Morgunblaðið - 06.12.1968, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
273. tbl. 55. árg.
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Viet Cong boðar
jólavopnahlé
Deilur í Saigon um val fulltrúa
í Parísarviðrœðunum
Frá Róm. Háskólastúdentar safnast sanian til mótmælafundar við Colosseum, en síðan fóru
þeir í mikilli mótmælagöngu um götur miðborgarinnar og kröfðust betri námsskilyrða og náms-
fyrirkomulags. Mótmælagöngunni lauk fyrir utan byggingar háskólans í borginni. Mynd þessi
var tekin sl. þriðjudag.
Sólarhringsverkfall á Italíu —
Rom og umhverfi sem lamað
Ein og hálf milljón manns
taka Jbátt i verkfallinu —
Róm, 5. des. — NTB-AP
UM ein og hálf millj. ítalskra
verkamanna hófu snemma í dag
sólarhrings mótmæiaverkfall og
Róm og héruðin umhverfis voru
sem lömuð. Fólk í Róm varð að
vera án dagblaða, verkafólk úr
verksmiðjum og í landbúnaði
hélt sig heima, járnbrautarlestir
stöðvuðust og flutningar milli
Norður- og Suður-ítalíu stöðvuð-
ust að verulegu leyti. Þá var öll-
um skólum lokað í dag og
sjúkrahúsiæknar og hjúkrunar-
konur tóku aðeins til meðferðar
sjúkratilfelli, sem ekki þoldu
neina bið. Þá var einnig búizt
við, að þarna yrði rafmagnslaust
og gaslaust í dag.
Það eru þrjú stærsitu verka-
lý’ðssambönd Ítalíu, sem standa
að verkfaUinu, ein þar er deilt
um launakröfur. Kemur verk-
fallið í kjölfar mikiliar ókyrrð-
ar í landinu að undanförnu á
meðal verkamanna og stúdenta.
Tveir verkamenn á Sikiley voru
skotnir til bana af lögreglunni
fyrr í þessari viku og í gær kom
til nýrra átaka milli verkamanna
og lögreglu í mörgum itölskum
borgum.
Verkamennimir tveir á Sikiley
sem létu lífið, þeir Giuseppe
Scibilita, 45 ára og Angelo Sign-
ona, 24 ára, voru jarðsettir í
Avola á Austur-Sikiley í gær.
Meira en 20.000 manns stóðu í
ausandi regni við kirkjugarðinn
ISTUTTU HUI
ERFIÐ BARÁTTA
• Hannover, 5. deis. (AP) —
íbúar Neðra-S'axliands, sem
freistast til að borða of mik-
ið um hiátíðarnar, geta hringt
í símanúmer, þar sem þeim
er sagt: „Fremjið ekki sjátfs-
morð með hníf og gafli“.
og alls staðar á Itaiíu hættu
hundruð þúsundir verkamanna
vinnu sinni um tíma til þess að
minmas't hinna lláitnu. Til árekstra
kom milli lögreglu og verka-
manna og stúdenta í Florems og
Napoli. Hrópuðu vinstri sinmaðir
stúdentar: „Lögreglan er 0101*0-
imgjar“ og „Mótmælum hrotta-
skap lögreglunnar".
Á Sardiniu var gefin út til-
kynning um 6 stunda allsherjar-
verkfail í dag. >á hafa stúdent-
ar tekið á sitt vald efnafræði-
deildina við háskólann í Cagliari
og lýst því yfir, að þeir haldi
háskóladeildinni á sínu valdi um
óákveðinn tíma.
Ríkisstjómin hefur lýsf því
yfir, að hún hafi ekki í hyggju
að afvopna lögregluna. Var dráp
verkamannanna tveggja á Sikil-
Framhald á bls. 31
Tokyo og Saigon, 6. desember.
AP—NTB.
