Morgunblaðið - 24.10.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 24. OKTÓBER 1968
15
ERLENT YFIRLIT
4 Alger stöðvun loitúrúsa
Mauðungarsamningur í Prag
4 Aukin óvissa í Bandaríkjunum
Endi bundinn
á þráteflið?
ÞÆR vonir hafa vaknað, að
Bandaríkjameran muni áður en
fangt um líður fyrirskipa algera
stöðvun loftárása á Norður-Viet
nam og að algert vopnahlé sé á
næsta leiti. Þótt slíkax vonir hafi
Oíft kviknað áður og síðan brugð-
izt, þá hefur margt bent til þess
að undanförnu, að nú sé loks-
ins raunveruleg von um sam-
komulag, er bundið gæti enda á
það þrátefli, sem allar tilraunir
til að finna lausn á Vietnam-
málinu hafa komizt í.
Eitt af því sem bendir til
þess að svo sé er vopnahlé það,
sem gert var í' 36 klukkustund-
ir á strönd Norður-Vietnam, og
framsal 14 norður-vietnamskra
sjómanna, sem Bandaríkjamenn
tóku til fanga fyrir tveimur ár-
um. Annað sem vakið hefur bjart
sýni er, að bandaríska landvarna
ráðuneytið telur að Norður-
Vietnamar hafi flutt fjölda her-
manna frá Suður-Vietnam á und
anförnum mánuðum.
Bandarískir talsmenn hafa vís
að á bug fréttum um, að rof-
að hafi til í Vietnam-viðræðun-
um í París og vilja lítið gera úr
fréttum um að öllum ’loftáráisum
verði hætt. Sagt hefur verið, að
ekkert svar hafi borizt frá Han-
oi við tilboði sem Johnson for-
seti hefur lagt fram um stöðvun
loftárásanna.
VILJA EKKI NIXON
En ummæli sem Xuan Thuy, að
alfulltrúi Norður-Víetnams í Par
ísarviðræðunum, hefur viðhaft
virðast benda til þess, að sam-
komulag kunni að nást um stöðv
un loftárásanna. Hann sagði, að
Johnson forseti hefði nægan
tíma og vald tii að leyisa Viet-
nammálið friðsam'lega. Mikilvægt
er, að ummæli hans virðasit gefa
til kynna, að Norður-Vietnamar
tefji Riehard Nixon vísan um sig
ur í bandarísku forsetakosning-
unum og vilji heldur semja við
Johnson. Bæði Nixon og keppi-
nautur hans, Hubert Humphrey
hafa nú lýst sig samþykka al-
gerri stöðvun loftárásanna, en
Nixon með þVí skilyrði að líf-um
bandarískra hermanna verði ekki
stefnt í haettu.
Hingað til hafa Bandaríkja-
menn ekki viljað hætta loftár-
ásunum nema því aðeins að Norð
ur-Vietnamar dragi einnig úr
stríðsaðgerðum, en til þess hafa
þeir verið ófáanlegir. Talið er, að
Norður Vietnamar geti eytt tor-
tryggni Bandaríkjamanna ef þeir
flytji burtu hersveitir sínar frá
h'lutlausa beltinu á mörkm
Norður- og Suður-Vietnam þann
ig að það verði í raun og veru
hluttaust.'
f»ar að auki hafa Bandaríkja-
menn sett það skilyrði, að bæði
Viet Cong og Saigon-stjórnin
verði að eiga aðild að umræð-
um um framtíð Suður-Vietnam,
en á það hefur Hanoi stjórn-
in ekki viljað fallast. Saigon-
stjórnin hefur verið andvíg
stöðvun loftárásanna, en margt
bendir til þess að hún sé farin
að gera sér grein fyrir því að
Viet Cong verði að gegna mik-
ilvægu hlutverki í stjórnmál-
um Suður-Vietnam í framtíðinini,
t.d. með aðild að samsteypu-
atjórn. Eftir á að koma í ljós
hvort kommúnistar viðurkenni,
að þeir séu ekki í meirihluta í
Suður-Vietnam. Raunsætt mat á
ástandinu getur orðið báðum að-
ilum til góðs, tit dæmis vegna yf
irlýsinga Bandaríkjamanna um að
Norður-Vietnamar geti vænzt
efnahagsaðstoðar frá alþjóðleg-
um peningastofmunum til þróun-
arframkvæmda í framtíðinni.
