Morgunblaðið - 24.10.1968, Blaðsíða 28
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1968
Brennandi heyið borið út á Þurá.
(Ljósm. Jón Þorbergsson).
Aukaíund-
urSÍFídug
SOLUSAMBAND ísl. fiskfram-
leiðenda hefur boðað til auka-
fundar samtakanna og hefst hann
kl. 10 árdegis í dag. Á fundinum
verður rætt um ástand og horf-
ur í sölu- og verðlagsmálum salt
fisks.
Þá hefur SÍF auglýst eftir
manni til að vinna að sölu- og
markaðsmálum fyrir samtökin.
Er það í samræmi við ákvörðun
siðasta aðalfundar SÍF.
Devold spáir samdrætti í
millisíldarveiðum
Segir verksmiðjurnar verði að byggja á
loðnu — Hefði helzt viljað láta banna
þessar veiðar segir Jakob Jakobsson
Svolvær, 23. okt. — NTB
RANNSÓKNIR á síldarung-
viði hafa leitt í Ijós, að allir
síldarárgangar frá 1965
eru
Heildarkostnaður Breiðholts
framkvæmdanna 331 millj.
Framkvœmdum við fyrsta áfanga lýkur í febrúar nœstkomandi
Byggðar verða 335 íbúðir í fyrsta áfanga
KOSTNAÐUR við byggingar-
framkvæmdir rikisins og Reykja-
víkurborgar nema nú rúmlega
331 millj. kr. Lokið er við bygg-
Minkur drepur
hænsni
Egilsstaðir 24. okt.
MINKS hefur orðið vart á Efra
Jökuldal að undanförnu. Á
Eiriksstöðum á Jökuldal lagðist
hann á hænsni og' drap þau. Tók
hann 2 hænur á npttu 3 nætur í
röð. Á fleiri bæjum hefur hann
sést heima við hús. Og eru bænd
ur lítt hrifnir ai komu hans.
Jökuldælingar hafa fullan hug
á að fá sér mann, sem getur leið
beint þeim við að vinna á mink
inum. En hann er nýkominn á
þetta svæði og menn lítið kunn
ugir lifnaðarháttum hans.
Margir síldarbátanna eru á
leið til Hjaltlands. Jón Kjartans-
son, sem þar hefur verið, seldi
90 lestir af isaðri sild,
mest ísaðri um borð í kassa. —
Fengust fyrir það 54.050 mörk
eða kr. 8.60 fyrir kg.
ingu 204 íbúða í fjórum fjöl-
býlishúsum. Fimmta fjölbýlis-
húsið verður tilbúið í desember
nk. og sjötta og síðasta fjöl-
býlishúsið í þessum áfanga verð-
ur tilbúið í febrúar. Samtals eru
íbúðirnar í fyrsta áfanga' 312, auk
23 innfluttra einbýlishúsa. Verð
íbúðanna er frá kr. 767 þús. til
1132 þús. og einbýlishúsin kosta
1370 þús. og 1490 þús. kr.
Framangreindar upplýsingar
'komu fram í svari er Eggert G.
Þorsteinsson gaf við fyrirspurn
á Alþingi frá Skúla Guðmunds-
syni. Töluverðar umræður urðu
um húsnæðismál og Brejðholtls-
framkvæmdirnar.
Fyrirspurn Skúla var í sjö
eftirfarandi iiðum:
1. Hvenær hófust byggingar
íbúðarhúsanna?
2. Hvenær var lokið byggingu
fyrstu íbúðanma? __
3. Hve margar íbúðir eru nú
fullgerðar, og hve stórar eru þær
ibúðir í hverjum stærðarflokki,
að fiatarmáli og rúmmáli?
4. Hvert er kostnaðarverð fuil-
gerðra íbúða í hverjum stærðar-
flokki?
5. Hve margar ibúðir eru nú
í byggingu?
6. Hve mörg tilbúin hús hefur
framkvæmdanefndin fiutt inn
fTá útlöndum, af hvaða stærð, og
hvert er kostnaðarverð þeirra,
hverrar stærðar fyrir sig, upp-
settra og fullfrágenginna?
