Morgunblaðið - 16.10.1968, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIBVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
Jóhannes Sveinsson Kjarval. (Myndina tók Arni Johnsen,
þegar hann og Kjarval voru á gönguferð um borgina fyrir
skömmu).
^Siihiuai
LualrniALir
til Kjarvals 15. 10. 1968
Þær völdu stað
hvar vindur gnauðar —
valmúurnar
fagurrauðar.
Ég sá þær uppi
á heiði hátt
horfa blítt
í sólarátt.
Á silkiblöðunum
sátu tár —
signdi döggin
þurrar brár.
Þær sveigðu krónur —
kysstu jörð.
Sá koss var
hógvær þakkargjörð.
Fegurð sína
fína — tæra —
þær færðu bljúgar
Skaparanum kæra.
Sú morgungjöf
er minning þessi geymir —
í mínu ljóði
til þín — vinur — streymir.
Steingerður Guðmundsdóttir. |
Ljóð þetta, sem hér birtist, átti að koma í Morgunblaðinu |
á afmæli listamannsins, sem vaa- 15. okt., en af óviðráðanleg-
um ástæ'ðum birtist það ekki, en kemur nú.
Loftpressur — gröfur
Tökum að okkur alla oft-
pressuvinnu, einnig gröfur
til leigv Vélaleiga Símon-
ar Símonarsonar, sími
33544.
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir,
Hemlastilling hf,
Súðavogi 14. - Sími 30135.
Húsbyggjendur
Milliveggjapl., góður lager
fyrirl. Einnig hellur, kant-
steinar og hleðslusteinar.
Hellu- og steinsteypan sf.,
við Breiðholtsv, Sími 30322
Táningabuxur
þykkar og þunnar. Ný snið.
Fimleikafotnaður. Helanca
skólásamfestingar. Hrann-
arhúðin, Hafnarstr. 3, simi
11260. Grensásv. 48 s. 36999
Góður 10 tonna bátur
til leigu, leigist mjög sann-
gjamt. Leigan má greiðast
með fiski. Uppl. í sima
40083 eftir kl. 7.
Stúlka
með stúdentsm., kennarapr.
og góða málakunnáttu ósk-
ar eftir atvinnu strax.
Uppl. í síma 11887 milli
1 og 4 í dag og á morgun.
Atvinna
Kona óskar eftir atvinnu
við uppþvott og til aðstoð-
ar í eldhúsi. UppL í síma
84497.
Loftdæla
Til sölu er ný loftdæla
ásamt tækjum til múr-
sprautunnar. Símj 38971.
Olíukynding
Óáka eftir sjálfvirkri olíu-
kynding með öllu tiiheyr-
andi. Uppl. í síma 14972
eftir kl. 7 á kvöldin.
Get tekið að mér bam
allan daginn. Upplýsingar í
síma 10587, Hávallagötu 44,
kjallara.
Konfektmót
Er kaupandi að konfekt-
mótum. Upplýsingar í síma
82376.
Atvinnurekendur
Ungur maður með stærð-
fræðideildarstúdentspr. ósk
ar eftir atvinnu. Margs
konar starf kemur til gr.
Tilb. m. „2073“ sendist Mbl.
Mold — mold
Góðri mold mokað á bíla i
dag og á morgun, Mána-
braut 8, Kópavogi. Upplýs-
ingar í 9Íma 41178.
Honda
árgerð '68 til sölu nú þegar.
Einnig til sölu Höfner
bassagítar og magnari. —
Upplýsingar í síma 2-49-27
kl. 19—20 e. h.
„Au pair“-stúlka
óskast á gott heimili í Eng-
landi. Uppl.' í síma 84497
kl. 3—5 í dag.
FRÉTTIR
LangholtssöfnuSur
óskar eftir aðstoðarsöngfólki i
allar raddir til að flytja nokkur
kirkjuleg tónverk á vetri komandl.
Uppl. gefur söngstjóri kirkjukórs-
ins, Jón Stefánsson, sími 84513 eða
formaður kórsins Guðmundur Jó-
hannsson, s,mi 35904.
Haustfermingarbörn
Séra Emils Björnssonar eru beð
in að koma til viðtals í kirkju
Óháða safnaðarins kl. 6 eftir há-
degi á morgun, fimmtudag 17. okt.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar, eldri
deild.
