Morgunblaðið - 09.04.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1969
— í skugga Sovét.
Framhald af bls. 12.
að bregðast við. í aðvörun til
stjörnarvalda í Tékkóslóvakíu
var sagt, að sovézka herliðið
í landinu myndi grípa til
sinna ráða, eí ekki yrði þegar
í stað komið í veg íyrir frek-
ari mótmælaaðgerðir gegn
Sovétríkjunum þar, og öll
andstaða yrði þá barin niður
með s:kriðdrekum. Þessi að-
vörun, sem afhent var Ludvik
Svoboda, íorseta, og Alexand-
erTXibcek, leiðtoga kommún-
istaflokksins, var orðuð miklu
harkalegar en orðsending
BTezsnevs, sem afhent var
sijórninni fyrir innrásina í
Tékkóslóvakíu í ágúst sl.
Forsætisnefnd kommúnista-
íloktks Ték'kóslóvóikíu kom
saman þegar í stað og eftir
næturlangan fund gaf hún út
yfirlýsingu. þar sem blöð, út-
varp og sjónvarp voru gagn-
rýnd fyrir „að kynda undir
uppeerðartilfinningar" og enn
fremur var Josef Smrkovsky,
róttækasti umbótasinninn, er
sjálfur á sæti í forsætisnefnd-
inni, nefndur með nafni og
hann gagnrýndur sérstaklega.
Andsovézku aðgerðirnar,
sem sigldu í kjölfar ísknatt-
ledcssigursins yfir Rússum,
hafa skapað mesta hættu-
ástand, sem stjórnarvöld í
Tékkóslóvakíu hafa horfzt í
augu við síðan í innrásinni í
fyrra. I yfirlýsingu forsætis-
nefndarinnar birtisit greinilega
sú þvingun, sem forsætis-
nefndin hefur mátt sæta af
háifu Semyonovs, varautan-
rikisráðherra, og Gretsjkos,
varnarmálaráðherra Sovétríkj
anna. en þeir komu til Prag í
byrjun síðustu viku.
Það er nú vitað, að herliði
Sovétrikjanna í Tékkósló-
vakíu var skipað að vera við-
búnu kvöldið og nóttina 28.—
29. marz sl. er óeirðirnar áttu
sér stað. Það er líka komið
fram, að Semynov flútti orð-
sendingu frá Sovétstjóminni
samkvæmt framansögðu, þar
sem komizt var mjög harka-
lega að orði. Þar var sagt, að
óeirðirnar h-efðu „augsýnilega
verið skipulagðar af gagnbylt-
ingarsinnum". Ekki hefði ver-
ið gert neitt til þess að halda
aftur af þeitm og sumir leið-
togar Tékkóslóvakíu, þar á
meðal Josef Smrkovsky,
hefðu jafnvel tekíð þátt i
þeim Stjórn Tékkóslóvakíu
væri greinilega „annað hvort
ófær um eða hefði ekki hug
á að ná stjórn á ástandinu".
Þá hefði henni einnig mistek-
izt að ná stiórn á fjölmiðlun-
artækjunum.
í orðsendingu Sovétstjórn
arinnar, sem Semynov er
sjálfur sagður hafa bætt
nokkrum orðum við, sagði, að
siíkar óeirðir sem þessar
mæ’tu ekki eiga sér stað aft-
ur. Sovézka stjórnin krefðist
tryggingar fyrir því, að stjóm
arvöld í Tékkóslóvakíu gerðu
sjáíf ráðstafan>r til þess að
koma í veg fyrir, að slíkir at-
burðir ættu sér stað í fram-
tíðinni eða bæðu sovézk stjórn
arvöld um aðs'oð í því skyni.
Ef þetta yrði ekki gert, þá
myndi sovézki herinn í Tékkó
slóvakíu grípa til sinna eigin
aðgerða, án þess að eiga nokk
urt samráð við stjórnarvöldin
í landinu og þeir, sem stæðu
að mótmælaaðgerðum gegn
Sovétríkjunum yrðu brotnir á
bak aftur með sovézkum skrið
drekum.
Sama dag og þessi orðsend-
ing var afhent, réðst Moskvu-
blaðið Pravda harkalega að
blöðum í Tékkóslóvakíu og
sagði, að skrif blaða þar, frá
því að óeirðirnar áttu sér
stað, „hefðu minnt á Þýzka-
land á tímabilinu 1933—
1945“. Vitnaði Pravda hvað
eftir annað til blaðagreina í
Tékkóslóvakíu og til útvarps-
sendinga frá vestrænum út-
varpsstöðvum og sagði síðan,
að „þetta sýndi, hve áróður
heimsvaldasinna og gagnbylt-
ingarsinna í Tékkóslóvakíu
væri að sameinast í einni
rödd“.
Svoboda forseti og Dubcek
flokiksleiðtogi brugðust sýni-
lega við af töluverðri einurð
gagmvart þessum vafninga-
lausu tjjmælum Semynovs.
