Morgunblaðið - 16.10.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
B8LALEIGAM
- VAKUR -
Sundlaugaveci 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
S'imi 22-0-22
Rauðarárstíg 31
SÍMt 1-44-44
mJUFW/fí
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGINIÚSAR
4kiphoui21 mmar 21190
oHirlokwn-- ■ 4033]
LITLA
BÍLALEIGAN
Bercstaðastræti 11—13.
Hacstætt lei{U{jald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 31748.
Sigurður Jónsson.
Balastore
Balastore gluggatjöldin
eru í senn þægileg og
smekkleg. Uppsetning er
afar auðveld, og létt verk
að halda þeim hreinum.
Fóanleg í breiddum fró
40-260sm (hleypur á 10
sm). Margra óra ending.
Vindutjöld
Framleiðum vindutjöld í
öllum stærðum eftir máli.
Lítið inn, þegar þér eigið
leið um L'augaveginn!
Húsgagnaverzlun
KRISTJÁNS
SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13, sími 13879
0 Garðar og sauðfé
Hér er komiS á framfæri bréfi
frá Hansínu Jónsdóttur:
„Kæri Velvakandi!
Mig langar til að biðja þig að
flytja konunni, sem skrifaði þér
27. f.m., „einni, sem þykir vænt
um garðinn sinn“ bréf það sem
hér fer á eftir:
Þar sem þú segist vera sveita-
kona, leyfi ég mér að ávarpa þig
að sveitasið og segja: „Komdu
sæl“. Mig langar að ræða nokkur
atriði, sem fram koma í bréfi
þínu út af grein minni, „Sauðfé
í Reykjavík". Það er í fullri ein-
lægni sagt, að ég skil vel tilfinn-
ingar þínar út af garðinum þín-
um og viðurkenni fullkomlega
rétt þinn og annarra, um vernd
fyrir hvers konar ágangi I garða
sína. Það vill nú svo tU, að mér
þykir líka vænt um blóm og hef
kappkostað að hafa þau kringm
um mig úti og inni. Þess vegna á
ég hægt með að skilja þá, sem
er sárt um blómin sín. En þar
sem augljóst er, að víða gætir
verulegs misskilnings og van-
þekkingar á málum fjáreigenda
og baráttu þeirra fyrir því að fá
að halda kindum sínum, vil ég
leitast við að útskýra nokkur
atriði þessa máls. Það er stað-
reynd, að meira en helmingur
þess fjár, sem sækir í garða
Reykjavíkur, er ekki fé fjáreig-
enda í borginni. Það kemur slang
ur af fé jafnvel austan úr Árnes-
sýslu og af Suðurnesjum og þá
auðvitað af öllu svæðinu miUi
þessara sveita og Reykjavíkur.
Það ætti því að vera augljóst
hverjum þeim, sem vill líta hlut-
drægnislaust á þetta mál og halda
sig við staðreyndir, að niðurskurð
ur Reykjavíkurfjár væri tilgangs-
laus. Utanaðkomandi fé myndi
halda áfram að herja á ógirta
garða í borgarlandinu og
skemma þá. Fjáreigendur í
Reykjavík myndu áreiðanlega
ekki spyrna við fótum, ef lausn
vandans byggðist á útrýmingu
kinda þeirra og varðaði við al-
mennings heill. Málið leysist að-
eins með því, að borgarlandið sé
girt af á viðunandi hátt, svo að
kindur geti ekki skemmt garða
fyrir fólki".
§ „Hin eina rétta lausn“
„Fjáreigendur eiga margir
hverjir garða og vilja því með
öllum tiltækum ráðum stuðla að
því, að fundin sé hin eina rétta
lausn vandans en ekki gripið til
gagnslítilla aðgerða, sem bera
skýr merki vanþekkingar og
valdakúgunar ráðamanna. Borg-
aryfirvöldin hafa þvi miður
brugðizt hlutverki sínu við lausn
vandamálsins varðandi ágang bú
SKULDABRÉF
ríkistryggð til 15 ára óskast í umboðssölu.
FYRIBGREIÐSI.USKRIFSTOFAN
Fasteigna- og verðbréfasala
Austuratræti 14, sími 16223
Þorleifur Guðmundsson heima 12469.
Innritun
Kvenskátar 7. hverfi. Innritun verður í dag (mið-
vikudaginn 15. okt.) kl. 6—8 e.h. í skátaheimilinu
Hallveigarstöðum.
STJÓRNIN.
Útvarpsvirki
Útvarpsvirki, -sem tekið hefur siónvarpsnámskeið,
óskar eftir starfi. Margt kemur til greina. Hefur bíL
Upplýsingar í síma 66192.
Ungur piltur
SIMI 38500
óskast strax til starfa við sendistörf.
Nauðsynlegt að hann hafi próf á vélhjól.
