Morgunblaðið - 17.12.1968, Blaðsíða 31
MORGUlSrB'LAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBKR 1968
31
Verðlaunaafhending
í Dralonsamkeppninni
Verðlaunaafhending í Dralon-
samkeppninni, sem framleiðslu-
deild SÍS efndi til, fór fram í
Hótel Sögu á sunnudaginn var
frá kl. 15—17.
Áður en hún hófst var hald-
in fjölbreytileg sýning á ýmsum
framleiðsluvörum Ileklu, Gefj-
unar og Iðunnar.
Voru þetta barna, dömu og
h-erra fatnaður. Peysur, herra-
föt bamafatnaður og skófatn-
aður.
í kaffihlé kom frú Ruth Li'tttLe
Magnússon og skemmti gestum
með söng sínum, við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar, og
var vel tekið.
Því næst hófst verðlaunaaf-
hendingin, og sýning á verðlaunia
gripunum. Aukaverðlaun voru
fjörutíu. Var það ávísun á eitt
þúsund króna virði af dralon
garni. Það voru 39 konur og einn
kiarlmaður, sem þau hlutu.
Hann hafði prjónað fingravetl
inga í kaðalprjóni, og íklædd-
ist kynnirinn, sem var Jón Múli
Árnason öðrum þeirra, og kvað
mjög gott að lesa með þeim, en
hann las m.a. bréf frá mannin-
um með þá sér á hönd.
Maðurinn sem er sjómaður á
Helga Flóventssyni, heitir Eirík
ur Jónsson á Víkingavartni, S-
Þing., sagðist vera búinn að
prjóna sextán háleista, þrettán
vettlingapör og eina kollhúfu
fyrir sjálfan sig, auk þess, sem
hann væri búinn að prjóna slatta
af hosum og vettlingum fyrir
skipstjórann.
Aðalverðlaunin voru þrenn, 10
15 og 25 þúsuind krónur. Fyrstu
verðlaun hlaut frú Avona Jen-
sen, Eskihlíð A við Reykjanes-
braut, fyrir mosagrænan, fóðrað
an herrajakka. önnur verðlaun
hlauit frú Elín Arnórsdóttir, að
Smyrlahrauni 15, Hafnarfirði og
(hafði hún einnig fengði auka-
verðlaun) fyrir hvíta bannakápu
og húfu. Þriðju verðlaun hlaut
frú Laufey Þorsteinsdóttir fyrir
ljósrauðan dragtarkjól á unga
stúlku.
I dómnefndinni áttu sæti frú
Hulda Stefánsdóttir, Matthías
Ástþórsson og Ásgrímur Stefáns-
son.
Þátttakendur í samkeppninni
voru alls 231, víðsvegar af að
landinu.
Flíkurnar, sem hlutu aðalverðlaunin í samkeppninni.
Sæmdir
ríddarokrossi
Forseti íslands hefur sæmt eft
irtalda íslendinga riddarakrassi
hinnar íslenzku fálkaorðu:
Birgi Möller, sendiráðunaut,
fyrir embættisstörf. Frú Gróu
Pétursdóttir, fyrir störf í þágu
idysavarna. Dr. Jón Gíslason,
skóllastjóra, fyrir störf að skóla-
og menningarmálum.
Dr. Jón Sigurðsson, borgarlækni,
fyrir embættisstörf. Kristján
Sveinsson, augnlækni, fyrir em-
bættisstörf. ólaf Ólafsson, kristn
boða, fyrir kristniboðastörf. Pró
fessor Pétur Sigurðsson, fyrrum
háskólaritara, fyrir embættis-
störf.
Síldarleitin hætt
UM HELGINA hætti síldarleitin
á Dalatanga störfum, en engir
síldarbátar hafa undanfarna
daga verið á miðunum fyrir aust-
an. Er þá lokið ákaflega feng-
" lítilli síldarvertíð fyrir Norður-
og Austurlandi.
Ekið ó hest
SÍÐDEGIS í gær var ekið á hest
á Gufunesvegi. Fóbbrotnaði hest-
urinn og þurfti að aflífa hann.
Eigandinn var Þorgeir í Gufu-
nesi.
Frú Avonu Jensen veitt fyrstu verðlaunin. ^
7 innbrot / Reykja-
vík um helgina
Flugfarþegum fækkar
— bæði innanlands og til útlanda
Skagstrendingar
mótmæla
togveiðum
SKAGASTRÖND, 16. des. — Á
fundi sjómanna og útgerðar-
manna á laugardag var gerð svo-
hljóðandi samþykikt:
— Fundur sjómanna og út-
gierðarmanna í Höfðakaupstað,
haldinn laugardaginn 14. des.
