Morgunblaðið - 24.10.1968, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 196«
27
Byggingarsvæðið við Aðalstræti 9 girt af, svo aðeins verður bílbreidd og einstefnuakstur um
götuna meðan þarna rís nýtt verzlunarhús.
Nýstárlegt verzlunar-
hús rís við Aðalstræti
Þrengt oð götunni á meðan
VEGFARENDUM, sem í gær
áttu leið um Aðalstræti, fannst
nokkuð þrengt að umferðinni á
móts við númer 9, þar sem Gilda
skálinn var á sínum tíma. Unn-
ið var við að setja upp girðingu
úti á götunni og aðeins skilin
eftir en bílbredd Silla & Valda
megin. Skýringin er sú, að þarna
á lóðinni nr. 9 á að rísa nýtt og
nýstárlegt verzlunarhús, sem
Ragnar Þórðarson ætlar að fara
að byggja.
Ástæðan fyrir því, hve mikið
þarf að girða af götunni er sú,
að kjallarinn á húsinu á að
ganga undir gangstéttina, en
- GEIMFARARNIR
Framhald af bls. 1
„Velkomnir heim, Wally, Donn,
Walter". Um 500 starfsmenn
geimvísindastöðvarinnar hylltu
þá ákaft.
Schirra, Eisele og Cunning-
!ham dveljast á Kenn'edyhöfða
fram á laugardag, en þá halda
þeir til Hbuston, þar sem vís-
indamenn halda áfram að yfir-
heyra þá.
BJARTSÝNI
Stjórnendur Apollo-tilraunar-
innar hafa fyllzt bjartsýni vegna
hinnar vel'heppnuðu ferðar
Apollo 7 og telja, að unnt verði
að sigra Rússa í kapphlaupinu
til tunglsins. Yfirmaður til-
raunarinnar, Philipps, hershöfð-
ingi, kallaði í dag ferð Apollo 7
„mjög stórt skref“ á leiðinni til
mannaðra tunglfcrða. Hann
kvaðst sannfærður um, að Banda
rfkjamaður muni stíga fæti á
tunglið fyrir lok næsta árs.
Geimfararnir, sem fara eiga
með geimfarinu Apollo 8, Frank
Forman, James Lovell og Willi-
am Anders, æfa sig nú af kappi
fyrir geimferðina fyrirhuguðu
umhverfis tungiið og aftur til
jarðar. Ef ferðir Apollo 8 og
Apollo 9 ganga að óskum er von
azt til, að unnt verði að senda
Apollo 10 til tunglsins í júní á
næsta ári.
— Úrslitasundið
Framhald af bls. 26
OL-met. Bandarisku stúlkurnar
þrjár náðu þama 3.4. og 5.
bezta tímanum en undanúrslit
in þóttu heldur rólega synt.
100 m baksund karla
Þá fóru fram undanrásir í 400
m skriðsundi karla. Þar náði
ástralskur unglingur 17 ára,
GrahamWhite beztum tíma 4:17.0
en ljóst þótti af öðrum tímum
að þarna verður mikil barátta
er til úrslitanna dregur. Einnig
í þessu sundi eru allir Banda-
ríkjamennirnir þrír í úrslita-
keppninni.
fyrsta hæð hússins á að vera
inndregin. Gangstéttin á að
koma þar gegnum húsið og und-
ir annarri hæðinni.
Ragnar ætlar að reisa þarna
stórt verzlúnarhús, sem er að
þvi leyti nýstárlcgt ,að göngu-
stígar liggja gegnum húsið og
mismunandi verzianir við þá.
Búið er að rífa gamla húsið,
sem þarna stóð og brann í fyrra,
byrja á nýja húsinu. Ætlunin er
en nú á að hreinsa grunninn og
að steypubílar og öll bygging-
arfarartæki athafni sig fyrir inn
an girðinguna.
- LOFTBARDAGI
Framhald af bls. 1
höldnu aftur til stöðva sinna eft-
i rað hafa hrakið egypzku flug-
vélarnar úr ísraeiskri lofthelgi.
Þær kalla frásögn Egypta fjar-
stæðu.
Hálftíma áður gsrðu jórdansk
ir hermenn skothríð að ísraelsk-
um herflokkur fyrir sunnan
Ailenby-brúna á ánni Jórdan.
