Morgunblaðið - 16.10.1968, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
21
Skólamál og skinhelgi
Skólamál okkar hafa sætt mik
illi gagnrýni nú síðustu árin og
ekki að ástæðulausu. Óstjórnog
agaleysi setur í æ ríkam mæli
Bvip sinn á skólastarfið, eink-
um í Reykjavík. Á þetta við um
marga gagnfræðaskólana, og
ekki er ástandið betra í fram-
haldsdeildum barnaskólanna og
árangurinn eftir því. Skólastjór
ar og yfirkennarar sjá víðast
hvar einir um stjórn skólanna án
samvinnu við kennara, en eru
önnum kafnir við alls konar
skriffinnsku. Dæmi munu þess,
að kennarar einnar og sömu
bekkjardeildar sjáist ekki allan
starfsdaginn. Skipulagsleysið býð
ur agaleysinu heim. Allir,
sem við kennslu fást, vita, að ró
og vinnufriður er algert skil-
yrði þess, að árangur náist.
Óstjórnin verður til þess, að
kennarar gemst kærulausir eða
taka sér önnur störf fyrir hend
ur. Margir nýliðar í kennara-
stétt. oft góð kennaraefni, fá
sína fyrstu reynslu í þessu öng-
þveiti og leggja framtíðarstarf
sitt á hilluna. Hinn kunni skóla
maður, Snorri Sigfússon, sagði
fyrir nokkrum árim í útvarpser-
indi, að lélegur kennari væri
verri en enginn. Má þá ekki
ætla að skólastofnanir geti orðið
svo lélegar, að þær megi telj-
ast verri en engar?
Ófremdarástandið í skólamál-
um hefur að sjálfsögðu haft
áhrif á árangur nemenda og vald
ið óánægju meðal almennings.
Aldrei er samt ráðizt gegn
sjálfri meinsemdinni. Hins vegar
hefur það verið gert að nokk-
urs konar Þjóðlygi, að skólakerf
ið og fræðslulögin standi í vegi
fyrir því, að nýjungar séu gerð-
ar á kennsluháttum. Landspróf
ið á að vera eitthvert ógnvekj
andi pyntingartæki. Þjóðlygi
þessi hefur fallið í góðan jarð-
veg hjá foreldrum, sem hafa
slæma reynslu af starfsemi skól
anna, en gera sér ekki grein fyr
ir orsökinni. Áróðurinn gegn
fræðslulögunum og landspróf-
inu hefur orðið svo vinsæll, að
jafnvel þjóðmálaskúmar, sem
ekkert þekkja til kennslumála,
oft undirmálsmenn líka svo,
hafa tekið undir þjóðlygina og
kryddað hana með sínu lagi.
Og nú er svo komið, að þeir
sem með skólamál fara, stand
ast ekki lenguir áróðurinn og
gera hvert axanskaftið öðru
verra til þess að friða almemint-
ing. Gleggsta dæmi þess eru af-
glöp nefndar þeirrar, sem hefur
með landspróf miðskóla að gera
— landsprófsnefndar.
Rétt um það leyti, er gagn-
fræðaiskólar tóku til starfa
haust, hélt formaðuir landsprófs
nefndar og hinna svonefndu
„Skólarannsókna" fund með
fréttamönnum útvarps og blaða.
Bar fundur sá öll einkenni
skrums og áróðurs. Skýrði for-
maðurinn frá nýrri reglugerð
um landspróf miðskóla. Breyt-
ingarnar, sem reglugerðin felur
í sór, eru aðallega á tilhögun
prófa og einkuntnagjöf. Lýsti
hann yfir því, að landsprófs-
nefnd telji „athuganir og útreikn
inga“ benda til þess, að með þess
ari nýskipan mætti „fá jafn-
áreiðanlega niðurstöðu af próf-
inu með minni fyrirhöfn og til-
kostnaði". Hér er farið með svo
miklar staðleysur, ef ekki vís-
vitandi falsanir, að vítavert er.
