Morgunblaðið - 24.10.1968, Side 1
28 SIÐUR
235. tbl. 55. árf.
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Enginn árangur á París-
arfundinum í gærdag
En þó ekki talið útilokað, að
friðarátt þokist á nœstunni
París, Washington og Saigon,
23. okt. — NTB-AP
•Ar Sendinefnd N-Vietnam á
samningafundunum í París batt
í dag enda á vonir manna um
að skjótlega rættist úr friðarum-
leitunum varðandi Vietnam.
Lýsti sendinefndin því yfir, að
afloknum 2% klst. fundi með
fulltrúum Bandaríkjastjórnar, að
„ekkert nýtt hefði komið fram í
dag.“ Xuan Hui, formaður
nefndarinnar sagði og, að kröf-
ur stjórnar sinnar um skilyrðis-
lausa stöðvun loftárása og ann-
arra styrjaldaraðgerða gegn N-
Vietnam væru einbeittari en
nokkru sinni fyrr.
-Ar Blaðafulltrúi Johnson’s
Bandaríkjaforseta sagði við
fréttamenn í dag, að enn hefði
engin meiriháttar grundvallar
Cernik gagnrýnd-
ur á fundi í Prag
Öll hátíðahöld á 50 ára afmœli Tékkó-
slóvakíu verða að fara fram innanhúss
Prag og New York 23. okt - NTB.
Oldrich Cernik, forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu var í kvöld gagn-
rýndur fyrir að hafa undirritað
hið svonefnda Moskvu-samkomu-
lag um veru sovézks herliðs í
Tékkóislóvakiu „til bráðabirgða".
Gcrðist þetta á opinberum fundi
í Prag, þar sem viðstaddir voru
3—400 áheyrendur.
Þá gerðist það á fundj Alls-
herjarþiings SÞ í kvöld, að Rúm-
enar lýstu þvi yfir, án þess þó
að nefna innrásina í Tékkósló-
vakíu beinum orðum, að láta
yrði aif valdbeitingu í samskipt-
um þjóða.
Rúmenski varautanríkisráð-
herrann, Mirce Malitza Rizlic
sagði í ræðu að það væri mikil-
vægt fyrir friðsamlega þróun
alþjóðamála að látið yrði af hót-
unurn. valdbeitingu og öllum af-
skiptum af málefnum annarra
ríkja.
Á fundi þeim í Prag, sem fyrr
greinir frá, voru áheyrendur
beðnir að koma fram með spurn-
ingar. Margir þeirra héldu því
fram, að leiðtogar Tékkóslóvakiu
hafi þjáðst af því sem þeir köll-
uðu „Múnchenar-komplex" allar
götur frá 19. öld.
Fundurinn, sem upphaflega
var boðaður til þess að ræða 50
ára afmæli Tékkóslóvakíu, sem
framundan er, var haldinn í Al-
þýðuháskólanum í Prag, á sama
stað og 400 öfgaifullir kommún-
istar komu saman 9. október til
þess að undirstrika hollustu sína
við Sovétríkin.
Helmingur þátttakenda í fundi
þessum var ungt fólk, og var
það einkum það, sem gagnrýndi
hik tékknesku ríkisstjórnarinnar
á tímaibilinu frá falli Novotny í
janúar sl. og til innrásar Var-
sjárbandalagsins í ágúst. Þá var
einnig gagnrýnt það, sem kallað
var tillitssemi flokksforystunnar
við íhaldssöm öfl i folkknum.
Jafnframt vair upplýst, að
tékknesk stjórnvöld hafa ákveð-
ið að öll hátiðahöld vegna hálfr-
a^ aldar afmælis landisins skuli
fram fara innanhúss, til þess að
Framhald á bls. 27
Geimförunum fagnað
á Kennedy-höfða —
Mannað geimfar til tunglsins í júní?
Kennedyhöfða, 23. október
AP-NTB
GEIMFARARNIR af Apollo 7,
þeir Walter M. Schirra, Donn F.
Eisele og Walter Cunningham,
sneru í dag aftur til Kennedy-
höfða þar sem þeir munu gefa
sérfræðingum skýrslu um 11
daga ferð sina í geimnum. Það
sem þeir hafa frá að segja hef-
ur áhrif á það, hvort þremur
mönnum verður skotið á loft i
geimfarinu Apollo 8 umhverfis
tunglið og til jarðar aftur í des-
ember. Ákvörðunin um þá ferð
verður tekin um miðjan nóvem-
ber.
G'Amfararnir virtust vera vel
hvíldir þegar þeir komu tii
geimrannsóknarstöðvarinnar í
dag með flugvélum frá flug-
vélaskipinu þar sem þeir hafa
dvalizt síðan Apollo 7 lenti. Fán
ar blöktu við hún, herlúðrasveit
lék og á stórum borða stóð:
Framhalð á bls. 27
þróun átt sér stað í friðarátt.
