Morgunblaðið - 24.11.1968, Síða 1

Morgunblaðið - 24.11.1968, Síða 1
32 síður og Lesbók 263. tbl. 55. árg. SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kommúnistar í stjórn á Ítalíu? Róm, 23. nóvember. NTB Tveir vinstrisinnuðustu flokk- arnir á ftalíu, kommúnistar og Sósíalistíski öreigaflokkurinn, hafa krafizt þess að hætt verði tilraunum til að mynda nýja sam steypustjórn miðflokkanna og vinstriflokkanna og krafizt þess að mynduð verði hrein vinstri stjórn. f sameiginlegri yfirlýsingu frá flokkunum segir, að mynda verði stjórn sem endurspegli fylgis- aukningu vinstrimanna í kosn- ingunum í maí og óánægju ít- alskra verkamanna og stúdenta. Hjartnþegi deyr Houston, Texas, 23. nóvember. AP. EVERETT C. Thomas, sem lifað hefur lengst allra hjartaþega í Bandarikjunum, lézt í dag, þar sem líkami hans hafnaði seinna hjartanu, sem grætt var í hann. Fyrra hjartað var grætt í hann 3. maí. BIAFRA-FLUG heíur kostað 120 milljónir Osló, 23. nóvember. NTB. LOFTFLUTNINGARNIR frá portúgölsku eynni Sao Tomé hafa kostað kirkjurnar á Norðurlönd- um um það bil 120 milljónir ís- lenzkar krónur síðan þeir hóf- ust fyrir þremur mánuðum, að því er segir í skýrslu sem lögð var fram á fundi Nordchurchaid í Kaupmannahöfn i vikunni, og farnar hafa verið alls um 660 flugferðir. London, 23. nóveanber. NTB. Birezk freigáta otg herfl'Ugvélar, fýlgjast með ferðuim rússneskra herskipa sem eru á iságliinigu rétt uítam við íanidhelgi Bretlands. Lagt var til eftir sameiginlegan fund stjórna flokkanna að mynd uð yrði samfylking vinstrimanna er næði til margra óánægðra stuðningsmanna Sósíalistaflokks ins og Kristilega demókrata- flokksins auk Kommúnistaflokks ings og Sósíalistíska öreigaflokks ins. Kommúnistar eiga 177 fulltrúa á þingi en öreigaflokkurinn að- eins 23, svo að þessir tveir flokkar hafa ekki bolmagn til að mynda meirihlutastjórn og til þess þurfa þeir stuðning allra þingmanna sósíalista, sem eru 91, og allmargra þingmanna kristilegra demókrata. Samtímis þessu heldur Gius- eppen Saragat forseti áfram að kanna möguleika á myndun traustrar meirihlutastjórnar í stað minnihlutastjórnar Gio- vanni Leonas úr Kristilega demó krataflokknum er verið hefur við völd í fimm mánuði. Farþegar og áhöfn japönsku Boeing-þotunnar, sem hrapaði í San Francisco-flóa, björguðu sér i land í björgunarbátum. Þotan hrapaði í lendingu skammt frá flugvellinum. 107 manns voru í þotunni, en engan sakaði. GENGISFELLING EINA ÚRRÆDIDI FRAKKLANDI Frakkar órólegir og daprir, Bretar reiðir París og London, 23. nóvember. NTB-AP. De Gaulle forseti flytur frönsku þjóðinni boðskap í útvarpi og sjónvarpi einhvern næstu daga um efnahagsástandið og þær að- gerðir, sem nauðsynlegar eru, að því er áreiðanlegar heimildir hermdu í dag. Frá því var skýrt í dag, að fjármálaráðherrar 13 Afríkju- rikja á frankasvæðinu kæmu sam an til fundar í París á morgun og hermdu góðar heimildir að yfirlýsingunni um gengisfellingu franska frankans yrði ef til vill frestað þangað til fundinum lýk- ur. Gengisfelling er talin eina úr- ræðið til þess að bjarga Frakk- landi úr ógöngunum þar sem til- raunimar til að fá Vestur-Þjóð- verja til að hækkia markið fóru út um þúfur. Akvörðun stjórnar innar um gengisfellingu, sem taka átti á fundi hennar í dag, hefur verið beðið í ofvæni, þar sem óttazt var að Bretar og marg ar aðrar þjóðir yrðu að lækka gengið hjá sér ef genigisfelling Frakka yrði hærri en 10—15%, en það mundi hafa í för með sér Vilja eftiriit með hergagnasölu Danmörk, Island, Noregur og Malta leggja fram tillögu New York, 23. nóv. Einkaskeyti frá AP. Danmörk, Island, Noregur og Malta lögðu fram tillögu ný lega þess efnis að Sameinuðu þjóðirnar fylgdust með vopna sölu í heiminum. Komið yrði upp sérstakri upplýsingamið- stöð og þær þjóðir sem aðild eiga að SÞ skuldbyndu sig til að gefa skýrslur um allan innflutning og útflutning á vopnum, skotfærum og öðru sem til hemaðar má nota. U Thant hefði svo leyfi til að láta birta þessar skýrslur opin berlega, og hefði þá einnig betri aðstöðu til að ræða við viðkomandi þjóðir um tak- mörkun á