Morgunblaðið - 16.10.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 196«
Brýn nauösyn á víðtækri samstöðu
um lausn vandans
Er málefnagrundvöllur fyrir þjóðstjórn?
Kafli úr rœðu Árna Crétars Finnssonar
hrl. á fundi Stúdentafélags Reykjavíkur
unnt sé a'ð ná víðtækri sam-
stöðu um lausn vandans, og þar
með eitt megin skilyrði þtess, að
grundvöllur sé fyrir myndun
þjóðstjórnar ,er það, að menn
séu sammála um orsakir erfið-
leikanna. En er því að heilsa, að
svo sé. Við skulum athuga það
örlítið nánar.
Lengi framan af reyndi stjórn
arandstaðan að nota sér þá erfið
leika, sem verðfall og aflabrest-
ur hafði í för með sér, til að
sanna, að stjórnarstefnan hiefði
verið röng. Erfitt hefur þó
reynzt að finna samhengi þarna
á milli, enda trauðla á valdi ís-
lenzkrar ríkisstjórnar að hafa
áhrif á fiskigengd í sjónum, né
verðlag á erlendum mörkuðum.
Með tímanum hefur mátt sjá
þess augljós merki, að stjórnar-
andstaðan hefur viðurkennt
á einn og annan hátt þær ástæð-
ur, sem til erfiðleikanna liggja.
Ég nefni þá tiltölulega litiu and-
stöðu, sem gengislækkunin fékk
á sl. ári, viðhorf til lausnar á
vinnudeilum á sl. vetri og nú síð
ast nokkurn veginn þegjaadi
samkomulag við álagningu 20%
innflutningsgjaldsins í septem-
ber sl. Ég vil því að öllu athug-
uðu leyfa mér að halda því fram,
að í raun hafi stjórnarflokkarn-
ir og stjórnarandstaðan nokkuð
svipaðar skoðanir á því, hverjar
séu ástæður þeirra efnahagsörð-
ugleika, sem íslendingar teiga við
að glíma í dag. Það þarf hins
vegar engan að undra, þó að
stjórnarandstaðan reyni á einn
eða annan hátt, að kenna hér
fleiru um, og koma höggi á nú-
verandi ríkisstjórn. En það breyt
ir ekki því, að í raun hljóta flest
ir að vera sammála um megin
orsakir vandans.
Hafi menn orðið sammála um
orsakir vandans, eru þá líkur á,
að unnt sé að ná víðtækri sam-
stöðu um ieiðir til úrlausnar.
Það verkefni, sem hér þarf
fyrst og fremst að ná samstöðu
um að leysa, er að tryggja rekst-
ur okkar aðal útflutningsatvinnu
vegar, sjávarútvegsins. Tfl þess
að það megi verða þarf sjávar-
útvegurinn annað hvort að fá
mun meira fyrir sinn afla eða
færa þarf niður allt verðlag og
kaupgjald í landinu. Síðari leið-
in hefur veðrið marg rædd og eng
inn treyst sér til að framkvæma
hana að neinu marki, svo ég skal
ekki fara nánar út í að ræða
hana hér. Sú leið ,að sjávarút-
vegurinn fái meira fyrir’ sína
framleiðslu er framkvæmanleg
á tvennan hátt, eins og nú
standa sakir, annars vegar með
beinni lækkun á gengi íslenzku
krónunnar miðað við gjaldmið-
il annarra landa og hins vegar
með því a, ríkissjóðuir afli
tekna með auknum álögum í
einu eða öðru formi, og verji
síðan því fé, sem þannig kemur
inn, til sjávarútvegsins. f dag-
legu tali er síðari leiðin nefnd
styrkir tfl sj ávarútvegsins, en
Á FUNDI Stúdentafélags
Reykjavíkur sl. fimmtudag,
flutti Árni Grétar Finnsson,
hrl. og bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði, ræðu, þar sem hann
fjallaði m.a. um leiðir til að
ná víðtækri þjóðarsamstöðu
um lausn efnahagsmálanna
og möguleika á þjóðstjórn.
I upphafi ræðu sinnar
gerði Árni Grétar Finnsson
grein fyrir þeirri þróun mála
í utanríkisviðskiptum lands-
ins og atvinnumálum, sem
nú steðja að og ræddi síðan
um leiðir til lausnar þessum
vandaonálum og hugsanlega
hreikkun stjórnarsamstarfs-
ins.
