Morgunblaðið - 24.11.1968, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.11.1968, Qupperneq 15
MORGUNBÍLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1968 15 LANDBÚNAÐUR ÁRIÐ 2000 HVERNIG verð’ir landbúnað urinn árið 2000? Verður hann nógu háþróaður til að fæða heim sem telur 7000 milljón íbúa, helmingi fleiri en í dag? Verða tækninýjungar nútím- ans orðnar úreitar? Þettavoru nokkrar þeirra spurninga sem fengu Ford verksmiðjurnar til að láta sérfræðinga Vinjia að framtíðaráætlun fyrir landbún aðinn. Það tók tvö ár og millj- onir króna, en niðurstöðumar eru líka vægast sagt forvitni- legar. t lok skýrslunnar segir svo: ,Hinn duglegi bóndi fram tíðarinnar verður hámenntaður sérfræðingur sem býr yfir ótrú leg*i þekkingu og hefur yfir stórkostlegum tækum að ráða“. Tnktorar sem ekki þurfa stjórnanda, mjólk úr gulrótum og baunum, kýr sem eiga 1000 afkvæmi, gler eða plasthvelf- ingar sem þekja fleiri ekrur ræktarlands, kornplöntur sem líkjast litlum trjám, búgarðar á hafsbotni, stórkostlegar kornuppskerur, þang og sjáv- argróður sem mannamatur, allt verður þetta daglegt brauð ár- ið 2000. Skýrslan er að sjálf- sögðu einkum miðuð við Banda ríkin, en sagt að hjálpa verði öðrum þjóðum að komas tá líkt stig svo að heiminn þurfi ekki að skorta landbúnaðarvörur. Og tækninýjungarnar verða mikið fleiri. Sumir bændur munu nota vélar með rafeinda augu sem skjóta fræum ofan í jörðina með loftþrýstingi. Fræ in verða húðuð með efnablöndu sem gerir það að verkum að þau byrja ekki að vaxa fyrr en á réttum tíma. Vélar með rafeindatækjum og tölvu-stjórn uðum höndum munu ákveðj hvenær kornið er svo þroskað að uppskera eigi að hefjast. Hún mun svo annast uppsker- una og aðgreiningu og pökkun jafnóðum úti á akrinum. Jafn- óðum og þær skera upp munu þær sá nýjum fræjum. Flug- tæki, nokkurskonar sambland af þyrlu og loftpúðaskipi verð- ur notað tii að bera á og úða. Gervihnettir munu senda frá sér skýrslur um ástand og þroska akranna, byggðar á gæðum og styrkleika ljóssins sem endurkastast frá jörðinni. Þeir munu einnig uppgötva skordýraplágur eða jurtasjúk- dóma löngu áður en þeir geta náð fótfestu. Ef jurtasjúkdóm- ur kemur upp mun bóndinn úða sterkum kemiskum efnum yfir svæðið, aðeins nokkrum grömmum á hveria ekru. Árið 2000 munu bændur nota skaðlaus skordýr til að hafa hemil á plágum og skaðlegum skordýrum verður eytt með eit urefnum. Bóndabýli framtíðar- innar munu ekki iíkjast mikið bóndabýlum vorra daga. Margra hæða byggingar verða algengar og í þeim verða ekki mann jskjur heldur kýr, kind- ur, svín og hænsni. Hita- og rakastigi, andrúroslofti og birtu verður nákvæmlega stjórnað. Úrgangsefnum frá dýrunum verður skolað eftir pípum nið- ur í sérstakan geymi þar sem hlandið verður hreinsað og eim að og breytt í drykkjarvatn fyrir þau. Sérfræðingar Ford sáu líka fyrir traktora með drif á öll- um hjólum, sem verður stjóm- að af litlum tölvum eða raf- eindaþreifurum. Aflgjafinn verð ur rafmagn. Sumir traktorar- nir munu þó hafa mannlegan stjórnanda og sá mun sitja í góðum hægindas*ól í loftræstu húsi og hafa bæði matarhitun- aráhöld, ísskáp og sjónvarp. Nytin í kúnum verður orðin fjórfö’ld á við það sem hún er í dag og til þess að