FramJiald á bls. 12
svo veikir, að leiða mun til
svo mikils samdráttar í milli-
síldarveiðum Norðmanna, að
ekki mun borga sig lengur að
nota hráefnið til bræðslu.
Eigi síldveiðisjómenn að eiga
nokkra von um að veiðarnar
verði arðvænlegar, verður
síldin einvörðungu að fara til
betri nýtingar, segir Finn
Devold, fiskifræðingur við
norsku Hafrannsóknarstofu-
una í viðtali við Lofotposten.
„Það skiptir nú öllu máli að
Framhald á bls. 27
Enn einn
hlöðubruni
Kviknaði i
á Þurá i Ölfusi
HVEKAGERÐI, 24. okt. — í dag
varð hlöðubruni hjá Þorláki Kol
beinssyni á Þurá í Ölfusi.
Slökkviliðið í Hveragerði var
kallað út iaust eftir hádegi í dag.
Rauk þá úr hlöðunni. Var haf-
izt handa um að reyna að koma
heyinu út og hefur það gengið
vel. Ekki var mikill eldur í hlöð
unni og var búið að koma öllu
heyinu út um 6-leytið. Taldi Þor
lákur að þarna væru um 400—
500 hestar af heyi. Það hefur
bjargað miklu að veður hefur
verið hagstætt. Telur Þorlákur
að um þriðjungur af heyinu
hafi skemmzt. Reynt verður að
ganga frá því heyi, sem bjarg-
að er, úti á túni til bráðaltirgða.
Hlaðan, sem er járnklædd
timburgrind, skemmdist ekki.
Þetta var óvátryggt. —- Georg.
Bruggori
tekinn
UPP komst um bruggara í
Reykjavík, þegar slökkviliðið
var kvatt að húsi við Álftamýri
í fyrradag. Hafði kviknað þar í
svefnpoka út frá rafmagnsofni í
kjallaraherbergi, en í herberg-
inu fann lögreglan bruggtæki,
Framhald á bls. 27
Rússnesku herskipin
hittu vistaskip út af Hjörleifshöfða í gœr
TUNDURSPILLARNIR rúss-
nesku, sem hafa verið á ferð-
inni kringum ísland síðan fyrir
helgi, voru allan dagirtn í gær
um sex mílur suður af Ingóifs-
höfða Þar komu þeir til móts
vi'ð tvö önnur rússnesk skip í
gærmorgun. Var annað olíuskip-
ið Terek, en hitt vatn.sskip. Og
voru tundurspillarnir tveir all-
an daginn að taka olíu og vist’r
úr vistaskipunum. Voru öll skip-
in þar enn um 7 kytið í gærdag.
Varnarliðið á Kefiavíkurflug-
velli fylgist með ferðum rúss-
nesku skipana, meðan bau halda
sig svo nálægt íslandi, en þau
hafa nú siglt með allri Norður-
ströndinni, vestur fyrir landið
og síðan austur með Suðurströnd
inni og oft haldið sig mjög ná-
lægt landi.
Gerið skil — freistið gæfunnar
ÞESSAR glæsilegu Mercedes
Benz fólksbifreiðar eru aðal-
vinningarnir í Landshapp-
drætti Sjálfstæðísflokksins.
Verðmæti þeirra er tæpl. 1
milljón, en verð happdrættis-
miðanna er aðeins 100 krón-
ur.
Ðregið verður í happdrætt-
inu 5. nóvember nk. Stuðn-
ingsmenn flokksins hafa
margir fengið senda miða, og
þar sem óðum styttist sá tími,
þar til dregið verður, eru það
eindregin tilmæli, að menn
geri skil sem allra fyrst. Það
mun auðvelda starfsmönnum
happdrættisins mjög alla
vinnu.
Öðrum, sem hug hafa á
því að kaupa miða í happ-
drættinu, og freista þannig
gæfunnar, skal bent á, að
miðar eru til sölu í happ-
drættisbifreiðunum, þar sem
þær standa við Austurstræti
og eins á skrifstofu flokksins
við Austurvöll.