1968, mótmælir harðlega öllum
togveiðum innan núverandi fisk-
veiðilögsögu. Verði hins vegar
uim einhverja svæðisskiptingu að
ræ*ða, nái sú undanþága ekki
lenigra en að 8 mílum. ViS telj-
um, að verði togveiðar leyfðar
nær landi en að framan greinir,
mundi það verða til þess að út-
igerð minini báta mundi leggjast
niður og um leið yrði hráefnis-
öflun tál frystihússins hér stefnt
í voða. Við viljum svo benda á,
atö nauðsynlegt er að meira eft-
irlit sé haft með veiðum togbáta
en verið hefur og hiklaiust tekin
sikipstjómiarréttindi af þeim
skipstjórum, sem staðnir eru að
veiðum innan þeirra fiskveiðitak-
marka, sem sett kunna að verða.
- FISKSÖLUR
Framhald af bls 32.
togarasölur í nóvember og 22
sölur siíldarbáta.
Alls hafa íslenzk skip selt 25
þúsund tonn í þessum löndum sl.
4 mánuði fyrir u.þ.b. 164 millj.
króna.
Meðalverð á hvert kg. af fiski
er ákaflega misjafnt, en er allt
upp í liðlega 40 kr.
Ekki eru kunnar aflatölur
fyTÍr desembermánuð en undan-
farnar vikur hafa um 60—70
síldveiðiskip stöðugt veriS að
veiðum á Norðursjó og aflað
sæmilega.
SJÖ innbrot voru framin í Reykja
vík um helgina. Fengur innbrots
þjófanna var þó hvergi mikill —
einna mestur í veitingahúsinu
Nausti, þar sem stolið var 6 flösk
um af léttn víni. Engar skemmd-
ir vorn unnar á húsakynnum nt-
an, að einn skápur var brotinn
upp og rúða í glugga.
Brotizt var einnig, aðfaranótt
Endurskins-
merki fyrir 7 óra
Cjöf frá Kvenna-
deild SVFÍ
KVENNADEID Slysavarnarfé-
lagsins í Reykjavík hefur afhent
fræðsluskrifstofunni endurskins-
merki til allra 7 ára barna í
skólum Reykjavíkur. Merkin
verða afhent börnunum í skól-
unum áður en jólaleyfi hefst.
Leiðbeiningar fylgja um það,
hvernig festa skal merkin á yfir-
hafnir barnanna.
Foreldrar eru hvattir til að
nota merkin eins og til er ætlazt,
til aukins öryggis fyrir börnin í
umferðinni, og Kvennadeildinni
fluttar þakkir fyrir gjöfina.
(Frá fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur).
sunnudags, í pylsusölu við Nýja
bíó. Þaðan var sakn.að 300 króna
og ein rúða í glugga var brot-
in. Stolið var gömlu útvarpstæki
frá fyrirtækinu Hurðum h.f. í
Skeifunni 11. Þar var einnig brot
in rúða.
Að Ármúla 27 — Vörugeymslu
Páls Þorgeirssonar — var brot-
izt inn aðfaranóbt sunnudags.
Einskis var saknað þar, en tvær
hurðir skemmdar í húsinu. Út-
varpi og verkfærum var stolið
úr stórum bílkrana, er stóð uppi
við Hólm — rétt við Rauðhóla-
veginn um helgina. Þá var brot-
izt inn í Sælgætisgerðina Nóa h.f.
aðfaranótt sunnudags. Þrjár hurð
ir voru brotnar upp, en ekki var
búið að kanna, hve miklu sæl-
gæti hafði verið stolið í gær.
f fyrrinótt var brotizt inn í
Sjóbúðina við Grandagarð. Þar
var brotin rúða í glugga, en engu
stolið svo kunnugt sé.
Tekur sæti
ó Alþingi
f GÆR tók Geir Hallgrímsson
borgarstjóri sæti á Alþingi, vara
þingmaður fyrir Bjarna Bene-
diktsson, forsætisráðherra, sem í
dag fer til London í einkaerind-
um, en kemur afbur um helgi.
FARÞEGAFLUTNINGAR minnk-
uðu mikið með flugvélum Flug-
félags íslands í september, októ-
ber, í millilandafluginu hefur far
þegum fækkað í nóvember um
25,5%. Voru nú fluttir 2048 far-
þegar í nóvember á móti 2752 í
fyrra. Hafa vöruflutningar minnk
að um 11% frá samia tínxa í fyrra
og póstflut'ningar milli landa um
21%.
jTinnianlandsflugi voru í nóvem
ber 5352 farþegar, en á sama tíma
í fyrra 6550, og befur þeim fækk
að um 18,3%. Vöruflutningar inn
anlands hafa aukizt um 2% frá
- FISKAFLI
Framhald af bls. 1
í 13. sæti með 1.052.900 tonn og
ýtti Bretlandi aftur fyrir sig á
þessu sviði eða í 14. sæti.
