Morgunblaðið - 17.12.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1968
- LITLA-HRAUN
Framhald af bls 32.
an þann tíma, sem ég hef ver-
ið forstöðumaður Litla-Hrauns,
haldið af og til fundi með öllum
varðstjórunum, þar sem við höf-
nm tekið til meðferðar ýms
vandamál, sem upp hafa komið
i sambandi við rekstur Vinnu-
haelisins. Ég veit ekkj betur en
okkur hafi ætíð tekizt að leysa
þessi vandamál i bróðerni og
þess vegna komu þessar kvart-
anir eins og þrumur úr heið-
skíru Iofti. Að svo stöddu er ég
ekki reiðubúinn að segja til um,
hvað þarna er að gerast."
í gær gaf dóms- og kirkju-
málaráðuneytið út eftirfarandi
yfirlýsingu i málinu:
„Vegna skrifa Morgunblaðsins
15. desember sl., sem ber yfir-
skriftina: „Starfsmenn á Litla-
Hrauni ákæra forstjórann", vill
ráðuneytið upplýsa eftirfarandi:
í bréfi, dags. 20. marz 1968
•báru 6 af 17 starfsmönnum
Vinnuhælisins að Litla-Hrauri
og einn fyrrv. starfsmaðuT fram
kvörtun vegna hegðunar og
íramkomu Markúsar Einarsson-
ar, forstöðumanns.
Kvörtunarbréf þetta var seni
stjórnarnefnd Vinnuhælisins með
•beiðni um að hún tækf málið til
athugunar.
Stjómarnefndin skilaði síðan
álitsgerð um málið, og að undan-
genginnj rannsókn svaraði ráðu-
neytið með bréfi dags. 13.
desember, þar sem segir að ekki
séu forsendur til frekari aðgerða
vegna þessa máls.“
Eins og fraim kom í frétt
Morgunblaðsins á sunnudaginn,
töldu starfsmennirnir, 7 talsins,
að stjórn forstöðumannsins væri
laus í reipunum, að forstjórinn
væri ósannsögull og gerði starfs-
mönnum oft erfitt fyrir í starfi
með tvöfeldni sinni.
í álitsgerð sinni segir Fangels-
isnefndin svo um þessi atriði:
„Forstjóranum er borið á brýn
að yfirstjórn hans á Vinnuhæl-
inu sé ábótavant.
Eftir framburði þeirra starfs-
manna, sem við var rætt, að
þremur undanskildum, kemur
einkum fram, að fyrirskipanir
forstjórans væru reikular frá
degi til dags og uglingslegar og
valdf starfsmönnum erfiðleikum
í starfi og ergelsi. Einnig bera
þeir, að virðingarleysi fanga á
forstjóra sé áberandi.
Eftir viðtölum við alknarga
fanga, er það einróma álit þeirra
að engum loforðum forstjóra sé
að treysta".
í svari sínu til Fangelsisnefnd-
arinnar segir dóms- og kirkju-
málaráðuneytið:
„Starfsmenn vinnuhælisins eru
16 utan forstöðumanns. Sex af
núverandi gtaTfsmönnum hælis-
ins undirrituðu kvörtunarbréfið
eins og áður segir og voru þeir
allir yfirheyrðir. Fundu fimm
þeirra ýmislegt að forstöðu-
manni, en ekkert er bókað eftir
einum þeirra, Steindóri Guð-
mundssyni. Þá ræddi fangelsis-
stjórnin við sex aðra af starfs-
mönnum hælisins, en þeir' voru
yfirleitt fremur jákvæðir í garð
forstöðumanns. Ekki var rætt
við fjÓTa starfsmenn vinnuhæl-
isins. Hefði verið ástæða til þess
að yfinheyra alla starfsmennina.
Miðað við greindar forsendur er
litið hægt að fullyrða um verk-
stjórnarhæfileika forstöðumanns,
en benda má á, að hann hefur
mikla reynslu í verkstjórn.
í sjötta tölulið segir, að eftir
viðtöl við allmarga fanga sé það
einróma álit þeirra, að engum
loforðum forstjórans sé að
treysta. í þessu sambandi er rétt
að benda á, að starf forstöðu-
manns á vinnuhælinu að Litla-
•Hrauni er ekki þess eðlis, að það
skapi vinsældir meðal fanganna".
Um handahófskenndar refsing-
ar við agabrotum er ekkert sagt
í álitsgerð Fangelsisnefndar.
