Morgunblaðið - 16.10.1968, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
Tími Haines var
raunar 9.89 sek.
1 JlO úr sekúndu skildiað næstu 6 menn
Nú fer það bráðum að verða
lágmark í 100 m hlaupi til gull-
verðlauna að hlaupa á 10 sek-
úndum og til að vera viss, þarf
að ná betri tíma en það. Jim
Haines staðfesti í úrslitahlaup-
inu í Mexikó, að heimsmet hans
(ásamt tveim löndum hans) 9.9
sek var engin tilviljun. Hann
hlaut þann tíma í Mexikó í gær
— Og reyndar öliu betri, því
rafmagnsklukkurnar sem taka
Haines, er hann hljóp á 9,9
í fyrsta sinn.
tíma upp á 100. brot úr sekúndu
sýndu 9.89 sek.
!Það byrjaði fyrst að koma al-
vara í 100 m. hlaupið í 3. um-
^erð Þá gátu „stórhlaupararnir"
ekki lengur leikið sér á braut-
inni og talið þá sem á undan
voru og hægt svo á sér væru
þeir öruggir um „öruggt" sæti
til áframhalds.
I»að voru aðeins þeldökkir
sprettmenn, sem komust í gegn-
um ,,3.hreinsunareldinn“. Allir
Bandaríkjamennirnir voru þar ,á
meðal, en tveir af hinum frægu
Kúbumönnum Figurerola og Ram
irez náðu ekki í gegn.
Þarna tók Hains að sýna hvað
hann getur og fór létt með sig-
ur í öðrum riðlinum með 10.0
Green hljóp í 3. sinn á 10.0 og
vann hinn riðilinn.
Það var mikil spenna í loftinu
að venju er úrslitahlaupið hófst
Það var tekið að bregða birtu
en enginn var farinn úr sæti
sínu. Það mátti varla á milli
Bjá þó Hines væri greinilega
yfyrstur í markinu en næstu sex
menn skildi ekki nema 1.10 úr
sekúndu að. Rafmagnsklijkkur
eru sýnilega orðnar nauðsyn-
legar í slíkri keppni.
Það var ekki fyrr en á síð-
ustu 20 metrunum, að Hines var
kominn á fulla ferð og uppskar
Körfuknoitleikur
Körfuknattleikskeppni OL-leik
anna hélt áfram í gær og fyrra-
dag. Úrslit leikjanna urðu þessi:
Júgóslavía — Puerto Rico 93-72
Ítalía — Panama 94-87
Sovét — Marokko 123-51
Pólland — Suður-Kórea 77-76
Brasilía — Búlgaría 75-79
Mexíkó — Kúba 76-75
Spánn Filippseyjar 108-79
Júgóslavía — Senegal 84-65
Búlgaría — Marokkó 77-59
þá forskotið sem munaði Hinir
gátu ekki fylgt honum eftir.
Hines er 22 ára gamall, upp-
runninn á vesturströnd Banda-
ríkjanna þar sem hann bjó með
foreldrum og 8 systkinum.
Olm. Jim Haines USA 9.9.
2. Lennox Miller Jamaica 10.0
3. Charlie Green USA 10.0
4. P. Montez Kúbu 10.1
5 .R. Bambuck Frakki 10.0
6. Mel Pender USA 10.1
7. H. Jerome Kanada 10.1
^ : : : . : : : ■
Það er gaman hjá strákunum í Mexíókóborg þessa dagana. Þeir þyrpast kringum OL
endurna. Hér er svissneski M araþonhláuparinn Helmut Kunisk á æfingu og hefur
skara stráka á eftir sér.
-kepp-
heilan
Tveir Evrópumenn vörpuðu j Stig Og
20 m og klufu trio USA
En Matson nádi ekki að bæta metið
ÞEGAR hinir 12 rammefldu jötn-
ar gengu til úrslitakeppninnar í
kúluvarpi er líða tók á mánu-
daginn urðu mikil átök, en upp-
skeran lakari í kastlengdum en
búizt hafði verið við. Gullið og
silfrið „skilaði" sér að venju tU
Bandaríkjamannanna — en þar
hafðj einnig verið vonazt eftir
bronsverðlaununum — einnig að
venju. Sú venja brást nú og 3.
Bandaríkjamaðurinn náði „að-
eins“ í 5. sæti.
Það var hinn nýbakaði Evrópu
methafi, Sovétmaðuxinn Eduard
Gustsin sem hreppti bronsið með
20,09 m» varpi og annar Evrópu
maður, A-Þjóðverjinn Dieter
Hoffmann náði einnig 20 m mark
inu, réttu og sléttu. Að tveir
Evrópumenn næðu 20 m hefði
einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar.
Að vísu skeði það á leikunum
í Róm að Ungverjinn Varju
klauf bandaríska tríóið og
hreppti bronsið. Nú var hann
ekki í essinu sínu á sunnudags-
49,6 sek. nægði ekki
til að komast í úrslit
— frábær árangur i undanrásum
400 metra grindahlaupi
i
Sennilega hafa aldrei jafnari
menn að getu leitt saman hesta
sína í 400 metra grindahlaupi og
verður í úrslitahlaupinu í þess-
Hér er Ron Whitney í 400 m.
grindahlaupi og stíllinn er kraft-
mikill þó hann sé á síðustu grind
og setji heimsmet 49.0.
ari grein í Mexíkó. Það hefði
einhvern tímann þótt saga til
næsta bæjar, að 49,6 sek. nægðu
ekki til að komast í úrslitahlaup.