Nánari upplýsingar gefur Skrifstofu-
umsjón og liggja umsóknareyðublöð
þar frammi.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
S AMVIN N UTRYGGINQAR
fjár í borgarlandinu, og virðist
þar skorta mjög á víðsýni og
þekkingu. Vonandi taka þeir mál
in til rækilegrar endurskoðunar,
áður en þeir bíða meiri álits-
hnekki en orðið er, og leysa mál-
in á þann hátt, að öllum sé til
heilla. Girða á borgina af og láta
fjáreigendur hafa landspildu til
Sfnota utan þéttbýlisins 1 stað
Hólmsheiðar, sem þeir áttu að
flytja á fyrir tveimur árum, en
sem kunnugt er, rufu borgaryfir-
völdin þann samning og hafa
eigi bætt. Þá fyrst geta garðeig-
endur verið í friði með garða
sína og fjáreigendur hirt kindur
sínar óáreittir og áhyggjulausir
um að skepnur þeirra fari öðrum
til meins. Borgarbörnin gætu þá
enn átt þess kost að sjá litlu löb-
in leika sér á vorin. Eg vona, að
þér og öðrum skiljist það, af
framanskráðu,, að hagsmunir
bæði garðeigenda og fjáreigenda
eru fólgnir I því að fá borgina
afgirta. Þeir ættu í sameiningu að
reyna að fá því framgengt, svo
að hver geti unað glaður við sitt"
0 Varzla fjárins
„Alkunnur er málsháttur sá, að
ekki þurfi nema einn gikkinn í
hverja veiðistöðina. Ekki skal ég
deila við þig um það að einhver
slíkur kunni að finnast meðal
fjáreigenda. Hvar skyldi sú
„veiðistöð" vera, að sú mann-
tegund fyrirfinnist ekki? En ekki
fæ ég skilið hvernig fjáreigendur
ættu að taka hvern annan ,úr um-
ferð.“ Ekki háfa þeir dómsvald
hver yfir öðrum. Vera má, að
þeir hefðu staðið betur að vígi,
ef þeir hefðu fengið vörzlu fjár-
ins í hendur yfir sumarið. En
þótt fjáreigendafélagið hafi boð-
izt til að taka það starf að sér,
hafa borgaryfirvöld ekki viljað
þekkjast það. Virðist þó, að þhð
hefði verið sterkur leikur að gera
þannig fjáreigendur ábyrga fyrir
því, að fé færi ekki til meins í
borgarlandinu. En þar sem starf
þetta hefur verið falið öðrum að-
ilum, er fjáreigendum óheimilt
að hafa þar afskipti af. Þá væru
þeir að fara inn á annarra verk-
svið. En úr því að farið er að
minnast á vörzluna væri ekki úr
vegi að minnast þess, sem haft
var eftir borgarstjóranum í frétt
í sjónvarpinu fyrir skömmu. Þar
kom fram, að borgarlandið er
talið girt, en með nokkrum eyð-
um þó. Varzla sú, sem borgin
annast hafði kostað 500 þús.
krónur siðastliðiíi ár, og séð er
fram á, að upphæðin verði hærri
þetta árið. En má þá ekki spyrja:
Hvað er eiginlega gert fyrtr
alla þessa peninga, úr því að á-
standið er svo slæmt sem af er
látið? Mér virðist ekki vandséð,
að þarna hljóti að vera pottur
brotinn, og að betur mætti vanda
til þessara vinnubragða".
0 Friðsamlegir
samningar
„Þár sem þú getur svo fullkom-
lega gert mín orð að þínum, er
þú lýsir tilfinningum þínum
hljótum við að hafa eitthvað lík-
ar tilfinningar. Þá getum við
ekki verið á öndverðum meiðL
Við hljótum að vilja jafna
hvers konar ágreining. Biðja þá,
sem völdin hafa, og hvern þann,
sem áhrif getur haft að leggja
sig fram að leysa þetta viðkvæma
mál. Ekki að hætti stórveldanna
þar sem sá máttarminni er kúg-
aður og kvalinn, heldur með frið
samlegum samningum í anda
þess lýðræðis, sem við ÖU teljum
okkur fylgja. Við viljum ekki, að
neinir falli í valinn reiðir, særðir
yfirbugaðir, en aðrir gangi með
ímyndaðan sigurpálma í höndun-
um. Þeir sem þannig vinna að,
eru rangstæðir á leikvangi lífsins
og hljóta að missa marks. Gætum
þess, að sá einn er sannur sigur-
vegari, sem vinnur bug á því illa
í sjálfum sér, setur réttlætið í
öndvegi og réttir náunga sínum
bróðurhönd.
Þökk fyrir birtinguna.
Reykjavík 10. okt. 1968.
Hansína Jónsdóttir"
0 Ljósastilling
Þá hefur Velvakanda borizt
eftirfarandi bréf frá Sveini EgUs-
syni h.f.:
,Kæri Velvakandi,
Vegna bréfs P.O.Þ. í dálkum
þínum 9. okt. sl. varðandi ljósa-
ahugun er fram fór á bifreiða-
verkstæði Sveins Egils9onar h.f.,
vil ég koma eftirfarandi athuga-
semd á framfæri.
Ljósaskoðun þessi fór framund
ir eftirliti Bifreiðaeftirlits ríkis-
ins .og voru menn frá því á þeim
stöðum, sem ljósaathugun þessl
fór fram. Þeir ákváðu hvaða bif-
reiðir voru með fullkominn ljósa-
útbúnað. Einnig höfðu þeir um-
sjón með því að stiUitækin, sem
notuð voru væru rétt stillt.
Virðingarfyllst,
Sveinn Egilsson h.f.
Bent Jörgensen,
BLADBURÐARFOLK
ÓSKAST
r eftirtalin hverfi:
Laneholtsvegur frá 110—208 — Lauearnesveeur
frá 34—85.
Talið við afgreiðsluna / sima 10100
Ibúðarkaup
Vil kaupa 4ra herbergja íbúð á Reykjavíkursvæðinu,
sem mest sér.
Tilboð sem tilgreini lýsingu, verð, áhvílandi skuldir,
greiðsluskilmála o. fl. sendist Mbl. fyrir hádegi á
föstudag mérkt: „fbúðarkaup — 2151“.