Morgunblaðið - 16.10.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
Sérfræðingar Árnasafns verða
hjá Handritastofnun islands
— hœkkað framlag til Reiknideildar Háskólans er mun fram-
vegis annast rannsóknir fyrir opinbera aðila í vaxandi mceli
Á Alþingi hefur verið lagt
fram stjórnarfrumvarp um Hand
ritastofnun íslands. Er helzta á-
kvæði frumvarpsins að ákvæð-
um eldri laga verði breytt á
þann hátt að tala aðstoðarmanna
við safnið sé ekki takmörkuð við
tvo, heldur fari eftir fé því, sem
veitt er til á f járlögum.
f fjárlagafrumvarpinu kemur
Ekið á kyrr-
stæða bíla
EKIÐ var á 0-682, sem er Opel
Rekord, þar sem bíllimn stóð í
stæði fyrir ofan Glaumbæ frá
klukkan 10 að kvöldi 17. þ. m.
til klukkan tvö um nóttina.
Ekið var á R-14988, sem er
grænn Willys-jeppi, þar sem
bíllinn stóð í stæði við ÁTVR
milli klukkan 9 og 20 4. þ. m.
Báðir bílarnir voru skemmdir
nokkuð og skorar rannsóknar-
lögreglan á ökumennina, sem
tjónunum ollu, að gefa sig fram.
Einnig bi'ður hún vitni að hafa
samband við sig.
siðan fram að framlag til Hand-
ritastofnunarinnar er hækkað
um 232 þús. kr., og er þess get-
ið i athugasemdum frumvarpsins
að það sé vegna nýs sérfræð-
ings, sem látið hefur af störf-
um í Ámasafni, en samkomulag
hafði verið gert um það, að sér
fræðingar í Árnasafni yrðu sam
þykktir sem starfsmenn handrita
stofnunarinnar, eftir þvi sem
þeir létu af störfum í Kaup-
mannahöfn.
f fjárlagafrumvarpinu kemur
einnig fram, að hækkun á fram-
íagi til Reíknistofnunar Háskól-
ans nemur 424 þús. kr. Er það
vegna þess að gert er ráð fyrir
ráðningu í eitt og hálft sérfræð-
ingsstarf. Miðast sú ráðstöfun
við það. að stofnunin verði und-
ir það búin að taka í vaxandi
mæli að sér rannsóknir fyrir opin
bera aðila og aðra. Er ráðgert,
að á næsta ári geri stofnunin
ýmsar athuganir og rannsóknir
á sviði heilbrigðismála, er orðið
gætu grundvöllur að bættum
rekstri og skipulagi þeirra
mála.
Fiskvinnslan hl. stoln-
uð á Vopnaiirði
Hinn 11. október var stofnað
á Vopnafirðl hlutafélagið, Fisk-
vinnslan h.f. Hluthafaf jöldi er
45, en hlutafé 600 þúsund krón-
arfélagið, kaupfélagið, Tangi
h.f. og Verkalýðsfélagið.
Tilgangur félagsins er kaup
og vinnsla á fiski. Búið er að
undirbúa saltfiskmóttöku í nokkr
um hluta mjölskemmu Síldarverk
smiðjunnar. Einnig eir í athugun
méð rekstur á frystihúsinu hér,
Hans Gerd Esser.
Innstæðulous-
um dvísunum
fjölgur
Á LAUGARDAGINN sl. var gerð
skyndikönnun í bönkum á
Reykjavikur svæðinu til að
kanna hve margar ávisanir
reyndust innistæðulausar. Reynd
ust þær vera 26 að tölu, og nam
upphæð þeirra samtals 2.540
þúsund krónum. Er þetta um 1%
af veltu bankanna, og allmiklu
meira en hefur verið í fyrri
könnunium.
sem eir nú sem stendur upptek
ið vegna slátrunar, en getur tek
ið á móti fiski og mun gera í
vetur.
Stofnun þessa félags var nauð
syn vegna alvarlegra horfa hér
í atvinnumálum.
— Ragnar.
Sigurður Örn Gíslason afhendir Þórði Ágústi Hinrikssyni
fyrstu verðla'unin — Polaroi d-myndavél og frímiða á frum
sýninguna — Ljósm.: Sv. Þorm.
f gær var dregið úr rétt-
um lausnum myndagetraunar-
innar, sem efnt var til í Mbl.
