Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 19©9 Mjög góöur rækjuafli - / ÍSAFJARÐARDJÚPI Staðnii að ólöglegum veiðum — segja sér ókunnugt um bannið ísafirði, 21. marz Mjög góður rækjuafli hefur verið í ísafjarðardjúpi þessa viku — meiri en dæmi eru um áður. Leyfilegur vikuafli er 3 lestir á bát og fengu tveir bátar þann afla strax á mánudag, nokkrir luku við vikuaflann á þriðjudag og allir bátarnir, sem nú stunda rækjuveiðar í Djúpinu, 24 tals- ins höfðu náð leyfilegum viku- afla um miðja vikuna. Rækjan er stór og falleg og skapar mikla atvinnu í ver- stöðvum við ísafjarðardjúp. í fyrra lauk rækjuvertíðinni í endaðan apríl. Línubátar frá ísafirði hafa afl að ágætlega. f gær var afli þeirra frá 8 og upp í 15 lestir: fimm VERÐLAUN í hugmyndasam- keppni um nafn fyrir skemmti- stað unga fólksins að Skaftahlíð 24 voru dregin út hjá borgarfó- geta mánudaginn 17. marz sl. Þátttaka í hugmyndasamkeppn inni var mjög góð, og bárust alls 1040 tillögur hvaðanæva að af landinu, og jafnvel nokkrar er- lendis frá Vikuna 8.—15. febr. Sl. fór síðan fram atkvæða- greiðsla meðal gesta hússins, og hlaut nafnið „TÓNABÆR" flest atkvæði. Samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur síðan að staðurinn skyldi nefnast Tónabær. Tillögur um nafnið „Tónabær“ bárust frá 6 einstaklingum, og var því dreg ið um verðlaunin kr. 5.000.— hjá Framhald af bls. 32 til samkomuhalds, fimleikahús með fjórum búningsklefum, auk sundlaugar með tilheyrandi að- stöðu. Borgarstjóri kva'ðst ekki treysta sér til að segja ákveðið um hvenær hafizt yrði handa um byggingu hjúkrunarheimilis fyr- ir aldraða. Á fjárhagsáætlun sl. árs hefðu verið áætlaðar 5 millj. ónir króna til þessarar fram- kvæmdar og 5 milljónir á fjár- hagsáætlun yfirstandandi árs, en kostnaðaráætlanir húsameistara benda til þess, að framkvæmdir þessar muni kosta tugi milljóna króna, og að viðhlítandi áfanga verði ekki náð með 10 milljónum króna. Guðmundur Vigfússon (K>: Þáð er mikil nauðsyn að skóla- byggingar við Hvassaleitisskóla og Árbæjarskóla komist í gang. Ef ekki tekst að hefja fram- kvæmdir nú þegar, er nánast von laust, að þessar byggingar komist í gagnið fyrir næsta skólaár. En verði það ekki mun skapast al- gjört neyðarástand í Árbæjar- og Hvassaleitisskóla. Það ómögu- lega blasir þá við í Hvassaleitis- skóla, það er fjórsetning. Og ég býst við, að ástandið sé svipað í Árbæjarskóla. Þá er það einnig brýn og áðkallandi nauðsyn, að opinberir aðilar, eins og Reykja- víkurborg láti ekki standa á sér við framkvæmdir, þegar atvinnu leysi hefur skapazt í byggingar- iðnaðinum. Nú eru 140 bygging- ariðnaðarmenn atvinnulausir og 300 verkamenn. Ég er sammála borgarstjóra um það, að bygg- ingariðnaðarmennirnir taka með sér a.m.k. tvöfalda tölu verka- manna, ef þeir fá atvinnu. Nú eru hins vegar engar líkur á því að einstakir aðilar ráðist í miklar framkvæmdir, og þá verður borg in að standa í stykkinu. Ég vil láta þáð koma fram, að svo lang ur dráttur er orðinn á þeim fram kvæmdum, sem hér hefur verið spurt um, að það er ótækt með bátar voru samtals með 57 lest- ir. Mestan afla fékk Hrönn: 15 lestir. — Mikill meirihluti línu- aflans er nú orðið steinibítur. Þrír bátar stunda togveiðar frá