Morgunblaðið - 09.04.1969, Page 23

Morgunblaðið - 09.04.1969, Page 23
MORGUNB'LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1009 23 Ágústa Hafliðadóttir frá Birnustöðum — Minning Þeim fækkar nú óðum Skeiða- mönnum, er í blóma lifsins voru um og upp úr síðustu aldamót- um. Ágústa Hafliðadóttir frá Birnu gtöðum anda’ðist 28. marz síðastl. og var til moldar borin í gærdag þriðjudaginn 8. april. Fyrir nokkrum vikum lézt einnig bróð- ir hennar Kristbjörn Hafliðason, bóndi á Birmustöðum, bæði í hárri elli, eftir langa starfsæivi. Lifir þá aðeins ein þeirra Birnu- staðasystkina, barna þeirra merk ishjóna Hafliða bónda Jónssonar frá Auðsiholti í Biskupstungum, sem alinn hafði verið upp af Ólafi bónda á Birnustöðum og tók við jörðinni af honum, og hans mæitu konu Sigríði Brynjólfsdóttur, Brynjólfssonar frá Bolholti á Rangárvöll'um, Jónssonar frá Þingskálum. Stó'ðu að Birnustaðahjónunum ágæt- ustu ættir austur þar. Þau Birnustaðaihjónin, Hafliði og Sigríður, eignuðust tólf börn, sjö syni og fimm dætur. Af son- um þeirra dóu þrír á bernsku- skeiði, en tveir í blóma lífsins. Aðeins tveir koimust til fullorðins ára, þeir Jóhann Hafliðason, tré- smiður, er lengstum starfaði hér í Reykjavík , og Kristbjörn bóndi á Birnustöð-um, sem nú er nýlátinn, eins og áður segir, 86 ára að aldri. Auk þeirra átti Hafliði son er Jón hét utan hjónabands. Hann flutti uingur til Ameríku og bjó lengstan hluta ævinnar í Kaliforníu. Dætur þeirra Sigrfðar og Haf- liða voru Kristin, kona Ketils á Álfsstöðum, Sigríður, kona Kristjáns trésmiðs Einarssonar frá Eiríksba'kka, Elín sem gift var Helga Helgasyni frá Álfsstöð um og Ágústa Hafliðadóttir sem var næstyngst systranna. Hún giftist ekki. Yngst systranna og hin eina þeirra, sem á lífi er, er Ólafía gift Ólafi Ólafssyni múr- ara hér í Reykjaivík. Eins og barnafjöldinn gefur nokkuð til kynna var fjölmenni mikið á Birnustöðum um og eftir síðustu aldamót, því auk skyldu- liðis, var þar altanargt vinnuhjúa svo siem títt var í þá daga. Þar til kom að mjög var þar gest- kvæmt og munu þær heimasæt- ur, er allar voru beztu kvenn- kostir, naumast hafa dregið úr ferðum manna þangað heim. Sá sem þessar línur ritar kynntist af eigin raun heimilisbrag og háttum á Birnustöðum af dvol sinni þar sumarlangt um margra ára skei'ð á bernskuárum sínum. Þar urðu og hans fyrstu kynni af Ágústu. Býlin voru að vísu ekki há- reist á Skeiðunum um aldamótin, ef miðað er við húsakost og bygg ingar í dag. Það duldist þó eng- um, sem þá fór um Skeiðin, en svo heitir sveitin milli Þjórsár og Hvítár, að víða var þar bú- sældarlegt. Fór þá saman atorku- semi bænda og landkostir. Þann-- ig var og á Birnustöðum um þetta leiti. Heimili þeirra Hafliða og Sigríðar hafði í þeirri tfð vax ið áð efnum, svo að segja má, að um meiri hluta búskapartíðar þeirra hafa þau mátt telljast með hinum efnaðri bændum sveitar- innar, enda bar heimili þeirra ljósan vott um, að þar bjuggu hin greindu, ráðdeildar og fyrir- hyggj-usömu húsbændur, sem undirbjuggu vel áður en fram- kvæmdu. Hinu lýsti heimili þeirra ekki síður, og þar í hefur þáttur húsfreyjunnar ekki verið minni, að þar var stjórnað af hag sýni og hirðusemi, þar sem öllu var haldið til haga. Þar var nýtn Arnór Einarsson, Minningarorð í DAG fer fram að Garpsdal í Geiradalsihreppi jarðarför Arn- órs Aðalsteins Einarsisonar, fyrr- um bónda að Tindum í Geiradal. Hann lézt að Lands'spítalanum 26. 