Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1969 Frá sveit til sjávar STÓRVIRKI í VEGAGERÐ Framkvæmdaáætlun sú, er birtist í ræðu Ingólfs Jóns- sonar ráðherra á Alþingi er hann fjallaði um vegagerð okkar í náinni framtíð, hefir vakið verðskuldaða athygli. Auðséð er af því sem fram kemur í vegaáætluninni, að fram verður haldið stórhuga stefnu í vegamálum okkar. Núverandi samgöngumálaráð- herra hefir sett rnarkið hátt, en þó byggt allar áætlanir á raunsæi. Hinn margnefndi Keflavíkurvegur er glöggt dæmi þess hvað hægt er að gera hér á landi, ef raunsæið er látið ráða, en smáborgara- legt sjónarmið hreppapólitík- usa látið lönd og leið. Að sjálfsögðu fáum við aldrei neitt gefins. Við verð- um að vinna fyrir því, enda annað óheilbrigt. Eins er um góða vegi. Fyrir þá verðum við að greiða og ekki óeðli- legt að þeir greiði mest, er fyrst og fremst nota þá. því þeirra verður hagnaðurinn mestur, það sem þér spara bæði eldsneyti tækja sinna og slit. Sjálfsagt er að sam- eiginlegur sjóður allra lands manna standi undir fram- kvæmdunum. Því skulum við ekki veigra okkur við að leggja hér á landi glæsileg- ar hraðbrautir. Sá hugsunar- háttur, að okkur skuli allt rétt upp í hendurnar, er hættulegúr og leiðir aðeins til andvaraleysis. Við verðum að gera okkur ljóst, að um leið og við gerum kröfur, verðum við að vera reiðubúin til að leggja eitthvað af mörkum. FRAMKVÆMDAMENN En það er ekki nóg að gera myndarlegar áætlanir. Til að vinna þær þarf framkvæmda- menn. Hér á landi hefir á síð ustu árum skapast myndar- legur hópur verktaka, manna, sem eru reiðubúnir til að taka að sér framkvæmdir á eigin ábyrgð. Við höfum lengst af leitað út fyrir landsteinana, þegar um hefir verið að ræða framkvæmdir stórverka hér á landi. Ástæðulaust er að gera þetta lengur í jafn ríkum mæli KEFLAVÍK — SUÐURNES. Sálarrannsókn nefnist erindi, sem Svein B. Johansen flytur í Safnaðraheimili Aðventista við Blikabraut, sunnudaginn 23 marz kl. 5 síðdegis. Myndir frá verðmætasta fornleifafundi sögunnar. — Kór Aðventkirkjunnar syngur. Allir velkomnir. Myndatökur um helgar og á kvöldin yfir fermingartímann. Næg ókeypis bílastæði. Ljósmyndastofa PÉTURS THOMSEN Laugarnesvegi 114, sfmi 36170. Heimasími 24410. Þjóðdansasýning í Háskólabíói í dag kl. 3. Sýndir verða dansar frá 11 löndum. Aðgöngumiðasala frá klukkan 2. Handunnir lampar frá Mallorca. Ljós og hiti Laugavegi 89. Opnum í dag AÐ LALGAVEGI 89. Ljós og hiti og Hooververkstœðið Sími 20670. og verið hefir. Sem betur fer er málum nú orðið svo hátt- að, að við eigum hér á landi fyrirtæki, sem vel geta leyst af hendi flest þó stórverk, sem við þurf um að láta vinna. Raunar er enn skortur á skiln ingi á því að til þess að taka að sér stórvirki þarf fjár- magn. Það hefir of lengi leg- ið hér í landi, að þeir, sem eignast fé, séu óalandi. Það hefir verið krafa almennings að leggja byrðarnar á „breiðu bökin,“ eins og það hefir svo karlmannlega verið orðað. SAMTÖK VERKTAKA Þegar ráðast þarf í stór- virki, eins og byggingu hrað- fcrauta, verðum við að geta snúið okkur til sterkra verk taka. Við höfum fram til þessa þurft að leita þeirra út fyrir pollinn. Nú verðum við að sameina þá krafta, sem fyrir eru í landinu til að vinna stórverk okkar. Við vitum að við