ísafirði. Guðbjartur Kristján landaði í gær tæpum 100 lest- um eftir fimm sólarhringa úti- vist. Júlíus Geirmundsson kom inn , um hádegisbilið í dag með 85—90 lestir og Guðbjörg er væntanleg í fyrramálið með rúm ar 100 lestir. Mikil vinna er í öllum fisk- vinnslustöðum á ísafirði, og er allt útlit fyrir, að vinnaþurfi alla helgina til að koma þeim afla, sem á land berst, undan. — Fréttaritari. borgarfógeta, eins og áður seg- ir. Verðlaunin hlaut Matthías Kristinsson, Sundstræti 31, ísa- firði. Tónabær hefur nú starfað í 6 vikur, og hafa á áttunda þús- und ungmenni sótt staðinn á þeim tíma. Starfsemin hefur gengið vel, og jafnframt s’kipulegri starfsemi hússins hafa skólar og æskulýðs félög fengið þar inni fyrir árs- hátiðir, fundi og skemmtanir. Akveðið hefur verið að auka á fjölbreytni starfseminnar m.a. með því að hafa „Opið hús“ á sunnudagskvöldum fyrir 15 ára og eldri, og ýmislegt fleira er einnig í undirbúningi. (Fréttatilkynning frá Tónabæ). öllu og óviðunandi. Það eru 3 eða 4 ár liðin frá því að samþykkt var í borgarstjórn að byggja íbúð ir fyrir aldraða. Sú samþykkt var li'ður í víðtækari samþykkt um byggingarframkvæmdir á vegum borgarinnar, en frá þeim tíma hafa einungis verið byggðar 52 íbúðir í Breiðholti á vegum framkvæmdanefndar Byggingar- áætlunar, en ekki ein einasta íbúð fyrir aldraða né heldur hjúkrunarheimili. Þetta er ófær frammistaða og fullkomlega víta verð. Þetta er eitt dæmi um það, að menn skeryti sig með blóm- um, sem fölna síðan með árun- um. Enginn efast um nauðsyn- þess að byggja íbúðir fyrir aldr- aða, og hjúkrunarheimili fyrir aldraða og ég er sammála borg- arstjóra um að ekki verða stór verkefni leyst fyrir 10 milljónir króna til hjúkrunarheimilis, en hér getur borgarstjórnarmeiri- hlutinn sakað sjálfan sig um, að hafa ekki samþykkt frekari fjár- veitingar til þessara fram- kvæmda. Borgarstjórnarmeiri- hlutinn var fyrst og fremst að vernda hagsmuni heildsalana og vildi það heldur en að fá aukið fjármagn til þess að standa fyrir þessum framkvæmdum. Guðmundur Halldórsson. Blaðinu barst í gær eftirfar- andi fréttatilkynning frá Al- menna bókafélaginu: Undir ljásins egg heitir ný skáldsaga, sem Almenna bókafé- lagið sendir frá sér þessa dag- ana. Höfundur hennar, Guðmund ur Halldórsson, er húnvetnskur bóndasonur, fæddur 1926, og hef ur lengstan aldur dvalizt í átt- högum sínum og stundað þar jöfnum höndum algeng sveita- störf og daglaunavinnu. Fyrir þremur árum kom út eftir hann á vegum Menningarsjóðs smá- sagnasafnið Hugsað heim um nótt, og hlaut hún hina ágæt- ustu dóma. í stuttum eftirmála við þá bók kemst Hannes Péturs- son skáld svo að orði um sagna- gerð höfundarins, að hún sé „runnin upp úr íslenzku sveita- lífi eins og því hefur verið hátt- að frá styrjaldarlokum, birtir sveitalífið frá sjónarhorni æsku manns sem stendur á vegaskil- um. Hugur hans stefnir ýmist heim eða að heitnan, heim til þess sem var, að heiman til þess sem orðið er. Á aðra hönd kyrrð og fásinni, á hina umrót og hraði.“ Undir ljásins egg, sem er hin fyrsta stærri skáldsagna höfund arins, er að mörgu leyti með sömu einkennum og hér hefur verið lýst, enda mun hún upp runnin á svipuðum slóðum og smásögur hans. Þetta er m.