Morgunblaðið - 16.10.1968, Qupperneq 17
MORGUNB'LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
17
ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM:
T7nTrrrm
í>AÐ er mikið talað um stór-
myndirnar, en þó eru myndirn-
ar miklu fleiri, sem ekki er með
neinu móti hæ*gt að kalla stór-
myndir. Þrjár slíkar hef ég séð
á stuttum tíma, eina franska,
eina ameríska og eina enska.
Sú franska er sýnd í Kópá-
vogsbíói og nefnist „Teflt á tví-
sýnu“. Hún er að öllu leyti
venjuleg frönsk njósnamynd,
nema að því, að Virna Lisi er
meðal leikenda. Virðist líklegt
að þessi mynd sé meðal þeirra
hlutverka, sem hún vildi gjarn-
an gleyma, því að hún leikur
ekki vel og er langt frá því að
vera eins falle'g og hún hefur
verið í öðrum kvikmyndum.
Handritið er mistök frá upp-
hafi til enda. Fjallar það um rán
á líkani af eldflaug, sem er svo
ólíklega framkvæmt, að ekki get
ur talizt afsakanlegt. Myndin er
illa gerð tæknilega og mynda-
takan óvenju slæm. Svo léleg er
myndatakan, að það tekst að
leyna því að Virna LLsi er vel
vaxin .Hún verður nærri því eins
flöt og karlmennirnir. Hetjan er
leikin af Dominique Paturel,
sem gerir það allvel. Heldur
subbuleg lítil mynd, sem reynir
að réttlæta tilveru sína með
gerviraunsæi.
í Háskólabíói er sýnd myndin
„Lestarránið mikla“. Segir hún
frá stúlknaskóla, sem flytur inn
í gamalt hús, þar sem skömmu
áður hafði verið falið þýfi úr
miklu lestarráni, tvær og hálf
milljón sterlingspunda. Skóli
þessi er sérstakur um marga
hluti, svo sem að hafa veðmála-
skrifstofu á lóðinni, drykkju-
veizlur stúlknanna, fjárhættu-
spil o.s.frv.
Ein stúlknanna finnur pening-
ana, þar sem þeir eru geymdir
undir senunni í samkomusal
skólans. Segir hún engum frá,
en fer að veðja stórum upphæð-
um á hesta. Veðmálamiðlarinn
verður fullur grunsemda, eltir
hana og finnur þýfið. Reynir
hann að fá sem mest út úr þess-
ari vitneskju, en þykir heldur
lítið til koma tíu þúsund punda
verðlauna, sem eru í boði fyrir
þann, sem fundið getur þýfið.
Ræningjarnir eru þó ekki af
baki dottnir og tekst að ná þýf-
inu og koma því í járnbrautar-
lest. Hefst þá eltingaleikur í
járnbrautalestum, milli þjóf-
anna, stúlknanna og lögreglunn-
ar. Er þetta lang bezti hluti
myndarinnar og mjög' skemmti-
legur kafli. En myndin ber þess
of mörg merki, að vera búin til
fyrst og fremst fyrir innanlands-
markað í Bretlandi, þar sem ým-
islegt er fyndið, sem er sjálfsagð
ur hlutur hér. Á þétta sérstak-
iega við alla brandara, sem
byggj.ast á stéttaskiptingu, en
þeir eru margir í svona mynd.
í Stjörnubíói er sýnd myndih
„Á öldum hafsins". Fjallar hún
um íþrótt, sem ekki er þekkt hér
á landi sem er í því fólgin að
renna sér á þar til gerðu bretti
eftir öldum, þegar þær berast
að gtröndinni. Er þetta mikið
iðkuð íþrótt á vesturströnd
Bandaríkjanna, á Hawaii og í
Ástralíu. Mun hún vandasöm og
10 ÁRA ABYRGÐ
TVÖFALT
INANGRUNAR
20ára reynsla fiérlendi
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO h
r
10 ÁRA ÁBYRGD
Stofnfundur
Klúbhsins ÖRUGGUR AKSTUR á Vopnafirði verður
haldinn n.k. föstudag — 18. okt. — kl. 21.30 í mötu-
neyti síldarverksmiðjunnar.
D a g s k r á :
1. Ávarp: Halldór Karl Halldórsson, kaupfélagsstjóri.
2. Afhending viðurkenningar- og verðliaunamerkja
Samvinnutrygginga 1967 fyrir 5 og 10 ára öruggan
akstur. (
3. Framsaga Baldvins Þ. Kristjánssonar um klúbba-
hreyfinguna og umferðaröryggið.