ekki verði skortur á mjólk verður henni blandað saman við gerfimjólk úr gulrótum, baunagrösum og kannski fleiri jurtum. Frjó egg verða flutt úr góðum mjólkur kúm í aðrar sem eru síðri og með gerviírjóvgun getur ein kú þannig eignast allt að þús- und kálfa í stað tíu eins og ai- gengast er í dag. Tii þess að hafa algera stjórn á loftslagi og gróðurskilyrðum verða reist ar risastórar gler eða plast- hvelfingar sem tá yfir tíu ekr ur eða meira. Sjálfvirk mæli- tæki fylgjast með vextinum þannig að bóndinn getur stjórn að ljósmagni, vökvun og nær- ingu með því einfaldlega að snúa takka. Kornstönglarnir í dag munu tilheyra fortíðinni en í þeirra stað verða komnar lágvaxnari og bykkari korn- plöntur sem geta betur nýtt sólarorkuna. Þær munu líka gefa af sér margfalda upp- skeru gömlu stönglanna. í samantekt um skýrsluna sagði John A. Banning, einn stjórnandi Ford verksmiðjanna: „Landbúnaðurinn í dag er flók in atvinnugrein sem kref st góðr ar undirstöðumenntunar. Þegar tækniundrum framtíðarinnar verður bætt við, gæti árangur- inn orðið stórkosttegur. „Hjarta“ hins dugandi bónda verður fullkormn stjórnstöð með allskonar rafeindatækjum og tölvum sem hjálpa honum til að fimmfalda framleiðslu sína frá árinu 1968 Vinnu- mennirnir þurfa að vera sér- hæfðir til að ge*a stjórnað hin- um flóknu tækjum og bóndinn sjálfur verður að hafa háskóla menntun í ýmsum greinum eins og t.d. viðskiptafræði rafeinda fræði, töflurvæði, lífefnafræði og lífeðlisfræði. Þetta kann að virðast frekar ótrúlegt allt saman, og þó, Fyr’r um það bil 65 árum var það talin fjar- stæða að maðurim gæti nokk- urntíma flogið. Stjórnklefi traktors. Þannig hugsar listamaður sér Amerískan bóndabæ árið 2000. Efst á miðri myndinni er gripahús þar sem andrúmsloft inu er nákvæmlega stjórnað. Til vinstri við það er lítil verk- smiðja sem breytir úrgangsefnum í drykkjarvatn. Tii hægri á miðri myndinni sést í piasthvelfingu sem þekur ræktar- Iand og vinstra megin við hanaesr bóndabærin. Fremst á mynd inni er svo stjómstöðin. NÝTT DEYFILYF — Virkar allt að jbrjár vikur Nytt deyfilyf scm verkar tíu sinnum betur en nokkuð annað sem þekkt er í dag hefur verið unnið við Georgetown háskólann í Washington. Til bráðabirgða hefur því verið gefið nafnið (eða númerið SL-1112, og það er enn á algeru tilrauna- stigi. Þegar því hefur verið sprautað í taugakerfi humra, rotta og svína hefur það stöðvað starfsemi tauganna í margar klukkustundir. Til samanburðar má geta þess að Procaine (Novocaine) sem mikið er notað við staðdeyfingar verkar ekki nema í nokkrar mínútur. f tilraunaskyni var SL-1112 sprautað í hest, sem hafði slæmsku í fæti og hann fann ekki fyrir sársauka í ÞRJÁR VIKUR Annar kostur er sá að þótt lyflð deyfi vel það sem því er ætlað, hefur það engin áhrlf á aðra líkamsstarfsemi og verkar aðeins á mjög takmörkuðum bletti fyrir utan deyfistaðinn Það mætti því kannski nota það við langvinnum (króniskum) sársauka sem í dag verður aðeins læknaður með bví að skera á taugina eða drepa hana með alkahóli eða pbenol. Vísindamað- urinn sem vinnur ð tilraununum er dr. Seymour Ehrenpreis og það er Hjartastofnun Bandaríkjanna sem stendur undir kostnaði Stofnunin hefur mikinn áhuga á lyfinu því í ljós hefur komið að það mætti nota tii að létta þeim tilveruna sem þjárst af Cardiac Arrhythmias", eða óreglulegum hjartslætti. Vetrarbrautin HIÐ ósýnilega „lín..