Morgunblaðið - 11.10.1968, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 196«
NÆSTKOMANDI laugard. þann
12. þ. m. verður leikrit Guð-
mund.ar Kambans, Vér morð-
ingjar, sýnt í 50. sinn hjá í>jóð-
leikhúsinu. Af þeim sýningar-
fjölda, er leikurinn sýndur 35
sinnum úti á landi og 15 sinnum
á sviði Þjóðleikhússins. Leikur-
inn var frumsýndur þann 20.
apríl sL í 18 ára afmæli Þjóð-
leikhússins. Sýningin hlaut mjög
gáða dóma a,llra gagnrýnenda
daglblaðanna. Fróðlegt væri í því
sambandi að rifja örlítið upp
það, sem gagnrýnendur sögðu
um frammistöðu leikaranna og
um sýninguna í heild.
Sigurður A. Magnússon í Mbl.
23/4: „Kristbjörg Kjeld fór með
hlutverk Normu og gerði því slík
skil þegar fram í sótti, að í minn-
um verður haft.“
Ásgeir Hjartarson segir í Þjóð-
viljanum: 25/4: ,JÉg vil óhikað
hvetja alla, sem leikmenntum
utina, til þess að sjá þessa vönd-
uðu og hugtæku sýningu, hún
svíkur engan“.
Loftur Guðmundsson segir í
gagnrýni sinni í Vísi 23/4 sl.:
„Annars ber öll sviðssetningin
því vitni að mjög vel er til sýn-
ingarinnar vandað“.
Ólafur Jónsson segir í Aliþýðu-
blaðinu 23. apríl sl.: „Kfistbjörg
hefur margt vel gert undanfarið,
en Norma Mclntyre mun þó vera
hennar mesta og bezta verk um
langt skeið“.
Halldór Þorsteinsson segir í
Tímanum þann 28. apríl sl.:
„Leikstjóm Benedikts Árnason-
ar á Vér morðingjar er traust
og örugg og honum til stórsóma".
Myndin er-af Gunnari Eyjólfs-
syni og Kristbjörgu Kjeld í aðal-
hlutverkunum.
Fréttatilkynning
frá Þjóðleikhúsinu.
Aðallulltrilar LÍV
ú þing ASf kosnir
EFTIRTALDIR fulltrúar, 51 a»
tölu, voru kjömir aðalfulltrúar
Landssambands íslenzkra verzl-
unarmanna á 31. þingi ASÍ.:
Guðjón Finnbogason, Akranesi,
Hafliði Guðmundsson, Akureyri,
Kolbeinn Helgason, Akureyri,
Irtgólfur Gunnarsson, Akureyri,
Óskar Jónsson, Selfossi, Kristinn
Guðnason, Hafnarfirði, Gestur
Kristjánsson, Borgarnesi, Bjarni
Aðalgeirsson, Húsavík, Gunnar
Möller, Siglufirði, Garðar Ein-
arsson, ísafirði, Hannes Friðriks
son, Bíldudal, Guðni Friðriksson,
Stykkishólmi, Guttormur Ósk-
arsson, Sauðárkróki, Kristján
Magnússon, Egilsstöðum, Ellert
Karlsson, Vestmannaeyjum,
Magnús Ingvarsson, Þykkvabæ,
Kristján GuðlaugsSon, Keflavík,
Guðfinnur Sigurvinsson, Kefla-
vík, Sigurður Sturluson, Kefla-
vík.
Eftirtaldir fulltrúar voru kjörn
ir í Reykjavík:
Guðmundur H. Garðarsson,
Magnús L. Sveinsson, Hannes Þ.
