Morgunblaðið - 06.12.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNRLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DES. 1968
B/lAlflCAN
Simi 22-0-22
Rauðarárstig 31
|<áð>siM11-44-44
mfííF/Ðw
&i£a>£e£<£cz.
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
4KiPHam 21 s*mar21190
eftir lokun slmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
BerestaVastrætl 11—-13.
Hagstaett leigugjald.
Stmi 14970
Eftir lokun 14970 effa 81748.
Sigurður Jónsson.
Sími 20070 -19032
Volkswagen 68, 1500 vél.
Volkswagen árg. 67.
Volkswagen 1500, station
árg 67.
^^^^Fbilaaala
GUOMUNDAP
BercþAructttu 3. Simar 19033, 30070.
BlLAR
1969 Volkswagen 1200
nýr og óskráður.
1968 Cortina De Luxe
2ja dyra, ekinn 5 þ. km.
1967 Volkswagen 1300
ekinn 22 þ. km. sem nýr.
1968 Renault R-10.
1968 Fiat 125 Berlina.
1966 Ilillman Minx.
1964 Volkswagen
1964 Opel Reckord.
1964 Saab
1967 Toyota Crown.
1966 Bronco.
1965 Landrover.
Afl IA | BÍLASALAN Ls í ir
nu Ifl
Skúlagata 40 við Hafnarbíó.
15-0-14 — 1-91-81.
*BIRGIR ÍSL GUNNARSS0N1
HÆSTARÉTTARLÖCMADUR
LÆKJARGÖTU 6B SIMI22120
0 Fundir um bæjarmál-
efni Kópavogs
Axei Jónsson, skrifar:
„Hinn 28. nóvember sl. birti
Velvakandi svar bæjarstjórans 1
Kópavogi við fyrirspurn um fund
arhöld í Kópavogi um bæjarmál
frá 15. sama mánaðar. Bæjarstjór
inn getur þess í svari sínu, að
hann hafi vorið 1966 borið fram
tillögu í bæjarráði um að það
gengist fyrir fundi eða fundum
um bæjarmál, og að fulltrúi Sjálf
stæðisflokksins hafi þá strax lýst
sig andvígan hugmyndinni.
í tilefni þessa vil ég koma eft-
irfarandi á framfæri:
Tillaga bæjarstjórans, sem hann
bar fram rétt fyrir bæjarstjómar
kosningarnar 1966, var um að
bæjarráð efndi til fundar um fram
kvæmdaáætlun fyrir bæinn, en þá
var nýlokið við samningu henn-
ar. Undirritaður, sem sat fundinn
af hálfu Sjálfstæðisflokksins, var
andvígur þeirri hugmynd, en
taldi eðlilegra, að efnt yrði til
fundar um bæjarmál og að allir
flokkar bæjarstjórnar hefðu jafn-
an ræðutíma. Þessi hugmynd mín
hlaut daufar undirtektir.
Ég taldi eðlilegast, að bæjar-
málin væru alhliða tekin til um-
ræðu þá rétt fyrir bæjarstjómar
kosningarnar, en ekki aðeins einn
tiltekinn þáttui þeirra, og að all-
ir flokkar bæjarstjórnar hefðu
jafnan ræðutíma á þeim fundi.
Með þökk fyrir birtinguna,
Axel Jónsson".
Q Merking efnahagsorða
„Fróðleiksfús" skrifar:
Enn einu sinni eru efnahagsmál
á dagskrá og ofarlega i hugum
allra hugsandi manna. Ég hefi
rekið mig á, að bæði i blöðum
og manna á milli em notuð ýms
orð, sem menn skilja ekki, en
halda sig skilja. Þessi orð eru
svo misskilin eða alls ekki skil-
in, en samt notuð, því að allir
þykjast hafa vit á hlutunum. Þeg
ar maður fer svo að spyrja fólk
spjömnum úr, kemur í ljós, að
það veit harla lítið um merkingu
ýmissa orða, eða þá, að það mis-
skilur orðin og túlkar þau oft á
mismunandi hátt, oft í sömu ræð-
unni. Stjórnmálamennirnir em
sérlega lagnir að túlka merkingu
ýmissa „hagorða" og jafnvel að
gefa hlutunum ný leyndardóms-
fulll heiti.
