Morgunblaðið - 09.04.1969, Page 22

Morgunblaðið - 09.04.1969, Page 22
22 MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 196» Vigdís Valgerður Torfadóttir — Minning í DAG kveðjum við Vigdísi Val- gerði Torfadóttur. Hún fæddist á Vesturgötu 36 þann 25. ágúst 1834. Á næsta ári keypti faðir hennar, Torfi Þórðarson frá Vig- fúsarkoti, Vesturbæinn í Hlíðar- húsum. (Hann stóð þar sem nú t Faðir okkar, tengdafaðir og afi Einar Jónasson frá Borg, Ytri-Njarðvík, andaðist í Sjúkraihúsinu í Keflavík 3. þ.m. Hulda Einarsdóttir, Jón Ingibersson, Sigrún Einarsdóttir, - Friðrik Valdimarsson og barnabörn. t Elskulegur bróðir minn og móðurbróðir Jóhann Scheving fyrrverandi kennari andaðist 6. þ.m. að Vífilstöð- um. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún og Edda Scheving. t Fósturmóðir okkar Valgerður Ingimundardóttir Háaleitisbraut 17, andaðist páskadagskvöld. Inga Jóhannesdóttir, Ingimundur Bjarnason. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Tryggvi Marteinsson frá Ólafsfirði, andaðist að Hrafnistu laugar- daginn 5. apríl sl. Rósa Friðfinnsdóttir, Dýrleif J. Tryggvadóttir, Baldvin Tryggvason, tengdabörn og barnabörn. — ............... ........ t Bró'ðir okkar Marinó Kolbeins Vancouver Kanada andaðist laugardaginn 5. apríl síðastliðinn. • Þórey Kolbeins, Páli Kolbeins. t Fósturmóðir okkar og föður- systir Nikolína Guðmundsdóttir Steinsholti, Eskifirði, lézt í Landspítalanum 3. apríl. Svala Auðbjörnsdóttir, Jónas Þórðarson og Baldur Einarsson. er Garðastræti neðanvert). Móðir Vigdísar var Sigríður Pét- ursdóttir, Gíslasonar útvegs- bónda í Ánanaustum og fyrri konu hans, Vigdísar Ásmunds- dóttur frá Móum á Kjalarnesi. Hiíðarhús voru þá stærsti íbúðabærinn í-Reykjavík, eða 7 íbúðarhúsaburstir, ef dæma má af uppdrætti liðsforingjanna Ohlsens og Aanums, gerðum snemma á 19. öldinni. Vesturbærinn var stór og rúm- góður miðað við híbýli manna á þeim tíma. Inn af bæjardyrum var eldhús, en göng til hægri, að stofu til suðurs og svefnstofu til norðurs. Uppi yfir voru tvö svefnherbergi. Stofan var því oft lánuð til ým- iskonar mannfagnaðar, margar brúðkaupsveizlur voru haldnar þar og það kom líka fyrir að dansleikir voru haldnir í stof- unni. Þar var mjög gestkvæmt. Sig- ríður var mjög glaðlynd og gest- risin voru þau hjónin með af- brigðum. Skólapiltar skyldir og vandalausir héldu oft til í Vest- urbænum. t Eiginmaður minn Gunnlaugur Haukur Sveinsson kennarl, verður jarðsunginn frá Hafn- arfjarðarkirkju fimmtudaginn 10. apríi kl. 2 e.h. Fyrir hönd ættingja. Ingileif Guðmundsdóttir Holtsgötu 18. t Föðurbróðir minn Jón Jónsson frá Neðri-Hundadal, Dalasýslu, verður jarðsettur miðviku- daginn 9. apríl kl. 1.30 frá Fossvogskirkju. Vigdís Einarsdóttir Dráphlíð 37. t Móðir okkar MagSalena Daníelsdóttir verður jarðsungin frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, miðviku- daginn 9. apríl kl. 2 e.h.. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju. Stefán Sigurðsson, Georg Sigurðsson, Lárus Sigurðsson. t Faðir okkar og tengdafaðir Gísli Ásgeirsson, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 10. apríl kl. 1.30. Lára Radloff, Árni Gíslason, Ester Kláusdóttir, Ásgeir Gislason, Hildur E. Frímann, Erla Gisladóttir Gísli Ólafsson. Eftir að föðurbróðir Vigdísar, Þorgrímur Þórðarson, varð lækn ir í Skaftafallssýslu var algengt að gesti þaðan að austan bæri að garði,. með kveðju,.. og báðust gistingar, meðan læknis var leit- að eða öðrum erindum sinnt í bænum. Á þessu heimili ólst Vigdís upp, einbirni og augasteinn allra er þangað komu. Snemma kom það í hennar hlut að fylgja að- komumönnum til lækna í bæn- um eða að annast útréttingar fyrir gestina og vini úti á landi. Þegar Vigdís var 16 ára hóf hún nám í karlmannafatasaum hjá Andersen kiæðskera, sem þá var