Forsetinn er m. a. sagður
hafa barið reiður í borðið og
hann og Dubcek héldu því
fram, að óeirðirnar, sem áttu
sér stað fyrir fyrri helgi,
hefðu aðeins veríð ósjálf-
krafa viðbrögð vegna ísknatt-
leikssigursins.
Semynov visaði þessum röik-
semdum á bug. Forsætisnefnd
in var siðan kölluð saman og
sú kuldalega yfirlýsing, sem
gefin var út næsta morgun,
hefði eins getað verið samin
af Brezhnev sjálfum. Þar
voru ítreikaðar sérstaklega
þær ásakanir, sem sovézk
blöð höfðu borið fram dagana
á undan gagnvart Josef Smrk
ovsky, blöðum, útvarpi og
sjónvarpi í Tékkóslóvakíu.
- ASHKENAZY
Framhald af bls. 32
burð að ræða, því að auð-
vitað mun Ashkenazy sjálf
ur taka þátt í hátíðinni —
„og' við vonnm að við get-
um bætt við nafni rússn-
e'ika píanóleikarans heims
fræga, Sviatoslav Richt-
ers“.
Þórunn og Ashkenazy fara
í dag í langa tónlistarferð, en
hingað komu þau úr annarri
tónlistarferð um mánaðamót-
in síðuiitu. Aahkenazy hefur
undanfarið haldið 18 hljóm-
leika í Bandaríkjunum og
Englandi, en nú mun hann
halda einn konsert í Bret-
landi, annan á Spáni, síðan
fara þau hjón til Ástralíu og
Nýja Sjálands og verða 8 vik-
ur í þessum tveimur lönd-
um, þar sem hann heldur 24
tónleika. Þaðan fara þau til
Bandaríkjarma í annarri viku
ágúst-mánaðar, þar sem
Ashkenazy leikur með ýms-
um hljórrrrveitum. í Banda-
ríkjunum er ráðgert að hann
haldi 10 tónleika, m.a. leikur
hann heilan Sehumann-kons-
ert með Filadelfíu-hljómsveit
inni undir stjórn Daniels Bar-
enboims. Þá gat Ashkenazy
þess að hann mundi halda
einn konsert í Singapore og
annan í Manilla á leiðinni til
Ástralíu — „því að mig lang-
ar til að koma þar við“.
í Bandaríkjunum mun
Ashkenazy taka að sér píanó-
kenmslu við Oakland-háskóla,
meðan hann dvelst í Detroit.
Frá Bandaríkjunum fer
hann svo í sumarleyfi suður
til Grikklands og kemur þá
ef til vill við hér á landi í
tvo eða þrjá daga, en þó er
það ekki víst. Hann sagði, að
Ástralíuferðin hetfði verið
skipuiögð fyrir þremur árum,
og enn sem komið væri ætti
hann erfitt með að vera eins
míkið hér heima og þau Þór-
unn óskuðu, en vonaðist til
að dveljast hér á landi meira
næsta sumar og síðar. Ashk-
enazy kemur hér við í októ-
ber og dvelst hér einn dag,
en heidur þá aftur til Banda-
ríkjanna.
„Um jólin verð ég hér
heima í tvær til þrjár vikur
og þá ætla ég að vinna mikið,
hlusta á hljómpiötur ('hann
gekk að hljómplötusafninu
sínu, sýndi okkur um 2000
plötur, sem hann á, og brosti
af tilhlökkun) — vinna og
æfa mig. Ég hlakka meira til
jólanna en nokkur fullorð-
inn“, bætti hann við. „Þetta
eru ekkert nema ferðalög, ei-
líf ferðalög“ (og hann and-
varpaði) — „en ég veit að
heimilið bíður mín hér á ís-
landi og sú tilhugsun veitir
mér styrk og gleði“.
Við spurðum: „Hvernig
hafa listamennirnir tekið því
að koma á tónlistarhátíðina
hér á landi?“ Og Ashkenazy
svaraði eins og honum er lag-
ið: „Þeir hafa allir tekið því
vel. Þeir hafa mikinn áhuga
á að koma. Þeir hafa ekki
verið hér áður — og eittihvað
ferskt við hugmyndina.
iand er nýtt í þeirra augum.
Barenboim sarmþykkti á auga
bragði. Hann er e’kkert
hræddur að koma, fyrst ég
bý hér“.
„Og hvað um hugmyndina
— hvaðan er hún runnin?“
„Við Þórunn höfum gælt
við hana um nokkurt skeið,
og við vonumst til að geta
skipulagt þessa alþjóðiegu
tónlistarhátíð með aðstoð op-
inberra aðiia hér á landi.
Hingað hafa komið of fáir
heimsþekktir tónlistarmenn,
en nú langar okkur að safna
þeim saman hér eins mörgum
í einu og hægt er.
Ætlunin er að Sinfóniu-
hljómsveit íslands haldi
tvenna tónleika á hátíðinni
undir stjórn Andrés Previns.
