Morgunblaðið - 22.03.1969, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1909
21
Stjórn F. U. S. EYVERJA. Fremri röð frá vinstri: Sigurgeir Jonsson, vararorm.; Sigurður Jons-
son formaður; Magnús Jónasson, gjaldkeri. Aftari röð frá vinstri: Garðar Arason, meðstj.; Sigur-
geir Sigurjónsson, meðstj.; Arnar Sigurmundsson, ritari; Sigurður Þ. Jónsson, meðstj.; Bjami
Sighvatsson meðstj. (Ljósm. Magnús Jónsson).
UNGIR Sjálfstæðismenn um land allt vinna nú að mótun fram-
tíðarstefnu samtaka sinna. Hér birtist hluti þess umræðugrund-
vallar. sem lagður var fyrir Aukaþing Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna sl. haust og er nú til athugunar á vegum hinna
einstöku félaga ungra Sjálfstæðismanna. Verða drögin lögð
fyrir reglulegt þing S.U.S. nk. haust til afgreiðslu.
Ahugafólk er hvatt til að kynna sér efni umræðugrund-
vallarins og taka þátt i þvi framtiðar stefnumótandi starfi,
sem verið er að vinna, með því að senda stjóm S.U.S. (VAL-
HÖLL v/Suðurgötu) breytingartillögur, viðaukatillögur eða
aðrar athugasemdir, og mun gerð grein fyrir öllum aðsend-
um afhugasemdum á þingi samtakanna nk. haust. (Ath. hér
birtist aðeins hluti umræðugrundvallarins).
ÞRÖTTMIKIQ
OG ÖRUGT
STARF EYVERJA
FÉLAGSSTARFSEMI F.U.S. Ey-
verja í Vestmannaeyjum hefur
staðið með mjö|g miklum blóma
í vetur. Aðalfundur félagsins var
haldinn um miðjan október 1968,
og voru þá kjörnir í stjóm fé-
lagsins þeir menn, sem taldir
eru upp á meðfylgjandi mynd,
ásamt Ellert Karlssyni og Sæv-
ari Tryggvasyni.
Fráfarandi formaður, Sigur-
|geir Sigurjónsson, baðst eindreg-
ið undan endurkjöri, en er for-
maður hússtjórnar félagsins.
í fyrrahaust fes'ti félagið kaup
á húseigninni Vík >við Bárugötu
í Vestmannaeyjum og standa
vonir til, að félagsstarfsemin geti
cxrðið enn meiri með tilkomu
þess, en allmiklar endurbætur
þarf að gera á húsinu, áður en
svo verður. Eru framkvæmdir
við húsið í þann veginn að hefj-
ast þessa daga.
Fjárhagur félaigsins er með
ágætum, enda veitir ekki af, þar
eð framkvæmdir við félagsheim-
ilið eru fjárfrekar og nauðsyn,
að tekjuöflun sé traust.
Félagið hefur haldið 12 stjórn-
arfundi, það sem af er vetrinum,
og staðið fyrir nokkrum skemmt-
unum. Árviss venja er að halda
grímudans'leik á þrettándanum
fyrir börn, og almennan dans-
leik um kvöldið. Á sprengidags-
kvöld var tekin upp sú ný-
breytni að efna til un,glingadans-
leiks í Samkomuhúsinu, en hann
tókst fádæma vel og hefux fé-
lagið fullan hug á að gera meira
af slíku í vetur. Undirbúningur
að Hvítasunnuhátíð félagsins er
einnig hafinn um þess-ar mundir,
en hún er einnig árviss liður í
starfsemi félagsins. Auk þessa
starfar félagið í samráði við
hin Sjálfstæði.-félögin í Vest-
mannaeyjum að sameiginlegum
skemmtikvöldum yfir veturinn.
Um miðjan nóvember síðasrt-
liðinn gekkst félagið fyrir al-
mennurn fundi um bæjarmál, þar
sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn mættu og svör-
uðu fyrirspurnum. Einnig áttu
Eyverjar hlutdeild með hinum
tveimur Sjálfstæðisfélögunum í
Eyjum um almennan fund um
landsmál, þar sem þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi, þeir Ingólfur
Jónsson, Guðlaugur Gíslason og
Steinþór Gestsson höfðu fram-
sögu og svöruðu fyrirspurnum.
Sunnudaginn 10. marz gengust
Eyverjar svo fyrir ráðstefnu, þar
,sem fyrir var tekið eitt atriði
úr þjóðmálaverkefnum næst-u
ára, sem rædd voru á aukaþingi
S.U.S. sl. haust. Var rætt um
sjávarútvegsmál og hafði Matt-
hías Bjarnason alþingismaður
framsögu um efnið. Um kvöldið
var síðan haldinn fundur í full-
trúaráði Sjálfstæðisfélaganna,
þar sem Steinar B. Björnsson,
formaður Heimdallar kynnti
þjóðmálaverkefni næstu ára
fyrir ifulltrúum. — Hefur þátt-
taka í þessum fundarhöldaim
verið mjög góð og hið sama má
segja um skemmtanir þaer, er
Eyv-erjar hafa haldið.
Félagið hefur einnig átt hlut-
deild í útgáfu málgagns flokks-
ins í Vestmannaeyjum, blaðsins
Fylkis, og aðstoðað að verulegu
leyti við útgáfu þess.
Eins og sjá má, stendur félags-
starfsemin með miklum blóma,
en Eyverjar er hið eina stjórn-
málafélag yngri manna í Eyjum,
sem nokkuð kveður að. Meðlimir
eru yfir 30-0 tals'ins, og mikill
áhugi meðal ungs fólks um inn-
göngu í félagið. Væntir félagið
sér góðs af mörgum hinna nýju
félaga um, að þeir muni taka
virkan þátt í störfum félagsins.
