Morgunblaðið - 09.04.1969, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1909
15
Magnús Blöndal
frá Grjóteyri sjötugur
í DAG á Magnús Blöndal, fyrr-
verandi oddviti frá Grjóteyri í
Kjós, 70 ára afmæli.
Foreldrar Magnúsar voru Jón
Blöndal, héraðslæknir í Staf-
holtsey oig Sigríður Magnúsdótt-
ir, er síðar giftist Jóni Magnús-
syni á Grjóteyri. Þar ólst Magn-
ús upp hjá móður sinni og
stjúpa. Magnús lauk prófi frá
Búnaðarskólanum á Hvanneyri.
Magnús kvæntist 1929 Óláfíu
Guðrúnu Andrésdóttur, hrepp-
stjóra á Neðri-Hálsi. Sama ár
hófu þau búskap á Grjóteyri og
bjuggu þar, þar til fyrir fáum
árum, er þau seldu jörðina og
fluttúst til Kópavogs og eiga nú
heimili á Asbraut 5. Sfðan
Magnús flutti til Kópavogs hef-
ur hann unnið á Skattstofu
Reykjaneskjördæmis í Hafnar-
firði'
Búskapur Magnúsar og Ólafíu
á Grjóteyri var með miklum
myndarbrag og voru hjónin
mjög samhent um rausnar-
skap og sérstaklega snyrtilega
umgengni utan húss og innan.
Magnús er lagtækur með ágæt-
um, byggði hann upp reisulegan
húsakost á Grjóteyri, sem bera
glöggt vitni um stórhug og hag-
leik húsbóndans.
Magnús vann mikið að rækt-
un, hann háfði ávallt mjög gott
bú og fór með afbrigðum vel
með allar skepnur. Sérstaklega
lagði Magnús mikla áherzlu á
að hafa ávallt nægjan heyforða
handa búfé sínu og oft mun
hann hafa hjálpað sveitungum
sínum, sem komust í heyþrot.
Magnús er maður félagslynd-
ur og tok virkan þátt í hinu
margþætta félagslífi Kjósarinn-
Ms. Esja
fer vestur um land til Isafjarðar
15. þ. m. Vörumóttaka miðviku-
dag og mánudag til Patreksfjarð
ar, Tálknafjarðar, Bíldudals, Þing
eyrar1, Flateyrar, Suðureyrar og
Isafjarða r.
Ms. Herðubreið
fer vestur um land í hringferð
14. þ. m. Vörumóttaka miðviku-
dag til Bolungavíkur, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur, Kópaskers, Raufar-
hafnar, Þórshafnar, Bakkafjarðar,
Vopnafjarðar, Borgarfjarðar,
Mjóafjarðar, Djúpavogs og
Hornafjarðar.
ar. Valdist hann um árara'ðir til
forustu í ýmsum menningar- og
framfarafélögum sveitar sinn-
ar.
Magnús er kappsfullur en ná-
kvæmur í öllum störium, sem
hann gengur að, glöggur og
fljótur að setja sig inn í mál,
fastur í skoðunum en þó mjög
samvinnuþýður.
Þessir eiginleikar hans nutu
sín vel í starfi hans, sem odd-
viti Kjósverja um fjölda ára. Á
þeim árum var unnið mikið að
samgöngubótum í sveitinni.
Sími lagður á hvern bæ og raf-
magn á flesta bæi. Byggður var
á þessum árum hinn myndar-
legi barnaskóli að Ásgarði. Þó
margir hafi að vísu lagt gjörva
hönd að undirbúningi og fram-
kvæmdum að þessum stórvirkj-
um, þá hygg ég að hlutur odd-
vitans, Magnúsar á Grjóteyri,
að öllum öðrum ólöstuðum ver-
ið langstærstur.
Ungmennafélagið Drengur átti
hug hans alla tíð meðan hann
Vélskóila
Til sölu amerísk vélskófla á beltum, með ámoksturs og
skurðgröfuútbúnaði. Skipti á Payloader eða stórri traktors-
skóflu æskileg.
'Jpplýsingar í síma 34433 og 34033.
Húseignin Unnnrstígur 6
er til sölu. Húsið er einbýli með bílskúr og er staðsett á
vestanverðri Landakotshæð. Eignarlóð með stórum trjágarði.
Tilboð óskast send í pósthólf 242, Reykjavík, fyrir 20. apríl n.k.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Þorgrímsson í síma 18246.