Með breytingum þeim, sem gerð
ar eru á einkunnagjöf er verið
að koma á vinnusvikum kenn-
ara og löggilda handahófskennd
vinnubrögð. Það virðist ekki tek
ið tillit tiíl þess í útreikingnum
og athugunum", að nemendur
séu gæddir því, sem nefnt er
iréttlætiskennd. „Skólarannaókn
ir“ og landpsrófsnefnd virðast
byggja allar breytingar sínar og
fimbulfamb á tölvufóðri. Engin
haldbær rök eru fyrir þeim breyt
ingum, sem gerðar eru, allt mæl-
ir þeim á mórtL
TÖLVAN OG EINNKUNNA-
GJÖFIN
Landsprófsnefnd skipar svo
fyrir, að nú skuli gefa eink-
unnir aðeins í heilum tölum frá
0-10. Landspróf er til þess að
velja nemendur til framhalds-
náms. Kennurum og prófdómur-
um er lögð mikil ábyrgð á herð-
ar, er þeir gefa einkunnir. En
nú reynir landsprófsnefnd að
koma á handahófskenndum vinnu
brögðum án þess að leysa neinn
vanda. Skal ég nú taka dæmi
þessu til söimnunar.
Tveir nemendur, ég kalla þá
A og B, þreyta landspróf.
Nemandi A hlýtur einnkunn-
ina 5.5. í öillum prófgreinum. Eft
ir breytingu landsprófsnefndar
er einkunninn hækkuð upp
hverri grein. Nemandi fær aðal-
einkumnina 6 og rétt ti'l þess að
setjast í framhaldsskóla, t. d.
menntaskóla.
Nemandi B hlýtur einkunnina
6.4 í sjö prófgreinum en 5.4 í
einni. Hann fellur, nær ekki
framhaldseinkunn:
Hvor þessara nemenda er bet
ur undir fmmhaldsnám búinn?
Hefur landsprófsnefnd rennt
þessum dæmum í tölvuna?
Ég hef kennt landsprófsnem
endum íslenzku nokkra vetur. Ég
tel geysimikinn mun á getu
tveggja nemenda ef annar hlýt-
ur 8.5. en himn 9.4, Landsprófs-
nefnd leggur þessar einkunnir
að jöfnu þótt aðeins muni einum
tíunda að mismunurinn sé heil
tala. Sá, sem htýtur einkunnina
8.5 er námsmaður rétit í meðal-
lagi. Hinn, sem hlýtur 9.4 er
mjög góður.
Tveir nemenda minna hlutu
einkunnina 9.9 á síðasta lands
prófi, Er sanngjamt að meta ár-
angur þeirra til jafns við árang
ur þess, sem hilýtur 8.5.? Eða á
bannski að brjóta þá hefð-
bundnu reglu að gefa ekki 10,
nema úirausn prófs sé algerlega
villulaus? Nemendur mínir
þekkjast og vita um þann mun
sem er á getu þeirra, því að
ég hef stundum skyndipróf,
Æt'li þeim þyki hún sanngjöm
„niðurstaðan“, sem landsprófs
nefnd segir að breytist ekki?
En býður svo þessi breyting
engum vanda heim? Lanidsprófs
nefnd segir sjálfsagt, að auð
veldara sé að gefa í heilum töl-
um og „kostnaðarminna“. En þeir
sem úr prófunum vinna, eru
settir í enn meiri vanda, þegair
þeir þurfa að ákveða, hvort
gefa skuli t.d. 6 heila eða
o.s.frv. Nú getur einn tíundi orð
ið að heiild tölu. Hér getur
mjög mörgum tilvikum munað
mjóu og enn meiri ábyrgð að
dæma en áður. Það lítur hins
vegar vel út í auglýsingu að
segja: „Niður með smásmyglina".
Kennsla fyrir landspróf er tví
pætt, fræðsla og þjálfun. Kenn-
ara er skyirt að kenna nemend-
um nákvæm og markviss vinnu-
brögð. Skyndipróf með hæfilegu
millibili eru ekki aðeins nauð-
synleg til upprifjunar, heldur
einnig sú bezta þjálfum sem völ
er á, ef til þeirra er vandað.
Nemamdanum er líka þörf á að
isjá framfarir sínar, þótt litlu
muni frá einu prófi til annars.
Prófin eru driffjöður kennslunn
ar. Breytingar landsprófsnefnd-
ar á einkunnagjöfinni hljóta að
leiða af sér ónákvæmni í vinnu-
brögðum kennara — og það sem
verst er nemendanma einnig. Það
eru þau einu áhrif, sem nýskip-
anin getur haft auk þess, sem
áður er sagt. Sú h'lið þessara
breytinga, sem að nemendunum
veit er skuggalegust.