Máli mínu til skýringar skal
ég nefna eitt orð af mörgum.
Hvað þýðir orðið „þjóðartekjur"
eða „þjóðartekjur á mann“? Ég
hefi við og við lagt þessa spurn
ingu fyrir lærða og leika, en
aldrei fengið sama svarið, ekki
einu sinni hjá hagfræðingum og
viðskiptafræðingum, hvað þá held
Höfum flutt skrifstufu okkar aí
Suðurgötu 23 — Hafnarfirði.
Nýr sími 50152.
E. TH. MATHIESEN H/F.,
Suðurgötu 23, Hafnarfirði, sími 50152.
VANDIÐ VALIÐ
VELJIÐ MOON-SILK
SNYRTIVCmUR
Halldór Jónsson hf Hafnarstrætl lí* ■ Reyhjavík 8imi 22170
ur hjá verkamönnum, bændum eða
iðnlærðum mönnum. Ég skal nefn
nokkur dæmi: Einn segir, að þjóð
artekjur séu blátt áfram allar
þær tekjur, sem uppgefnar séu
til skatts á framtölum manna.
Annar segir, að þetta sé bölvuð
vitleysa, því að menn telja yfir
leitt ekki allar tekjur sínar fram
og svo komi þarna lika til greina
eigin húsaleiga og ýmiskonar
hlunnindi, nei þjóðartekjur séu
auðvitað það, sem við flytjum
út og fáum gjaldeyri fyrir, þ.e.
a.s. aðallega sala fisks og fisk-
afurða. Þá kemur sá þriðji og
segir: „en hvað með landbúnaðar
afurðir, gefa þær ekki af sér
tekjur?" „Jú“ segir einn enn, „en
það eru falskar tekjur en ekki
raunverulegar, því að „við“ verð
um að borga með þeim“. Svo
kemur sá fjórði, og hrekur all-
ar þessar fullyrðingar. Ég spyr
hann, hvort tekjur rakarans af
mér, ca, 80—100 kr. fyrir klipp-
inguna, séu meðtaldar í þessum
blessuðum þjóðartekjum. Hann
svarar: auðvitað ekki að öllu
leyti, því fyrst þarf að draga
frá kostnað, svo sem spíra, hús-
næði, skæri, þvott o.fl. Já, en þeir
sem láta þetta í té hafa af því
tekjur o.s.frv. Þetta er sem sagt
orðið allflókið mál og ég álít
enga vanþörf á þvi að fræða al
menning um merkingu orðsins
„þjóðartekur". Það er margt ann
að, sem þarf að útskýra. T.d. er
orð, sem ég bara nýlega hefi
séð á prenti. Það er orðið: Þjóð
areyðsla á mann. Og að lokum
þetta: Af hverju er alltaf talað
um gengislækkun en ekki gjald-
eyrishækkun, sem gefur miklu
réttari mynd af því, sem verið
er að gera? Það er auðvitað á-
kveðið samband á milli gengis-
lækkunar og gjaldeyrislækkunar.
Til dæmis var gerð hér á dög-
unum 35,2 prs. gengislækkun, en
það samsvarar 54,5 prs. gjald-
eyrishækkun. Hafa yfirvöldin eða
yfirvöldin eða fræðingar þeirra
nokkurtíma gert tilraun til að
útskýra mismuninn á þessum
tveim orðum, sem í raun og veru
tákna sama hlutinn? 50 prs. geng
islækkun þýðir sama og 100 prs.
gjaldeyrishækkun. SVona mætti
lengi telja. Hvar hefur verið sýnt
fram á, að Dalurinn skyldi endi-
lega vera ákveðinn á 88 krónur
en ekki 85 eða 90? Hefur reikn-
ingsheilinn okkar kannske reikn
að þetta út?
