Morgunblaðið - 03.04.1969, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1969
23
ling og búa sig undir sína hinztu
nótt.
Leikstjóri er Terence Young,
sem hefur getið sér góðan orð-
stír fyrir James Bond myndirn-
ar.
Nýja Bíó hefur að þessu sinni
valið sem páskamynd amerísku
njósnamyndina „I Deal in Dang-
er“ (Hetja á hsettuslóðum). Er
myndin gerð eftir sjónvarps-
þáttunum „Blue Ligiht“, er voru
mjög vinsælir á sínum tíma í
'Bandaríkjunum. Aðalsöguhetjan
(Robert Goulet) Bandaríkjamað
ur með þýzkan ríkisborgararétt,
hefur tekizt að komast til met-
orða í þýzka hernum og notfær-
ir sér aðstöðu sína til njósna og
skemmdarverka fyrir banda-
menn. Er honum nú falið að ger-
eyða flugskeytastöðinni Cross-
munchen, sem er helzta her-
gagnasmiðja og rannsóknarstöð
Þriðja Ríkisins.
Leikstjóri er Walter Grau-
man, en hann stjórnaði jafn-
framt sjónvarpsþáttun.um, sem
minnst er á hér á undan.
Úr myndinni Helgu
ætti að vera okkur kærkomin
kennslumynd, því að allir vilj-
um við standa aðeins framar ná-
unganum. J. Pierpont Finoh er
einmitt slíkur maður og fáum
við að fylgjast með því, hvemig
hann olnbogar sig í gegnum riisa-
fyrirtækið „Cricket um víða ver
öld“, frá gluggafágara til for-
stjóra. Robert Morse leikur
þennan athafnamann af miklum
krafti, en áður höfum við séð
Morse í myndinni „The Loved
One“, sem Gamla Bíó sýndi í
fyrra. Kvikmyndari er Burnett
Guffey, en hann tók myndina
„Bonnie and Clyde“ og hlaut
Oscarsverðlaunin fyrir. „How
to Succeed . . .“ er EÖngleikur,
sem sagður er hafa notið jafn
mikilla vinsælda á Broadway og
„My Fair Lady“ og South Paci-
fic“.
Á næstunni mun Tónabíó
sýna eina af kúrekamyndum
Sergio Leones, „For a' Few Doll-
ars More“, með Clint East-
wood í aðalhlutverki.
A ust u rbæ.j ai'bí ó sýnir mynd-
ina „Hotel“, sem gerð er eftir
samnefndri metsölubók Arthur
iHailey og komið hefur út í ís-
lenzkri þýðingu.
Hótel Sct. Gregory í New
Orleans er 25 ára gamalt, virðu-
legt fjölskyldufyrirtæki, sem
hýst hefur hvorki meira né
minna en 13 ameríska forseta á
starfsferli sínum. Er myndin
leikstýrði og kvikmyndaði. Leik
arar í myndinni eru allir íslenzk
ir og má þar m.a. sjá Brynjólf
Jðhannesson, sem drykkfelldan
sýslumann, Ingu Þórðardóttur
sem leikur dóttur hans og Önnu
Guðmundsdóttur og Lárus Ing-
óifsson, sem leika vinnhjú á
staðnum, Gunnar Eyjólfsson
lei'kur Ingvar í Koti en Alfreð
Andrésson Hansen kaupmann í
rússnesku stórmyndinni ,Stríð
og friður“ og á undan sænsku
kvikmyndinni „Sultur". í Lon-
don var myndin fyrst sýnd á
danskri kynningarviku í Natio-
nal Film Theatre, en nú hefur
nýtt kvikmyndahús þar, Cine-
centa, tekið myndina til sýn-
inga. Einnig var myndin sýnd á
danskri kynningarviku í Japan,
og hlaut hún mjög góða dóma
þar.
Rauða skikkjan mun vera
dýrasta kvikmynd, sem fram-
leidd hef.ur verið á Norðurlönd-
um til þessa, en aðrir framleið-
endur, auk Edda-Film, eru Asa-
Film í Kaupmannalhöfn og
M.A.E.-kvikmyndafélagið í
Stokkhólmi. Leikarar eru víða
að, allt frá íslandi til Sovétríkj-
anna, frá Þýzkalandi og Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð.
Laugarásbíó hefur sýningar á
frönsk-ítölsku kvikmyndinni
„Mayerling", en aðeins eru liðn-
ir um tveir mánuðir síðan sýn-
ingar hófust á henni í Banda-
rikjunum.