Fyrsti fundur starfsársins verður
á fimmtudagskvöldið 17. okt í Rétt
arholtsskólanum kl. 8.15
Kaffisala Fríkirkjusafnaðarins í
Hafnarfirði
verður sunnudaginn 20. okt. í A) -
þýðuhúsinu og hefst kl. 3. Kökum
eða öðru, sem velunnarar safnað-
arins vilja gefa, veitt móttaka i
Alþýðuhúsinu frá kl. 10 saraa dag.
Kaffinefndin.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunn
ar.
hefur fótaaðgerðir fyrir aldrað
fólk fimmtudaga frá kl. 9-12 i Hall
veigarstöðum, gengið inn frá öldu
götu. Tímapantanir i sima 13908
alla daiga frá kl. 10-12
Kristniboðssambandtð
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30 í kristniboðshúsinu Betaníu.
Séra Ingólfur Guðmundsson talar.
Allir velkomnir.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
heldur fund fimmtudagskvöldið
17. okt. kl. 8.30 í Kirkjubæ. Komu’
úr kvenfélagi Lágafellssóknar koma
í heimsókn.
Kvenfélag Lágafeilssóknar
heldur sinn árlega bazar að Hlé-
garði sunnudaginn 3. nóvember.
Vinsamlegast skilið munum í Hlé-
garð laugardagirln 2. nóv. kl. 3-5.
Frá Sjálfsbjörg
Skemmtikvöld Sjálfsbjargar verð
ur í Tjarnarbúð íaugardaginn 19.
okt. kl. 8.30. Aðgöngumiðar seld-
Lofið Drottinn, ákallið nafn hans
gjörið máttarverk hans kunn meðal
þjóðanna. (1. Krön. 16.8).
í dag er miðvikudagur 16. okt-
ober og er það 290 dagur ársins
1968 Eftir lifa 76 dagar. Gallus-
messa. Árdegisháflæði kl. 1.52
Upplýsingar um læknaþjónustu i
borginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknaféiags Keykjavík-
ar.
Læknavaktin í Heilsuverndarstöð-
inni hefur síma 21230.
Slysavarðstofan í Borgarspítalan
um er opin allar sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætur- og helgidagalæknir er
■ síma 21230.
Neyðarvaktin svarar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5
«sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1.
Kefiavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9-19, laugardaga kl 9-2
og sunnudaga frá kl. 1-3.
Kvöldvarzla í lyfjabúðum í Beykja
vík. vikuna 12.-19. okt. er í Holts
Apóteki og Laugavegsapóteki.
Fréttir
Næturlæknir í Hafnarfirði
aðfaranótt 17. október er Krist-
ján Jóhannesson sími 50056
Næturlæknir í Keflavík.
15.10 Arnbjörn Ólafsson
ir við inrtganginn.
Frá Orlofsnefnd Keflavíkur
Bingó verður haldið í Ungmenna
félagshúsinu fimmtudaginn 17. okt.
kl. 9 Góðir vinningar. Nánara í
götuauglýsingum.
Kvennadeild Borgfirðingafélagsins
heldur fyrsta fund sinn á starfs-
árinu fimmtudaginn 17. okt. kl. 8.30
í Hagaskóla Spilað verður Bingó.
Spilakvöld templara í Hafnarfirði
Félagsvistin í Góðt.húsinu mið-
vikudaginn 16. okt. kL 8.30 Allir
velkomnir.
KAUS, samtök skiptinema
halda aðalfund sinn laugardag-
inn 19. okt. kl. 4 að Fríkirkjuvegi
11. Stjórnarkjör. Umræðu- og úr-
vinnsluhópur fyrir árið 2000
Kvenfélagskonur, Njarðvíkum
Námskeið verða haldin í leður-
vinnu. Uppl. hjá Helgu Sigurðar-
dóttur, síma 2351 og í tauprenti.
Uppl. hjá Guðlaugu Karvelsdóttur
^íma 1381. Látið vita um þátttöku
fyrir 16. okt.
Kvenfélagskonur , Njarðvíkum
Nokkrir saumafundir verða
haldnir fram að bazar 24. nóv.
Bazarnefndin væntir þess, að fé-
lagskonur mæti á saumafund
fimmtudaginn 17. okt. kl. 9 í
Stapa til að vinna saman að góðu
málefni og auka kynnin
Kristniboðsféalgið í Keflavík
heldur fund 1 Tjarnarlundi
fimmtudaginn 17. okt. kl. 8.30 Allir
hjartanlega velkomnir.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins 1
Reykjavík
heldur Bazar mánudaginn 4. nóv
ember í Iðnó uppi. Félagskonur
og aðrir velunnarar Fríkirkjunnar
gjöri svo vel og komi munum til
frú Bryndisar Þórarinsdóttur Mel-
haga 3. frú Kristjönu Ámadóttur
Laugav. 39, frú Margrétar Þorsteins
dóttur Laugaveg 50 frú Elísabetar
Helgadóttur Efstasundi 68 og frú
Elínar Þorkelsdóttur Freyjugötu 46
Minningarspjöld minningarsjóðs
Maríu Jónsdóttur flugfreyju fást á
eftirtöldum stöðum:
VerzL Ócúlus, Austurstræti 7.