+ VIET Cong tilkynnti í dag að
vopnahlé yrði í Vietnam á jóla-
dag og nýjársdag. Að sögn frétta
stofu Norður-Vietnam hefur
framkvæmdanefnd miðstjórnar
Þjóðfrelsisfylkingarinnar Viet
Cong ákveðið að hlé verði gert
á árásum á óvinahermenn þessa
tvo hátíðisdaga.
+ I Saigon skipaði Suður-Viet-
namstjórn í dag Pham Dang
Lam sendiherra formann sendi-
nefndar sinnar í Parísar-viðræð-
unum. Hann fer til Frakklands
ásamt Nguyen Cao Ky varafor-,
seta og öðrum samningamönnum
á laugardag, að því er Tran Van
Huong forsætisráðherra tilkynnti
í dag.
Forsætisráðherrann sagði, að
nöfn annarra samningamanna
yrðu birt í næstu viku, en þar
sem fulltrúar á Suður-Vietnam-
þingi gerðu á dag uppreisn gegn
þeirri tillögu Van Thieus forseta,
að atkvæðagreiðsla verði látin
Rétturhöld
í Póllandi
Varsjá, 5. desember AP
SEWERYN Blumsztajn og Jan
Litynski, tveir ungir menn, sem
talið er að hafi verið helztu leið ríkisráðuneytimi, og Rúdiger
togar mótmælaaðgerða stúdenta TT 1J “ 1 1
fana fram um þá ákvörðun að
senda fulltrúa til Farísar, getur
tilkynningin um skipun nefndar-
innar dregizt á langinn, að því
er áreiðanlegar heimildir herma.
Að því er áreiðanlegar heim-
ildir hermia samþykktu þingmenn
á stormasömum fimdi, sem hald-
inn var fyrir luktum dyrum, að
tillaga forsetans gæti aðeins feng
Framhald á bls. 31
Sjólfsmorð
enn í Bonn
Bonn, 5. des. —■ AP.
VESTUR-ÞÝZKA utanríkis-
ráðuneytið tilkynnti í dag, að
tveir af starfsmönnum þess,
annar í Bonn en hinn í Haag,
hefðu fyrirfarið sér. Síðan
Hermann Liidcke aðmíráll
réð sér bana í október hafa
því níu vestur-þýzkir embætt-
ismenn framið sjálfsmorð.
Þessi sjálfsmorðsalda hefur
komið af stað mikilli herferð
gegn njósnastarfsemi og
stendur hún enn.
Talsmaður ráðuneytisins
neitar þvi, að síðustu sjálfs-
morðin eigi rætur að retkja
til nj ósnastarfsemi. Þeir sem
fyriirfóru sér voru Bernhard
Dudek, 47 ára, ritari í uitain'
i marz, voru leiddir fyrir rétt í
Varsjá í dag. Erlendum frétta-
riturum var meinað að fylgjast
með réttarhöldunum og aðeins
örfáum áhorfendum var hleypt
inn í réttarsalinn.
Efni ákærunnar hefur ekki ver
ið birt. Talið er að réttarhöldin,
sem eru síðasti liðurinn í stöð-
ugum lögsóknum gegn stúdent-
um, muni standa í eina viku.
Herold, 54 ára, ritari í þýzka
sendiráðinu í Haag. Talsmað-
uriinn sagði, að Dudek hefði
verið miður sin síðan kona
hans dó í vor og áð hann
hefði tekið inn of stóran
skammt af svefnpillum. Her-
old hengdi sig í sendiráðinu í
Haag, þar sem hann hefur
starfað síðan 1965, og var út-
skrifaður frá sjúkrahúsi í
Bonn fyrir þremur vikurn.
Úkyrrðin í Frakklandi í rénun
Hœttan á meiri háttar
Lán til þróunarlanda
tvöfölduð næstu 5 ár
— segir Robert McNamara
framkvœmdastjóri Alþjóðabankans
árekstrum minnkandi í gœr
PARÍS 5. desember, NTB.