Hlé það, sem orðið hefur á bar
dögum í Suður-Vietnam að und-
anförnu, gæti bent til þess, að
Norður-Vietnamar reynist fúsir
að draga úr hernaðaraðgerðum.
Skæruliðar hafa að undanförnu
lagt megináherzlu á að treysta
stjórn sína á þeim svæðum, sem
þeir hafa náð á sitt vald. Þeir
virðast mú leggja megináherzl-
una á hina pólitísku hlið barátt-
unnar, en eru þó reiðubúnir að
herða á stríðinu ef þeir teíja
það nauðsyn'legt.
Rússar herða
tökin enn
MEÐ samningnum, sem undirrit-
aður var í síðustu viku um dvöl
sovézka herliðsins í Tékkósló-
vakíu, hafa Rússar gert hernám
landsins „la@legt“ og þar með
náð fram einhverju mikilvægasta
markmiði sínu síðan innrásin var
gerð. Nú telja þeir sig hafa gert
að engu kröfur annarra kommúm-
istaflokka og vestrænna ríkis-
stjórna um brottflutning her-
námsliðsins. Um leið aukast sí-
fellt afskipti Rússa af innanrík-
ismálum Tékkósfóvakíu í skjó'li
hernámsins. Helztu leiðtogar
þjóðarinnar hafa í fyrsta skipti
sagt þjóðinni hversu alvarlegt
ástandið er orðið.
Leiðtogar Tékkóslóvakíu hafa
orðið að ganga að hörðum skil-
málum. Sovézkt herlið verður til
frambúðar í landinu þótt nokk-
ur hluti þess og hersveitir frá
fylgiríkjum Rússa verði flutt á
brott. Talið er, að Rússar hafi
enn sem komið er að minnsta
kosti ekki krafizt breytinga í
æðstu forystu flokksins og rík-
isstjórninni, en búizt er við að
hreinsun verði gerð meðat
lægra settra leiðtoga og ó-
breyttra flokksmanna, enda vilja
Rússar fækka meðlimum flokks-
ins.
Þingi hins nýja tékkneska
kommúnistaflokks, sem verið er
að koma á laggirnar vegna fyrir
hugaðra breytinga á ríkjasam-
bandi Tékka og Slóvaka, verð-
ur frestað um ófyrirsjáanlega
framtíð og sömuleiðis þingkosn-
ingum, sem fyrirhugað var að
halda á næsta ári, þegar gerðar
hefðu verið breytingar á kosn-
ingalögunum.
HREINSUN I HERNUM?
Auk þess er talið, að rúss-
neskir ráðgjafar í öllum ráðu-
neytum og iðnfyrirtækjum .eigi
framvegis að taka þátt í öflum
meiriháttar ákvörðunum. Rúss-
ar munu hafa fallizt á, að samn-
ingar sem gerðir hafa verið við
vestræn ríki, verði hafðir í
heiðri og að viðræðum um við-
skiptasamninga verði ekki slitið.
En Tékkóslóvakar eru sagðir
hafa fallizt á að gera engar
breytingar á efnahagsskipulagi
landsins gegn loforði frá Rúss-
um um að hefja að nýju send-
ingar á hráefni og birgðum til
orkuframleiðslu, er hafa tafizit.