vopnasölu. Hann myndi einnig skýra a fvopnu narnefndinmi í Gení frá niðurstöðum sínum. Flytj endur tillögunnar sögðu hana vera tilraun til þess að hindra að smáskærur yrðu að stór- styrjöld en það kæmi alltof oft fyrir vegna leynilegrar her gagnasölu. Opinberar skýrsl- ur um þetta mál gætu hjálp- að til að minnka spennuna og auka traust land,a í mffli. Ekki voru nefnd nein sérstök lönd í þessari skýrslu. —★— Morgunblaðið sneri sér til dr. Gunars G. Schram, deildar- stjóra í utanríkisráðuneytinu og spurði hann nánar um þessa tillögu. Gunnar sagði að Danir hefðu lengi haft áhuga á að gera eitthvað jákvætt í afvopnunarmálum og helzt þá í samvinnu við hin Norður- löndin. Á því þingi sem nú siitur, hefði Poul Hartling, ut- anríkisráðherra Dana skýrt frá því að þeir væru að hugsa um að leggja fram tillögu þess efnis að allar vopnasölur yrðu skráðar. ísland hefði verið fyrsta þjóðin sem lýsti stuðn- ingi við Danmörku, en síðan hefðu Noregur og Mailta slegizt í hópinn. Markmiðið væri að hindra að smástríð breiddust út og yrðu að allsherjar blóðbaði eins og svo oft kæmi fyrir þegar uppreisnarstjórnir eða skæruliðasveitir gætu aflað sér vopna með leynilegum kaup- um. Leynilegar hergagnasölur ykju mjög viðsjár og óróa í heiminum, og þetta væri hægt að minnka með eftirliti Gunnar sagði ennfremur að þegar hefði komið fram að ýmsar þjóðir sem hefðu hagn- að af hergagnasölu væru and vígar hugmyndinnj. stórfellda gjaldeyriskreppu og al varleg áhrif á dollarann. SVARTSÝNI í FRAKKLANDI Hvað sem því líður telja sér- fræðingar að gaullistar hatfi orð- ið fyrir ailvarlegu áfalti, en þó er því baildið fraim að í heilld ríki heilbirgt á;itand í frönskuim efna- hagsmálum: framleiðsla hafi aukizt, aitvininuleysi minmkað og greiðslujöfnuður sé haigstæður. Blaðið „Figaro“ segir að Frakk- air séu órólegir og daprir, því að framtíðairhorfur séu slæmar, bæði í innanlainds og í utamríkis- mátum. Spákaupmennirnir hafi haft á réttu að standa og áhrif Frakka í ailþjóðamiálU)m hafi beð- ið hnekki. „Bonn-sitjórnin neyðir de Gaulle til að fella franfcann“, segir kommúnistablaðið „L’ Bumanité". Blaðið L’Aurore“ Framhald á bls. 31. Hnsak varar við upplousn Vín, 23. nóvember. AP. GUSTAV Husak, leiðtogi komm- únistaflokksins í Slóvakíu, hefur harðlega gagnrýnt djúpstæðan innanflokkságreining og varaði við upplausn tékkóslóvakíska kommúnistaflokksins á mið- stjórnarfundi hans fyrir nokkru. Að sögn fréttastofunnar CTK sagði Husak á fundinum, að „sfcortur á einingu í flofcknum, jafnvel upplausnareinkenni, skoði svo djúpum rótum að á- ástandið væru hættulegt.“ Husak sagði, að „einkennilegt'* ástand rikti í flokknum: það væri áreiðanlega engin tilviljun að hann væri sjálfum sér siund- urþykkur. „Stjórnarhópur", sem bæri ábyrgð og sætti því gagn- rýni, yrði að gera óvinsælar ráð- stafanir. Andstöðuklíka í flokkn- um hefði yndi af því að gagn- rýna forystuna. Hann bætti því við, að and- stöðuflokkur kommúnista gagn- rýndi stjórnarflokk kommúnista. ,Þannig leysist starf okkar upp og og sömu sögu er að segja um styrk okkar og stundum starfs- orku ofckar og lífsorku", bætti hann við. Úkunnir kafbátar viö borturna í Noröursjó Virðast kanna legu gasleiðslna Á NORÐURSJÓNUM, út af ströndum Bretlands, hafa víða verið reistir borturnar, sem standa traustum fótum á sjávar- botninum og bera stóra vinnu- palla talsvert fyrir ofan yfir- borð sjávarins. Frá turnum þessum er borað ofan í botnlagið eftir jarðgasi, sem síðan er flutt til lands eftir þar til gerðum leiðslum. Nýlega hafa starfsmenn við vera að kanna legu þessara leiðslna til lands, og hefur brezka flotanuim verið falið að atihuga hvaða kafbáta er um að ræða. Vitað er að kafbátarnir eru ekki brezkir, og ekki frá neinu ríki Atlantshafsbandalagsins. Fyrstu fréttirnar um kabáta- ferðir við gasleiðslurnar bárust frá kafara, sem var að vinna við borlurn Shellfélagsins um 50 kílómetrum frá ströndinni við turnana orðið varir við ferðir í Great Yarmouth. Sigldi kafbátur óþekktra kafbóta, se«n virðast' Framhaid á bis. 31.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.