á vegum „Hernámsáranna".
Fyrstu verðlaun hlaut Þórður
Ágúst Hinriksson, Hraunteig
15, en önnur verðlaun hlaut
Bryndís Víglundsdóttir, Njáls
götu 100.
Þórður hefur fengið sín
verðlaun afhent, en ekki hef-
ur náðst í Bryndísi. Er hún
því beðin um að vitja verð-
launanna á ritstjórn Mbl.
Rétt svör voru þannig:
Fyrsta myndin var loft-
mynd af Kaldaðarnesi. Önnur
mjmdin var af bryggjunni
fyrir framan Kolakranann og
sýndi hermenn nýkomna í
land. Þriðja myndin var frá
Seyðisfirði, en sú fjórða frá
Sandskeiði. f baksýn var
Sandfell.
Danskt-íslandshestafélag
Hefur afskipfi af hreinrœktun íslenzkra
hrossa þar í landi
Undirbýr fyrirlestra um
ísland í V-Þýzkalandi
FRÁ því um miðjan ágúst sl. hef
ur dvalizt hér á landi á vegum
Göthe-stofnunarinnar Hans Gerd
Esser frá Köln í V-Þýzkalandi
og flutt fyrirlestra um Þýzka-
land og samskipti tslendinga og
Þjóðverja. M.a. hefur hann flutt
erindi um „Konrad von Maurer
og hina íslenzku sjálfstæðis-
hreyfingu“ og „Jón Sveinsson og
Þjóðverja". Þá hefur Esser safn-
að efni fyrir erindaflokk um fs-
Iand, sem hann hyggst flytja í
heimalandi sínu, en þar starfar
hann sem blaðamaður og fyrir-
lesari. A fimmtudaginn kemur
mun hann flytja erindi i Átt-
hagasal Hótel Sögu á vegum Ger
maníu. Ræðir hann þar um
„Þýzk-íslenzka vináttu á okkar
dögum“ og hefst sá fyrirlestur
kl. 21.00.
Hans Gerd Esser starfar sem
bíaðamaður við dagblöð, útvarp,
í fyririestrasölum og á námskeið
um lýðháskóla og hefur lagt sér
staklega fyrir sig: Erlendar þjóð
tr og lönd, sögu landafræðmn-
ar, sögu landafundanna og sigl-
ingasögu. Hann hefur farið marg
ar kynnis- og námsfarir til ým-
issa Ianda í Evrópu, sem hann
hefur síðan fjalfað um í um það
bil 40 sérfyrirlestrum með lit-
skuggamyndum undir sameigin-
legu heiti: „Evrópa og Evrópu-
búar“. Nú 'er hann að safna efni
hér á landi í fyrirlestra um
„Höfuðborgarsvæðið" og „Sigl-
ingar og sjávarútvegur fslend-
inga“. í september og október
hefur hann haldið í boði Ger-
maníu fyrirlestra hjá fólögum á
ýmsum stöðum hér á landi um
eftirfarandi efni: Hin róman-
tíska Rín; Konrad von, Maurer
og hin íslenzka sjálfstæðishreyf-
ing; Heinrich Erkes, þýzkur ís-
landsfari; Jón Sveinsson (Nonni)
og Þjóðverjar, og á fimmtudag-
inn kemur flytur hann eins og
að framan greinir erindi um
„Þýzk-íslenzka vimáttu á okkar
dögum“. Hefur Esser flutt fyrir-
lestra á ísafirði, Patreksfirði,
Akureyri, Selfossi, í Háskóla fs-
lands, í Kennaraskólanuirí, Verzl
unarskólanum, báðum mennta-
skólunum í Reykjavík og í
Menntaskólanum á Laugarvatni.
H. G. Esser er framkvæmda-
stjóri Þýzk-íslenzka félagsins í
Köln. Hann er ábyrgðarmaður
þýzk-íslenzku árbókarinnair „Is-
land“, sem gefin er út á þýzkri
tungu.
Kaupmannahöfn 15. október,
einkaskeyti til Morgunblaðsins.
í DANMÖRKU er nú unnið að
stofnun dansks íslandshestafé-
lags og verður hlutverk þess, að
vinna að útbreiðslu þekkingar á
hinum íslenzku hrossum og réttri
notkun þeirra til útreiða. Þá er
það einnig hlutverk félagsins, að
fást við hreinræktun íslenzkra
hrossa í Danmörku.