Jafnframt upplýsti bandaríska
utanrikisráðuneytið, að Dean
Rusk, utanrikisráðherra, hefði
tvívegis rætt við Dobrynin,
sendiherra Sovétríkjanna í Was-
hington á sl. fimm dögum. Þess-
ar fréttir vöktu þegar í stað um-
tal manna í Washington og er
það hald margra, að Bandaríkin
reyni nú að fá Sovétmenn til
þess að aðstoða við að skapa
grundvöli fyrir stöðvun loft-
árása á N-Vietnam.
Að samningafundinum í Par-
ís loknum í dag, var það mál
manna, að ekkert hafi komið
fram, sem benti til nýrrar þró-
unar. Greinilegt er, að aðilax
hafa skipzt á skoðunum að
tjaldabaki, en heimurinn allur
bíður nú þess hver árangurinn
ver’ður. *
W. Averell Harriman, aðal-
samningamaður Bandaríkja-
stjórnar, sagði eftir fundinn að
hann hefði hvatt N-Vietnam til
þess að láta af yfirgangi sínum
og að hann hefði itrekað afstöðu
stjórnar sinnar til Viet Cong
hreyfingarinnar. Harriman sagði
að „tehléið" á fundinum hefði
staðið í 35 mínútur, en gaf ekki
neitt til kynna um hváð þá hefði
Framhald á bls. 27
Loftbardagi
yfir Ismailia
Egyptar segjast hafa skotið niður tvœr
ísraelskar flugvélar. Israelsmenn
segjast enga flugvél hafa misst
Kairó, 23. september — AP
rALSMAÐUR egypzka hersins
hélt því fram í dag, að tvær
ísraelskar orustuflugvélar hefðu
verið skotnar' niður yfir borg-
inni Ismailia á Sinai-skaga. í
Tel Aviv var sagt, að engin
ísraelsk flugvél hefði verið
skotin niður, en tvær egypzkar
flugvélar, sem reynt hefðu að
fljúga inn í ísraelska lofthelgi,
hefðu verið stöðvaðar skammt
frá Ismailia og neyddar til að
snúa aftur til Egyptalands.
ísra'.lsmenn sögðu ekki hvort
skipzt hefði verið á skotum, en
hér er um að ræða fyrstu vær-
ingarnar á landamærum ísraels
og Egyptalands síðan Allsherjar
þingið hóf umræður um ástand-
ið fyrir botni Miðjarðarhafs 24.
september. Tilkynningu Egypta
var fagnað sem miklum sigri í
Kairó, enda hafa egypzkar flug-
vélar hingað til forðast að
leggja til atlögu við flugvélar
’sraelsmanna.
Egyptar segja, að fjórar isra-
elskar flugvélar hafi flogið inn
í egypzka lofthelgi yfir Ismailia,
.n egypzkar flugvélar hefðu
eyðilagt tvær þeirra og hæft þá
þriðiu áður en þær sneru heilu
og höldnu aftur til stöðva sinna.
Einn ísraelskur flugmaður hafi
sézt kasta sér út í fallhlíf yfir
austurbakka Súez-skurðar. ísra-
elsmenn segja, að flugvélar
þeirra hafi allar snúið heilu og
Frambald á bls. 27
Eldur í hóteli
Chicago, 23. okt. AP.
FJÓRIR biðu bana og 16
særðust, þar af fjórir alvar-
lega, er eldur læsti sig um 2
hæðir gistihúss i Chicago í
nótt. Hótelgestir. sem margir
voru rosknir, stóðu í glugg-
um á efstu hæðum hótelsins
og hrópuðu á hjálp þegar
slökkviliðið kom á vettvang.
Einn af gestum hótelsins hef-
ur játað að hafa sofnað út
frá sígarettu. Tjónið á bygg-
ingunni er metið á 15.000 doll
ara.
Handtökur í Berkeley
Berkley, Kaliforníu,
23. október. AP.
MARGIR stúdentar voru hand-
teknir þegar þeir efndu til setu-
verkfalls og neituðu að yfirgefa
eina af byggingum Berkley-há-
skólans í Kaliforníu í nótt. Stú-
dentarnir vildu mótmæla því, að
háskólayfirvöld hafa neitað að
taka til greina einkunnir, sem
þeir fá á námskeiði, þar sem
þeim er veitt fræðsla um kyn-
þáttahatur í Bandaríkjunum.
Einn fyrirlesarinn er Eldridge
Cleaver, leiðtogi Svörtu hlébarð
anna, samtaka öfgasinnaðra
blökkumanna.
Um það bil 2:500 manns söfn-
uðust saman fyrir utan bygging-
una og trufluðu umferð. Grjóti
var kastað að lögreglubifreið og
annarri lögreglubifreið var velt
um koll. Stúdentarnir inni í
byggingunni neituðu að fara,
þótt rektor háskólans varaði þá
við því, að þeir yrðu handtekn-
ir.
í Sacramento sagði forseti
fylkisþingsins, Jesse M. Unruh,
sem á sæti í stjórn háskólans,
að ef Cleaver hefði æst til setu
verkfallsins ætti að banna hon-
um að halda fyrirlestra í skól-
anum.