Verzl. Lýsing, Hverfisgötu 64
Snyrtistofunni Valhöll Laugavegi
25 og hjá Maríu Ólafsdóttur, Dverga
steini, Reyðarfirði.
Hjálpræðisherinn
efnir til æskulýðsviku vikuna 13-
20. október. Á sunnudag verður
Helgunarsamkoma kl. 11. Sunnu-
dagaskóll kl. 2 og almenn sam-
koma kl. 8.30, þar sem Séra Frank
M. Halldósrson talar. Ungt fólk
Hjálpræðishersins stjórnar samkom
unni. Á mánudagskvöld verður
samverustund með biblíulestri og
bæn kl. 8.30. Heimilasambandsfund
ur kl. 4. Allir hjartanlega velkomn
ir.
Elliheimilið Grund
Konur, Seltjarnarnesi
Munið íþrótta- og saumanám-
skeið á vegum kvenfélagsins Sel
tjörn.
Frá Sjáifstæðiskvennafélaginu
Vorboðanum, Hafnarfirði
Sauma og sníðanámskeið, hefst
miðvikud. 16. okt Kennt verður
í Sjálfstæðishúsinu kL 2-5 e.h. á
miðvikudögum. Uppl. og innritun
í símum: 50505 og 50630.
16.10 OG 17.10 Kjartan Ólafsson
18.10, 19.10 og 20.10 Guðjón Klem-
enzson
21.10 Kjartan Ólafsson
Ráðleggingarstöð Þjóðkirkjunnar
um hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9. 2 hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4-5, Viðtalstími prests,
þriðjudaj' og föstudag 5.-6.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9-11 f.h. og 2-4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2-8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9-11 f.h. Sérstök afnygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanaslmi Rafmagnsveita Rvik
ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt-
ur- og helgidagavarzla 18-239.
A-A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: I fé-
lagsheimilinu Tjarnargö n 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21,
Langboltsdeild, i Safnaðarheimill
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
OrS lífsins svara í síma 10000.
I.O.O.F. 9 = 15010168% =
I.O.O.F. 7 = 15010168% = 9H.
13 Helgafell 596810167 IV/V 2.
Kvenfélagið Keðjan
heldur fyrsta fund starfsársins
fimmtudaginn 17. okt. að Báru-
götu 11. kl. 8.30. Kvikmyndasýn-
ing.
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló
Vestmannaeyjum heldur aðalfund
miðvikudaginn 16. okt. kl. 9 í Sam-
komuhúsi Vestmannaeyja. Kaffi-
drykkja og leynigestur fundarins.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur í Félagsheimili Hallgríms-
kirkju fimmtudaginn 17. okt kL
8.30. Rætt um vetrarstarfið. — Ví-
enasöngur með gítarundirleik Ól-
afur Beinteinsson. Upplestur, kaffi.
Félagskonur beðnar að bjóða með
sér sem flestum nýjum félögum.
Ljósmæðrafélag íslands
Ljósmæður, gerið skil á bazarn-
um hið fyrsta. Bazarnefnd.
TURN HALLGRÍMSKIRKJU
Útsýnispallurinn er opinn á laug
ardögum og sunnudögum kl. 14-16
og á góðviðriskvöldum þegar flagg
að er á turninum.
Frá Reykvíkingafélaginn
Reykvíkingafélagið heldur splla
fund með góðum verðlaimum og
happdrætti með vinningum í Tjarn
arbúð fimmtudagskvöld þann 17.
okt. ki. 8.30. Félagsmenn taki gesti
með sér.
Spakmœli dagsins
Tungubroddurinn er mesti háska
staður heimsins. — H. Redwood
VÍ8LKORIM
Til Jakobs Thorarensen skálds
Með þökk fyrir kvæöi hans
„Tékkóslóvakíu" í Morgunblaðinu
24. ágúst.
Glatt þér andans eldar loga,
ekkl snilldartakið þrotið:
hvassri ör af orðsins boga
ágætlega að marki skotið.
Richard Beck
Akið vorlego
í umferðinni