Morgunblaðið - 06.12.1968, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.12.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLaÐH), FÖSTUDAGUR 6. DES. 1968 7 Hefurðu heimsótt hárskerann þinn Um þessar mundir byrjar eitt vandamálið enn í Reykjavík, og það er baráttan við að fá hár sitt skorið fyrir jólin. Það jafnast nefnilega á við það að fá enga jólagjöfina, að fara í jólaköttinn, eins og það var kallað í gamla daga, að vera ósnyrtur á hári á jólahátíðinni. Og aldrei hafa máski jafn fáir unnið verk fyrir jafn marga, eins og rakarar í jólaönnunurn. Við átt- um tal við félag þeirra fyrir nokkru, og kom þá í ljós, að eitt- hvað í kringum 70 hárskerar eru í Reykjavik, og sjá þá allir í hendi sér, hve mikil nauðsyn er á, að allur sá mikli fjöldi, sem þarf að snyrta hár sitt fyrir jól, mæti snemma til leiks og jafnt. Sérstak- lega benda þeir skólaæskunni, sem kemur stundum ekki fyrr en eftir að jólafrí er byrjað, að reyna nú að koma fyrr. Nemendurnir geta bara haft með sér eitthvað af námsbókum og lesið á meðan á biðinni stendur. Til þess að auð- velda mönnum mætingu hjá rökur- um, hafa þeir ákveðið að hafa op- ið svolítið lengur á þessum dögum: Laugardaginn 14.12 verður opið til kl. 6., laugardaginn 21.12 verður opið til klukkan níu á þorláks- messu hinn 23.12 verður opin til kl. 9, og á aðfangadag verður opið til kl. 12 á hádegi. Síðustu skilaboð þeirra eru þau: að biðja alla góða borgara að mæta snemma til leiks, svo að illu eða góðu sé aflokið sem fyrst. Mynd- ina hér að ofan tók ljósm. Mbl. Sv. Þorm. á rakarastofu einni á mið- vikudag. FRÉTTIR Listasafn Einars Jónssonar er lokað um óákveðinn tíma. Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj unnar hefur fótaaðgerðir fyrir aldr að fólk fimmtudaga frá kl. 9-12 í Hallveigarstöðum, gengið inn frá öldugötu. Tímapantanir í síma 13908, Kirkjukór Nessóknar í ráði er að kirkjukór Nessókn- ar flytji kórvsrk að vori. í því skyni þarf har.n á auknu starfs- liði að halda. Söngfólk, sem hefur áhuga á að syngja með kirkju- kórnum er beðið um að hafa sam- band við organista kirkjunnar, Jón ísleifsson, sími 10964 eða for- mann kórsins, Hrefnu Tynes, simi 13726 eða 15937 Kvenfélag Bústaðasóknar hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk í safnaðarheimili Langholtssóknar alla fimmtudaga frá kl. 8.30—11.30 árdegis. Pantanir teknar í síma 12924. Kvenfélag Fríklrkjusafnaðarins ! Reykjavík hefur hafið fótaaðgerð- ir fyrir aldrað fólk í Safnaðar- heimili Langholtssóknar alla mið- vikudaga milli kl. 2-5. Pantanir teknar í síma 12924 Spakmœli dagsins Minnið svíkur sjaldnast, þegar það á að leiða oss að gröfumvorra dánu vona. — Lady Blessington. VÍSUKORN Nota drottins náðarstund, neitt ei til þess spara. Guð hefur einstakt gáfnapund gefið þér með að fara. Páll skáldi. Gengið Nr. 135 — 5. desember 1968. Kaup Sala 1 Bandar. dollar 87,90 88,10 1 Sterlingspund 209,60 210,10 1 Kanadadollar 81,94 82,14 100 Danskar krónur 1.172,00 1.174,66 100 Norskar krónur 1.230,66 1.233,46 100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50 