eigum fjölda manna, sem hafa þekkingu á þessum mál- um, kunna að vinna það verk, sem óskað er eftir. En því miður eru þeir dreifðir og hver um sig lítt fær um stór- virki, einkum vegna þess að þeir hafa ekki fjármagn að baki sér. Verkþekking og stór virk tæki eru fyrir hendi, en á mörgum höndum. Þessi öfl verður að sameina til þeirra stórátaka sem framundan eru. Bankakerfi okkar verður að standa að baki þessara manna og efla þá, svo þeir geti orðið samkeppnisfærir á sviði verktaka. Það þarf ekki að veita þessum mönnum nein sérstök fríðindi fram yfir er- lenda verktaka, önnur en þau að styðja við bakið á þeim með fjármagni. Verkþekking og tæki eru fyrig hendi í landinu. Þau þarf að sameina í sterkan aðila. Þá mun ljóst verða að erlendir verktakar hafa hingað lítið að sækja, þótt um frjáls alþjóðleg út- boð verði að ræða. TÆKJABÚNAÐUR Til þess að gera mönnum ljóst hvað hér er um að ræða, er rétt að líta á lauslega athugun, sem gerð hefir verið á tækjaeign hinna minni verk taka hér í höfuðborginni. Það skal strax fram tekið að stórir verktakar eins og fslenzkir aðalverktakar eru hér ekki með taldir og aðeins þeir, sem eru hér í Reykjavík. Fjöldi véla og verktaka eru utan Reykjavíkur. Hin lauslega athugun leiðir í ljós, að við höfum yfir að ráða 22 stórum jarðýtum, 22 vélkrönum, 27 vélskóflum, skurðgröfum og vélhleðslu- tækjum, 12 dráttarbílum, 15 dráttarvögnum, 26 loftpress- um, 14 traktorgröfum, 2 bor- vögnum, 7 hræribílum, 2 steypustöðvum, malbikunar- stöð, þremur vibratorvöltur- um og sérbyggðri lyftibifreið. Hér með eru ekki taldar steypustöðvar þær, sem rekn- ar eru á höfuðborgarsvæðinu eða hinn mikli fjöldi tækja, sem þeim fylgir. VERÐA AÐ FÁ TÆKIFÆRI Þetta litla dæmi sýnir að okkur vanhagar ekki um tækjabúnað til að taka að okkur stórframkvæmdir. Við vitum ennfremur að okkur skortir ekki verkfræðinga, og það verkfræðinga, sem hlot- ið hafa þjálfun við íslenzk- ar aðstæður. Okkur skortir hcldur ekki góða stjórnend- ur hinna stórvirku tækja. Það hefir komið í ljós við stór- verk, sem hér hafa verið unn- in af erlendum aðilum, sem komið hafa með eigin vélstjóra að þeir hafa ekki staðið ís- lenzkum vélstjórum snúning. Kunnur eftirlitsmaður frá einu stærsta vinnuvélafyrir- tæki heims kom hingað til lands ekki alls fyrir löngu til að líta eftir vélum frá fyr- irtæki hans við stórverk hér Framhald á bls. 25 Hafiö þiö a nokkurs staöar? Ef þið reykið vindla, ættu% þitS áS hafa augun opin fyrir Henri Wintermans. Hollenzkir vindlar, mildir og brag’ðgð'Sir og svo fallega laga'Sir, að x löndum svo fjairi hvort öðru sem Bretland og Ástralia, seljast þeir meir en nokkur annar hoUenzkur vindill. Þegar þitS sjáið Henri Wintermans, ættuð þitS áS kynnast honum. Þið sjáið ekbi eftir þvi. Kynnizt Henri Wintermans Short Panatella Bétta stærðin fyrir aUa. Hæfllega langur. Hæfllega gildur. Hæfllega bragtSmikUl. Hæfllega mildur. Seldur í 5 stykkja pökkum. Kynnizt Henri Wintermans CigariUos (Við köUúðumþá áður Senoritas) Á stæxtS viS “King-Size” vindling, en gUdari. Ekta hoUenzkur smávindiU, með hinu mUda Henri Wintermans bragtSi. Seldur í 10 stykkja pökkum. HGNRI WINTBRMANS HINN ALÞJÓÐLEGI HOLLENDINGTJE. Umboðsmenn: GLOBUS H/F.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.