fil húsa í Kirkjustræti. Að loknu námi réðist hún til vinnu á verki'tæðinu og hélt því starfi í 25 ár. Fyrir konungskomuna 1907 þurftu allir embættismenn bæj- arins að fá saumaða „frakka“. Vigdís minntist oft þessa sum- ars. Stúlkurnar saumuðu allar eins lengi og hver treysti sér til, oft langt fram yfir miðnætti, en urðu þó að mæta til vinnu aftur kl. 8 að morgni. Handbragð Vig- dísar var frábáert, svo það kom oft í hennar hlut að vinna handavinnuna, sem þá var miklu meiri en nú er, á karlmanna- fötum. Þegar konungskomunni var lokið, fengu allar stúlkurnar 25 krónur fyrir yfirvinnuna og var það í fyrsta skipti sem þeim var greidd yfirvinna, vakti það mikla Oig óvænta gleði. 1908 dó Torfi faðir Vigdísar. Þær mæ(5gur bjuggu áfram í Vesturbænum og veittu beina öllum, sem að garði bar. Vigdís saumaði á verkstæðinu og vann fyrir þeim, þar til Sigríður móð- ir hennar dó, 1925. Vigdís varð þá ein. Bærinn var orðinn all hförlegur, enda yfir 100 ára gamall. Vigdís treysti sér ekki til þess að búa þar ein. Hún yfirgaf því Hlíðarhús og _ settist að hjá frænda sínujn Ágúst Flygenring og fjölskyldu hans í Hafnarfirði. Þar átti hún gott heimili hjá vinum og frændum þar til Ágúst féll frá og heimUið var leyst upp. t Þakka auðsýnda samú'ð við andlát og jarðarför Bergþóru Stefánsdóttur. Sérstakar þakkir til hjúkrun- ar- og starfsfólks Elliheimilis- ins fyrir góða umönnun. Elínborg Jónsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarð arför Guðjóns Ingimars Magnússonar trésmiðs, Hvammstanga. Börn, tengdabörn, barna- börn og barnabarnabörn. Leiðin lá þá aftur til Reykja- víkur og í saumaskapinn. Litlu síðar fékk hún vinnu við fata- vörzlu í Alþingishúsinu, en þar hafði hún unnið alla sunnudaga, við listasafnið á meðan það var til húsa í Alþingishúsinu, Framan af vann hún að sauma skap á milli þess er Alþingi starfaði, en síðari ár varð hún að láta sér nægja fatavörzluna, Frá fyrstu leiksýningu í Iðnó og fram til 1950, að hún réðist til Þjóðleikhússins, starfaði hún einnig í fatageymslu þar. Þar var hún. ætið til staðar og sá því hverja leiksýningu allán. þann tíma. Iðnó varð því annað heim- ili hennar ;um áratugabil og leik- sýningarnar þar hennar unað.s stundir. Hjá Alþingi starfaði hún í 33 ár eða ,þar: tll hún Var 82 ára 1967. Enda þótt Vigdís ynni langa daga og oft á kvöldin í leikhús- unum, gaf hún sér tíma til þess að sinna hugaðarefnum sínum og félagsmálum lengi vel. Hún var alla ævi áhugasamur bindindismaður, gekk i barna- stúkuna Æskuna 8 ára og var síðast í St. Dröfn. í Guð.-.peki- fólagi íslands var hún einnig. I kvenfélaginu Hringnum vann hún af áhuga og óéigingirni í áratugi. Það er ekki aðalatriðið hvaða störf hver velur sér, held- ur hvernig þau eru leyst af hendi. Öll störf vann Vigdís af .sér- stakri nákvæmi og skyldurækni. LífeÆeriU Vigdísar varð ekki víður, niður Vesiturgötu, um mið- bæinn í hring, upp Suðurgötu, en hann var genginn af sa.m- vizkusemi fram á síðustu stund. Forseti íslands, Ásgeir Ás- geiri'son, veitti henni heiðurs- pening, fyrir langa og dygga þjónustu. Sú viðurkenning veitti henni mikla gleði og þakklæti. Hún var sannur Reykvíkingur og munum við lengi minnast þess með hvílíku hugrekki og reisn hún gekk sína göngu. Vigdís verður lögð' til hinztu hvíldar hjá foreldrum sínum, austan við klukkuportið. Þar hvílir loks öll fjökkyldan úr Vesturbænuim í Hlíðarhúsum og blómin gróa á leiðinu um ókom- in ár. Blessuð sé minning þín. Petrína Kristín. ÞEGAR ég nú kveð frænku mína, Vigdísi Torfadóttur, hinztu kveðju, þá leita fram í hugann ýmsar minningar frá bernzku minni um fólkið, sem bjó við Vesturgötuna og er nú sem óðast að hverfa af sjónarsviðinu. Við sem nú erum á miðjum aldri minnumst þess með þakklæti í huga og þökkum því það góða fordæmi, sem það gaf okkur með líferni sínu. Vigdís fæddi.