N auðungaruppboð
Eftir ákvörðun skiptaréttar Kópavogs verður haldið opin-
bert uppboð á ýmsum skósmíðavélum og taekjum, eign
þrotabús Davíðs Garðarssonar Hrauntungu 67 hér í bæ
og fer það fram að bæjarfógetaskrifstofunni í Kópavogi
að Digranesvegi 10 neðstu hæð miðvikudaginn 16. apríl
1969 kl. 15.00. Vélarnar eru til sýnis á uppboðsstað en
þær eru: Hondo Kapitan combineruð sikósmíðavél,
V. Pebersen skurðvél, Mafal spalt-vél, Pfaff skinnsauma
vél, Dania skinnþynningarvéi, Trobana skósmíðavél með
Jun-air loftpressu.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
var í sveitinni og lágði hann því
mikið til, sérstaklega er Félags-
garður, félagsheimili þess var í
byggingu.
Samherjar hans í félagsmálum
eru orðnir margir. Þeir líta með
ánægju yfir farinn veg og minn-
ast skemmtilegs samstarfsmanns
á þessum merka degi á lífsbraut
hans. Eina kjördóttur eiga þau
Ólafía og Magnús er Unnur
heitir. Býr hún hjá þeim í Kópá
vogi. Þau hjón Ólafía og Magn-
ús dveljast utanbæjar þessa
daga.
Axel Jónsson.
Ritarastarf
Opinber stofnun óskar eftir stúlku sem er vön vélritun og
öllu er að vélritun lýtur.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, og meðmælum, ef fyrir hendi eru sendist Mbl.
fyrir 14. þ.m. merktar: „Vélritun — 2814".
Með umsóknir verður farið sem trúnaðar.mál.
Tilbúin sætoúklæði bifreiðar
Sætaáklæði og mottur jafnan fyrirliggjandi í Volkswagen og
Moskvitch fólksbifreiðar. Einnig sætaáklæði í Landrover jeppa.
Útvegum með stuttum fyrirvara sætaáklæði og mottur í flestar
gerðir fólksbifreiða. Vönduð vara. hagstætt verð
Sendum i póstkröfu um allt land.
ALTIKABÚÐIN
Frakkastíg 7, sími 22677.
Húsbyggjendur
FYRIRLIGGJANDI: —
• Undirpappi, breidd 50 og 100 cm.
• Yfirpappi breidd 100 cm.
• Asfaltgrunnur (Primer)
• Oxiderað asfalt grade 95/20
• Frauðgler einangrunarplötur
• Niðurföll, 2\" — 3" og 4"
• Loftventlar
• Kantprófílar.
VIÐ HÖFUM SÉRHÆFT OKKUR í FRÁ-
GANGI ÞAKA OG HÖFUM í OKKAR
ÞJÓNUSTU SÉRHÆFÐA STARFSKRAFTA
Á ÞESSU SVIÐI.
= Gerum tillögur um fyrirkomulag og endanleg
tilboð í framkvæmd verksins.
= Leggjum til allt efni til framkvæmdanna.
= Veitum ábyrgð á efni og vinnu.
KYNNIÐ YÐUR OKKAR HAGSTÆÐU
VERÐ OG GERIÐ RÁÐSTA FANIR UM
FRAMKVÆMDIR TÍMANLEGA.
T. Hannesson & Co.
Brautarholti 20 — Sími 15935
Stórkostlegt tilboð
Borðstofu-húsgögn úr teak og eik frá Valbjörk, Akureyri, þekkt
gæðavara.
Útborgun eftir samkomulagi og síðan afgangur á 10—12 mánuðum
einnig með söluskilmálum. Alls k mar skrifborð, sófasett, raðhús-
gögn, sjónvarpsstólar, sófaborð og svefnherbergissett, einnig mjög
fjölbreytt úrval af ullar- og dralo láklæðum.
Ennfremur sjónvörp, radíótæki, loftnet, kæliskápar, frvstikistur,
þvottavélar og ýmis önnur heimil'stæki.
Einnig 3 tegundir rokokkostólar, skammel og píanóbekkir.
Verð mjög hagstætt.
Véla- og raftœkjaverzlunin og
Lækjargötu 2, Bárugötu 33.
Sími 24440.
verzlunin Valbjörk
Laugavegi 103.