Landsprófsnefnd lætur greini
lega að vilja þeirra, sem gefizt
hafa upp við að stunda skipu-
leg kennslustörf við agaleysi og
óstjórn og vilja helzt afnema ÖU
próf. Vissuilega hefur landsprófs
nefnd stigið spor í áttina. Einn
nýstúdenta sagði síðast liðið vor
í blaðaviðtali, að sér hefði aldrei
verið kenmit að læra. Gagnfræða
skólakennarar segðu: „Þú árttir
að læra skipuleg vinnubrögð í
barnaskólanum". Menntaskóla-
kennararnir segðu: „Þú áttir að
læra að vinna í gagnfræðaskól-
anum.“ Þess mumu dæmi, að
þeir, sem kenna landsprófsnem-
endum hafi sjaldan eða aldrei
æfingapróf allan veturinn. Þeir
nemendur, sem ekki eru þjálfað
ir og kunna ekki að vinma skipu
lega í prófi, 'standa auðvitað verr
að vígi í erfiðu vorprófi ogsýna
ekki raunverulega getu. Hér er
við kennara og skóla að sakast.
Annað hvort er um hrein vinmu
svik að ræða eða hitt, að stjórn-
leysið er orðið svo mikið, að
kennarimm kemur engum æfing-
um við. En yfirstjórn fræðslu-
mála flýr vandann, gerir ekki
einu sinni tilrauin til að vinna
gegn meinsemdinmi. Landsprófs-
nefnd tekur nú þátt í skrípa-
leiknum. Allt á að færast í
„eðlilegt ástand“ með handa-
hófsbreytingum á landsprófinu.
Skólastarfsemin er í stakasta
lagi og engan má móðga. Jón á
Bægisá kvað.
Vakri Skjóni hann skal heita,
hoflum mun ég nafnið veita.
þó að meri það sé brún.
VÉLAR EÐA FÓLK
Samkvæmt nýskipaninni skal
prófgreinum fækkað úr 9 í átta.
Á það að gerast með þeim hætti
að hver nemandi verður undan-
þegimn einni lesgreinanna. Ekki
fer það samit eftir vali nemand-
ans sjálfs, hverri greinanna hann
sleppir, heldur ákveður lands-
prófsnefnd það og lætur til-
kynna nemendum ákvörðun sína
í byrjun prófs. Og mefndin telur
eftir „athuganir og útreikninga“
að slíkit breyti engu. Tölvan sýn
ir sennilega, að fjöldi þeirra,
sem landsprófi má, breytist ekki
við þetta. Ekki vil ég móðga
landsprófsnefnd með því að
rengja dóm tö'lvumnar. Það ligg
ur líka í augum uppi, að einn
nemenda getur haft’ heppnima
með sér, þótrt annar verði óhepp
inn. Amnar fær til dæmis ekki
að taka próf í eftirlætisgrein
sinni, hinn er heppinm og slepp-
ur við þá lesgreinanna, sem
hann hefur óyndi af. Fjölmarg-
ir memendur, sem hafa áhuga
á mannkynssögu, hafa óbeiit á
náttúrufræði og ættartöhim
plantna. Þetta getur sem sagt
jafnazt og eins margir náð prófi.
En nemendur eru gæddir ríkri
réttlætis'bennd. Þeir bera saman
bækur sínar eftir próf. Ætli þeim
þyki réttlætinu fullnægt í öllum
tilvikum? Ætli það sé nokkur
hætta á, að virðing þeirra fyrir
námi og prófum slævist? En
landsprófsmefnd varðar ekkert
um slíbt. Nemandinn sbiptir
engu í hugarheimi þess, sem lært
hefur sálfræði af bókum og moð-
ar í tölvufóðri.
VIRÐA SKAL ÞAÐ, SEM VEL
ER GERT.
Á téðum fundi með fréttamönn
um skýrði formaður landsprófs-
nefndar frá því, að komin væri
úit ný kennslubók í eðlisfræði,
er leysa skýldi hina eldri af
hólmi. Þótti þetta tíðindum sæta.
Sú eldri hefur verið fylgikona
skólayfirvalda áratugum saman,
staðizt allar freistingar og náð
þó sama aldri og konur, er þær
ganga úr barneigm. Frétt þessi
setti að sjáilfisögðu nokkurn
tregablæ á þennan annars ágæta
fund, en sýnir þó andlega frjó-
semi hluitaðeigandi Viðskilnaður-
inn er sár, mimnir hann helzrt
á það, er Napóleon skildi við
Jósefínu. Ekki var samt greint
frá því, hvaða stafkrók hinna
velrægðu fræðslulaga þurfti að
breyta til þess að þetta yrði
mögulegt.
HVERNIG BREGÐAST KENN-
ARAR Vlð?