-t í Vesturbænum í Hlíðarhúsum þann 25. ágúst, 1884. Var hún einkadóttir hjón- anna Sigríðar Pétursdóttur og Torfa Þórðarsonar, fiskimats- manns frá Vigfúsarkoti, sem bæði voru kunnir Reykvíkingar. Má geta nærri, að þau hafa vandað til uppeldis einkadóttur- innar. Hún var lika glæsileg stúlka og reisn sinni hélt hún t Hjartans þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vináttu við andlát og útför Láru Jóelsdóttur Læk, Skógarströnd. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði á Sjúkrahúsi Akraness fyrir frá bæra umönnun, einnig öllum þeim, er heimsóttu hana á sjúkrahúsið og sýndu henni og okkur ómetanlega vináttu og hjálpsemi í veikindum hennar. Eiginmaður, börn, tengda- börn, barnabörn og syst- kin hinnar látnu. alveg fram til hins sáðasta. Faðir hennar lézt árið 1908, en Vigdís bjó áfram með móður sinni í gamla torfbænum og vann á verkstæði hjá Andersen, við karlmannafatasaum. Man ég vel eftir þeim mæðgum, hve notaleg ur gamlli bærinn var og vel geng ið um allt jafnt innan húss sem utan. Faðir minn átti heimili hjá þeim í fimm ár, frá því móðir hans dó og þar til hann stofnaði sitt eigið heimili, og á hann hlýj- ar minningar frá þeim tíma. Sigríður andaðist árið 1925 og fluttisf þá Vigdis til Hafnarfjarð ar, þar sem hún bjó hjá fjöl- skyidu Ágústar Flygenring, en þáð fólk reyndist henni tryggir vinir alla ævi. Er hún flutti aftur til Reykjavíkur tók hún upp vinnu sína við sauma og jafn- framt vann hún við fatagæzlu í Iðnó, Þjóðleikhúsinu og síðar á Alþingi, þar sem hún vann fram á aíðustu ár. Hún bjó lengi hjá frú Ragnheiði í húsi hennar, Ægisgötu 26, og veit ég, að hún vildi nú, væri hún þess megnug, þakka þeirri fjölskyldu þá vin- áttu sem henni var auðsýnd á margvíslegan hátt. Eins og áður er sagt var Vigdía mjög glæsileg ung stúlka. Hún starfaði í ungmennafélaginu Ið- unni og tók þátt í íþróttasýning- um félagsins, einnig var farið 1 gönguferðir til Þingvalla og ann- að og í þá daga var ekki algengt, að konur gerðu slíkt. Hún starf- aði iíka ,í Kvenfélaginu Hringn- um. Við sförf sín kynntist hún mörgu fólki og hygg óg, áð mér sé óhætt að fullyrða, að hvar- vetna hafi hún eignazt vini og kunningja. Hún var að eðlisfari dul um sína hagi og aldrei heyrði ég hana kvarta-eða mæla æðru- orð. Hún var líka svo lánsöm að búa alla ævi við góða heilsu. Það sem þó einna mest einkenndi hana var samvizkusemin. Hún mátti ekki í neinu vamm sitt vita, enda var það ein af höfuð- dyggðum gömlu Vesturbæing- anna. Glaðlynd var hún og geð- prúð og fylgdi henni ætíð hressi legur andblær. Það var því alltaf ánægjulegt að vera í návist hennar. Rétt eftir áraimótin síðustu veiktistt hún skyndillega og var flutt í Landsspítalann og þaðan átti hún ekki afturkvæmt. Hún andaðist þar 'hinn 28. marz síðast liðinn. Á meðan Vigdís lá veik naut hún sérstakrar umönnunar tveggja frænkna sinna, frú V»l- gerðar Einarsdóttur og frú Pet- rinu Jakobsson, sem þá eins og endranær reyndust henni sann- ar vinkonur. Nú er Vigdís horfin héðan. Hún var trúuð kona og veit ég að hún hefur nú hitt aftur ást- vini sína, sem á undan voru farnir, en við sem eftir lifium munum geyma minninguna um hana í hugum okkar. Sigfríður Nieljohníusdóttir. - í.o.G.r. - I.O.G.T. Stúkan Frón nr. 227. Fundur í Templarahöllinni við Eiríksgötu í kvöld kl. 20.30. FUNDAREFNI: Skýrsla og reikningar ársins 1968. Kosning fulltrúa á aðalfund þingstúkunnar. Kosning embættismanna, fastra nefnda o. fl. Æ.t. Alúðarþakkir til vandamanna og vina fyrir heimsóknir, blóm, skeyti og stórar gjafir á 80 ára afmæli mínu fyrsta apríl. Guð og gæfa veri með ykkur öllum og sveit minni, þar sem ég hef átt óslitið heimili í þessi ár. Þórður Ólafsson Brekku, Norðurárdal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.