3. sJL Með Arnóri er fallinn einn af traustustu stoðum bændastéttarinnar frá aldamóta- tímabilinu. Arnór fæddkt í Garpsdal í Geiradalshreppi hinn 9. okt. 1860, yngstur af 3 börnum Einars Joohumssonar og Kristínar Þór- arinsdóttur er þá bjuggu að Garpsdal. Þau Einar og Kristín fluttu að Tindum í Geiradal og fóru að búa þar og var þá Arnór mjög ungur. Á Tindum var Arn- ór svo alla ævina að undan- skyldu situttu tíma'bili, er hann dvaidist norður við Steingríms- fjörð milli fermingar og tvítugs, m.a. á unglingaskólanum að Heydalsá og eittihvað á Kolla- fjarðarnesi. Aðra skólamenntun en þessa á Heydalsá mun hann ekki hafa fengið, enda var al- gengast að fólk sæti ekki lengi á skólabekkjum á þeim tíma. Árið 1902 fór Arnór að búa á Tindum og bjó með móður sinni þar til hann giftist Ragnheiði Grímsdóttur frá Valshamri í sömu sveit, hinn 6. júlí 1918. Þau hjónin Arnór og Ragnheið- ur bjuggu svo myndarbúskap, er stóð traustum fótum til ársins 1953, en síðustu 10 árin ásamt syni sínum Grími. Marga er komiu að Tindurn heyrði ég tala um mikla gestrisni og alúðlegar móttökur. Mér voru vel kunnar heimilis- aðstæður þar á þessum árum, því ég dvalidst þar oft frá 1921- 1930, m.a. á þriðja ár samfleytt, og var þá Arnór rúmfastur lengst af. Nærri má geta að svo lang- varandi heilsuleysi fylgja erfið- leikar þó efni séu sæmileg. En Arnór var ekki einn’ af þeim, sem flaug strax í hug að gefast upp, þó eitthvað blési á móti. Hann var mjög þrautseigiur, þétt- ur í lund og skoðanaíastur. Þau Ragniheiður og Arnór eign uðust 4 börn: Grírn, aem nú býr á Tindum, Einar vélaverkfræðing í Reykjavík, Kristin búsettan í Reykjavík og Bjargeyju Krist- rúnu, sem býr á Hof.sstöðum i Reykhólasveit. Auk þess ólu þau upp Arnór Guðlaugsson, sem var nokkurra ára er þau giftust en Arnór hafði tekið í fó.itur ný- fæddan. Var hann á Tindum til ársins 1943 og stoð og stytta við búskapinn eftir að hann varð fuillorðinn. Þrátt fyrir tæpa heilsu gegndi Arnór ýmsum opinberium störf- um. Hann var í stjórn Kaup- félags Króksfjarðar um áratuga- skeið, hreppsnefnd og fleira. En aðalstarf -hans utan búskapar var gjaldkerastarf við Sparisjóð Geiradalsihrepps. Því gegndi hann frá stofnun sjóðsins 1908, í yfir 50 ár þair til Grimur sonur hans tók við. Þetta starf tel ég að yrði í höndum hans það merkilegt að rétt sé að staldra aðeins við það. Margir viðskipta- menn sjóðsins voru fátækir bændur og það komu kreppuár yfir, bæði sjóðinn og viðskipta- menn hans. En þá komu vel í ljós kostir Arnórs, hyggindi hans, skapfefta og hjálpsemi við þá, sem illa voru staddir. Ég var þessu dálítið kunnugur þá, og ég held að ekkert sé ofmælt þó ég segi að ósjaldan 'hafi komið fyrir að þeir, sem urðu fyrir óhappi eða voru illa á vegi staddir, færu léttari í spori og léttari í lund frá Tindum. Voru þó lánsupphæðir oft smáar, sem menn fengu. Á ver.stu kreppu- árunum voru kringum 50-60 króna arður af einu kúgildi, 6 ám. Fyrir , fátækan mann, kannski heilsutæpan með heim- ili og börn gat skipt miklu máli hvort hann fékk eða fékk ekki 50 krónur, að maður tali nú ekki um stærri upphæðir. Ég vissi oft til þeas að Arnór tók gripi af mönnum, sem áttu bágt með greiðslur og greiddi sjálfur í sjóðinn. Það kom fyrir að sum- um þótti hann lána út á lítið veð, og svaraði hann þá stutt og laggott, að hann hefði aldrei ætl- Tindum azt til að sjóðurinn tapaði þessu. Arnór var færð smá peninga- upphæð er hann lét af störfum, sem gjaldkeri sem þakklætis- vottur, og fylgdi þar með að aldrei hefði tapazt