Israeismenn svöruðu árásinni,
en ekkert mannfall varð í liði
þeirra, að því er tiikynnt var í
Tel Aviv. Áður höfðu ísraels-
menn sakað Jórdani um árásir
við Jórdan, en Jórdaníumenn
sökuðu ísraelsmcnn um að hafa
átt upptökin.
- CERNIK
Framhald af bls. 1
firra hugsanlegum árekstrum.
Eina athöfnin, sem fram á að
fara utan dyra, er að lagðir verða
blómsveigar á gröf óþekkta her-
mannsins og að minmisvörðum
hinna fjögurra forseta landsins,
Thomas Masaryk, Edward Benes,
Klement Gottwald og Anitonin
Zapotocky.
Hin opinbera fréttastofa Cet-
eka skýrði frá því að ríkisstjórn-
in hefðf komið saman til fundar
í dag með Cernik í forsæti. Á
dargskrá voru m. a. uimræður um
brottflutning hernámisliðsins og
hver.su framkvæma ei'gi á-
kvæði Moskvu-samkamulagsins
um kennslumál.
STJÓRN Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur boðaði blaðamenn á
sinn fund í gær til þess að skýra
nýjungar í félagsstarfi. Björgvin
Guðmundsson, formaður félags-
ins, sagði, að í vetur yrðu hádeg
isverðarfundir á vegum þess opn
ir öllum almenningi og yrði hinn
fyrsti þeirra n.k. laugardag og
mundi Gylfi Þ. Gíslason ræða
um þjóðstjórn. f desemberbyrjun
yrði haldin ráðstefna um stjórn-
- PARISARFUNDUR
Framhald af bls. 1
verið rætt. Samkomulag varð að
vanda um að annan fund skyldi
halda nk. miðvikudag.
Síðar í dag lýsti talsmaður
sendinefndar N-Vietnam, Ngu-
yen Thank Le, því yfir, að eitt-
hvað nýtt myndi koma fram
varðandi friðarumleitanimar í
París jafnskjótt og Bandaríkja-
menn létu af loftárásum á N-
Vietnam. Aðspurður hvort hann
væri bjartsýnni nú en fyrir mán-
uði, svaraði hann því til áð
Bandaríkjamenn neituðu enn að
stöðva loftárásirnar.
Þá skýrði Le frá því, að hann
myndi ekki efna til blaðámanna
fundar á mánudaginn, svo sem
venja hefur verið. „Við munum
láta ykkur vita þegar að þvi
kemur hvort efnt verður til nýs
blaðamannafundar eða ekki“,
sagði hann við fréttamenn.
Talsmaður bandarísku nefnd-
arinnar, William Jorden, sagði
síðar í dag, að hann væri að
miss'a móðinn. „Ég sá ekkert í
dag, sem bent getur til þess að
áfram miði. Það er alltaf niður-
drepandi þegar ekkert miðar í
jafn alvarlegum málum og þess-
um, en við höfum þó enn von“,
sagði hann. Jorden neitaði að
segja nokkuð um hvort það væri
stáðreynd að Joihnson forseti
biði nú eftir svari frá stjórn
N-Vietnam við síðustu tillögum
Bandaríkjanna um stöðvun loft-
árása. Þeir, sem með málum
fylgjast í París, telja engan vafa
á því leika, að slíkar tillögur
hafi verið lagðar fram. Sumir
þeirra telja, að Johson bíði enn
eftir svari. Bent hefur verið á,
að þetta kunni að vera ástæðan
til þess, að forsetinn hefur frest-
að því a’ð kunngera hvenær hann
muni halda blaðamannafund
næst.
I Saigon ræddust þeir við í
tvær og hálfa klukkustund í
dag Ellsworth Bunker, sendi-
herra Bandaríkjanna og Nguyen
Van Thieu, forseti S-Vietnam.
Var þetta sjötti fundur þeirra á
átta dögum.