New York, 5 desember, NTB. —
Robert McNamara, framkvæmda
stjóri Alþjóðabankans, sagði í
dag á fundi í efnahags- og fé-
lagsmálaráði Sameinuðu þjóð-
anna, að Alþjóðabankinn muni
tvöfalda útlán sín til þróunar-
landa á næstu fimm árum í því
skyni að leggja sitt af mörk-
um til aukningar matvælafram-
leiðslunnar.
Framkvæmdastjórinn, sem er
fyrrverandi varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, gagnrýndi þau
fyrir að hafa dregið úr efnahags-
aðstoð sinni til þróunarlandanna.
Mælti hann með öflugri sókn til
þess að yfirstíga þau vandamál,
sem samfara eru mikilli fólks-
f jölgun í heiminum.
— Á næstu fimm árum munu
útlán okkar til Asíu meira en
tvöfaldast, en Asía er þegar sá
Framhald á bls. 31
Þrátt fyrir sex stunda verkfall
við Renault bílaverksmiðjurnar,
sem eru ríkiseign, virtist sem
hættan á meiri háttar árekstrum
í Frakklandi hefði minnkað í
flag.
Verkfallið náði til aðalverk-
simiðjanna í Boulogne-Bá'llain-
court og fleiri minni verksmiðja
á Parísarsvæðinu og í Norður-
Frakklandi. Þúsundir starfs-
manna lögðu niður vinnu aðeins
fáeinum klukkustundum, eftir
að þjóðþingið hafði samþykkt
lagafrumvarp varðandi réttindi
verkalýðsfélaga. Voru úrslit at-
kvæðagreiðslunnar talin veruleg-
ur sigur fyrir rikisstjórnina.
Bæði kommúnistar og aðrir
vinstri menn voru samþykkir
frumvarpinu, sem var samþykkt
með 438 atkvæðum gegn 4, en
22 þingmenn sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Stjórnmálaþróunin í landinu
og þróunin á meðal verkalýðs-
félaganna hefur leitt til þess,
að flestir stjórnmálafréttaritarar
reikna með því, að æsingin á
meðal fólks hafi rénað verulega
eftir hin sterku viðbrögð frá
verkalýðsfélögunum vegna sparn
aðaráförma stjórnarinnar. Þann-
ig fengu verkfallsmenn við Ren-
ault-verksmiðjurnar lítinn stuðn
ing af hálfu margra aðila og
áhrifaríkur aðili í CGT, stærsta
verkalýðssambandi landsins, sem
kommúnistar ráða yfir, sagði eft-
ir stjórnarfund í verkalýðssam-
bandinu, að verkfallsalda í fyrir-
tækjum í ríkiseign kæmi ekki til
mála.
>á hafa stjórnmálafréttaritar-
ar bent á, að blað kommúnista,
Humanité, sem venjulega vekur
mikla athygli á ákvörðunum
verkalýðssambancLsins CGT, birti
ekki fréttina um Renault-verk-
fallið á forsíðu heldur á þriðju
síðu. Er þetta skilið sem merki
þess, að blaðið vilji gjarnan
draga úr áhrifum af verkfallinu.
Vinstri sinnaðir foringjar stúd-
entasambandsins UNEF gerðu
misheppnaða tilraun til þess að
mynda samstöðu með framan-
greindu verkalýðssambandi, sem
fjandsamleg væri ríkisstjórnimi.
Talsmaður verkamanna sagði eft
ir fund, sem haldinn var milli
UNEF og verkalýðssambandsins,
að engar ákvarðanir hefðu verið
teknar og að þessi fundur hefði
verið talinn vera allt of þýðing-
armikill. Einn af leiðtogum
verkamanna ásakaði stúdenta
um að reyna að hafa pólitískan
hag af verkfallinu.
Um 1Ö0 vinstri sinnaðir stúd-
entar komu saman fyrir utan
Renault-verksmiðjurnar í Boul-
ogne-Billancourt, en þeim var
skýu-t frá því, að verkamenn
vildu ekki nein afskipti af mál-
um sínum utan að.