En slík urðu örlög hins heims-
þekkta grindahlaupara Gary
Knoke frá Ástralíu. í undanúr-
slitunum smeygði Rússinn Skom
akov sér fram úr honum á
marklínu og hreppti fjórða sætið
í riðlinum og þátttökuréttinn í úr
slitahlaupinu.
Bandaríkjamenn hafa löngum
verið einvaldir í þessari grein á
Olympíuleikunum, en nú virðist
veldi þeirra ógnað verulega.
Heimsmethafinn Geoff Vander-
stock sem hljóp á 48,8 sek. fyrir
skömmu varð annar í sínum riðli
á eftir ftalanum Frinolli. Báðir
fengu tímann 49,2 sek. Þriðji
varð Sherwood frá Bretlandi á
49,3 og Schubert, V-Þýzkalandi
4. á sama tíma.
f síðari riðli undanúrslitanna
yar ekki síður barizt. Henning
frá V-Þýzkalandi sigraði á 49,1
sek., en Ron Whitney USA varð
annar á 49,2 sek. Hann hafði for-
ustu lengst af í hlaupinu en þeg
ar hann sá að úrslitasætið var
tryggt sló hann af og leyfði
Þjóðverjanum að fara frammúr.
Hemery, Bretlandi varð 3. á 49,3
Framhald á bls. 26
morguninn og skorti sentimetra
á að hann kæmist í aðalkeppn-
ina — og var úr leik. Það hafa
verið þung spor af vellinum fyr-
ir hann þann morgun. En svona
víxlast gleði og sorg á OL-leik-
um.
Hinn mikli yfirburðasigur
Matsons í undankeppninni, þeg-
ar hann kom snemma morguns,
tók kúluna, handlék hana um
stund, gekk í hringinn og varp-
aði henni 20.68 m og bættj Ol-
ympíumetið um 35 sm og gekk
síðan á brott, benti ótvírætt til,
að honum tækist þá er hann
fengi 6 tilraunir í skemmtilegri
keppni og með þéttsetinn völl að
baki, að bæta þetta met aftur
og mun betur.
En svo varð ekki. M.a. vegna
þess og hins að flestir þeir beztu
náðu sínum beztu köstum þegar
í fyrstu umferðúnum, féll þessi
kúluvarpskeppni og varð eins-
konar skuggi af sjálfri sér.
Randy Matson er risi að vexti
og jötunn að afli. Hann er frá
Texas og sagður einkum leggja
sér til munns kraftaukandi
kjarnamat. Hann varð í 2. sæti
á leikumim í Tókíó, en hefur
síðan s'kotið öllum ref fyrir rass
og sett heimsmet langt yfir 21
metra.
Ýmsir aðrir börðust af minni
getu en búizt var við og náðu
sumir ekki þeirri kastlengd, sem
þeir höfðu tryggt sig með til
aðalkeppninnar daginn áður.
Varpaði sá lakasti 18,14.
Olm. R. Matson Bandar. 20,54.
2. George Wood Bandar. 20,12.
3. Eduard Gustsin Sovét 20,09.
4. D. Hoffmann A-Þýzkal 20,00.
5. E. Maggard Bandar. 19,43.
6. W. Komar Pó'llandi 19,28.
verðlaun
EFTIR fyrsta keppnisdagi
[Olympíuleikanna var skipting’
' verðlauna milli þátttökuþjóða I
) og stigatala í hinni óopinberu (
ptigakeppni leikanna eftirfar-i
Landi:
'Sovét
(Bandar.
1 Ungverjaland
.Pólland
'Japan
I Rúmenía
iíran
l Mexíkó
[ Austur-iÞýzkal.
I Kenya
| Bretland
| Jamaíka
í Eþíópía
[Túnis
| Austurríki
|Kúba
l Frakkland
l Austur-Þýzkal.
í Júgóslavía
I Ástralía
I Puerto Rico
Skaut sig ó
OL-leikvangi
ÓÞEKKTUR áhorfandi skaut s
til bana í minna en 100 m fja
lægð frá rásmarki hjólreiðí
manna, er keppni þeirra var £
hefjast í dag. Maðurinn var v
klæddur og er allt var að verí
tilbúið dró hann skammbyssu i
vasa sínum lagði hana að höf
sér —• að öllum ásjáandi c
hleypti af. Lögreglan flutti li
hans á brott.
Meistarinn úr leik
OLYMPÍUMEISTARINN í spjót
kasti frá Tokíóleikunum, Finn-
inn Paul Nevala, varð fyrir þung
um örlögum í gær er undan-
keppni fór fram. Honum téritst
ekki að komast í aðalkeppnina
og getur því ekki varið titil
sinn. Þessi örlög minna á sams-
konar atvik er kom fyrir á síð-
ustu ieikjum er heimsmethafnn
norski, Terje Pedersen komst
ekki í aðalkeppnina.
Enginn skilur þennan atburð
því Nevala er frægur fyrir sitt
rólega keppnisskap. Hann þurfti
að kasta 80 m og það er honum
oftast nær leikur einn. En nú
komst þann ekki lengra en 77.90.
Rússinn Lusis var hinn öruggi
kastari, kastaði aðeins einu sinni
og lengdin mældist 83,68. Aðrir
voru í spennu til 3. umferðar.
Lengst kastaði Svíinn Karl Nils
son, 84,74. Meðal úrslitamanna
eru m.a. Sidlo, Póllandi, gamal-
kunnur garpur.