Rússar virðast leggja mikið
kapp á að ná undirtökunum í
tékkóálóvakíska hernum og
reyna að koma því til leiðar, að
forseti herráðsins, Karef Rusov
hershöfðingi, verði settur af
og eindreginn stuðningsmaður
þeirra, Josef Rytir hershöfðingi,
verði skipaður í hans stað. Ry-
tir var herráðsforseti á dögum
Novotny-stjórnarinnar, en var
vikið úr starfi í vor. Hann var
eini fulltrúinn í miðstjórninni
sem mótmælti stefnu Dubceks eft
ir innrásina og hefur síðan oft
sézt í fylgd með Yakubowsky
marskálki, yfirmanni herafla Var
sjárbandalagsins, enda náinn
samstarfsmaður Rússa frá gam-
alli tíð. Hinn nýi varnarmála-
ráðherra, Martin Dzur hershöfð-
ingi. hefur ekki tekið þátt í við-
ræðunum í Moskvu um hernám-
ið „vegna veikinda“, en sumir
telja að hann hafi þegar verið
gerður áhrifalaus að kröfu
Rússa.
MEIRI HREINSANIR?
Margir óttast, að Josef Smr-
kovsky, hinn vinsæli forseti
þingsins verði fljótlega látinn
víkja og að Cernik forsætis-
ráðherra og Svoboda forseti
kunni að verða tifleiðanlegir til
að vinna með Rússum, ef til vill
undir forystu nýrra manna eins
og Alois Indra, sem var þess al-
búinn að mynda nýja stjórn í
samvinnu við Rússa eftir inn-
résina, og Vasil Bilaks, frv. leið-
toga flokksins í Slóvakíu. Því er
spáð, að Indra verði falið að
hafa eftirlit með skipúlagi
flokksins og Bilak taki að sér
það verkefni miðstjórnarinn-
ar að annast samvinnu við aðra
kommúnistafíokka, en þannig
fengju Rússar fast tak á flokkn-
um.
Aðstaða Dubceks virðist nú
vera orðin nánast vonlaus. Ef
hann segir af sér ‘ losar hann
Rússa úr miklum vanda, og ef
hann gegnir áfram störfum og
framfylgir hinum hörðu skilmál-
um þeirra glatar hann vinsæld-
um sínum. Dubcek og Cestmir
Cisar flokksritari hafa á ýmsa
lund varað þjóðina við því, að
hún verði að búa sig undir erf-
iða daga, og Dubcek virðist nú
vera hættur að tala um umbóta-
stefnu þá, sem rnörkuð var í vor.
Hann hefur sagt að alvarleg
mistök hafi átt sér stað við fram
kvæmd stefnunnar, sem mótuð
var í vor, einkum í samskiptun-
um við hernámsveldin. Hann hef
ur sagt, að rangt hafi verið að
láta umræður fara fram um htut
verk flokksins og hefur gagn-
rýnt blöð, útvarp og sjónvarp
fyrir að hafa átt þátt í því að
þróunin hafi farið út í öfgar.
ins í Prag: Kosygin og Cernik.
HÓTUÐU A» HÆTTA
Prófessor Ota Sik, helzti frum
kvöðull umbóta þeirra sem gerð
ar hafa verið í efnahagsmálum
landsins, hefur gefið upp alla
von um að geta snúið heim frá
Belgrad, þar sem hann hefur
dvalizt síðan innrásin var gerð,
og hefur leitað hælis í Sviss.
Tveir aðrir ráðhenrar hafa sagt
af sér: Hajek utanríkisráðherra
og Pável innanríkisráðherra, en
aðeins hefur verið skipað í eitt
þessara þriggja embætta, em-
bætti innanríkisráðherra, og sá
sem varð fyrir valinu, Pefner, er
framfarasinni. Skipt hefur verið
um yfirmenn hinnar opinberu
fréttastofu, hljóðvarps, sjón-
varps og flokksmálgagnsins Rude
Pravo, en framfarasinnar hafa
tekið við af framfarasinnum,
sem Rússar hafa ekki getað sætt
sig við, og harðlínumenn hafa
tekið við af harðlínumönnum, er
einnig hafa verið látnir víkja.
Þetta virðist hafa verið almenn
regla, en nú er óvíst hvort henni
verður hægt að fylgja framveg-
is.