svo mikið sem króna á han.s löngu gjaldkera- tíð. Ekki get ég skitað svo við þessi fáu orð að minnast ekki þess þáttar í fari Arnórs er ihonum var mjög hugleikinn, en það var hestamennii'ka. Hann hafði mikið yndi af hestum, og var mjög lag- inn tamningamaður og tamdi margan góðhestinn. Hann átti mar.ga góða hesta og alltaf sér- stakan reiðhest fyrir sig, sem hann lét aðra ekki nota. Einn með þeim beztu held ég hafi verið Jarpur sá, er Hjörtur Hjálmarsson skólastjóri á Flat- eyri orti mjög snotur eftirmæli eftir o.g rnunu hafa birt í ritinu „Hestuirinn okkar“. Ég hefi þessi orð ekki fleiri. Flyt að endingu börnum þeirra hjóna ogj öðrum nániustu kærar kveðjur og árnaðaróskir. Ég bið guð að styrkja eftirlifandi konu Arnórs, Ragnheiði, systur mína, sem nú liggur veik á Landakots- spítala, og vona að hún koimist til heilsu og ævikvöld he-nnar veirði bjart. Grímur Grímsson. in talin dyggð, og hið smáa, sem aðrir naumast veittu eftirtekt, var hagnýtt, það ásamt þrifnaði og stjórnsemi leiddi til þess, að allt, stórt og smátt, sem heimil- inu við vék, var jafnan í hinni mestu röð og reglu. Bæði voru þau hjónin mestu iðju- og starfs- fólk, sem var annt um að láta skyldulið sitt og hjú nota dyggi- lega tímann til fyrirsettra starfa, en á sama hátt og þau þannig gerðu kröfur til trúmennsku af öðrum, voru þau bæði hin raun- beztu og ráðhollustu þeim er til þeirra leituðu oig með þurftu. Öllum þeim mörgu, 'er bar að húsum þeirra var auðsýnd stak- asta gestrisni og greiðvikni um allt, er stóð í valdi húsibændanna að veita, enda var þar við brugð ið hjálpsemi jafn við ókunna sem kunnuga. Þannig var það heimili og þau lífsviðhorf, sem Ágústa Hafliða- dóttir ólst upp við í bernsku sinni og æsku. Af því var hún mótuð og bar merki þess tii síðasta dags. Hún fæddist 1. ágúst 1883 og var í foreldrahús- um fram yfir tvítugsaldur. Ekki átti Ágústa þess kost fremur en svo margar konur á þeim tíma að afla sér menntunar með skóla setum. Hennar skóli varð eins og flestra annarra skóli lífsins. I þeim skóla tileinkaði hún sér þá mannkosti, sem fylgdu henni ævilangt. Ekki átti það fyrir henni a'ð liggja að giftast og eign ast sitt eigið heimili og börn. Hins vegar fór ekki hjá því að hún eignaðist hlutdeild í þeim heimilum, þar sem hún á hverj- um tíma dvaldi eins og þau heim ili áttu líka hlutdeild í henni. Stakan hauk í horni áttu börn og þeir, sem minna máttu sín, þar sem Ágústa var. Ágústa var alla sínia tíð lundgóð og dagfars- prúð, glaðlynd, einibeitt og trygg- lynd. Hún var vinur vina sinna, en óvini átti hún enga. Ræktar- semi hennar og umhyggja fyrir þeim sem hún vamn fyrir og dvaldi hjá var einstök. Bar hún að jafnaði annarra hag meira fyrir brjósti en eigin, og tryggð 'hennar tók til allra er hún kynnt ist. Seinni hluta ævi sinnar dvaldi Ágústa að mestu leiti á tveim heimilium hér í Reykjavík. Fyrst hjá þeim Ingveldi Einarsdóttur og Ólafi Einarssyni að Lauga- veigi 49. Tók hún mi’klu ástfóstri við þá fjölskyldu. Síðustu árin hefur hún verið til húsa hjá Ólöfu Andrésdóttur og bömum hennar þeim Andrési hafnsögu- manni og systrum hans. Lét Ágústa oft í ljós gleði sína og þökk fyrir a'ð eignast svo góða vini í fjölskyldum þessum. Eins og áður sagði var Ágústa einstaklega starfsöm, samvizku- söm og vandvirk og gædd dæma fárri trúmennsku og húsbónda- hollustu. Hún starfaði allt fram á síðasta æviár sitt sleitulaust og unndi sér l'ítt hvíldar. Hún var ekki mikið gefin fyrir að taka Sér frí