðar numið við þetta: „Á
næsta ári verður kominn tími
tit að hyggja að 95 metra mark-
inu“, á hann að hafa sagt tveim
ur mánuðum fyrir leikana núna.
LOFTSLAGIð GERIR
LANGHLAUPIN TVISÝN
Langh'laupin hafa alltaf verið
meðal skemmtilegustu keppnis-
greina Olympíuleikanna, enda úr
slit þar oft orðið óvænt. Sjáld-
an hefur þó verið eins erfitt að
spá um úrslitin í þeim greinum
og á þessum leikum. Ljóst er að
margir koma til greina sem sig-
urvegarar, og á hið þunna há-
fjallaloftslag stóran þátt í því.
Þeir keppendur, sem vanastir'
hafa verið að hlaupa á láglendi,
virðast margir hverjir ætla að
eiga erfitt með að venja sig við
Clark — örvæntingarfullur.
hið þunna loft, sem gerir þeim
mjög erfitt um andardrátt.
Helzta kempan á þessum lengri
vegalengdum hlaupagreinanna
hefur verið Ástralíumaðurinn
Ron Clark, margfaldur heimsmet
hafi í t.d. 5 og 10 km hlaupi. Fyr
ir leikana höfðu líka flestir spáð
honum sigri, enda er hann
þrautreyndur kippnismaður
þó að honum gengi illa í
Tokyo. En Ron Clark er
sjálfur ekki á sama máli, því að
fyrir nokkrum dögum á hann að
hafa sagt: „Ég veit það núna, að
ég hef ekki minnstu möguleika
til að hreppa verðlaunapening á
þessum leikum“. Hafði hann þá
skömmu áður horft á Mexikan-
ann Juan Martinez sigra í 5 þús-
und metra hlaupi á tímanum
13.59.8 mín. Clark kom til Mexí-
ko í september og í fyrsta æf-
ingahlaupi sínu á þessari vega-
lengd hlaut hann tímann 14.18.0
mín. Eftir það híaup sagði hann
við b'laðamenn: „Ég á að geta
hlaupið auðveldlega undir 14 mín
útum. Ég veit, að Túnismaðurinn
Muhammed Gammoudi, hefur ný
lega hlaupið þessa vegalengd á
13.52.0 sem veldur því, að
ég skoða hann, sem hættulegasta
keppinaut minn ásamt Kipch
onge Keino. En frá því að
Clark lét þessi orð falla hefur
heldur betur dofnað yfir honum,
og hann virðist nú sannfærður
um, að sér muni ekki takast að
sigrast á toftslaginu.
Margir hafa velt vöngum yfir
skyndilegri komu Kenyamanna
fram á íþróttasviðið. í millivega-
lengdar- og langhlaupunum virð
ast þeir hafa mjög aterkum mönn
um á að skipa. Keinó, Naftali
Temu, Wilson Kiprugut og Benja
min Kogo hafa allir verið nefnd
ir meðal þeirra, sem koma til
greina, sem sigurvegarar í 800m,
1500m, 5km og 3000m hindrunar-
hlaupi. Verður fróðíegt að fylgj-
ast með því, hvernig þeim vegn-
ar, þar sem þeir hafa nýlega orð
ið fyrir talsverðu áfalli, því að
landsliðsþjálfarinn, John Velzi-
an, Breti að þjóðerni, var látinn
segja af sér, en hann er sagður-
maðurinn bak við velgengni keny
askra íþróttamanna að undan-
förnu. Hann var fenginn
til Kenya 1958 til að
þjálfa landsliðið og tók það
stórstígum framförum með-
an hans naut við. Fyrir sex mán
uðum spáði hann því, að Keino
mundi sigra í 1500 metrunum, og
5000 metrunum á leikunum, Te-
mu í 10 km, Kiprugut í 800 metr-
unum og Kogo í hindrunarhlaúp-
inu. Enginn tók hann alvarlega,
heldur ekki þegar' hann kvað
Temu mundu sigra Clark á Ja-
maica-leikjunum fyrir nokkru.
En Temu sigraði samt. Þegar
Kenya hótaði að mæta ekki tií
Olympíuleikanna, ef S-Afríka
fengi aðild að þeim, 'lagðist Vel-
zian gegn þessari ákvörðun, þar
sem hann fylltist skelfingu við
þá tilhugsun að „piltarnir s ínir“
fengju ekki að keppa á leikun-
um. En þetta var nóg til þess
að hann var látinn fara frá. Vel-
zian er sagður hafa mjög sál-
ræn styrkjandi áhrif á íþrótta-
mennina, og enginn maður lagn-
ari að tala í þá kjark, þegar
þess þarf með. Eftir er því að
vita, hver viðbrögð Kenya-hlaup
aranna verða, þegar til keppni
kemur og þeir njóta ekki leng-
ur leiðsagnar og styrks Velziam,
Hann er nú kominn til Mexíkó
upp á eigin spýtur, en íþrótta-
mönnum hefur verið meinað að
hafa nokkur samskipti við hann.
Gera má ráð fyrir að helztu
képpinautar Clarks og Kenya-
mannanna í langhlaupunum
verði hinn gamalreyndi lang-
hlaupari Gaston Roelants frá
Belgíu, Muhammed Gammoudi
frá Túnis og Jurgen Haase frá
Þýzkaíandi.
Mörgum þykir Roelants nokk-
uð stórhuga nú fyrir leikina, því
hann hyggst taka þátt í 10 km
Keino — þekktastur Kenya-
hlauparanna.
hlaupi 13. október, daginn eftir
ætlar hann í hindrunarhlaupið
og 16. október hyggst hann
keppa í marathonhlaupinu. Hann
gerir sér vonir um sigur í öllum
þessum greinum, og ætlar sér að
Ijúka ferli sínum með þrjá guH-
peninga í barminum. Roelants
varð oíympíumeistari í Tokyo í
hindrunarhlaupi, en er heimsmet
hafi í 20 km. Hann hefur tví-
vegis áður keppt í Mekiko, og
segir loftslagið alls ekki há sér.
Hann hljóp maraþonhlaup í
fyrsta sinn á reynsluileikunum í
fyrra og fór þá með sigur af
hólmi, fékk ágætan tíma.
Gammoudi mátti heita algjör-
lega óþekktur fyrir Tokyo-leik-
ana, en þá kom hann ölíum á ó-
vart með því að hreppa si'lfuir-
yerðlaunin í 10 km. Hann ætlar