Morgunblaðið - 16.10.1968, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1968
jarðfræðingana, og hugsaði um
hvílíkri • byltingu það mundi
valda í Khalida, ef þeir fyndu
þarna oliu. — Ertu með nokkurt
fóður handa okkur? kaílaði
Davíð til hennar. — Nei, en það
biður fyrirtaks nautasteik eftir
ykkur, ef þið hafið tíma til að
sinna henni, kallaði Jill á móti.
Nú sást þriðji maðurinn koma
frá bílunum og það var Oliver.
— Ertu búinn að skipta um
starf? kallaði hún ti'l hans.
Hann sagði henni, að hann
hefði hruflað á sér vinstri hönd-
ina daginn áður, þegar hann var
að grafa, svo að hann mætti
ekki róta neitt í jörð fyrr en það
væri alveg gróið. — En nauta-
steikin freistar mín, Jilí, svo að
ég ætla að verða þér samferða í
tjaldstað. Strákarnir eru enn
ekki alveg tilbúnir að taka sam-
an hjá sér. Ef þú vilt fara af
baki, augnablik. Hann rétti út
höndina og hún losaði fæturna
úr ístö^ðunum og steig af baki.
Oliver settist í sæti hennar og
söðu'lvega, en rétti síðan út arm-
inn. — Nú er ég Arabahöfðingi,
sagði hann og sveiflaði henni
síðan upp fyrir framan sig og
klappaði Mósesi á hálsinn með
lausu hendinni. Síðan rykkti
hann í tauminn og úlfaldinn stóð
strax upp og gekk virðulega af
stað heim.
— Ertu viss um, að hann geti
borið okkur? sagði Jill. — Ég
vii ekki ofreyna hann.
— Það er engin hætta á því.
Hann kann að sýnast grannur,
en hann er seigur samt. Eigin-
lega dálítið líkur mér. Og þú ert
hreina9ta fis. Ef ég væri nú
alvöruhöfðingi, mundi ég hafa
að minnsta kosti tvær feitar kon
ur á baki með mér.
Ji'll tók allt í einu eftir því,
að þau sátu þétt saman. Armur
hans hélt utan um hana og
þrýsti henni að öxlinni og ekki
var nema örstutt miíli andlita
þeirra. Hún tók eftir því, að
ljósa hárið á honum var orðið
enn ljósara, bleikt af sólinni, en
brúnu augun voru enn vingjarn
leg í sólbrenndu andlitinu. Oliv-
er hafði viðkunnanlegt andlit,
fannst henni. Skarpleitt og frem-
ur magurt, en svipgott og skiln-
ingsríkt. Hann horfði í augu
henni og brosti.
— Ég þarf víst að raka mig,
sagði hann. — Afsakið, frú! En
þú ert eins blómleg og þessi rós,
sem atltaf er verið að tala um.
Hvernig ferðu að þvi hérna
kvöildverð, sagði Jill, - og ég er
þarna á næstu grösum við
þvottatjaldið, svo að ég á svo
hægt með þetta. Henni Söndru
finnst það miklu erfiðara, enda
þótt hún fremji samt kraftaverk,
eftir aðstæðum.
— Hvað var Sandra að gera
þegar þú fórst? spurði hann.
— Hún var að færa inn á
skýrsluspjöldin. Þú veizt, þessi,
sem þau binda við sýnishornin,
sem þau finna. Með ungfrú
Cater. Þú þarft ekki að hafa á-
hyggjur af henni. Það, er allt í
lagi með hana.
— Agætt. Þá þurfum við ekki
neitt að flýta okkur. Hægðu á
þér, kall minn! Hann tók fast í
tauminn og Móses hlýddi. —
Þetta er betra. Mig hefur tengi
langað til að tala við þig, Jill,
og nú er tækifærið ti’l þess.
— Það heyrir að minnsta kosti
enginn til ykkar.
— Né sér til okkar. Hér er af-
skaplega næðissamt og þægilegt.
Veiztu nokkuð Þú ert afskap
lega falleg, svona á stuttu færi.
Þér fer vel að vera sótbrennd.
— Er það? Það hefur enginn
sagt mér áður. En ég hef heldur
aldrei áður tvímennt á úlfalda
með karlmanni.
— Ég vona þá, að þú hafir
gaman af því.
— Já. Og óska þér hins sama.
En kannski ert þú vanur þvi?
— Nei, ekkert veru'lega, Jill.
Ég er enginn afburða pilsa-
veiðari, eins og þú heidur, af því
að ég hef gaman af að stríða
henni Söndru og reyna að forða
henni frá að koma sér í alltof
mikil vandræði.
— Nei, ég hefd það ekki. Oliv-
er. Sannarlega geri ég það ekki,
flýtti hún sér að fullvissa hann
um. — Ég skil þig alveg. Svo að
þú skalt ekki fara að misski'lja
mig heitt. Það mundi válda mér
ábyggjum.
— Ég skil, sagði hann. — Þú
ert góð stúlka, Jill. Hann kyssti
hana ofurlítið á kinnina. — Og
sv« ertu huguð. Þú hefur tekið
þessu með hann Graham vel.
Þykir þér enn fyrir því?
— Nei, ekki svo mjög nú orðið.
Mér er meira að segja sama þó
ég tali um það við þig. Skrítið,
hvað þessi eyðimerkurvera kenn
ir manni nýtt mat bæði á einu og
öðru. AUt er svo stórt í sniðum
úti í eyðimörkinni?
Ég hafði skyrtuskipti fyrir
‘ 5 herbergja hœð
Til sölu er 5 herb. íbúð á 2. hæð í syðsta sambýlishús-
inu við Álfheima. Skemmtileg og vönduð íbúð. Suður-
svalir. Ágætt útsýni. Sérhitastilling. Teikning hér á
skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningui'. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími 14314.