Æðstu forustumenn Tékkósló-
vakíu munu hafa deilt um það
eftir viðræðumar í Moskvu á
dögunum, hvort þeir ættu að
segja af sér eða ekki. Dubcek,
Husak frá Slóvakíu, Spacek og
jafnvel hugmyndafræðingurinn
Mlynar, sem Rússar virðast hafa
getað treyst, vildu greinitega
segja af sér í stað þess að fall-
ast á hin ströngu fyirirmæli frá
Moskvu. Þeir félluist á að gegna
Undirritun nauðungarsamnings
Dubcek
störfum sínurn áfram ef forsæt-
isnefndin samþykkti skilyrðin,
enda hefðu afsagnir þeirra leitt
til allsher j arverkf alls og mót
mælaaðgerða, sem gefið hefðu
Rússum átyl’lu til að taka stjórn
ina í sínar hendur. Nú er eftiir
að sjá hvað gerist eftir undirrit-
un samraingsins í síðustu viku.
NÝSTALÍNISMI
Hinn kunni sérfræðingur um
kommúnisma, Anatole Shub, sem
staddur er í Belgrad, segir að
þar sé óttazt að hafið sé í So-
vétríkjunum tímabil nýstalín-
Isma, sem veita muni umbótasinn-
um í Tékkóslóvakíu og öðrum
Austur-Evrópulöndum lítið svig
rúm. Rússar vilji færa Tékkó-
slóvakíu niður á sama stig og
Austur-Þýzkaland, Pólland og
Búlgaríu, en án þess frelsis sem
Ungverjar hafa tryggt sér í
menningarmálum og án þeirra
umbóta, sem þeir hafa tryggt sér
í efnahagsmálum.
Að því er júgóslavneskir
kommúnistar telja vilja Rússar
að Tékkóslóvakía verði þjóðum
Austur-Evrópu og ríkisstjórnum
þeirra víti til varnaðar er forði
þeim frá því að gera tilraunir í
stjórnmálum og efnahagsmálum
án fulls samþykkis Rússa. Rúss-
ar vilji, að Austur-Evrópuþjóð-
irnar láti sér það að kenningu
verða, að þær þjóðir, sem geri
uppreisn gegn þeim, fái verri
meðferð en þær, sem í einu og
ölilu hlýði Rússum. Þessari við-
vörun sé fyrst og fremst beint
til Rúmena vegna sjá'lfstæðis-
stefnu þeirra í utanríkismálum
og Ungverja vegna umbótastefnu
þeirra i innanríkismálum.
Næsta skref Rússa í Tékkósló
vakíumálinu verður að dómi
Shubs fólgið í því, að tékkósló-
vakískir leiðtogar verði neyddir
til að viðurkenna að hernaðarí-
hlutunin í ágúst hafi verið rétt-
lætanleg vegna hættu á „gagn-
byltingu" og sé slíkrar yfirlýs-
ingar að vænta eftir nokkrar vik
ur eða mánuði. Þá komi röðin
að vestur-evrópskum kommún-
istaflokkum, sem fordæmdu inn-
rásina, og verði reynt að efna
tfl heimsráðstefnu þar sem ekki
verði minnzt á Tékkóslóvakíu, en
Kínverjar og Júgóslavar for
dæmdir, lýst yfir stuðningi við
harðlínustefnu Rússa í Þýzka-
landsmálinu og nálægari Austur-
löndum og lýst yfir því að vegna
„harðnandi baráttu“ við vestur-
veldin sé efling forustuhlut-
verks Rússa nauðsynlegt, bæði í
Austur-Evrópu og kommúnista-
hreyfinigunni.
Bilið minnkar
VfGSTAÐA Huberts Hump-
hreys varaforseta, forsetaefnis
demókrata, virðist hafa batnað
verúlega á undanförnum vikum,
og nokkurrar bjartsýni gætir nú
í röðum stuðningsmanna hans í
fyrsta skipti síðan kosningabar-
áttan hófst. Bilið milli hans og
Nixons minnkar óðum, og styðja
nú 35 prs. kjósenda Humphrey
en 40 prs. Nixon, og fylgi þriðja
frambjóðandans, George Wallace
hefur hrapað niður í 18 prs.
Mesta óvissan í sambandi við
kosningarnar stafar af framboði
Wallace, enda veit enginn hvort
kjósendur, sem nú segjast styðja
Framliaid á bls. 30