Morgunblaðið - 17.01.1969, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1969
- UTANÍJRHEIMI
Framhald af bls. 14
sín yfir 3000 mílna svæði á
Norðursjó. Frá Lowestoft
einu voru gerð út 33(9 skip af
útgerðarmönnum þar, en til
viðbótar voru gerð út þaðan
344 skozk veiðiskip, sem kom
in voru þangað frá heima-
stöðvum sínum. Aflaverðmæti
þessara skipa nam einni og
hálfri millj. punda og þetta
var á þeim dögum, er sterl-
inspundið var miklu meira
virði en nú.
Eftir síðari heimsstyrjöld-
ina minnkaði þessi mikli floti
niður í 58 skip og frá Skot-
landi komu aðeins 56 fiskibát-
ar. Eftir 1950 var aflaverð-
mæti þeirra orðið minna en
500.000 pund.
Á þeissum áratug hefur
gengi þessarar atvinnugreinar
farið enn rýrnandi. Sá mikli
floti, sem gerður var út frá
Great Yarmouth, hvarf al-
gerlega úr sögunni og sl. haust
var grundvöllurinn fyrir
rekstri þessara fiskiskipa horf
inn. Heildarverðmæti þeirra
skipa, sem gerð voru út frá
Lowestoft til eíldveiða var
lítil 60.000 pund.
Útgerðarfélögin hafa sent
skipin æ lengra og lengra til
þess að fanga hvikula síld-
ina. Skipunum var haldið úti
og beðið eftir aflahrotunni,
sem aldrei kom, en bjartsýnir
vísindamenn höfðu spáð.
Nú er síðasta síldveiðiskip-
ið frá Lowestoft til sölu. í>að
er „Wisemans“, 52 tonna tré-
bátur, smíðaður í Skotlandi
1945. í síðustu veiðiferð sinni
veiddi hann 500 síldar og fékk
fyrir aflann 12 pund.
„Við höfum ekkert gagn af
honum lengur“, sagði eigandi
bátsins, James Colþy fyrir
skömmu.
Örlög „Wisemans" eru dæmi
gerð fyrir útgerðargrein, sem
réð yfir einhverjum beztu
fiskiskipum heims á sínum
tíma og úrvals áhöfnum til
þess að manna þau. En án
síldarinnar voru þau dauða-
dæmd.
Hvert 'hefur síldin fyrir
austurströndinni horfið?
Síld hvarf úr Eystrarsalti á
8. og 10. öld og ein kenningin
er á þá leið, að víkingarnir
hafi verið í leit að henni, er
þeir komu fyrst til Bret-
lands. Síldin hefði flutt sig til
Norðursjávar.
Vísindamenn nú á tímum
eru þeirrar skoðunar, að
hvarf síldarinnar á síðustu
áratugum eigi ekkert skylt
við það, að síldin hafi flutt
sig úr stað, heldur hafi hún
einfaldlega verið ofveidd af
togurum frá meginlandi Evr-
ópu, Þýzkalandi, Skandinaviu
og vaxandi flotum Sovétríkj-
anna og Póllands.
Mör.g þeessara skipa hafa
inotað mjög smáa möskva og
veitt smágerða og óþroskaða
síld og komið þannig í veg
fyrir, að hún næði að auka
kyn sitt. Þegar árið 1947 voru
brezkir útgerðarmenn farnir
að spá því, að þessar sívax-
andi veiðar myndu koma nið-
ur á síldarstofninum. Net
brezku skipanna voru yfirleitt
með svo smáriðnum möskv-
um, að smásíldin festist ekki í
þeim, en náði að vaxa upp og
verða kynþroska.
Lowestoft og Great Yar-
mouth eru engir draugabæir
nú. Öll austurströnd Englands
er enn vettvangur blómlegrar
togaraútgerðar. En þessi stóru,
vélvæddu fiskiskip eru ekki á
hnotskóg eftir síld. Þau veiða
þorsk, ýsu og flatfi.sk og ýms-
ar aðrar fisktegundir en síld
í Norðursjónum og norðurhöf
um.