Fer hér á eftir sá kafli í
ræðu Árna Grétars Finnsson-
ar, sem fjallaði um þau mál:
Þegar horfir sem nú, er ekki
aðeins eðlilegt, heldur hrein
þjóðarnauðsyn, að reynt sé að
skapa sem víðtækasta samstöðu
um lausn vandans. Að þessu
hefur ríkisstjórnin þegar stefnt,
með því að óska eftir viðræðum
við stjórnarandstöðuflokkana
um málið, og eru þær umræður
þegar hafnar fyrir nokkru, svo
sem öllum er kunnugt. Enda
þétt ekki hafi mikið heyrzt frá
þessum umræðum, enn sem kom
ið er, þá er það þó ljóst, að rík-
iastjórnin vill með þessu, í fyrsta
lagi, gera stjórnarandstöðunni
v «em gieggsta grein fyrir því,
hvernig málin standa, í öðru lagi
hlýða á það, hvort stjórnarand-
staðan býr yfir einhverjum raun
hæfum tiillögum til úrlausnar og
1 þriðja lagi, freista þess að ná
á grundvelli gagnaisöfnunar og
ítarlegra umræðna, sem viðtæk-
astri samstöðu um úrræði til
lausnar vandanum.
Samfara þessum umræðum
hafa svo ýmsir velt því fyrir sér,
hvort framundan væru breyting
ar á ríkisstjórn og stjórnarsam-
Btarfi. Til hvers leiða þessar um-
ræður og hvernig verður vand-
inn leystur. Vlerður mynduð
þjóðstjórn með þátttöku allra
stjórnmálaflokka? Verður stjórn
arsamstarfið breikkað og tfl
dæmis Framsóknarflokkurinn
Ifekinn inn í ríkisstjórn eða hluti
Alþýðubandalagsins? Heldur
stjómarsamvinnan áfram
óíbreytt eða verða ef til viill nýj-
ar alþingiiskosningar? Þetta eru
þeir möguleikar, sem ýmsir hafa
velt fyrir sér og reynt að sjá fyr-
ir á hviern hátt kunni að fara.
Ég hygg, að í dag geti enginn
fullyrt með neinni vissu, hvað of
an á kann að verða, en með til-
liti tfl umræðuefnis okkar hér í
kvöld, vil ég ræða nokkuð nán-
ar þjóðstjórnarhugmyndina og
möguleika á lausn efnahagserfið
leika Íslendinga.
Eitt megin skilyrði þess, að
Staða fulltrúa
hjá VERZLUNARRÁÐI ÍSLANDS er laus til um-
sóknar. Umsækjandi þarf að hafa þekkingu á við-
skiptamálum. Hagfræði- eða viðskiptamenntun væri
gskileg. Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og starfsferil sendist skrifstofu Verzlunar-
ráðsins, Laufásvegi 36, fyrir 20. þ.m.
Ami Grétar Finnsson.
það er algjört rangnefni, því þar
er aðeins vlerið að skila aftur
yfir til sjávarútvegsins því fjár-
magni, sem oftekið hefur verið
af honum, sökum of hárrar
skráningar íslenzks gjaldmiðils,
enda getur það aldrei verið rétt
nefni að ræða um styrki til þess
atvinnuvegar, sem Íslendingar
öðrum fremur byggja sína lífs-
afkomu á. f raun og vleru þýðir
þessi leið gengislækkun, þó í
öðru formi sé.
Hvor leiðin verður ofan á,
bein gengisfelling eða yfirfærsla
til sjávarútvegsins í gegnum
beinar álögur, skal ég ekkert
fullyrða um hér, né hvort sam-
staða yfirleitt næst um aðra
hvora þessa leið milli alilra stjórn
málaflokkanna. Ýmsum kann að
þykja bein gengislækkun hreinni
ráðstöfun, sérstaklega, þegar
færa þarf stórar upphæðir yfir
tfl sjávarútvegsins, þá muni hún
og verða varanlegri og skapa
ákveðinn frið á eftir og mögu-
leika til jafnvægismyndunar og
nýs uppgangstímabils. Bein geng
islækkun hefur þó auk margs
annars, þann ókost í för með sér
að erlend lán og rekstrarvörur,
sem sjávarútvegurinn baupir er-
lendis frá, hækka jafnhliða.
Millifærsla yfir til sjávarútvegs-
ins í gegnum almennar álögur,
hefur hins vegar ekki í sér
fólgna þessa annmarka, en oft
reynist aftur á móti erfitt að
finna nægjanlega tekjustofna og
jafna álögum réttlátlega niður.
Reynslan hefur líka vierið sú, að
sé byrjað á að millifæra yfir tfl
sjávarútvegsins á þennan hátt,
þá er kerfið furðu fljótt að vefja
upp á sig og krefst síaukins fjár,
svo sem reyndin varð af upp-
bótakerfinu á dögum vinstri-
stjórnarinnar.