Sigurðsson, Björn Þórhallsson,
Bjarni Felixson, Halldór Frið-
riksson, Helgi E. Guðbrandsson,
Óttar Októsson, Richard Sigvu--
baldursson, Grétar Haraldsson,
Elís Adolfsson, Steindór Ólafs-
son, Einar Ingimundarson, Odd-
geir Bárðarson, Ottó J. Ólafsson,
Ragnar Guðmundsson, Guð-
mundur Karlsson, Sverrir Her-
mannsson, Stella M. Jónsdóttir,
Gunnar Petersen, Baldur Maríus
son, Gísli Gíslason, Böðvar Pét-
ursson, Þórarinn Óskarsson, Jón
ívarsson, Garðar Siggeirsson,
Bragi Lárusson, Baldur Óskars-
son, Björgúlfur Sigurðsson, Sig-
urður ' Guðmundsson, Sigurður
Geirdal, Baldvin Einarsson.
KENNSLUBÓK í STARFSFRÆÐI
NÝKOMIN er út hjá Ríkisútgáfu
námsbóka önnur útgáfa af
Starfsfræffi eftir Kristin Björns-
son, sálfræðing og Stefán Ól.
Jónsson, námsstjóra. Myndskreyt
ingu hefur Þröstur Magnússon
annazt, en í bókinni eru alls 67
myndir.
Þetta er kennslubók í starfs-
fræði, ætluð fólki á aldrinum
14)—<17 ára, svo og öðrum þeim,
sem hyggja á náms- og stöðuval.
í bókinni eru gerð skil aðal-
atriðum námsefnis í starfsfræði,
og ætlazt er til, a<5 kennarar geti
notað hana við kennslu.
Bókin greinist í nokkra aðal-
hluta. Fyrst er stutt yfirlit um
atvinnuþróun, einkum hér á
landi. Því næst er kafli um störf
og starfs'hópa. Þá er sérstakur
kafli með mörgum skýfingar-
myndum um skóla og náms-
brautir og annar um vinnustað-
inn og aðstöðu þar. Síðasta hluta
bókarinnar er ætlað að leiðbeina
nemendum við sjálft nátms- og
starfsvalið. Þar er drepið á
helztu atriðin, sem hafa þarf í
huga við náms- og starfsval.
Ætla má, að bók þessi verði
öllum gagnleg, sem vilja kynna
sér nám og námsbrautir hér á
landi, því að í henni er að finna
ýmsar upplýsingar um þau mál.
Þó mun bókinni fyrst og fremst
Fiskveiðilögsaga
USA verður 12 mílur
f BANDARÍSKA tímaritinu
„Fishing News International"
birtist nýlega eftirfarandi grein
tto fiskveiffilögsögu Bandaríkj-
anna:
Bandaríkin hafa bannað fisk-
veiðar allra erlendra skipa innan
Skreibarkaup-
maðurirm
farirm utan
| BIAFRAMAÐURINN Nnana |
i Kalu, sem hingað kom til að,
[athuga möguleika á því að fá '
' skreið að láni, fór utan í fyrra I
dag. Þóroddur E. Jónsson, |
skreiðarkaupm., tjáði Morg-J
unblaðinu í gaer, að Kalu;
' myndi senda frá London ná-
kvæma skýrslu um mögu-
| leika á því að koma skreið til j
l Biafra, en of dýrt er að senda ;
'skreiðina flugleiðis.
Sagði Þóroddur, að fullur |
jvilji væri fyrir hendi að,
l hjálpa Biaframanninum, ef ó-
? dýrari flutningsleiðir fyndust.'
12 mílna frá ströndum landsins,
nema sérstakur samningur hafi
veriff gerffur þar um. Johnson,
forseti, hefur undirritaff lög
þess efnis og þar meff tekiff
af allan vafa um bandaríska
fiskveiðilögsögu.
Ásamt nokkrum öðrum þjóð-
um neita Bandaríkin enn að við-
urkenna fiskveiðilögsögu nokk-
urra Suður-Ameríkuríkja, þar
sem fiskveiðilandhelgin er allt,
að 200 mílur. Equador sektaði
nýlega fjóra túnfiskveiðibáta um
samtals 202 þúsund dali fyrir
veiðar innan landhelgi, en þeir
bátar voru 21 til 25 mílur undan
strönd landsins. Bátarnir voru
látnir lausir eftir að sektin hafði
verið greidd, en líklegt er talið
að stjóm Bandaríkjanna muni
endurgreiða eigendum þeirra
sektina.