frá störfum. Þó gerði hún að jafnaði undantekningu einu sinni á ári, og sýndi þá um leið tryggð sína við heimahagana. Leið varla það sumar að Ágústa skryppi ekki austur að Birnu- stöðum á æskustöðvarnar. Það varð alltaf léttara yfir henni, þegar sá tími nálgaðist að hún ætlaði austur, ellegar hún hefði þar nýverið. Það var eing og barnsleg birta færðist yfir hana, þegar talið barst að heimsóknum hennar þangað. Þar átti hún sína ástfólgnu griðastaði er hún vitj- aði árlega. Þar hafa vaknað minn ing'ar löngu liðinna tíma og manna er hún ein átti. Og nú er 'hún horfin, hennar jarðlífi lokið, þar er sjónarsviptir að henni. Það minnast hennar margir með þakklæti, því að þó að hún væri nýtin og sparsöm við sjálfa sig og færi af hagsýni með eigur annarra, þá var hún örlát á eigið fé við aðra, sem henni fannst hjálpar þurfi. Vegna mannkosta hennar og breyttni fylgja henni óskir okkar og viissa um að hún eigi fagurt líf fyrir höndum á æðra tilverustigi. Sigurliði Kristjánsson. Jón Jónsson, Neðri Hundadal — Minning JÓN JÓNSSON frá Neðri-Hunda dal, fæddur 16. nóv. 1891, dáinn 30. marz sl. Foreldrar Jón Ein- arason s. st. og Vigdlís Jónsdótt- ir frá Breiðabólstað, bónd í N- Hundadal í Miðdialahreppi 1918 til 1960, ókvæntur. Bústýra bans ÖR búskaparárin var systir hans Signý, ógift, bæði systkinin barn laus. En þau tóku til uppfósturs bróðurson sinn, Hans Einarsson, og kostuðu hann til læknisnáims, að því leiti er hann gat ekk sjálfiy unnið sér inn fyrir nám.s'- kostnaði. Nokkru eftir að Hans Einars- son lauk Háskólanámi hér heima ifór hann til Svíþjóðar til fram- haldsnáms í læknisfræði og er síðan starfandi velmetinn læknir við spítala þar í landi. Þau systkin, Jón og Signý, Ihöfðu aldrei stórt bú, enda fleir- býli á jörðtnni og mun þó nokk- ur hluti búsafurðanna um ára- bil hafa gengið til námskostnað- ar fóstursonarins, er þau unnu rnjög. Og að síðustu létu koma í hans hlut sínar eignir. Jón var glaður í lund, gat ver- ið kíminn í tilsvörum án meið- inga, átti til að kasta fram stök- um við einstök atvik eða tæki- færi, átti það ekki langt að sækja, faðir hanis vel hagmælt- ur. Jón var eins og sagt er, hesta- maður, taafði yndi af að sitja góð- an hes't, og átti þá oftast ágæta, komst yfir og ól upp reiðtaesta, þair á meðal ,,Kolbak“ er Stefán skáld fr'á Hvítadal eignaðist, og síðar Þórarinn Egilsson, Hafnar- firði, annálaðan gæðing, ásamt fleirum. Þegar heilsu systur Jóns hnign- aði, og aldur færðist yfiir hann sjálfan ásamt krankleika, brá hann búi árið 1960 og fluttist til Reykjavíkur; hafði aðsetur hjá bróðurdóttur sinni, Vigdísi Ein- arsdóttur, og manni hennar, Hirti Jónssym, er hann hrósaði mjög fyrir umönnun og alla fram komu við sig. En Signý fór nokkru eftir komu sdna til Reykjavíkur á elliheimili og dó þar fyrir nær 2 árum. Eftir að Jón fluttist til Reykjavíkur varð hann margsinnis að leggjast á sjúkrataús vegna erfiðs sjúkileika, er að nokkru batnaði í bili, svo hann komst heim. En etfir mis- langan tíma sótti í ;ama horfið, sjúkrahús á ný, þannig leið tím- inn unz yfir lauk. Mér var ætíð skemmtun að þegar nafni minn leit inn á mitt heimili hér í Reykjavík. Barst þá’ talið oftast að gömlu og nýju úr sveitinni okkar beggja,; við hana var hugurinn ailltaf bund- inn öðrum þræði. Mér var Jón alltaf glaður og g'óður kunningi og vinur, minn- ist ég þes; með þakklæti, og óska honum góðra stunda í nýjum heimi. J. S.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.