“ sem heldur Vetrarbrautinni saman með- an hún æðir um geiminn með tæplega ljóshraða er mjög þunnt eftir því sem Suður-Afríkanskur stjömufræðlngur segir. Vetrar- brautin er disklaga þyrping 100 billjón stjama, og sólin okkar er ein þeirra. Gormlaga armar teygja sig frá útjaðri þyrp- ingarinnar þannig að Vetrarbrautin lítur út eins og hjólsagar- blað. Stjarneðlisfræðingar hafa lengi vitað að „límið“ sem heldur stjörnuklasanum saman er aflsvið, segulafl og aðdráttarafl. Eng- ir aðrir togkraftar náttúrunnar ná yflr svona stórt svið. Og nú hefur Suður-Afríkanski stjömufræðingurinn dr. Gerit L. Ve- schuu, uaælt styikleika aflsviðsins. Það er aðeins frá einum tíuþúsundasta niður 1 einn hundraðþúsundasta af aflsviði jarðar- innar. T an n pína Tannpína er hinn andstyggileg- asti kvilli sem allir vilja vera lausir við. Það ero ýmsar ráð- stafanir gerðar til að hindra tannskemmdir og hér *r ein ný hugmynd. Fólk lætur smiða plastmót fyrir tennurnar. Innan á mótin er borið fluor og þau borin í munninn nokkrar mínút- ur annan hvem dag. Tilraunir hafa sýnt að þetta hindrar tann- skemmdir. ☆ ,Radíó - my ndavél# Tveir Bandarískir vísindamenn vinna nú að gerð myndavél- ar sem notar endurkast radíóbylgja í staðinn fvrir ljósendur- varp. Uppfinningin sem kölluð er „radíómyndavélin“ er enn á tilraunastigi en þegar hún hefur verið fullkomnuð gefur hún stórkostlega möguleika. Dæmi: Skip geta fengið radar sem raunv-erulega ,.sér“ gegn- um þoku, myrkur og storm. Lendingartæki flugvéla geta orðið þannig að flugmaðurinn sér umhverfið á sjónvarprskermi sér nákvæmlega hvar flugbrautin er, eða aðrar nálægar flugvélar, hvernig sem veðrið er. Læknar geta séð ófædd börn í legi móðurinnar og komis að því hvernig þau liggja og hvort þau séu eitt eða fleiri. Flug- virkjar g-eta séð í gegnum plast og önnur gerviefni sem notuð ero til einangrunar i I raðfleygum flugvélum og eldflaugum. Það er enn mikil vinna fyrir hönrtum og líklega verður „radio- myndavélin" ckki algeng fyrr en eftir 10 ár eða svo, en byrjun- in lofar góðu og þeir sem hafa næga peninga geta sjálfsagt fengið sér eina nokkuð fyrr, ef þeir vilja ekki bíða eftir því að fjöldaframleiðsla lækki verðið. Póla-vindar eyða andrúmsloftinu ALVEG eins og sólin hefur „sólar-vinda“ sem blása frá yfir- borði hennar, hefur jörðin „póla-vinda“ sem bera örlítinn hluta andrúmslofts hennar út í geimin.n Það samanstendur af and- rúmslofts-elektrónum, súrefni, helium, vetni og köfnunarefnL Sem betur fer er missirinn lítill og engin hætta á að okkar lífs- ins lind, súrefnið, hverfi alveg. Tilvera „pólavindanna“ var staðfest á vísindaráðstefnu í Was- hingtón, í september, og dr. Peter Banks. frá Kaliforníuháskóla fékk heiðurinn af uppgötvuninni, en hún var staðfest af ekkl minna „átoríteti" en gerfihnettinum Könnuði 31. Þinginu var sagt að við hita frá sólinni ykist rúmmál loftsins yfir pólunum og það blési sem vindur niður „hinn segulmagnaða hala jarðar- innar“ og slyppi út á milli segulsviða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.