Övænt augnablik í „Hótel“ (Rod Taylor og Karl Malden)
gerist, hýsir hótelið þó ekki slík
an tignarmann, en í forsetaíbúð-
inni halda til hertogalhjón. Hef-
ur hertogafrúin (Merle Oberon)
Iþar töglin og hagldirnar á þorst-
látum bónda sín-um (Miohael
Rennie). Hótelkóngurinn Curtis
0‘Keefe (Kevin McGrathy) er
þarna einnig staddur með fylgd-
arliði sínu. Hefur hann í hyggju
að bæta hótelinu í safn sitt og
beitir hann til þess öllum tiltæk-
um ráðum. í þennan hóp slæðist
hótelþjófurinn Lykla-Milne
(Karl Malden), en hann er sér-
fræðingur í að komast yfir lykla
að herbergjum annarra og lokar
sig þá inni meðan hann rænir
leigjendurna í rólegheitum. Ger-
ist margt dularfullra atburða
innan luktra dyra og á hótel-
stjórinn (Rod Taylor) 1 vök að
verjast, ekki sízt fyrir það, að
leynilögreglumaður hússins reyn
ist ekki starfa sínum vaxinn.
Leikstjóri er Richard Quine,
en hann hefur m.a. gert myndirn
ar „Suzie Wong“ og „The Notori
ous Landlady“ (J. Lemon og
Kim Novak).
Austurbæjarbíó mun á næst-
tunni sýna myndina „Cool Hand
Luke“ með Paul Newman. Hef-
ur hún hlotið mjög góða dóma
erlendis og m.a. hlaut George
Kennedy Oscars-verðlaun á síð-
asta ári sem bezti leikari í
aukahlutverki í þessari mynd.
Gamla Bíó: Páskamyndin er
að þessu sinni hvorki bandarísk
né brezk, heldur al-íslenzk.
„Milli fjalls og fjöru“ er senni-
lega góður kunningi margra
eldri kvikmyndahúsgesta, sem
munu glaðir grípa þetta tæki-
færi til að endurnýja kynnin.
Einnig ætti myndin að vera
mýög forvitnileg fyrir þá kyn-
slóð sem nú sækir kvikmynda-
húsin mest. Myndin er tekin í
litum í kringum 1950 af Lofti
Guðmundssyni ljósmyndara og
er þetta fyrsta íslenzka talmynd
in. Sá Loftur um alla gerð mynd
arinnar, skrifaði bæði handritið.
þorpinu og er Sigrún dóttir hans
leikin af Bryndísi Pétursdóttur.
Öll utanihúss atriði í mynd-
inni voru kvikmynduð í Kjós-
inni og í nágrenni Reykjavíkur
en inniatriði'voru tekin í leik-
fimisal St. Jósefs-systranna í
Hafnarfirði.
Háskólabíó hefur að undan-
förnu sýnt sínar eigin myndir
og hefiir aðsókn yfirleitt verið
mjög góð. Haldið verður áfram á
sömu braut um páskana og þá
sýnd yngsta myndin, sem Edda-
Film á hlutdeild að, Rauða
skikkjan. Óþarfi er að rekja
efni þessarar myndar hér, enda
öllum löngu kunnugt. Á þeim
tveimur árum, sem liðin eru síð-
an myndin var sýnd hér á landi,
hefur hún verið sýnd víða um
heim og hlotið misjafna dóma,
ins og gerist um flestar myndir.
Mesta athygli munu þó hafa vak
Rudolf krónprins með móður sinni (Ava Gardner).
Gerist myndin í Austurríki á
árunum 1888—89 á síðuitu valda
tímum Habsborgaranna. Franz
Jósef keisari (James Mason)
reynir með járnaga að halda
landsmönnum sínum í skefjum
Gabriel Axel undirbýr lokaatriði Rauðu skikkjunnar.
ið móttökur hennar í Bandaríkj
unum. Kaþólska kvikmyndaeftir
litið gagnrýndi hana með 30 öðr-
um myndum sem það vildi for-
dæma, en bandarískir gagnrýn-
endur voru ekki á sama máli.
Er þeir kusu um beztu erlendu
myndir ársins, lenti „Hagbard
and Signe“ í öðru sæti, á eftir
Brynjólfur Jóhannesson og Alfreð Andrésson „Milli fjalls og
fjöru“.
og klofnu ríki á réttum kili. Ru-
dolf krónprins (Omar Sharif)
er óánægður með stjórnmála-
stefnu föður síns og hefur samúð
með framfaraöflum í Vín, auk
iþess að vera flæktur í uppreisn-
aráform ungverskra þjóðernis-
sinna. í einkalífi sínu er Rudolf
mjög óhamingjusamur, en hann
er kvæntur Stefaníu prinsessu,
sem leggur sig í líma við að eitra
samhúð þeirra. Leggst hainn því
í svall, en skyndilega tekur líf
hans stakkaskiptum er hann hitt
ir Maríu Vetseru (Catlherine
Deneuve), ungverska barónsdótt
ur. Flestir virðast þó sjá ein-
hverja meinbugi á samvistum
þeirra og páfinn neitar Rudolf
um skilnað. Einnig líta keisara-
hjónin á þessi tengsl myrkum
augum ,og ráðleggja honum
dregið að senda frillu sína
landi. Jafnframt berast nú frétt
ir af uppreisn í Búdapest og
virðast nú allar bjargir bannað-
ar fyrir Rudolf og Maríu. Halda
þau til veiðihallarinnar Mayer-
Á næstunni mun húsið taka till
sýninga myndina „The Sleeping;
Car Murder“, afbrags sakamála-!
mynd, sem hlotið hefur mjög
góða aðsókn og dóma. Með aðal-
hlutverk fara hjónin Simone
Signoret og Yves Montand.