í kvörtun sinni bar Magnús
Pétursson, yfirgæzlumaður, að
forstjórinn hafi vænt sig um
ófróonleika og kom það einnig
fram í kvörtunum annarra starfs
•manna. í álitsgerð Fangelsis-
nefndarinnar segir, að forstjór-
inn hafi staðfest við yfirheyrsl-
ur að hafa borið Magnús þeim
sökum að hann hefði vanhirt bú-
pening hælisins í vetur og varð-
andi heysölu hafi Magnús í vit-
orði með öðrum manni gefið upp
ranga vigt á heyinu eða vogin,
sem notuð var, hafi ekki verið
rétt. „Ekki verður séð að ásak-
anir þessar hafi við nein rök að
styðjast og verða því að álítast
markleysa“, segir í álitsgerð
Fangelsisnefndarinnar.
í bréfi sínu segir dóms- og
kirkjumálaráðuneytið varðandi
þessi skipti Magnúsar og for-
st öðum annsins:
„Veita verður forstöðumanni
stofnunar visst sjálfdæmi til
þess að finna að verkum undir-
manna sinna og til almennrar
verkstjórnar. Þykir ráðuneytinu
ekki ástæða til frekari aðgerða
vegna þessa liðs*.
Varðandi kvartanirnar um
verzlunarhætti hælisins við
fanga, segir í álitsgerð Fang-
elsisnefndarinnar: „Þeir virðast
óformaðir og ruglingslegir þann-
4g að vörur eru ýmist keyptar
4 heildsölu eða smásölu og álagn-
ing handahófskennd og í nokkr-
um tilfellum óeðlilega mikil“ —;
„Telur nefndin að ástæðulaust sé
að hafa það fyrirkomulag á og
Imegi koma þessum hlutum I
•fastari farveg".
í bréfi sinu svarar dóms- og
•kirkjumálaráðuneytið þessu svo:
„Vegna þessa tekur ráðuneytið
'fram, að í verzlun við fanga er
miðað við, að þeir fái vörur á
kostnaðarverði, en gert er ráð
fyrir 5—6% álagningu vegna
vörurýrnunar. Reynt er að kaupa
•vörur á heildsöluverði, en í sum-
um tilfellum er nauðsynlegt að
kaupa í smásölu í stað þess að
'liggja með miklar birgðir. Verzl-
■un við fanga er í höndum Frí-
imanns Sigurðssonar, varðstjóra".
Vegna þess gruns starfsmanna,
að athuga þurfi fjárreiður Vinnu
hælisins segir í bréfi dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins, að það
meti skýringar þær, sem for-
istjórinn gaf í bréfi, dagsettu 3.
isept. sl., fullnægjandi. Reikninga
Vinnuhælisins endurskoðaði rík-
isendurskoðunin athugasemda-
ilaust.
Ýmislegt fleira er í álitsgerð
■Fangelsisnefndarinnar, sem ráðu
neytið tekur afstöðu til.
Álitsgerð Fangelsisnefndarinn-
•ar, sem samin er í júnímánuði sl.,
lýkur með þessum orðum: „Með
örfáum undantekningum virðist
almenn óánægja vera ríkjandi
meðal frjálsra sem ' ófrjálsra
manna sem virðist það djúpstæð
hjá sumum, að ekki eru líkur
fyrir að jafnist".
LEITIÐ....
0G ÞÉR MVNUO FINNA
HJÁ OKKUR FINNIO ÞÉR AÐEINS NYTSAMAR OC V ANDAÐAR
JÓLACJAFIR Á YÆGU VERÐI FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
KOMID, SJÁIÐ, SANNFÆRIZT!
JOMI
HÁRÞURRKAN
fékk 1. einkunn neyt-
endasamtakanna
dönsku.
700 vött.
24 hitastillingar.
70 ÁRA
ÁBYRGÐ
HOFUÐVERKUR?
BLÁA CRÍMAN
er stórkostleg nýjung
frá USA.
Kaldur og heitur
bakstur eftir vild.
kr. 120.00.
JOMI
NUDD OC
FECRUNARTÆKI
fyrir konur sem karla.
7 mismunandi munn-
stykki fylgja. Af-
greitt í fallegri tösku
og gjafaöskju.
5 ÁRA ÁBYRCÐ
PARTNER
rafrakvélin
með bartskera er
langódýrasta rakvél-
á markaðinum.
kr. 1200,00
JOMI
NUDD OG
HITAPÚÐI
6000 vibrationir
mínútu.
5 ára.ábyrgð.
á
ELDHÚSSKÆRIN FRÁ TVÍBURAVERKSMIÐJUNUM í ÞÝZKALANDI ERU ÓMISSANDI HVERJU HEIMILI.
EIGUM ENNFREMUR OG FÁUM FYRIR JÓL HITATEPPI, HITAPÚÐA, HÁFJALLASÓL, HITALAMPA (INFRA-
RAUÐIR GEISLAR). FÁUM VONADI EINNIG SAMANLÖGÐU STÓLANA EFTIRSÓTTU.
BORGARFELL, skólavörðustíg 23, — simi 11372.