Bók
um
hvildarþjálfun
ÚT er komin hjá ísafoldarprent-
smiðju hf bókin „Hvíldanþjálf-
un“ eftir prófessorinn J. H.
Schultz, taugalækni í Berlín.
Þýðandi er Yngvi Jóhannesson.
Þetta er æfingabók, tæpar 40
blaðsíður að stærð. Þó er ráðlagt,
að æfingarnar séu gerðar undir
eftirliti læknis.
Tvær nýjar orðabækur
íslenzk-dönsk og íslenzk-þýzk
TVÆR langþráðar orðabækur
eru nú í smíðum og koma út hjá
fsafold. Það eru íslenzk-dönsk
orðabók og íslenzk-þýzk orða-
bók, en slíkar orðabækur hafa
ekki verið til fyrr á íslandi, etf
frá er talin orðabók Sigfúsar
Blöndals.
Ingvar Brynjólfsson, mennta-
skólakennari, vinnur að íslenzk-
þýzku orðabókinni og er handrit
næstum tilbúið. Islenzk-danska
orðabókin hefur verið í meira en
áratug i undirbúningi. Hana gera
Ole Widding, próf., og Haraldur
Magnússon. Þetta mun verða 10C
árka bók og er búið að setja hana
að hálfu. Nú hefur Preben Sör-
ensen komið til aðstoðar við
bókina og býst ísafold við að
hún geti komið út í lok næsta
árs.
ætlað að vekja æskufólk til um-
hugsunar um sjálft náms- og
starfsvalið og þann undirbúning,
sem fara verður fram, áður en
valið er. Sá undirbúningur felst
í því að kynna sér vel atvinnu-
líf og verkaskiptingu samfélags-
ins, námsbrautir og eigin óskir,
áhuga og getu.
Prentun bókarinnar annaðist
Prentsmiðja Hafnanfjar^ar hf.
)Asiuinflúenza i
\Bandarikjunum
, ASÍUINFLÚENSA er tekin að
[breiðast út 1 Bandaríkjunum
I og var tilkynnt um fyrstu
i veikindatilfellin sl. föstudag.
iVeikin mun hafa borizt frá
| Hong Kong og Saigon með
I bandarískum embætitismönn-
| um. Þar sem við ræktun hef
, ur komið í ljós, að þessi
[flensa er af öðrum stofni en
) sú sem geisaði í Bandaríkjun-
) um á sl. ári er bóluefnið sem
j var framleitt þá gagnsíaust.
Unnið er nú látlaust að því
) að framleiða bóluefni gegn
jþessari síðustu inflúensu, en
, óttazt, að ekki reynist unnt
[að hefta útbreiðslu hennar
) nema að takmörkuðu leytL
Fegurðar-
sumkeppni
Tókíó, 9. okt. (AP). Alþjóffa
fegurffarsamkeppni fór fram í
Tókíó nú í vikunni, og voru
Úrslit tilkynnt þar í dag. Sigur-
vegari varff ungfrú Brasilía,
Maria da Carvalho. Er þetta í
fyrsta skipti sem keppni þessi er
haldin utan Bandarikjanna. Hún
hefir til þessa alltaf veriff haldin
á Long Beach (Langasandi) í
Kaliforníu.
Frú Sulem-
sturfinu ú
„Svifur að hausti, og svalvfðr-
ið gnýr“. Þannig kvað skáldið
eitt sinn að afliðnu sumri, sól var
farin að lækka á lofti, skamm-
degið nálgaðist og allra veðra
var von. Þetta er saga sem endur
tekur sig.
Fáir reyna svo hin snöggu um-
skipti íslenzkrar veðráttu sem
sjómennirnir. 1 skammdegis-
myrkri og hríðarbyl verða þeir
oft að heyja hina hörðu baráttu
á hafinu. Þegar til hafnar er kom
ið þarfnast þeir því mest hvíld-
ar. Þeir sem ná til heimila sinna,
njóta samverunnar me'ð ástvin-
um sínum, en þeir eru margir
sem eru í fjarlægri höfn, og hvar
hafa þeir athvarf?