Meðal stofnenda er Gunnar
Jónsson, verkfræðingur, sem hef
ur um margra ára skeið haft ís-
Ienzka hesta á búgarði sínum
Steinholti, við Hilleröd. Hjá hon
um hefur verið hryssan Stjama,
sem íslendingar gáfu þeim Mar
gréti prinsessu og Hinrik prins
í brúðargjöf. Stjarna kastaði ný
lega og eignaðist myndarlegt fol
ald.
Gunnar sagði, að hópur hesta-
vina- sem ættu íslenzka hesta
hefðu lengi haft með sér nokk-
urskonar samvinnu, þannig að
þeir skýrðu hver öðrum frá
reynslu sinni og hefðu haldið
með sér nokkra fundi. Stungið
hefði verið upp á því, að skrá
Lubke hættir
næstu sumur
Bonn, 14. okt. (NTB)
Heinrich Lúbke, forseti vest-
ur-Þýzkalands, hefur ákveðið að
láta af forsetaembættinu hinn 30
júni næsta ár.
Tilkynnti forsetinn þetta í mót
töku í skrifstofu sinni í tilefni
þess að hann varð 74 ára í dag.
Voru þar mættir fulltrúar úr
ríkisstjórninni og leiðtogar þing
flokkaniraa. Kjörtímabil Liibkes
rennur ekki út fyrr en næsta
haust, en með þessari ákvörðun
sinni vill hann koma í veg fyrir
að forsetakosningar rekist á þing
kosningarnar sem fram eiga að
fara í landinu í september á
næsta ári. Þess í stað verður það
nú verkefni sambandsþingsins
og fulltrúa fylkisþinganna að
kjósa nýjan forseta landsins í
vor.
ættir islenzkra hesta sem kæmu
til Danmerkur, og þar sem eig-
endur íslenzkra hesta eru orðnir
svo margir, þótti rétt að þeir
stofnuðu félag.
Félagið verður ekki ósvipað
þýzkum og svissneskum félögum
af sama tagi. Mikil áherzla verð
ur lögð á að íslenzkir hestar í
Danmörku verði hreinræktaðir
þannig, að þeir haldi sérkenn-
um sínum og gangi. Varðandi
ættarskrána er tekið fram, að sá
sem fenginn verður til að skrá
ættir hestanna, verði að hljóta
samþykki Gunnars Bjarnasonar,
ráðunautar, á íslandi. Stofnfund
ur verður haldinn að Steinholti
sunnudaginn 27. október og
verða kallaðir þangað allir eig-
endur íslenzkra hesta í Dan
mörku. — Rytgaard.
Tréskurðarmynd eftir Mariu Ólafsdóttur, listmálara.
Moría Ólafsdóttir og
fllfred Jensen fd góða dóma
Hjónin María Ólafsdóttir list-
málari og Alfred Jensen listmál
ari hafa nýlega fengið góða
dóma fyrir verk sín á sýningu
í Kaupmannahöfn i september.
Listagagnrýnandi í Politiken seg
ir í grein sinni um sýninguna,
að það sé einkennandi fyrir þau
hjónin að verk þeirra skiptist
í tvo þætti, sem séu innbyrðis
mjög ólíkir. „Hún málar eða
sker í tré ýmist skáldlegar, þjóð
sagnamyndir, dansandi smámeyj
ar eða íslenzkt landslag í sterk-
um, lifandi og náttúrulegum
dráttum. í síðustu myndum henn
ar getur að líta beztan árangur,
sem hún hefur náð. Ætli María
Ólafsdóttir sé ekki einkar vel
til þess fallin að skreyta barna-
ævintýri með tréskurðarmynd-
um? - Hún hefur til brunns að
bera skáldlegan innblástur.
Alfred Jensen hefur árum
saman málað af alvöru og óþreyt
andi dugnaði landslagsmyndir,
bæði frá Danmörku og Suður-
löndum. Hann hefur einnigtúlk
að skilning sinn á hrynjandi
náttúrunnar í abstrakt-symbólsk
um formum, lífsimdrið eins og
það birtist í hljóðlátum og ein-
földum dráttum málverksins“.