Framhald af bls. 16
þekkst af fullkomnustu gerð.
Ennfremur var lögð áherzla á
stóraukningu í bræðslusíldariðn
aðinum. Aður en nýsköpunin
var ákveðin var komin til skjal-
anna ný vinnslugrein í fisk-
iðnaði, hraðfrysting. Hófst hún
á ánatugnum 1930—1940, en þó í
fremur smáum stíl, en í styrj-
öldinni var um stórfellda aukn-
ingu að ræða og framtíðargrund
völlur lagður að henni, einnig í
félagslegu tilliti, með stofnun
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús
anna í febrúar 1942, sem annað-
ist mestallan útflutning á hrað-
frystum fiski frá stofnun, en
hún tók við því starfi af Fiski-
málanefnd, sem hafði haft for-
göngu um hraðfrystingu og ýms-
ar aðrar verkunaraðferðir, og af
urðasöluna frá því að hún tók
til starfa í ársbyrjun 1935. Þessi
þróun kom sér mjög vel, þar
sem á stríðsárunum lokuðust svo
til með öllu helztu saltfiskmark
aðir og aðrir hefðbundnir fisk-
markaðir, nema ísfiskmarkaður-
inn í Bretlandi, enda varð raun
in sú að á stríðsárunum keyptu
Bretar mestalla fiskframleiðslu
okbar. Kom það sér að sjálf-
sögðu mjög vel að þurfa ekki
að flytja fiskinn allan út ísað-
an, enda vandséð hvemig slíkt
hefði mátt takast, en hins vegar
mikið hagræði að þvi að geta
flakað og hraðfryst töluverðan
hluta aflans og flutt hann þann-
ig unninn á brezka markaðinn.
Það háði að sjálfsögðu hrað-
frystiiðnaðinum í upphafi, að
nægilega tækniþekkingu skorti,
og mun því margt hafa farið úr-
skeiðis af þeim sökum, þegar það
svo bættist við, að á stríðsár-
unum var örðugt um alla öflun
efnis og tækja og því margt af
vanefnum gert af þeim sökum
einum út af fyrir sig. Þá stóð
jafnframt svo á, að þeir, sem
réðust í smíði hraðfrystihúsa,
áttu ekki á vísan að róa með
lánsfé, enginn stofnlánasjóður
var til hliðstæður Fiskveiðasjóði,
er lánaði til bátakaupa eða
Stofnlánadeildnini, er á sínum
tíma var stofnuð aðallega til að
standa undir lánum til kaupa á
nýjum bátum og togurum. Var
ekki úr þessu bætt fyrr en löngu
síðar. Mun alit þetta hafa átt
sinn þátt í því, að ekki var talið
fært að greiða nægilegá hátt
fiskverð til þess að bátaflotinn
gæti borið sig auk þess sem geng
isskráningin var þá aftur orðin
röng.
ríkisstjórnin hafði forgöngu um
kaup á í Svíþjóð voru keyptir
þaðan margir nýlegir eða nýir á
gætir bátar, smíðaðir eftir
sænskum teikningum, svonefnd-
ir blöðrubátar, hin beztu sjó-
skip.
Nýsköpunin setti alveg nýjan
svip á íslenzba útgerð. Stórir,
fullkomnir fiskibátar, búnir
beztu þekktum tækjum og
nýtízku togarar, sem á sínum
tíma voru taldir hinir fullkomn-
ustu í heimi. Mikil breyting varð
á togaraútgerðinni að því leyti,
að sumir stærstu aðilarnir að
henni kipptu að sér hendinni um
kaup á nýju togurunum, en í
stað þeirra komu að verulegu
leyti bæjarútgerðir víða um
land og hlutafélög, sem bæjar-
félög voru stórir aðilar að.
Við stríðslokin opnuðust á ný
gamlir góðir markaðir, svo sem
saltfiskmarkaðirnir í Suður-Ev-
rópu og ísfiskmarkaður togar-
anna í Þýzkalandi. Jafnframt
jukust mjög möguleibar á sölu
frysta fisksins, þar sem hægt var
nú að þreifa fyrir sér um sölu
á honum víða í Evrópu auk
Bretlands, jafnframt því að á-
hugi á Bandaríkjamarkaðinum
kom til skjalanna.