ö.o. sveitasaga, sem gerist norðan fjalla á ár- unum eftir síðari heimsstyrjöld- ina, þegar jeppar, félagsheimili og flótti til kaupstaðanna standa 'SANDGERÐI 21. marz. Ellefu hundruð þrjátíu og sjö lestir bárust á land í Sandgerði í (gær. Fimmtíu og fjórir bátar lönduðu 300 lestum af bolfiski og þrír bátar 837 lestum af Ioðnu. Alls höfðu lö.marz borzt hér á land 8432 lestir, sem skiptust ‘þannig: Bolfiskur af heimabát- xun nam 2746 lestum úr 471 róðri, bolfiskur af aðkomubát- um nam 1229 lestum úr 281 VARÐSKIPIÐ Ægir -stóð í fyrri- nótt fjóra togbáta frá Vest- mannaeyjum að ólöglegum veið- um innan friðaðs svæðis út af Þorlákáhöfn að Knarrarósvita. Bátarnir fjórir; Sigurfari VE 138, Sæborg VE 22, Glaður VE 270 og Hrefna VE 500 fóru til Vestmannaeyja, þar sem mál skipstjóranna voru tekin fyrir í gær. Skipstjórarnir viðurkenndu allir að hafa verið að veiðum innan þessa friðaða svæðis, þeg- ar varðskipið kom að þeim en báru því við, að þeim hefði ekki í tákni mesta byltingartímabils, sem gengið hefur yfir íslenzkar sveitir. Hvarvetna blasir við uppflosnun og fráhvarf frá alda gömlum lífsháttum, og þessi svip Vegu „siðaskipti" hafa í för með sér margan harmleik, sem kannski hefur ekki hátt um sig, en býr um sig því dýpra í sál- inni. Undir ljásins egg hefur að geyma eina af slíkum sögum. í afmörkuðu umhverfi og meðal fá brotins fólks, sem rithöfundur- inn lýsir af nærfærni og hlýhug, speglast örlagabarátta, sem háð er undir hljóðlátu yfirborði og enginn veit í raun, hvernig ræðst. En kannski fær hún að þessu sinni óvænt úrslit? í sögu lok vottar fyrir nýjum degi og þar eru það ungir elskendur, fulltrúar hinnar nýju kynslóðar, sem virðast viðbúnir að rísa gegn ofríki aldarfársins. Guðmundur Halldórsson mun aðeins hafa dvalið einn vetur við nám í héraðsskóla.en hvergi verður þess vart að skortur á langskólanámi hái honum. Hann hefur til að bera ræktaða frá- sagnargáfu og menningarlegan stíl, í senn hófsaman og skil- merkilegan. Og enginn, sem les þessa geðfelldu skáldsögu, mun láta hjá líða að fylgjast með rit ferli höfundarins eftirleiðis. Bókin er 138 bls. í allstóru broti prentuð í Odda hf. og harð kápubundin í Sveinabókbandinu hf. Verð til félagsmanna í AB er kr. 225.00. róðiri, loðnuaflinn var 4346 tonn í 30 róðrum og gildaraflinn 111 lestir i þremur róðrum. Aflahæstu bátarnir voru 16. marz: Af netabátum vatr Nátt- fari hæstur með 243 tonn í 16 róðrum, Víðir II var aflahæstur línubáta með 188 tonn í 23 róðr- um, Guðmundur Þórðarson var aflahæsti togbáturinn með 64 tonn í 20 róðrum og Jón Garðar var aflahæstur loðnubáta með 2452 lestir. — P. P. jCBSsýnir ] Surtseyjarþótt J i FIMM sjónvarpsmenn frá t í CBS í Bandaríkjunum fóru í i 7 gær með þyrlu Landhelgis- / i s-æzlunnar og SVFÍ út í 7 í Surtsey til að taka efni í sjón i i varpsþátt um eyjuna. Þáttur- i / inn verður sýndur vestra 10./ i apríl og er að meginefni kom-1 i inn frá Ósvaldi Knudsen, enl 1 bandarísku sjónvarpsmennim-1 / ir tóku í gær myndir af eyj-/ 7 unni eins og hún er nú ogl 1 myndir af þuli þáttarins í viðt í eigandi umhverfi. í verið kunnugt um bann við tog- veiðum á þessu svæði. Svæði þetta var friðað með auglýsingu sjávarútvegsmála- ráðuneytisins 27. febrúar sl. og birtist hún í Lögbirtingablaðinu 4. marz. Yfirheyrslur í málunum fóru fram í gær en þau voru ekki tekin til dióms. Áttu presta- köll laus BISKUP íslands hefur auglýst átta prestaköll laus til umsókn- ar. Þessi prestaköll eru: Hof í Vopnafirði, Hvammur í Dölum, Sauðlauksdalur í Barðastranda- prófastdæmi, Núpur í Dýrafirði, Mælifell í Skagafirði, Ólafsfjörð ur, Raufarhöfn og Vatnsendi í S-Þingeyj arpróf astdæmi. Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k. SAMKOMA SAMKOMA verður í Keflavík- urkirkju á morgun, sunnudag, klukkan 17:00. Þar mun biskup fslands, herra Sigurbjörn Einarsson, flytja ræðu, séra Jón M. Guðjónsson, sóknarprestur á Akranesi, flyt- ur ávarp og kirkjukór Akraness syngur. Við orgelið verður Hauk ur Guðlaugsson. Blóðguðu sig í innbroti BROTIZT var inn í verzlun að Hálogaland aðfaranótt fimmtu- dags og stolið miklu magni af tóbaki. Þeir, sem þarna voru að verki, brutu stóra rúðu til að komast inn og hafa þá skorið sig illa, því allt var útatað í blóði í verzluninni, þegar að var kom- ið. Síðar um nóttina funduzt tveir pappakassar, fullir af tóbaksvör- um, við Langholtsveg. Mikið blóð var á kössunum. Málið er í rann sókn. - GEIMFÖR Framhald af bls. 1 að og Norður- og Suður-Ameríka samanlagðar. Hann sagði og að á öðrum tug geimaldar, sem hófst á þessu ári, yrði lögð aukin áherzla á könn- un fjarlægari hnatta, og yrði msklum fjölda ómannaðra könn- unarfara 'skotið á loft í því skyni. Tveir gervihnettir (öðrum var skotið upp í febrúar, hinn fer í næstu viku) eiga að fara á braut umhverfis Mars og senda til jarð ar ljósmyndir og sjónvarpsmynd ir af plánetunni. Þeir eiga einn- ig að mæla hitastig, geislavirkni og sam'setningu gufuhvolfsins. „Við vonumst til að geta með þessu gert okkur grein fyrir hvort skilyrði á Mars eru slík að þar geti þrifizt líf. Fleiri gervihnöttum verður skotið að Mars 1971 og 1973 á að reyna að lenda tveim ómönnuð- um förum þar. Á árunum 1977 til 1979 verður hægt að senda á loft ómannað geimfar sem fer í könnunarleiðangur umhverfiis fjórar plánetur, með því að nota aðdráttarafl þeirra að nokkru leyti til að bera farið áfram. Af- staða þeirra verður þá þannig að þær eru nokkurn veginn í beinni línu frá jörðinni, og hend ir það ekki aftur fyrr en eftir 170 ár, en þá verður áreiðanlega búið að senda menn þangað, ef aðstæður leyfa, Afstaðan gerir það kleift að fara fyrst framhjá aðdráttarafl- sviði Júpiters, beygja svo út fyr- ir Satúnrus, aftur inn að Úran- usi og loks fara umhverfis Nep- túnus og halda heim. Þessi ferð mun taka níu ár, og burðarflaug- in verður því að vera kjarnorku knúin. VIÐTALSTIMI BORGARFULLTRÚA SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS Laugardagur 22. marz. 1 viðtalstíma borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins laugardaginn 22. marz taka á móti að þessu sinni Gísli Halldórsson og Bragi Hannesson. Við- talstíminn er milli kl. 2—4 í Valhöll v/Suðurgötu og er tekið á móti hverskyns ábendingum og fyrirspurnum er snerta málefni Reykjavíkur- borgar. ísfirðingur hlaut verðlaun Æskulýðsróðs — Mikil aðsókn að Tónabæ - BORGARSTJÖRN Undir Ijásins egg Ný skáldsaga eftir Cuðmund Halldórsson 8432 lestir á land - / SANDGERÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.