Morgunblaðið - 11.10.1968, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1968
19
aftur í þá grein núna, og hefur
aldrei verið í betri æfingu að eig
in sögn, en viðurkennir, að róð-
urinn hafi aldrei verið eins erf-
iður og nú. Hann er 26 ára að
aldri, hefur í sumar lagt aðai-
áiherzlu á 5 km og náð 13.30.8,
sem er fjórði bezti tími í ár.
Hann var nýlega að því spurður,
hvern hann teldi hættulegasta
andstæðing sinn.
Bendlin — heimsmethafinn í tug-
þraut, gullvon V-þjóðverja.
— Þetta er erfiðasta spurning
sem fyrir mig hefur verið lögð,
svaraði hann. — Þeir eru svo
margir, og þótt ég reyndi að telja
þá upp, eru án efa einhverjir,
sem ég þekki ekkert til. Auðvit-
að má nefna Ron Clark, Gaston
Roelants og hlaupagarpana frá
Kenya, Keino og Temu. Þeir eru
vissulega góðir, en það eru samt
margir fleiri, sem geta veitt mér
harða keppni. Þeir koma alls-
staðar að — Þýzkalandi, Rúss-
'landi, Japan, Nýja Sjálandi,
Bandaríkjunum og ótal fleiri
löndum. Og aHir koma þeir tíl
greina'. Gammoudi veltir því nú
fyrir sér, eins og fleiri þekktir
langhlauparar, að reyna fyrir
sér í fleiri en þessari einu grein:
„Ég held að ég sé alveg eins
góður í 5 km og 10 km hlaupinu
svo ég býat við að reyna hvort
tveggja. Maður gæti jafnvel átt
það til að skeila sér í maraþon-
hlaupið á íokadaginn“, segir
hann.
Jurgen Haase er frá Aust-
ur-Þýzkalandi, og Evrópumet-
hafi í 10 km. Hann verður fyrr-
töldum hlaupurum eflaust skæð-
ur keppinautur, en bezti tími
hans í ár ér 28.04.4 mín. Það er
35 sekúndum lakari tími en
heimsmet Clarks, sem er 27.39.4
mín.
Gert er ráð fyrir spennandi
keppni í maraþonhlaupinu, og
erfitt er að spá um úrslitin. Marg
ir nýir menn hafa komið fram á
sjónarsviðið frá síðustu Olympíu
leikjum, en vafalaust mun þeim
reynast erfitt að velta Abeke
Bikila, þeim mikía hlaupagarpi
frá Eþíópíu, úr sessi. Hann er
nú 36 ára að aldri, hefur tví-
vegis sigrað á Olympíuleikum áð
ur í þessari grein, og staðráð-
inn í að vinna maraþonhlaupið
í þriðja sinn.
„Ég vona að mér takist að
sigra í Mexiko," sagði hann eft-
ir leikana í Tokyo. „Það er tak-
markið núna“. Og nú er eftir að
sjá, hversu vel hann heftir und-
irbúið sig undir þessa hörðu
raun. Verði hann Olympíumeits-
ari í þriðja sinn núna, er það
einstábt afrek. í Tokyo hafði
hann algera yfirburði, kom fjór
um mínútum á undan næsta
Toomey — gullvon Bandaríkj-
anna í tugþraut.
manni í mark, og algjörtega ó-
þtreyttur að því er virtist. „Ég
gæti hlaupið 10 km til viðbótar",
sagði hann þá strax eftir að hafa
slitið marksnúruna.
ÞJÓÐVERJI LÍKLEGASTUR
SIGURVEGARI í TUGÞRAUT
Hetzta gullvon Vestur-Þjóð
verja á Olympíuleikunum núna
er tugþrautarmaðurinn, . Kurt
Bendlin. Hann eor 25 ára að aldri,
og var á sl. ári kosinn íþrótta-
maður ársins í V-Þýzkalandi.
Bendlin á núverandi heimsmet.