4. Stofnun Klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR á Vopna-
firði — lagasamþykkt, stjórnarkjör.
5. Sameiginleg kaffidrykkja í boði hins nýja klúbbs.
6. Umferðarkvikmynd.
Þeir, sem á undanförnum árum hafa hlotið viður-
kcnningu Samvinnutrygginga fyrir öruggan akstur,
eru hér með sérstaklega boðaðir á stofnfundinn, en
auk þess allir bifreiðatryggjendur félagsins í kaup-
túni og sveit.
I
Allt áhugafólk um umferðaröryggismál er velkomið
á fundinn.
SAMVINNUTRYGGINGAR.
útheimtir miikð jafnvægi og ná-
kvæmni.
Ekki verður sagt að það lofi
góðu að Fabian skuli w;ra í að-
alhlutverki. Það er þó nokkur
sárabót, að hann syngur ekkert
í myndinni. Þrír ungir menn
koma til Hawaii til að stunda
„surfing“, einis og ég neyðist til
að kalla þessa íþrótt, vegna vönt
unar á íslenzku orði. Að sjáif-
sögðu verða þeir allir að lenda
í ástaræfintýrum strax í byrjun
myndarihnar og fer fyrsti hálf-
tíminn að miklu leyti í það.
En svo fer skyndilega að verða
gaman. Þá ier búið að afgreiða
ástarmálin að mestu og þeir fara
að. stunda surfing. Það er aug-
ljóst, að þetta hlýtur að vera ein
af mest heillandi íþróttum sem
til eru. Það er ekki hægt annað
en að hrífast af þeirri fggurð
sem hafinu fylgir, og þeirri
furðulegu kunnáttu, si:m lýsir
sér í að svífa eftir öldutoppun-
um og niður í öldudali á ofsa-
hraða. Það er líka ógnvekjandi,
þegar sjórinn nær mönnunum
og kastar sér yfir þá af. þunga
og miskunnarleysi. Þetta er ekki
hættulaus íþrótt, þegar komið er
VARTA
rolhlöður
Traustar, endingargóðar,
geymast vel.
Heildsölubirgð ir:
*
Jóh. Olafsson & Co.
Hverfisgötu 18.
Símar 11630 - 11632.
út í þrjátíu feta háar öldur.
Varla er ástæða til að geta um
leikendur, að öðru leyti en því,
að Fabian er til stórskaða og
James Mitchum, sonur Roberts
Mitchum, er mjög skemmtileg
manngerð, ekki ólíkur föður
sínum.
Myndatakan er í litum og er
heldur ómerkileg, þegar verið
ier að fást við fólkið, enda sér
maður það síðar, að það er auka
atriði. Það sem vinnan og áhug-
inn hafa snúizt um eru senurn-
ar frá sjónum og þær eru stór-
kostlega gerðar. Það er hægt að
ímynda sér hver vandkvæði eru
á slíkri myndatöku, en hún er
frábærlega heppnuð. Mynd þessi
er óvenjulega stutt, lekki nema
sléttur klukkutími, -og þess virði
að sjá hana, þó léleg sé sem
kvikmynd, til þess eins að sjá
surfing.
Peningar
Kaupi veðtryggða víxla 100—500 búsund.
Tilboð merkt: „Viðskipti — 2114“ sendist strax.
rf„ Opidallo dogo til kl. 24
Þar negla þeir upp bæði notuð og ný snjó-
dekk, skera snjómunstur í slitnu hjólbarð-
ana, og hafa til sölu allar stærðir af
BRIDGESTONE og finnsku NOKIA snjó-
hjólbörðunum, ásamt ódýrum snjóhjólbörð-
um sóluðum í Þýzkalandi.
Reynið viðskiptin.
Opið alla daga til kl. 24.
Hjólbarðaverkstæbi Kópavogs
Kársnesbraut 1.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ
FRAM HAFNARFIRÐI
heldur fund næstkomandi fimmtudag 17. þ.m.
kl. 8.30 síðdegis í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarefni:
Jóhann Hafstein, dómsmálaráðherra,
ræðir viðhorfin í þingbyrjun.
Skorað er á allt sjálfstæðisfólk að fjölmenna
á fundinn.
STJÓRNIN.
Vélrítunarstúlka oskast
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir góðum vélritara. Vélritun á ís-
lenzku, ensku og dönsku. — Upplýsingar um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist Mbl. fyrir fimmtudagskvöld 17/10, merktar:
„Trúnaður — 2089“.