Glæstar vonir brugðust.
í ljósi alls þessa var ástæða
til bjartsýni fyrir þjóðina, og
ekki sízt þá, sem að sjávarút-
vegi stóðu. En margt bar til þess
að hinar björtu vonir rættust
ekki. Efnahagur Evrópuþjóða
eftir ófriðinn mikla var í mol-
um og kaupgeta lítil, hver
reyndi að búa sem bezt að sínu,
fiskveiðiþjóðirnar hófust handa
á ný um fiskveiðar hér við land
og leið ekki á löngu unz erlend-
ir togarar á veiðum umhverfis
landið skiptu hundruðum. (Má
geta þess hér, að þá mun möskva
stærð í botnvörpu hafa verið 70
til 80 mm. á móti 130 mm. nú).
Jafnframt þessu óx verðbólga
innanlands hröðum skrefum og
allur útgerðarkostnaður þar með.
Verðlag á útflutningsafurð-
um féll og afli fór minnkandi.
Afdrifaríbast var þó, að frá 1945
og síðan í rúman hálfan annan
áratug brást síldaraflinn fyrir
Norðurlandi og olli það báta-
útveginum mjög þungum búsifj-
um. Fyrstu árin eftir styrjöld-
ina jók allur almenningur inn-
kaup sín stórkostlega, enda var
sáralítið hægt að kaupa á stríðs-
árunum, þar sem erfitt var að
fá neyzluvörur erlendis frá aðr-
ar en matvörur, þar sem frarn-
leiðsla þjóðanna beindist mest-
^negnis að styirjaldarnauðsynj-
Jafnframt þeim bátum, sem
Aðalfundur
F.U.S. í Snæfells- og Hnappadalssýslu
sunnudaginn 19. janúar í samkomuhúsinu í Stykkis-
hóhni og hefst fundurinn kl. 4 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Friðjón Þórðarson, alþingimaður
ræðir um atvinnumál.
3. Fulltrúar frá S.U.S. mæta á fundinum.
STJÓRNIN.
BLAÐBURÐÁRFOLÍC
OSKAST í eftirtulin hverfi:
Aðalstræti — Miðbæ — Freyjugötu.
7o//ð v/ð afgreiðsíuna i sima 70700
jim. — En þegar um hægð-
ist upp úr styrjaldarlokum, hóf
ust fyrst að verulegu marki
kaup almennings á alls konar
heimilistækjum, gólfteppum, bíl-
um, svo að ekki sé nefnd sú bygg-
ingaralda, sem reis. Þetta var
ekkert sérstök reynsla fyrir' ís-
land þetta gerðisit í mörgum. öðr
um löndum, sem höfðu efnast
mjög í styrjöldinni, svo sem
Mexico Indlandi og mörgum fleiri.
Þetta leiddi til þess að gjald-
eyrissjóður þjóðarinnar, sem var
í stríðslok 600 millj. króna, eða
um 100 millj. dollara, gekk til
þurrðar á skömmum tíma. Þess
skal þó getið hér að af þessum
sjóði var a.m.k. helmingi varið
til nýsköpunar sjávarútvegsins,
hitt gekk til annarrar uppbygg-
ingar, ekki sízt íbúðarbygginga
og tækjakaupa til heimila og að
sjálfsögðu almennrar neyzlu
þjóðarinnar.
Þegar svona var komið, var
farið inn á brauit hafta og
skömmtunar, og stóð svo frarn
undir 1950 er gengi krónunnar
var breytt.