8.319 stig, sett í fyrra í Heidel-
berg. Takist honum að sigra á
þessum leikum verður hann ann
Bikila — fyrstur manna til að
vinna maraþonhlaupið tvisvar.
Tekst honum það í þriðja sinn?
ar Þjóðverjinn, sem það gerir.
Hinn fyrri var Willie Holdorf,
sem sigraði í Tokyo.
Þegar Bendlin setti heimsmet-
ið, voru afrek hans í einstök-
um greinum, sem hér segir: „10.6
sek í lOOm hlaupi, 7.55 í tang-
stökki, 14.50 í kúluvarpi, 1.84 í
hástökki, 47.9 sek í 400m hlaupi,
46.30 í kringlukagti, 14.8 í llOm
í grindahlaupi 4.10 í stangar
stökki. 84.85 metra í spjótkasti
og 4.19.0 mín í 1500 m hlaupi.
Á þessu ári hafa meiðsli í öxfl
verið honum nokkuð ti'l trafala,
og gætu Þau hæglega kostað
hann sigurinn. En þrátt fyrir
meiðslin hefur honum tekizt að
ná í 8.037 stig á þessu ári, þann-
ig að verulega skemmtileg
keppni ætti að geta orðið mitli
hans og Bill Toomey frá Banda
ríkjunum. Hefur hinn síðarnefndi
þó heldur vinning hvað árang-
ur snertir í ár. „Taugarnar? Ég
hef nú aldrei orðið var við þær,“
á Bedlin að hafa sagt fyrir
skömmu. Tugþrautin krefst
sterkra tauga, og einmitt þær
gætu fært þessum unga Þjóð-
verja sigurinn.
Bílalakk
LESONAL bílalakk, grunnur og spartl.
Litaval, litablöndun. — Póstsendum.
MÁLARABÚÐIN
Vesturgötu 21, sími 21600.
Jarðhæð
Til sölu um 10Q ferm. jarðhæð í KópavogL
Útb. kr. 300 þús. Hagstæð lán.
SIGURÐUR HELGASON
Digranesvegi 18 — Sími 42390.
Veggfóður — verðlækkun
Japanska LONFIX Vinyl veggfóðrið verður sifram selt
með allt að 43% afslætti meðan birgðir endast.
Birgðir eru takmarkaðar af sumum litunum.
Verzl. ÁLFFIÓLL, Álfhólsvegi, Kópavogi,
SÍS, Hafnarstræti, Reykjavík.
Fífa auglýsir
Allur fatnaður á börnin.
Meðal annars úrval af úlpum, peysum, Skyrtum,
terylenebuxum, ullartausbuxum, molskinnsbuxum,
stretchbuxum og gaftabuxum.
Regnfatnaður á börn og fullorðna.
Munið okkar Iága verð.
Verzlunin FÍFA, Laugavegi 99.
(Inngangur frá Snorrabraut).
Látum þetta gott héita. Hér á
undan hefur verið getið um
helztu kappana, sem taldir eru
líklegir sigurvegarar í karla-
greinum í frjálsum íþróittum. All
ir eiga þeir það sameiginlegt að
stefna á efsta þrepið á verð-
launapalli Olympíuleikanna í
Mexíkó 1968. Nú er að sjá, hvern
ig þeim tekst.
B. V.
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík.
Til sölu
þriggja herbergja íbúð í IV. byggingarflokki. Þeir
félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsréttar að íbúð-
inni sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagsins Stór-
holti 16 fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 17. októ-
ber n.k. *' •
Gammoudi, Haase og Roelant* verða skæðir keppinautar Clarks og Kenya-hlauparanna i lang
hlaupunum.
SANDVIK
snjónaglar
SANDVIK snjónaglar veita öryggi í snjó og hálku.
♦
Látið okkur athuga gömlu hjó'.barðana yðar og negla
þá upp. Það getur borgað sig.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35, simi 31055 — Reykjavík.