Fiskafli Bretlands minnkaði úr
1.068.400 tannum 1966 í 1.026.100
tonn 1967 og afli fslendinga
minnkaði hvorki meira né minna
en úr 1.240.300 tonnuim 1966 í
896.309 tonn og varð ísland í
15. sæti, hvað aflamagn snerti.
Samkvæmt ársskýrslu FAO var
fiskur veidduir í ósöltu va'tni
8.220.000 tonn (13,6 prs.) af
fiskafla heims, sjávarfiskur var
46.940.000 tonn (77,6 prs.) og
krabbadýr og lindýr 4.480.000
tonn (7.4 prs.) .
- SKILA STYRK
Framhald af hls 32.
hefði verið fjárhagsáætlun fyrir
fram og sótrt um styrk samkv.
henni. Talið var að ráðstefnan
gæti ekki borið sig, enda hafa
Norrænu byggingardagarnir
hvergi borið sig annars staðar.
En með hagsýni og ráðdeild varð
hægt að láta enda mætast, án
þess að nota styrkina, sem voru
500 þús. kr. úr ríkissjóði og 250
þús. úr borgarsjóði. Var þegar
búið að taka við 175 þús. kr.
af borgarstyrknum, og er ætlun-
in að endurgreiða það í næstu
viku.
Hjörtur sagði, að þátttakendur
í Byggingardeginum hefðu greitt
fyrir sig áætlaðan kostnað. Þátt-
takendur voru um 930 þar af
um 700 útlendingar. Og er talið
að gjaldeyristekjur af þessu
þingi hafi orðið 10—12 millj. kr.
því sem var í þessum mánuði í
fyrra, og póstflutningar innan-
lands aukizt um 12,9%.
- TAKMARKANIR
Framhald af hls. 2
Til fróðleiks má geta þess, að
það getur sparað þeim, sem ætla
að aka niður í miðborgina, um
20 mín. að aka um Hringbraut
eða Skúlagötu í staðinn fyrir að
fara niður Laugaveg.
2. Þeim tilmælum er beint til
fólks, að fara ekki á bifreiðum
milli verzlana, heldur finna bif-
reiðastæði og leggja bifreiðinni
þar og ganga síðan milli verzl-
ana. Þeim, sem koma niður
Skúlagötu, er bent á bifreiða-
stæði við Sölvhólsgötu, Hverfis-
götu og Smiðjustíg. Þeim, sem
koma akandi um Hringbraut, er
bent á að leita fyTst að stæði við
Tjarnargötu, Vonarstræti eða
Suðurgötu og þeim, sem koma
akandi vestan úr bæ, er bent á
að leita fyrst að bifreiðastæði við
Garðastræti eða Vesturgötu. Þá
er fólki bent á stórt bifireiða-
stæði við Iðnskólann á Skóla-
vörðuholti.
3. Gjaldskylda er við stöðu-
mæla jafn lengi og verzlanir eru
almennt opnar, þ. e. til kl. 22.00
laugardaginn 21. desember og kl.
24.00 mánudaginn 23. desember.
Mjög mikilvægt er að ökumenn
leggi bifreiðum skipulega inn 1
stöðureitina og gæti þess að bif-
reiðin trufli ekki eða tefji um-
ferð. En ef svo er ekki, getur
ökumaður átt von á því, að lög-
reglan fjarlægi bifreiðina.
Lögreglan gerir allt, sem i
hennar valdi stendur, til þess að
skapa öruggari og greiðari tim-
ferð, jafnt fyrir gangandi sem
akandi. í miðborginni og vestur-
bæ eru 40—50 lögreglumenn á
ákveðnum varðsvæðum og í
austurbænum verða milli 15 og
20 lögreglumenn á varðsvæðum,
auk þess sem lögreglumenn á
bifhjólum og bifreiðum fylgjast
með umferð í úthverfum.
Reynsla undanfarinna ára sýnir,
að í desembermánuði verða fæst
slys í umferðinni og leitar lög-
reglan samstarfs við almenning
um að leysa vandamál umferð-
arinnar, en þann samstarfsvilja
sýna vegfarendur bezt með þvi
að taka tillit til annarra, meta
rétt umferðaraðstæður og sýna
kurteisi í umferðinnL