I dag sprakk plastsprengja á
götu einni í Saigon með þeim
afleiðingum, að níu óbreyttir
borgarar særðust. Sprengjan
sprakk er umferð var hvað
mest, en henni mun hafa verið
varpað af manni á mótorhjóli
eða úr smábíl, að því talið er.
málaflokkana og lýðræðið og yrði
hún öllum opin, en þátttakendur
yrðu að láta skrá sig. Sagði
Björgvin, að félagið vildi koma
til móts við óskir almennings
um opnara stjórnmálastarf. Fé-
lagið hefur gefið út starfsáætlun
og efnir til bridge kvölda og fé-
lagsvistar og ennfremur hyggst
það bjóða Palme, menntamála-
ráðherra Svía, hingað til lands
í vetur.
- BRUGGARINN
Framhald af bls. 28
glerbrúsa með bruggi í gerjun
og 1 lítra af landa.
Eigandinn kvaðst hafa lagt í
fyrst í vor og þá um 30 lítra,
en mikið af því skcmmdist og
fékk hann aðeins 1 lítra af landa
út úr afganginum. Lagði hann
þá aftur í og var það að gerj-
ast, þegar allt komst upp.
- DEVOLD
Framhald af bls. 28
þegar verði hafizt handa um að
byggja upp síldarmóttöku í Finn
mörk, þar sem helzt má búast
við að millisíldarveiðarnar verði
aruggastar a.m.k. næstu 10 árin,
ef marka má breytingar þær,
sem oiðið hafa á hrygningar-
stöðviun síldarinnar“, segir
Devold.
„Á undanförnum árum hafa
veiðamar numið allt að 3 millj.
hektólítra af millisíld á ári, en
hugsanlegt er að aflamagnið
falli niður í 100 þúsund hektó-
lítra. — Það, sem rannsóknir
okkar hafa leitt í ljós, er að aug-
ljóst er að við getum ekki hald-
ið áfram þeim upptekna hætti,
að horfa á að eitri sé sprautað í
verðmætt hráefni og það siðan
flutt með endilangri ströndinni
allt til Mæri. Ég hefi vakið at-
hygli yfirvaldanna á þessu
ástandi", segir Devold.
Devold segir ennfremur:
„Verksmiðjurnar (þ.e. bræðsl-
urnar) verða að grundvallast á
loðnuveiðum í framtíðinni. Við
getum að vísu ekki gleymt því,
að loðnuveiðarnar geta verið
stopular vegna þess að þær
byggjast eingöngu á tveimur ár-
göngum, og þetta gerir væntan-
leg vandamál sjálfsagt ekki betri
viðfangs."
„Sjávarútvegsmálaráðuneytið
mim þegar í stað hafa samband
við rétta aðila um þessi vanda-
mál og þær tillögur, sem Finn
Devold hefur fram að færa“, seg
ir ráðuneytisstjórinn við Lofot-
posten. Hann bætti því við, að
menn líti jákvætt á ástandið, að
málið verði upp tekið á vísinda-
legum grundvelli svo fljótt sem
auðið er.
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Jakohs Jakobssonar, og
spurði hann álits á fyrrgreind-
um ummælum Devold. Hann
sagði:
„Mér finnst þetta merkileg
frétt. Vi’ð höfum bent á það ár-
um saman, og reyndar sovézkir
fiskifræðingar lika, að hinar gíf-
urlegu milli- og smásildarveiðar
Nor’ðmanna til bræðslu hafi haft
verulega skaðleg áhrif á norska
síldarstofnunn, sem er uppistað-
an í síldveiðunum fyrir norðan
og austan á haustin. Norskir
fiskifræðingar hafa aldrei viljað
ljá máls á neinum takmörkun-
um á þessum veiðum. Það er þvi
gleðileg hugarfarsbreyting, sem
hér hefur orðið, ef Norðmenn
ætla að snúa sér að því að nýta
smásildina eingöngu til mann-
eldis í stað bræ'ðslu, enda þótt
ég hefði helzt viljað að þessax
veiðar þeirra yrðu algjörlega
bannaðar, á sama hátt og við
höfum bannað smásíldarveiðar.