Kvöldsími 34231.
Kenwood strcmvélin
Yður eru frjálsar hendur
við val og vinnu
Sími
11687
21240
Hekla
Vikuþvottinn. Iök, sængurver,
borðdúka, handklæði, kodda-
ver o. fl. o. fl. cr nú hægt
strauja á örskammri stund.
Þér setjist við vélina slappið
af, látið hana vinna allt erfiðið.
Engar erfiðar stöður við strau-
borðið. Kenwood strauvélin
losar yður við allt. erfiðið, sem
áður var.
Á stuttum tíma komist þér upp
á lag með að strauja skyrtur
og annan vandmeðfarinn þvott
vel og vandlega. Lök, sængur-
ver og önnur stærri stykki er
hægt að strauja án allra vand-
kvæða í Kenwood strauvél-
inni, sem er með 61 cm valsi.
Þér getið pressað buxur, stífað
skyrtur og gengið frá öllum
þvotti í Kenwood strauvélinni
eins og fullkominn fagnaður.
Verð kr. 6.540.—
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
og maður sjálfur að sama skapi
lítill. Þá man maður eftir því,
hve lengi þetta land hefur verið
hérna og gerir sér ljóst, að það
er beinlínis hlægilegt að vera að
gera sér reltu út af smámunum.
Þeir verða eitthvað svo litlir,
borið saman við eilífðina.
Þetta var vel að orði komizt,
Ji'll. Til hamingju með það. Mér
datt samt ekki í hug, að þú
mundir gera þér þetta svona vel
ljóst, hjálparlaust.
— Ég veit bara, að við Grah-
am eigum ekkert erindi hvort
við annað sagði hún. — Ég veit
náttúrlega ekki, hversu mikil
aívara henni Söndru er með
hann. Hún læzt vera svo kæru-
laus, en það gæti vel verið að-
eins á yfirborðinu, einskonar
felulitur, skilurðu. Þú skilur, að
stúlka getur verið afskaplega
nýtízkuleg ög óháð og allt slíkt,
og samt ganga með drauma ’ í
hjarta sér.
— Það gerir þú, Jilí litla,
sagði Oliver blíðlega.
— Vitanlega er ég ekkert
öðruvísi en aðrar stúlkur, hvað
það snertir.
— Ég h!ef aldrei fyrirhitt
neina stú'lku þér líka, Jill.
— Þú átt við, að ég sé gamal-
dags, og leiðinleg í samanburði
við Söndru, enda vitdi ég óska,
að ég væri jafnglæsileg og hún
er. En ég kann ekki annað em
eldamennsku og húsverk.
Við Ásvallagöfu
Til sölu eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í húsi, sem
er verið að byrja að reisa við Ásvallagötu. Seljast
tilbúnar undir treverk, húsið frágengið að utan, sam-
eign inni fullgerð. Möguleiki að fá bílskúr. Teikning
til sýnis á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími 14314.
Kvöldsími 34231.
16. OKTOBER
Hrúturinn 21. marz — 19 apríl
Tillögum þíi:um verður sennilega vel tekið í dag, og gættu höf-
undarréttarins. Nú ?kaltu skipuleggja vel.
Nautið 20. apríi — 20. maí
Ef þú getur haldið heimilisfrið, þá verður þetta góður dagur.
Tvíburarnir 21. mai — 29. júní
Sæztu við fólk, sem þú áttir í útistöðum við. Byrjaðu snemma
daginn, og reyndu að vinna vel allan daginn.
Krabbinn 21. júní — 22. Júlí
í dag færðu tækiíæri ti að jafna gamlar deilur. Láttu ekki stoltið
standa þér fyrir þrifum. Þú getur í ró og næði innheimt gamlar
skuldir.
Ljónið 23. julí — 22 ágúst
Gagnkvæmur skilningur mun gagna þér og þínum mikið. Sam-
vinna getur þrifizt þrát't iyrir ranga túlkun staðreyndanna.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Leyniþjónusta, sennilega spennandi fellur þér í skaut. Þú skalt
vinna vel, og sinna ástinni er kvöldar.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Þessi dagur gefur góðar vonir í reynd og rómantik. Talaðu
hreint út um það sem þ.v aetlazt til. Nauðsynlegt er að skilja stefnu
vina sinna.
Sporðdrekinn 23. oat. — 21. nóv.
Þú færð góð ráð, og ræður betur eigin hvötum. Frændur og fjöl-
skylda gleðja þig.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Gott er að vinna vel, brátt fyrir ringulreið og mismunandi skoð-
anir fólks. Áform þín heppnast vel, ef þú leggur hart að þér.
Sýndu vinum þínum nægan áhuga.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Það er hæghað bæta úr vonsvikum, sem þú hefur orðið fyrir ný-
lega. Gakktu beint til verks, og skipuleggðu málið snemma.
Gleðstu í kvöld með beztu vinum þínum. Verðlaunaðu sjálfan
þig.
Vatnsberinn 20 jan. — 18. febr.
Samræmi er áberandi í dag. Ef þú berð saman bækur við ein-
l hvern sem hlut á að máli, verður þér mikið ágengt. Rómantíkin
verður meira áberandi. Vertu hlédrægur.
Fiskarnir 19. febr. — 20. rnarz
Láttu vinnuna ganga fyrir, því næst skaltu sinna einkaiífi þínu
og ættingjum eða vinum. Ræða við fjölskylduna, ef þú vilt semja.
Gleymdu ekki rómantíkinni.