Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.03.1969, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1909 23 Þeir vilja lifa í friði og sjálfstæði Nokkur atriii um aðdragan da innrásarinnar á Anguilla FÁTT hefur vakið meiri at- hygli í heimsfréttunum síð- ustu vikuna en innrás brezkra hermanna á eyjarkrílið Angu- illa í Karabíska hafinu. Fall- hlífarsveitin „Rauðu Djöflarn ir“, hugprúðir lögreglumenn úr London og ábúðarmiklir leynilögreglumenn frá Scot- land Yard hafa haldið inn- reið sína og búið um sig á eyjunni, sem er a’ðeins 90 ferkílómetrar að stærð og tel- ur ekki nema rétt sex þúsund íbúa. Aðdragandi þessarar um- deildu ákvörðunar brezku stjórnarinnar er nokkuð lang- ur og skulu helztu atriði hans rakin lauslega. Anguilla var áður í eyjasambandinu St. Kitt-Nevis-Anguilla í Kara- bíska hafi. í júní 1967 lýstu íbúar Anguilla yfir sjálfstæði sínu og Arnold Webster varð sjálfskipaður forseti ríkisins. Brezk stjórnvöld reyndu þá strax að komast að samning- um við eyjarskeggja og brezka stjórnin vonaði í lengstu lög, að málið yrði leyst með friðsamlegum samn ingum. Brezkir embættis- menn, sem um málið fjölluðu komust brátt að þeirri niður- stöðu, að málið yrði erfiðara viðfangs en þeir höfðu ætlað í fyrstu. Ástæðurnar fyrir því voru a'ðallega tvær: 1. Ef Bretar neyddu Angu- illa aftur inn í eyjasambandið mundu andstæðingar þess geta bent á, að Bretar beittu alltaf vopnavaldi gegn svört- um uppreisnar- og aðskilnað- armönnum, en héldu að sér höndum gagnvart hvítum upp reisnarmönnum í Ródesiu. Ef Bretar á hinn bóginn létu þetta gott heita myndu þær spurningar vakna hjá fjöl- mörgum hvers vegna sjálfs- ákvörðunarréttur gilti um íbúa Anguilla, en ekki Biafra- búa. 2. Ef Anguilla fengi sínu framgengt hefði það í för með sér að ýmsar fleiri smáeyjar segðu sig úr lögum við aðal- landið og stofnuðu sjálfstæ’ð ríki og þar með öryggi Karíba hafs stefnt í mesta voða og myndaðist þar með giufa í vörnum Bandaríkjanna. Fortölur báru engan árang- Scotland Yard hefur einnig fulltrúa sína til Anguilla. Hér sést Andrew Way, lögreglu foringi (í miðið) þramma vígalegur úr flugvél sinni og til starfa á Anguilla. ur og fjár.hagsaðstoð breytti í engu afstöðu einarðra Angu- illamanna. Margir töldu, að grundvallarmistökin hefðu verið sú ákvörðun að innlima Anguilla í eyjasamband með St. Kitts, en íbúar þessara tveggja eyja hafa löngum eld áð saman grátt silfur. Angu- illabúar töldu og að stjórnin væri að öllu í höndum ráða- manna í Basseterre, sem er aðalbærinn á St. Kitts. Þegar Anguiila sendi nefnd til London, þar sem þeir kváð ust ekki falla frá sjálfstæðis- yfirlýsingu sinni, fengu þeir kaldar móttökur hjá aðstoðar utanríkisráðherranum frú Judith Hart og meiri harka færðist í málið. Þann 30. maí tóku Anguilla- búar til sinna ráða, ráku lög- reglumenn frá St. Kitt í burtu og lýstu yfir sjálfstæði, þó kváðust þeir ekki fráhverfir því, að brezkir færu áfram með stjórn tiltekinna mála. Þann 13. júlí var gedð bylt- ingar tilraun á St. Kitt, en im St Barthtlemy Saba^) caiiuúk SM gSt Eustatius StKitts & , NtviS ANTIGUA Monserrat og áður. Anguilla vildi treysta bönd við ýmsar aðrar smá- eyjar, sem eyjarskeggjar þótt ust eiga fleira sameiginlegt með en íbúum á St. Kitt. Ekki leið heldur langur