Vcir þó um óverulegar veiðar á
smásíld að ræða hjá okkur mið-
að við þa'ð gífurlega magn, sem
Norðmenn hafa veitt.“
„Við framkvæmum engar bein
ar rannsóknir á smásíld við Nor-
eg, enda elst hún upp í norsku
Á BLAÐAMANNAFUNDI þeim
sem Alþýðuflokksfélag Reykja-
víkur efndi til í gær, staðfesti
Arnbjörn Kristinsson frásögn
Morgunblaðsins sl. vetur um við
ræðufundi nokkurra Alþýðu-
flokksmanna og Alþýðubanda-
lagsmanna. Sagði Arnbjörn, að
í viðræðunum hefðu tekið þátt
Ólafur og Jón Baldvin Hanni-
balssynir, Haraldur Henrýsson,
fjörðunum og að nokkru leyti
norður í Barentshafi. Samkvæmt
þeirra eigin rannsóknum hafa
allir árgangarnir frá og með
1965 verið ákaflega lélegir, og er
þetta í samræmi við það, sem
við höfum vitað, þ.e. a'ð mjög
lítið virðist vera um uppvax-
andi norska sild.“
„Eru þetta alvarleg tíðindi
fyrir okkur?“
„Það verður það í framtíðinni.
Þegar þessi síld er orðin 4—5
ára gömui fer nennar að gæta í
| þeim hluta norska síldarstofns-
I ins, sem íslendingar sækja í.“
„Hvenær má búast við, að
áhrifa þessa fari að gæta?“
„Þess er að vissu leyti þegar
farið að gæta, því norski síldar-
stofninn hefur þegar dregizt
saman. Ég vil þó taka skýrt frani
að þrátt fyrir þetfa er hér ekki
um að ræða aðalorsökina fyrir
aflabrestinum í sumar og haust",
sagði Jakob Jakobsson að lok-
um.
Innbrot
ó Akureyri
AKUREYRI, 24. okt. — 1 nótt
var frami'ð innbrot í bifreiða-
verkstæði Þórshamars og spjöll
unnin á húsi og húsgögnum en
litlu stolið, enda engir peningar
á glámbekk.
Litlar dyr norðan á verkstæð-
inu voru sprengdar upp með
járni, síðan sprengdar upp dyr
að skrifstofu verkstjóra, sprengt
var upp skrifborð, þar sem lykl-
ar að varahlutaverzluninni voru
geymdir og síðan farið þangað
inn. 'Þar var lítill -peningakassi
sem var sprengdur upp eða eyði-
lagður, en í honum voru 3'0—40
krónur, sem voru hið eina, sem
þjófurinn hafði upp úr krafs-
inu. Þó má vera að eitthvað hafi
verið tekið af varahlutum, en
það hefur þó ekki komið í ljós
enn. — Málið er í rannsókn.
— Sv. P.
Stúdentum fækk-
ur vegnu úrlegr-
ur skrúningur-
skyldu —
LOKIÐ er skráningu stúdenta í
Háskóla íslands, en þetta er í
fyrsta skipti sem stúdentum er
gert að skrá sig á hverju skóla
ári. í Háskólanum hafa verið á
skrá um 1400 stúdentar. Mbl.
spurði Jóhannes Helgason há-
skólaritara hvort þeim hefði
fækkað vegna árlegrar skráning
arskyldu. Sagði hann að við
skráninguna liti út fyrir að þeim
muni eitthvað fækka. Þó er ekki
enn búið að gera upp tölur og
ekki öll kurl komin til grafar.
Múlverkusýning
í Borgurnesi
Borgarnesi 24. okt.
STEINGRÍMUR Sigurðsson, list
málari, heldur málverkasýningu
í Hótel Borgarnesi, efri sal, á
föstudag, laugardag og sunnu-
dag. Sýnir hann 20 myndir, sem
flestar eru nýjar myndir.
Vésteinn Ólafsson, og fl. svo og
Sigurður Guðmundsson, Örlygur
Geirsson, hann sjálfur og fL
Sagði Arnbjörn að hér hefði
fyrst og fremst verið um skoð-
anaskipti að ræða. Björgvin Guð
mundsson upplýsti á fundinum,
að ýmsir meðlimir málfundarfé-
lags jafnaðarmanna hefðu geng-
ið aftur í Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur.
Vetrarstarf Alþýðu-
flokksfélaganna
VIÐRÆÐUR HANNIBALISTA
OG ALÞÝÐUFLOKKSMANNA