Morgunblaðið - 22.03.1969, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1969
Ferðfunólofélag Akureyrar
endurvakið
Akureyri, 17. marz.
FERÐAMÁLAFÉLAG Akureyr-
ar var endurreist fyrir tæpum
tveim mánuðum. Síðan hefur
hin nýja stjórn þess unnið að því
að undirbúa framtíðarstarf fé-
lagsins og er starfsskrá þess þeg-
ar orðin margþætt og viðamikil.
Jafnframt hefur stjómin hafið
framkvæmdir, m. a. með því að
láta gera tvær 20 mín. kynning-
arkvikmyndir og bækling til
kynningar á vetrarferðum til
Akureyrar.
Verkefnum félagsins hefur
verið skipt i tvennt. Annars veg-
ar iruun það vinna að bættri að-
stöðu fyrir ferðamenn á Akur-
eyri og í nágrenni. Hins vegar
mun það beita sér fyrir því, að
ferðamannastraum-urinn aukizt
og viðdvöl ferðamanna á Akur-
eyri lengist. En hvort tvegigja
miðar að því, að ger-a Akureyri
eftirsótta ferðaman-namiðstöð og
au'ka hag Akureyriniga og ná-
granna þeirra af ferðam-anna-
þjónustu.
Hér á eftir verða talin upp
n-okkur þa-u verkefni, sem eru á
starfsskrá Ferðamálafélagsins:
Unnið er að allsherjarkönnun
á ferðamannaþjónustunni á Ak-
ureyri og þörf fyrir umbætur og
leiðbeiningaþjónustu. Stefht er
að því að efla ýmsa starfsemi,
sem getur orðið til að atnka að-
dráttarafl Aikureyrar sem ferða-
mannabæjar. Fyrir dyrum standa
viðræður við bæjaryfirvöld um
ýmis mál, sem snerta þa-u beint
og horft geta til bóta í sambandi
við útlit bæjarins og ýmsa al-
menna þjónustu. Unnið er og
unnið verður að gerð kynning-
arkvikmynda og ýmiss konar
upplýsin-gabaeklinga. Innan þessa
ramma skal síðast en ek'ki sízt
nefna, að stefnt er að því að
stofna til sérstakrar Akureyrar-
viku í tengslum við afmæli bæj-
arins árlega, fyrst 1970, en þar
er um að ræða menningar- og
sk-emmtiviku með sérstöku sniði.
Þá er stefnt að því að reka
umfangsmikla kynningarstarf-
semi með því að taka upp sam-
vinnu við ýmsa þá aðila, sem
fást við ferðamannaþjónustu
annars 8taðar á landin-u, með
heimsóknum í fyrirtæki og stofn-
anir í þéttbýlinu svo og almennri
upplýsinga- og auglýsingastarf-
semi. Má t. d. nefna, að nú þeg-
ar eru líkur á, að skemmtiferða-
skip fari aftur að leggja leið
sína til Akureyrar í einihverjum
mæli.
Þegar eftir aðalfund félagsins
í janúar hafði stjórnin samband
við Ferðamálaráð og er formað-
ur þess, Lúð-vík Hjálmtýsson, nú
í heim-sókn hjá félaginu til við-
ræðna uim ferðamálm.
Loks má geta þess, að nú hef-
ur vaknað áhugi á fleiri stöð-um
fyrir stofnun ferðamálafélaga,
m. a. í Ve-gtmannaeyjum og á ísa
firði, og hefur Ferðamálafél-a-g
Akureyrar iagt félagsstofnunum
þar nokburt lið.
<±>
„SUPER VIDD'
Þægilega viðir
karlmannaskór
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn í Tjarnarbúð, niðri
sunnudaginn 23. marz 1969, kl. 14.00, en ekki kl. 15.00 eins og mis-
ritaðist í föstudagsblaði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir ábyrgðarmönnum eða
umboðsmönnum þeirra í sparisjóðnum föstudaginn 21. marz kl.
13.00—16.00 og laugardaginn 22. marz kl. 10—12 og við innganginn.
STJÓRNIN.
FERMINGARBLÓM
BORÐSKREYTINGAR
SENDUM HEIM
Gróðrarstöðin v/Miklatorg — Sími 22822.
Gróðurhúsið v/Sigtún — Sími 36770.
Gróðrarskálinn v/Hafnarfjarðarveg — Sími 42260.
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 10.00.
LJÓSMYNDASTOFAN —?
LAUGAVEGI 13
SÍMI 17707 -------
Byggingafélag alþýðu, Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 25. þ.m.
kl. 20.30 að Hólel Sögu (Átthagasalnum).
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
STJÓRNIN.
Dœgurtíðir
HAUKS ÁGÚSTSSONAR verður endurfluttar í Háteigskirkju
sunnudaginn 23. marz kl. 5.
NEFNDIN.
Hel opnað læknastofu
I GARÐASTRÆTI 13.
Viðtalstími eftír umtali, eða kl. 15.30—16.30 nema fimmtu-
daga kl. 17—18 og laugardaga kl. 13—14. Sími 16195.
ÓLAFUR JÓHANN JÓNSSON, læknir.
Hafnarbúðir
Pantið tímanlega í fermingarveizluna kalt borð, brauð
og snittur.
Böðin opin alla virka daga, tek einnig vinnuflokka í fæði,
og leigjum út sal.
Pantið i síma 14182.
HAFNARBÚÐIR.
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði Hafnarfirði heldur basar í
Sjálfstæðishúsinu i dag, laugardaginn 22. marz kl. 4.00.
Margir eigulegir hlutir og heimabakaðar kökur
til helgarinnar.
GERIÐ GÓÐ KAUP.
BASARNEFND.
Vymura
VINYL-VEGGFÓÐUR
Þ0UR ALLAN ÞV0TT
LITAVER Grensásvegi 22-24
SÍmÍ 30280-32262