Sjómannaheimilin, eru til þess
að greiða götu þessara manna og
hjálpa þeim á margvíslegan
hátt. Því miður stöndum við ís-
lendingar langt að baki nágranna
þjóðum okkar að þessu leyti, þó
við á mörgum sviðum öðrum,
séum í kapphlaupi við þær, og
stöndum þeim framar í sumum
greinum. Þetta stafar af meiri
kristilegum áhuga, þessara þjóða,
því öll þessi heimili og starfsem-
in í heild, eru rekin á Rristileg-
um grundvelli og borin uppi af
kristnu áhugafólki.
Ég hefi oft áður vakið máls á
þessu, og bent á hve mikil nauð-
syn er á slíkum heimilum hér
á landi, og vonandi á þetta eftir
að breytast til hins betra. Engir
finna þetta betur en sjómennim
ir sjálfir, enda kom fram ein-
dregin ósk um þetta á sfðasta
s j ómannasambandsþingi.
Að þessu sinni ætla ég sér-
staklega að minnast á einn þátt
þessarar starfsemi, jólagjafir til
sjómanna sem fjarri eru ástvin-
um sínum um jólin. Allir vilja
helzt vera heima um jólin, en
margur sjómaðurinn verður
stöðu sinnar vegna að neita sér
um þetta.
I Noregi og Danmörku er mér
kunnugt um að snemma á vorin
og fram eftir vetri berast gjafir
til sjómannaheimilanna í þessu
skynL
Víðsvegar í bæ og byggð eru
sjómunnu-
ísufirði
starfandi kvenfélög og sauma-
klúbbar, sem vinna að þessu
bæði með því að safna fé til
starfsins, og svo vinna konumar
sjálfar ýmiskonar efni í jólapakk
ana. Trúa'ðar konur senda oft
línu með í pakkanum til hins
„óþekkta sjómanns" og skíra frá
persónulegri reynslu sinni í sam-
félaginu við Drottin.
Nú vil ég víkja máli mínu sér-
staklega til íslenzkra kvenna. Nú
þegar „Svífur að hausti" og þið
hefjið félagsstarfsemi ykkar, er
þá ekki möguleiki fyrir hendi að
þið takið þetta málefni til ræki-
legrar athugunar? Og heitið þvi
stuðninigi yðar.
Salem sjómannastarfið á Isa-
firði vinnur að þessum málum
eftir því sem möguleikar eru
fyrir hendi, hverju sinni. Með
byrjun desember er farið a'ð
gefa jólapakka um borð í þau
skip sem næst til, og vitað er
um að verða fjarri heimahöfn
um jólin. Þá er einnig öllum að-
komnum sjómönnrun boðið til
sérstaks hátíðafagnaðar um jólin,
heima í „Salem". Munu margir
eiga ljúfar og ógleymanlegar
minningar frá þeim samveru-
stundum. Á sjúkrahúsinu eru
oftast einhverjir sjómenn, til
þeirra er farið með pakka á að-
fangadagskvöld. Sl. ár voru gefn-
ir 190 pakkar til íslenzkxa sjó-
manna, og 182 til erlendra.
Nú get ég ekki látið hjá líða,
að þakka öllum þeim sem þegar
hafa styrkt þetta starf á einn eða
annan hátt. Ég veit að Guð hefir
launað ykkur ríkulega. Hér eftir
sem hingað til mun ég taka á
móti gjöfum í þessu skyni, þvl
fyrr því betra, svo tími vinnist
til að ganga frá þessu hér. „Guð
elskar glaðan gjafara" og sér-
hver maður gleðst sem styrkir
gott málefni.
Að endingu sendi ég öllum sjó
mönnum, aðstandendum þeirra,
og velunnurum innilegustu bless
unaróskir.
F.h. Salem Sjómannastarfsins.
Sigfús B. Valdimarsson.