Ég vildi í auðmýkt biðja ein-
hvern hagfræðing, viðskiptafræð-
ing eða aðra áhugamenn að svara
þessum áleitnu og flóknu spum-
ingum minum og annarra hér í
dálkunum eða annarsstaðar.
Fróðleiksfús".
0 Enn um Kópavog
Kona í Kópavogi, sem kýs að
skrifa undir nafninu „Kópavogs-
búi“, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Þau gleðitiðindi birtust í dálk-
um yðar í dag, að bæjarstjórinn
í Kópavogi kvað sig reiðubúinn
að tala við fólkið á fundi líkt
og borgarstjórinn í Reykjavík
hefir gert. Þar er brýn nauðsyn
á ferð, og þótt fyrr hefði verið
svo mörgu er hér ábóta vant,
að varla er þolandi öllu lengur
Á ég þar sérstaklega við heil-
brigðismálin. Eins og öllum er
kunnugt, þá er ekki eitt einasta
kauptún úti á landsbyggðinni,
sem telur 100 íbúa eða meira,
þar sem ekki er byrjað á að
byggja sjúkraskýli, læknisbústað
og elliheimili, nema Kópavogur
einn. Hann treystir alltaf á að
Reykjavík eða Hafnarfjörður hirði
um okkur, þurfum við á slikri
aðstoð að halda, og það mundu
þessir kaupstaðir gera, ef þeir
væru ekki í algjörlegum vand-
ræðum með að hýsa sína eigin
sjúklinga. Dóttir okkar þurfti að
komast 1 rannsókn í haust. En
hún þurfti að bíða í 6 vikur
eftir plássi og fékk þá skammir
hjá læknunum fyrir að koma of
seint. Það er sorgleg staðreynd,
sem tíminn verður að skera úr.
Forráðamenn Kópavogskaupstað
ar hafa mikið lagt upp úr þvi,
að það borgar sig ekki að reka
slíkar stofnanir, en þeir hafa ör-
ugglega ekki vit á því.
Það er líka stórkostlegt at-
vinnutap að bíða svo mánuðum
skiptir eftir sjúkrahúsplássi og
koma svo í ótíma. Ég hygg, að
hér sé um svo mikið alvörumál
að ræða, að við getum ekki lótið
bjóða okkur slíkan trassiaskap
lengur.
Við ættum þó að fá einhverju
ráðið, því að það erum við sem
greiðum gjöldin en fáum akkú-
rat enga þjónustu fyrir. Heldur
eru einfaldir ævintýramenn látn-
ir leggja veg þar sem vegur er
fyrir og leggja þannig milljóna
skatta á herðar okkar, sem mun
taka okkur mörg ár að greiða.
Ef málunum á að vinda svona
fram eftirleiðis væri okkur lífa
nauðsyn að losna við þetta skrif
stofubákn, sem Bæjarskrifstofain
er á okkar kostnað. Því að ég
hygg að Reykjavík munaði
minna um að innheimta skatt-
ana okkar heldur en móttaka alla
sjúklingana úr þessum bæ.
Kópavogsbúi".
Skinnlúffur
fyrir dömur og herra.
Svartar sokkabuxur, mjög mikið töskuúrval.
Beiruttöskurnar teknar upp um helgina.
Tösku- og hanzkabúðin, Skólavörðustíg.
Hof Þingholtsstræti 1
býður margt til jólagjafa. M. a. eru fileraðir dúkar,
dúkaefni með ísaumsmynstrum, ryateppi og púðar;
saumaðir púðar, strengir, stólar og setur; margs konar
hannyrðavörur; norskir hnappar, spennur og leggingar,
yfirleitt allt á gömlu verði.
Ennfremur er geysilegt úrval af gami með mynstrum;
flestir litir enn á gömlu verði.
Gjörið svo vel og lítið inn í nýju búðina.
HOF, Þingholtsstræti 1.