SÍDAN
RITSTJÓRAR:
PÁLL
STEFÁNSSON
OG
STEINAR J.
LÚÐVÍKSSON
KEFLAVIK KEFLAVÍK
Þjóftmálaverkefni
næstu ára
- UTANRÍKISMÁL -
Fundur verður haldinn sunnudaginn 23. marz kl. 15,00
í Vík, Keflavík.
1. Avarp: Gunnar Alexandersson, varaformaður Heimis
F.U.S., Keflavik.
2. Frummælandi: Matthias A. Mathiesen. alþingismaður.
3. Fundarstjóri: Benedikt Guðbjartsson, stjórnarmaður Stefni
F.U.S., Hafnarfirði.
Allir ungir Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjöidæmi eru hvattir
til þess að fjölmenna.
Heimir F.U.S. Samband ungra Sjálfstæðismanna.
Ungir Sjálfstæðismenn vilja hefja nfja sókn í atvinnu-
málum þjóðarinnar. Sú sókn hefur þríþætt markmið:
I. að breikka svo grundvöll atvinrmlíxsins, að óhag-
stæðar sveiflur í einstökum atvinnugreini'.m valdi ekki
tímabundinni kjaraskerðingu svo nokkru nemi.
II. að skapa atvinnu fyrir þær tugþúsundir nýrra fs-
lendinga, sem koma á vinnumarkaðinn á næstu áratugum.
III. að tryggja, að íslenzk þjóð búi við sömu lífs-
kjör og stærri og öflugri nágrannaþjóðir við Atlantshafið.
Ungir Sjálfstæðismenn fagna því, að stefna núverandi
ríkisstjórnar undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur
hrundið af stað byltingu í atvinnumöguleikum þjóðar-
innar, þótt þar hafi gætt hefðbundins misræmis í fjár-
festingu samvirkra atvinnugreina. Lýsum við það sem
eindregna skoðun okkar, að grundvöllur sé fyrir hendi
undir trausta framfarasókn, þrátt fyrir þá stórfelldu erf-
iðleika, sem nú steðja að í efnahags- og atvinrumálum.
Ungir Sjálfstæðismenn leggja áherzlu á, að sjávarút-
vegur og fiskiðnaður verða um ófyrirsjáanlega framtíð
höfuðatvinnuvegir þjóðarinnar, en vekja athygli á, að
vegna tæknibyltinar í sjávarútvegi og vaxandi hagræð-
ingar í fiskiðnaði munu þessar atvinnugreinar ekki sjá
hinum mikla fjölda, sem kemur á vinnumarkaðinn á
næstu áratugum, fyrir nægri atvinnu. Ungir Sjálfstæðis-
menn lýsa því yfir þeirri staðföstu trú sinni, að byggja
verði upp stórfelldan útflutningsiðnað, sem byggist á inn-
lendum og erlendum hráefnum, menntun. hugkvæmni,
smekkvísi og vandvirkni íslenzkra iðnrekenda, iðnaðar-
manna og verksmiðjufólks í iðnaði. Til þess að þetta
megi takast verður að opna iðnaðinum aðgang að stórum
erlendum mörkuðum.
Ungir Sjálfstæðismenn fagna forystuhlutverki Sjálf-
stæðisflokksins fyrir uppbyggingu orkufreks stóriðnaðar
og vilja vinna að áframhaldandi uppbyggingu orkufreks
iðnaðar, en til þess verður að stórauka rannsóknar-
starfsemi og leiða þannig í Ijós þau tækifæri, sem fyrir
hendi eru.
Ungir Sjálfstæðismenn telja, að forsendan fyrir þessari
þróun í atvinnumálum þjóðarinnar sé nánara samstarf og
samruni fyrirtækja í stærri ein-ingar, sem hafi yfir að
ráða meira fjármagni og eru betur undir það núin að
taka í sína þjónustu nýja tækni. Ungir Sjálfstæðismenn
telja jafnframt nauðsynlegt að virkja fjármagn fjöldans í
þágu atvinnulífsins með beinni þátttöku almennings í at-
vinnurekstri. Hér á síðunni verður gerð grein fyrir tillög-
um ungra Sjálfstæ'ðismanna í einstökum greinum atvinnu-
lífsins og mun verða reynt að hraða birtingu hinna ein-
stöku umræðugrundvalla.
RANNSÓKNIR OG NÝJAR ATVINNUGREINAR
1. Fjármagn til rannsóknarstarfa á sviðum aðalat-
vinnugreina landsmanna svo og orkufreks iðnaðar og
nýrra atvinnugreina á öðrum sviðum verður að stórauka.
í þessu skyni verði samtökum atvinnuveganna gert kleyft
að afla fjármagns til rannsókna og tilruunastarfsemi.
Jafnframt er lögð áherzla á það, að framkvæmd þessara
mála verði í höndum einstaklinga og samtaka þeirra, en
ekki í höndum ríkisvaldsins.
2. Kanna ber sérstaklega eftirfarandi verkefni:
1) sjóefnavinnsla
2) olíuhreinsunarstöð
3) járnbræðsla
4) kjarnfóðurmylla
5) grasmjölsframleiðsla
6) áliðnaður
7) sykurhreinsunarverksmiðja
8) loðdýrarækt
9) silisíumframleiðála
10) rafeindaiðnaður
11) biksteinsnám
12) sútunariðnaður
13) forfórvinnsla
14) þaravinnsla
15) framleiðsla manneldismjöls
16) fiskirækt
17) þungavatnsframleiðsla
18) veiðarfæragerð
SÆKJUM FRAM