Sú þróun aflabragða, verðlags
útflutningsafurða og verðhækk-
anir innanlands, sem lýst hefir
verið, ollu því, að hin nýju, full-
komnu og mikilvirku fiskiskip
og iðjuver í landi sköpuðu ekki
þá hagsæld, sem menn höfðu gert
sér vonir um. Það er vitað, að
strax 1948, var mikilhæfum
stjórnmálamönnum þegar orðið
ljóst, að langbezta úrræðið til
að kippa efnahagsmálunum í lag
væri að leiðrétta gengisskrán-
ingu krónunnar, og hafði einn
lærðasti hagfræðingur þjóðarinn
ar þá þegar hvatt til þess op-
inberelga að sú leið yrði farin.
En rótgróin vantrú margra
stjórnmálamanna og sjálfsagt tölu
verðs hluta þjóðarinnar á slíkri
ráðstöfun, kom í veg fyrir þá
leiðréttingu. Það hafði og vafa-
laust sín áhrif, að um þessar
mundir kom til skjalanna frá
Bandaríkj unum Marshallhjálpin,
Isem flestar þjóðir Vestur-Ev-
kópu nutu, þ.á.m. íslendingar.
En hvað sem henni leið, var stað
reyndin sú, að um var að ræða
á þessum árum stórfelldan sam-
drátt í þjóðartekjum Íslendinga,
þótt öll aðstaða til tekjuöflun-
ar tækjanna vegna, væri miklu
betri en áður, og mun samdrátt-
urinn um skeið hafa numið fram
að fjórðungi. En Marshallhjálp-
in var að sjálfsögðu ekki eilíf,
og að því kom að lokum, að
ekki varð undan því komizt að
fella gengi íslenzku krónunnar
gagnvart öllum erlendum gjald-
eyri, en það hafði raunar verið
leiðrétt gagnvart sterlingspund-
inu, er það var fellt árið áður.
Ný gengisfelling, bátagjaldeyrir,
bati um sinn.
Gengisfellingin var að venju
reist á þeirri von, að ekki yrði
um frekara verðfall erlendis að
ræða né samdrátt í afla. Hvort-
tveggja vonin brást þó, og hélzt
svo fram á árið 1952. Þess vegna
varð í ársbyrjun 1951 að setja
reglurnar um innflutningsrétt-
indi bátaútvegsins, hinn svo-
nefnda bátagjaldeyri, en
skömmu síðar var gripið til þess
ráðs að greiða togurunum dag-
styrki. Síldarútgerðin átti við
stöðug vandamál að stríða. Fram
an af var henni framfleytt með
lánum af fé sem ríkissjóður
lagði af mörkum, en síðar kom
til skjalanna Hlutatryggingasjóð-
ur bátaútvegsins, sem stofnaður
var með lögum 19. maí 1949. Þar
sem hann hafði af hálfu tekjur
af útflutningsgjaMi af sjávaraf-
urðum og jafnháu framlagi frá
ríkissjóði, var síldveiðideild
hans að sjálfsögðu mjög févana,
en málinu bjargað með því, að
þorskveiðideildin lánaði henni
fé gegn ábyrgð ríkissjóðs, sem
aldrei reyndi á sem betur fór.
Næstu árin, fram til 1956, má
a.m.k. segja, að hagur bátaút-
vegsins hafi á þorskveiðunum
verið góður, verðlag erlendisfór
fremur hækkandi og afurðasal-
an varð fjölbreytt og gekk vel.
Framhald á bls. 20
Námskeið
í rœðumennsku
og fundarsköpum
Haldið verður námskeið dagana 20.,
21. og 23. janúar í Félagsheimili Heim-
dallar, Valhöll v/Suðurgötu og hefst
það kl. 8.30 öll kvöldin.
Leiðbeinandi verður Ólafur B. Thors
deildarstjóri.
Væntanlegir þátttakendur skrái sig á
skrifstofu Heimdallar eða í síma 17102
Heimdallur F.U.S.
HÁDEGISVERÐAR-
FUNDUR
Laugardagur
18. janúar kl. 12,30.
Öniindur Ásgeirsson
forstjóri ra>ðir um
OLÍUVERZLUN.
HOTEL
VERZL. OG SKRIFSTOFUFÓLK, FJÖLMENNIÐ
OG TAKIÐ MEÐ YKKUR GESTI.
FUNDARST AÐUR