tími unz gæzlusveitirnar héldu á brott. Samveldismálaráðuneytið reyndi að leiða málið hjá sér eins lengi og unnt var. Ant- hony Lee var sendur sem sér- legur ráðgjafi, en þegar ráðn ingartími hans var á enda runninn í janúar 1969 voru Anguillabúar einráðir í að dvöl hans skyldi ekki vedða lengri. Þann 8. febr. var efnt til atkvæðagreiðslu á eyjunni, þá var samþykkt með 1.739 atkv. gegn fjórum, að slíta öll tengsl við Breta. Seinna í þeim sama mánuði var Willi- am Whitlock, aðstoðarutanrík- isráðherra sendur til eyjarinn ar að reyna enn að komast að samkomulagi. Honum var vel fagnað í fyrstu og honum og fylgdarmönnum hans var boðið til dýrlegrar humar- veizlu. í miðri máltí'ðinni þustu að hópur vopnaðra manna og skipaði ráðherran- um að hypja sig á brott. Ráð- herrann hélt heimleiðis og bar eyjarskeggjum illa söguna. Hann sagði að eyjunni stjórn- uðu þorparar og smáglæpon- ar sem virtust einskis svífast. Raunar hafði sá orðrómur ver ið á kreiki áður, að Anguilla hefði orðið griðastaður ýmissa vandræðamanna, bæði frá Bandaríkjunum og Kúbu og þangað hefði einnig ýmsir flutt sem ætluðu sér að kom- ast undan háum skattgreiðsl- um. Brezka utanríkisráðuneyt ið greip þessar staðhæfingar fegins hendi og sagði að eyjan virtist í höndum þorpara sem hugsuðu einvörðungu um eig in hagsmuni og þvi væri nauð synlegt að brjóta þá á bjk aftur. Brezk kennslukona, Philippa Maxwell, sem fór frá Angu- illa fyrir fáeinum mánuðum segir að Arnold Webster sé einkar heiðarlegur og réttsýnn maður, feiminn og hlédrægur og hann njóti stuðnings hvers einasta íbúa eyjarinnar. Ung- frúin bætti því við að allan þann tíma, sem hún hefði dvalið á Anguilla hefði hún ekki orðið vör við neina strokufanga, þorpara né ann- ars konar glæpamenn. En Bretum hefur greinilega fundizt mikið liggja við að hagsmunir Hennar Hátignar skyldu verndaðir. Því var inn rásin ákve'ðin og enn er full- snemmt að spá hver verður loka niðurstaða þessa kostu- lega máls. Ronald Webster lætur ekki innrásina trufla sig og breytir í engu venjum sínum. Hann fylgir börnum sínum i skóla á hverjum morguni. nánari atvik eru lítt kunn. Þó er vitað að ætlunin var að steypa forsætisráðherran- um Bradshaw, en hann er mjög illa þokkaður á Angu- illa. Vitað er að skothríð brauzt út og loks lögðu bylt- ingarmennirnir á flótta, en neyðarástandi var lýst yfir á St. Kitts. Hins vegar var fram ganga Bradshaws á þann veg eftir þessa tilraun varð á þá lund, að samúðin varð öll með Anguillabúum. Bradshaw hefur beitt Angu- illa ýmsum þvingunarráðstöf- unum, h’aldið eftir fjármunum þeirra og ekki komið pósti og vörum til skila. Á ráðstefnu, sem var haldin í júní með þátt töku Anguilla og flestra kara bisku eyjanna, samþykkti full trúi Anguilla að tengjast St. Kitt að nokkru aftur, með því skilyrði að gæzlusveitir yrðu settar á land frá Trinidad og Jamiaca. Þá yrði og tryggt að nefnd eyjarbúa yrði komið á laggirnaf og fjárstuðningur yrði aukinn við eyjuna. Þar vantar flest sem telst til nú- tímaþæginda, svo sem vegi, rafmagn og síma. Þróunin var brátt sú að Arnold Webster lét meira og meira til sín taka og samvinn- an við St. Kitt var jafn erfið Galvaskur hermaður með brugðna svífa til jarðar í baksýn. byssu. Fallhlífarmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.