Ég skal ekki fara nánar út í
að ræða þesisar tvær leiðir, beina
gengislækkun eða millifærslu til
útgerðarinnar í gegnum nýjar
álögur, 'en fram hjá þeim beizka
sannleika komast íslendingar
trauðla í dag, eftir þær búsifjar,
sem stór minnkandi afli og verð-
fall á erlendum mörkuðum hafa
valdið þjóðinni, að til annars
hvors þessara úrræða verður að
líkindum að grípa, svo unnt sé
að tryggja rekstrarafkomu ís-
lenzks sjávarútvegs. Vonandi
eiga atvinnuvegir okkar leftir að
eflast svo að fjölbreyttni og
styrkleika, að aflabrestur og
verðfall hafi ekki í framtíðinni
svo alvarleg og víðtæk áhrif á
allt hið íslenzka efnahagslíf, og
skal ég koma að því nánar síð-
ar.
Svo haldið sé áfram með
möguleikanna á myndun þjóð-
stjórnar, þá er enn allt á huldu,
um hvort samkomulag næst um
úrræði til lausnar á örðugleik-
um útflutningsframleiðslunnar.
Þar koma að sjálfsögðu miklu
fleiri sjónarmið til álita, en ég
hefi möguleika á að gera skil í
stuttri framsöguræðu. Og jafn-
vel þó samkomulag náist um
lausn á vandamálum útvegsins,
hvað þá með viðhorfin til ým-
issa annarra mála. Verður unnt
að samræma þau á viðunandi
hátt. Og hvað um áframhaldið.
Hvaða möguleika hefur þjóð-
stjórn til að sameinast um fram-
gang ýmissa annarra mála síðar,
þegar yfirstandandi efnahagsörð
ugleikum hefði verið bægt frá.
Víst má út af fyrir sig hugsa
sér þann möguleika, að þjóð-
stjórn yrði mynduð einvörðungu
til að ná samstöðu um lausn yf'
irstandandi vanda lefnahagsmál-
anna. Ég tel þennan möguleika
heldur ósennilegan, því ef þjóð-
stjórn yrði lausnarorðið, tel ég
mun líklegra að menn teldu
nauðsynlegt að hún sæti nokk-
urn tíma, og fengi að minnsta
kosti tækifæri tfl þess að fylgj
ast með og tryggja framgang
þeirra efnahagsráðstafana, sem
hún yrði þá mynduð um.
Samfara þiessu hljóta að rísa
upp óteljandi spurningar, um
möguleika á samkomulagi á
milli stjórnmálaflokkanna allra.
Ég skal ekki fara tæmandi út í
það hér, en vil aðeins nefna örfá
dæmi um verulegan skoðana-
mun sem verið hefur fram til
þessa, og sem erfitt væri að kom-
ast fram hjá að horfast í augu
við að leysa, ef mynda ætti þjóð
stjórn.
Ég nefni þánn mikla ágrein-
ing, siem verið hefur á milli nú-
verandi ríkisstjórnar og stjórn-
arandstöðu um það, hvort ís-
lendingar ættu að hagnýta sér
erlent fjármagn til uppbygging-
ar stóriðju í landinu á svipaðan
hátt og nú er verið að gera með
byggingu álverksmiðjunnar í
Straumsvík. Er líklegt að stjórn
arandstöðuflokkarnir fallizt á
áframhaldandi hagnýtingu er-
lends fjármagns til uppbygging-
ar stóriðju hér á landi, eða gera
þeir það að skilyrði að hún verði
stöðvuð.
Hvað með skoðanir ríkisstjórn
arinnar á viðskipta- og athafna-
frelsi og stefnuyfirlýsingu stjóm
arandstöðunnar um nauðsyn á
stórauknu skipulagi og eftirliti.
Fellst stjórnarandstaðan á
áframhald þess viðskipta- og
framkvæmdafrelsis, sem hér hef
ur ríkt á undanförnuim árum, eða
gerir hún það að skilyrði, að það
verði takmarkað að meiru eða
minna leyti.
Ég nefni utanríkis- og örygg-
ismál þjóðarinnar. Á næsta ári
eru 20 ár liðin frá stofnun At-
lantshafsbandalagsins og fjall-
að mun verða um áframhald-
andi þátttöku íslands í samtök-
unum. Myndi sá hluti Alþýðu-
bandalagsins, sem meira og
minna hlefur barizt gegn aðild ís
lands að bandalaginu sl. 20 ár,
vera tilbúinn að leggja þau mál
á hilluna eins og gert var á ár-
unum 1'956—1958, þegar þeir
áttu aðild að ríkisstjórn, eða
myndu þeir hafna þátttöku i
ríkisstjórn ella.