100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106,65 100 Franskir fr. 1.772,65 1.776,67 100 Belg. frankar 175,40 175,80 100 Svissn. frankar 2.042,80 2.047,46 100 Gyllini 2.429,45 2.434,95 100 Tékkn. krónur 1.220,70 1.223,70 100 V-þýzk mörk 2.203,23 2.208,27 100 Lírur 14,08 14,12 100 Austurr. sch. 339,78 340,56 100 Pesetar 126,27 126,55 100 Reikningskrónur Vöruskiptalönd 99,86 100,14 1 Reikningsdollar Vöruskiptalönd 87,90 88,10 1 Reikningspund Vöruskiptalönd 210,95 211,45 Leturbreyting táknar breytingu á síðustu gengisskráningu. Köttur einn á flœking tór Þessi köttur fór að heiman að Þessi köttur fór að heiman frá sér fyrir nokkru af Rauðalæk 35. Hann heitir Lárentius, kallaður Lalli, og gegnir þvi nafni. Þetta er mikill heimilisköttur, og hefur ver ið fjölskyldunni kær. Þeir sem geta gefið upplýsingar um Lalla, gjöri svo vel og hringi í síma 37120 só NÆST bezti Jón á ÓlaifiSvöLlum saigði: „Flestir stórbæinidur í Árniesisýsliu hafa 'hökutopp, Páll á Ásólfs- stöðum, Böðvar á Daiuigairvaitni og ég. — Maóur telur ekki heLv . . . hann Gústa í Steinskoti“, bætti hamin við. Kaupið ódýrt Allar vörur á ótrúlega lágu verði. V erksmið jusalan, Laugavegi 42 (áður Sokka- búðin). Prestolite rafgeymar, sala, hleðsla og viðgerðir. 2ja ára ábyrgð, gerum gamla geyminn sem nýjan. Kaupum ónýta geyma hæsta verði. Nóatún 27, sími 3-58-91. Hjúkrunarkona Vil kaupa með 4 börn á skólaaldri óskar eftir að leigja íbúð. Helzt í Vesturbænum. Tilb. sendist Mbl merkt: „6365“. notaða eldhúsinnréttingu með stálvaski og eldavél. Uppl. í síma 92—6012, Keflavík. Nýlegur Persian pels Til leigu meðalnúmer til sölu að Hagamel 45 bjá Maríu Björnsdóttur, simi 21873. Einbýlishús á góðum stað í Kópavogi, 5 herb. Sími 13243. Til sölu Ódýrir ullartreflar 50 w. Marchall söngkerfi, sem nýtt. Verð 32—36 þús. eftir samkomulagi. Uppl. í síma 99—4210 eftix kl. 7. 80 og 100 kr. stk. litaúrval. Góð jólagjöf. ÁLAFOSS, Þingholtsstræti 2. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Stúlka óskar eftir vinnu Vön skrifstofustörfum. — Uppl. í sima 34158. Bandpússningavél eða vél í sama tilgangi óskast tiil kaiups. Má vera lítið notuð. — Upplýsingar á skrifstofunni. KRISTJÁN SIGGEIRSSONR H.F., Laugavegi 13, sími 17172. Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda Basar og kaffisölu í Tjarnarbúð sunnudaginn 8. des. kl. 2 e.h. Kaffi með heimabökuðum kökum Á basarnum er margt góðra muna lientugra til jólagjafa. Skyndihappdrætti Seldir verða munir unnir af vistfólki í Skálatúni og Lyngási, ennfremur munir frá félagi gæzlusystra. ©AUGLVSINGASTOFAN Gisli Jónsson þú sáir Eins og ^ § 71 /T* * ** t ' Misgjöröir feörannaE Á síðastliðnu ári kvað sér hljóðs nýr skáldsagnahöfundur, Gísli Jónssdn, fyrrv. alþingismaður. Það var með bókinni „Misgjörðir feðranna“. 1 þessari nýju skáldsögu, „Eins og þú sáir“, rekur höfundur margslungna örlagaþræði íslenzkrar stúlku og frægs Iæknis, sem einn bjargast af frönsku skipi, sem ferst í ofviðri við íátynd. SETBERG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.