Stjörnubíó frumsýnir á pásk-
um amerísku æfintýramyndina
„The Brigand of Kandahar"
(Stigamaðurinn frá Kandahar).
Sögusvið h-ennar er framvarð-
stöð á Indlandi um miðja síð-
ustu öld. í þann tíma réðu Eng-
lendingar ríkjum á Indlands-
skaga og fjallar myndin um
blóðug átök þeirra við uppreisn-
armenn. Með stærstu hlutverk
í myndinni fara Oliver Reed,
Ronald Lewis og Yvonne Rom-
ain.
Á eftir páskamyndinni er von
á kvikmyndinni „Born Free“,
sem gerð er eftir samnefndri
metsöluibók. Hefur myndin, ekki
síður en bókin, vakið athygli
um allan heim, en hún fjallar
um veiðivarðarhjón í Kenya,
sem ganga ljónsunga í foreldra-
stað. Með hlutverk þeirra fara
hjónin Virginia McKenna og
Bill Travers.
Tónabíó: „How to Succeed in
Business Without Really Trying“
eða „Hvernig komast má áfram
— án þess að gera ihandarvik",
Pierpont a leiðarenda
Kópavogsbíó: Þeir sem enn
iriuna eftir myndinni „Flótti í
hlekkjum", með Sidney Poiter
og Tony Curtis, muna ef til vill
einnig eftir þvi að hún var gerð
af Stanley Kramer. Kópavogs-
bíó mun nú sýna myndina
„Pressure Point“ (Á yztu mörk-
um) gerða af’Kramer með Poit-
er og Bobby Darin í aðalhlutverk
um. Kramer hefur ávallt haft
vakandi auga fyrir samskiptum
einstaklinga og stétta í þjóð-
félaginu, ekki sízt samibúðinni
milli svartra og hvítra. í mynd-
inni leikur Poiter starfandi sál-
fræðing við ríkisfangelsi, en
meðal fanganna er geðbilaður
meðlimur úr bandarísku nazista-
ihreyfingunni, leikinn af Bobby
Darin. Er uppistaðan í mynd-
inni átökin milli þessara tveggja
manna. Reynir sálfræðingurinn
að draga fortíð isjúklingsins fram
á yfirborðið, til að komast fyrir
orsakir geðveilunnar, en nazist-
inn reynist ekki vera samstarfs-
þýður og skríður inn í skel sína.
Ástæðan til þess að hann vill
ekki þýðast sálfræðinginn kem-
ur fram í eftirfarandi rökum:
Ef Poiter er góður sálfræðing-
ur, hversvegna rekur hann þá
ekki sjálfstæða stofu? Vegna
þess að hann er svartur, lélegur
sálfræðingur. Togstreitan eykst,
og er erfitt að sjá fyrir endalok
myndarinnar.
Hafnarfjarðarbíó tekur til end
ursýningar myndina „Goldfing-
er“, en Jomes Bond myndirnar
eru nú orðnar að hálfgerðri
þjóðsögu innan sögu kvikmynd-
anna. Enginn myndaflokkur
hefur orðið jafn vinsæll meðal
alménnings, enoda komust fáar
hetjur fyrri mynda með tærnar,
þar sem Bond hafði hælana.
Goldfinger er Bondmynd nr. 3
og sú nýjasta sem hér hefur ver-
ið sýnd.
Hafnarbíó mun halda áfram
sýningum á „Helgu“, vegna
mjög góðrar aðsóknar. Mun
óþarfi að kynna mynd þessa fyr
ir lesendum, en vert að víkja
aðeins að næstu mynd. Er. það
danska myndin „Stormvarsel“
sem var frumsýnd í Kaupmanna
höfn fyrir aðeins þremur mán-
uðum. Mun þetta vera fyrsta
danska myndin, sem sýnd
verður hér með íslenzkum texta.
„Stor.mvarsel“ gerist í dönsku
fiskiþorpi og fjallar um erjur
fi - kimannanna innbyrðis og við
yfirmenn sína.
Bezta auglýsingablaðiö
Páskamyndir kvikmyndahúsanna