Og hvað með innlánsbinding-
una og vextina. Myndi stjórnar-
andstaðan nú, þegar svo mjög
er gengið á gjaldeyrisvarasjóð-
inn,v krefjast þess að seðlabank-
inn skilaði aftur því fé, sem þar
er bundið, til viðskiptabank-
anna, sem aftur myndu setja það
í umferð og auka þannig eftir-
spurn eftir gjaldeyri. Eða myndu
stjórnarandstöðuflokkarnir krefj
ast þess, að vextir, þar með tald
ir innlánsvextir yrðu stórlega
lækkaðir, nú þegar aukning
■sparifjár hefur dregizt stórlega
saman.
Þannig mætti lengi spyrja.
Það mætti niefna yfirlýsingar
stjórnarandstöðunnar um nauð-
syn á hækkun kaupgjalds, nauð-
syn á hækkun landbúnaðarvara,
nauðsyn á hækkun ríkisfram-
laga til margvíslegra hluta og
síðast en ekki sízt nauðsyn á
lækkun álaga ríkissjóðs.
Ég skal ekki halda þessari upp
talningu mikið lengur áfram.
Ég get ekki gefið svör við því,
hvernig stjórnarandstaðan getur
í senn tekið virkan þátt í lausn
yfirstandandi vanda og fengið
framgengt yfirlýstum stefnumál-
um sínum Ég get heldur lekki
séð, að þeir flokkar, sem mynda
núverandi ríkisstjórn geti keypt
stuðning stjórnarandstöðunnar
við lausn okkar efnahag3vanda-
mála því verði að falla frá þeirri
megin stefnu sem fylgt hefur ver
ið undanfarin ár.
Hvernig þessum málum
kann að skipast, er erfitt að
segja fyrir um í dag. En þau
dæmi sem ég hefi nefnt um
djúptækan skoðanaágreining
milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu, sýna ljóslega, hversu
mörg ljón eru á veginum að
myndun þjóðstjórnar. Það breyt
ir hins vegar ekki þeirri stað-
reynd, að brýn nauðtsyn er á
sem víðtækastri samstöðu um
lausn okkar vandamála, hvort
svo sem sú samstaða næst leður
eigi. Náist engin samstaða og
hyggi'st stjórnarandstaðan not-
færa sér erfiðleikana til þess að
klekkja á stjórnarflokkunum, þá
hlýtur ríkisstjórnin að sjálf-
sögðu að leggja fram sín úrræði
til lausnar vandanum og standa
eða falla með þeim.
Hafnarfjörður
íbúðir til sölu
Einbýlishús við Háabarð,
Hverfisgötu og Brekku-
hvamm.
4ra herb. miðhæð á góðum út-
sýnisstað við Hringbraut.
3ja herb. íbúðir við Lækjar-
kinn, Arnarhraun og Álfa-
skeið.
2ja herb. íbúðir við Álfaskeið.
3ja og 4ra herb. íbúðir tilb.
undir tréverk í fjölbýlishúsi
sem er í byggingu í Suður-
bænum. Hagkv. greiðslu-
skilmálar.
Hefi kaupendur að eldra ein-
. býlishúsi í eða við Miðbæ-
inn og nýrri 4ra—5 herb.
íbúð.
Árni Grétar Finnsson
hæstaréttarlögmaður
Strandgötu 25, Hafnarfirði.
Sími 51500.
Sími
14226
2ja herb. mjög skemmtileg
íbúð við Fálkagötu. Laus nú
þegar. Sérgeymsla á hæð-
inni.
3ja herb. íbúð við Laiugames-
veg. Mjög glæsfleg.
3ja herb. mjög góð íbúð í
timburhúsi í Vesturbænum
í skiptum fyrir 4ra—5 herb.
íbúð í Austurborginni eða
í KópavogL Peningamilli-
gjöf.
3ja herb. íbúð við öldugötu.
Skipti á einbýlishúsi kæmu
til greina.
3ja herb. nýleg íbúð við Lyng
brekku í Kópavogi.
4ra herb. íbúð við Álfaskeið í
HafnaTfirði.
4ra herb. íbúð við Ljósheima,
til greina kæmi að taka 2ja
tfl 3ja herb. íbúð upp í.
4ra herb. endaíbúð við Ás-
braut í Kópavogi.
5 herb. íbúð við HvassaleitL
bílskúr meðfylgjandi.
Einbýlishús við Löngubrekku.
Einbýlishús við Lyngbrekku.
Raðhús við Otrateig.
5 herb. sérhæð við Lyng-
brekku í KópavogL
Fasteigna. og skipasala
Kristjáns Eiríkssonar hrl.
Laugavegi 27 - Slmi 14226