Það er mikill siður þeirra, sem
hvergi koma nærri kennslu og
skólastarfi, að belgja sig út og
þykjast vita betur en þeir, sem
við skólana vinna. Fræðsluyfir
vö'ldin eru í engum tengslum
við skólana og hafa ekkert eftir
lit með kennslu í skólum lands-
ins. Hvar eru námstjórarnir? Að
eins einn námstjóri í bókíegri
grein hefur komið hingað til
Akraness, f-rá því er ég hóf
kennslu hér. Síðan hanin kom
eru bráðum tvö ár. Þetta var
námstjóri í íslenzku. Dvaldist
hann hér einn morgun og hlýddi
m.a. á mig kenna eina kennslu-
stund. Námstjórinn hélt fund
með okkur kennurunum rétt fyr-
ir hádegið. Þórtt stuttur tími væri
til viðræðna, mátti margt af
honum 'læra, enda er hann góð-
ur og gegn skólamaður. En hann
var tímabundinn, starf hans var
aðeins „hálft“. í lok fundarins
sagði hann þær fréttir, að starf
sitt sem námstjóri yrði lagt nið-
ur að fultu þá innan skamms.
Enginn námstjóri hefur birzt
hér síðan.
Landisprófsnefnd segisrt hafa
rannsakað og reihniað út. Ætli
einhverjir fullrtrúar hennar hafi
lagt leið sína í gagnfræðaskóla
landsins og athugað kennsluað-
ferðir, vinnubrögð og stjórn-
semi skó'lastjóra og kennara? Á
hvers konar rannsóknum eru
breytingarnar á einkunnagjöf og
fækkun prófgreina byggðar? Ég
hef ekki enn hitt neinn ken-n-
ara, sem mælir nýskipan lanids-
prófsnefndar bót. Ég held, að
flestir sjái, að skinhelgin og
'sýndarmennskan svífa þar yfir
vötnum. Slíkt setur svip simn á
yfirsitjóm fræðslumála nú.
Kennarar hafa látið bjóða sér
margt á umdanförnum árum. En
nú tekur fyrst steininn úr. Sú
líti'lsvirðing sem landsprófs-
nefnd sýnir kennurum með ný-
skipan sinni, er þannig, að þeir
verða að mótmæla. Ef kennarar
eru svo dauðir úr öl'lum æðum
að láta landsprófsnefnd haldast
uppi skemmdarstarfsemi í þeim
dúr, sem hún hefur nú byrjað
mega þeir búast við, hverju sem
er í náinni framtíð.
Akranesi 12. október.
Skúli Benediktsson
Aths. Þess sbal getið að fyrlr
sagnir þessarar greinar eru ebki
blaðsins, heldur höfundar.
Er kaupandi
að 4ra—5 herb. íbúð, helzt í Vesturborglniil.
Góð útborgun.
Upplýsingar í síma 16659 frá kl. 9—5.
Atvinnumáiaráðstefna
Sjálfstœðismanna á Norðurlandi eystra
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi eystra efnir til ráðstefnu í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri
dagana 19. og 20. október næstkomandi, þar sem fjallað verður um atvinnumál, stöðu atvinnulífsins á Norð-
urlandi eystra og framtíðarmöguleika. Ráðstefnan hefst kl. 14 laugardaginn 19. október.
Framsöguerindi flytja sérfróðir menn, og eða starfandi í atvinnulífinu. Um atvinnuþróunina, stöðu og mark-
mið, Lárus Jónsson, deildarstjóri. Um landbúnaðinn, Árni Jónsson, tilraunastjóri. Um sjávarútveginn og fisk-
iðnaðinn, Bjöm Ólafsson, framkvæmdastjóri og Karl Ágústsson, framkvæmdastjóri. Um iðnaðinn, ívar Bald-
vinsson, hagræðingarráðunautur. Um orkuöflun og stóriðjumöguleika Knútur Otterstedt, rafveitustjóri.
Á ráðstefnunni verða almennar umræður og umræður í hópum um hverja grein fyrir sig. Munu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, þeir Jónas G. Rafnar, bankastjóri, Magnús Jónsson, fjármálaráðherra og
Bjartmar Guðmundsson bóndi taka þátt í þeim.
Stjórnandi ráðstefnunnar verður Herbert Guðmundsson, ritstjóri.
Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum utn stórhuga atvinnuuppbyggingu í kjördæminu. Væntanlegir þátt-
takendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hjá stjórnandanum. Símar 11354, 21354 sem allra fyrst.
STJÓRN KJÖRDÆMISRÁÐS.