Það er von okkar“, hélt
Ashkenazy áfram, „að þessi
hátið takist vel, ekki aðeins
frá liitrænu sjónarmiði held-
ur einnig fjárhagslegu. Ef
hún borgar sig vel, yrði það
ósk okkar, að hagnaðurinn
rynni til þess að fá hingað
eina af beztu sinfióníulhljóm-
sveitum heims á alþjóðlega
tónlistarhátíð 1972, t.d. The
London Symphony Orcbestra.
Það er von okkar Þórunn-
ar að okkur takist að halda
slíka tónlistarbátíð hér annað
hvert ár — og bjóða þá að-
ein® upp á það bezta. ísland
á aðeins skilið það bezta“,
sagði Ashkenazy að lokum og
Þórunn kinkaði áköf kolli til
samþykkis, því að hún er ís-
lendingur í húð og hár. Og
við tókum einnig undir þessi
síðustu orð Ashkenazys. „Það
veitir ekki af að bræða ís-
lenzku jöklana", sögðum við
og kvöddum.
— Tékkóslóvakía
Framhald af bls. 1
að binda á uppþot þau sem átt
höfðu sér srtað gegn Rússum. A1
exander Dubcek, aðalritari komm
únistaflokksins sagði í sjónvarps
ræðu, að fleiri óeirðir gætu haft
hörmulegar aðfleiðingar í för með
sér. Bein ritskoðun er nú komin
í stað þeirrar sjálfritskoðunar
blaðamanna sjálfra er komst á
eftiir innrásina og gerði þeim
kleift að gagnrýna harðlega
hvers komar tilraunir til að
hamla gegn frjálsræðisstefnu Du
bceks.
Að sögn fröpsku fréttastofunn
ar AFP hefur blaðafulltrúi ríkis
stjórnarinnar bannað útgáfu síð
asta tölublaðs hins frjálslynda
bókmenntatímarits „Listy“ og það
kemur því ekki út á miðviku-
daginn eins og ráðgert hafði ver-
ið. Ekki er vitað hvort ritið
verði banruað eða hvort ritstjórn
in hætti sjáli útgáfu blaðsins.
Að því er áreiðanlegar heimild
ir í Vín herma hefur þingí tékkó
slóvakískra rithöfunda, sem hefj
ast átti 12. apríl verið frestað
um óákveðinn tíma. Ástæðan er
sögð ágreirjingur milli hinnar
tékknesku og hinnar slóvakísku
deildar rithöfundasambandsins.
HERMENN Á VERÐI
Vopnuð lögregla og hermenn
voru í dag á verði á götum Prag
til þess að koma í veg fyrir
fleiri mótmælaaðgerðir gegn Rúss
um. Hér er um að ræða lið
í þeim hömluráðstöfunum
sem forysta kommúnistaflokksins
hefur nú gripið til að kröfu
Rússa vegna íkveikjunnar í skrif
stofu sovézka flugfélagsins Aero
flot í Prag og annarra andsov-
ézkra aðgerða í nokkrum tékkn
eskum og slóvakískum borgum í
kjölfar sigurs tékkóslóvakíska
landsliðsins í ísknattleik yfir
Rússum fyrir tíu dögum.
Þó hefur yfirleitt verið ró-
legt hvarvetna í landinu um pásk
ana og þótt margir hafi áhyggj-
ur af hinum nýjum aðgerðum yf-
irvaldanna hafa flestir viljað
gleyma öllum áhyggjum og farið
úr borgunum til þess að slaka á.
Nokkur verkalýðsfélög hafa lýst
sig samþykk síðustu hömlum, en
aðallega til að sýna flokksholl-
ustu. Voldiug verkalýðsfélög, sem
hafa beitt sér fyrir framförum,
hafa hins vegar haldið storma-
sama fundi um þróunina að und
anförnu, en yfirleitt hafa þau
stutt sitefnu flokksins svo að kom
izt verði hjá óeirðum og sundr-
ungu.
NÝTT HERNAM?
Sovézku ráðherrarnir, Gretch
ko marskálkur og Semjonov að-
stoðarutanríkisráðberra, enu
senniiliega enn í Prag til þess að
fylgjast með framkvæmd hinna
nýju ráðstafana. í Prag telja
kunnugir að miðstjóm kommúm
istaflokksins verði ef til vill köll
uð saman til fundar í þessari
viku. Og þeir leggja áherzlu á
alvöru ástandsins með því að
benda á að tékkóslóvakískir leið
togar geta nú valið um tvær leið
ir.
• — Að verða við kröfum
Rússa og berja niður álla gagn-
rýni og viðleitni framfarasinna
til að berjast gegn síðustu ráð-
stöfununum.
9 — Að gera Rússum ljóst
að afskipti þeirra af tékkóslóv-
akískum innanrikismálum hafi
nú keyrt um þverbak og búið í
haginn fyrir nýtt hernám.
Áreiðanlegar heimildir i Tékkó
álóvakíu herma hins vegar að
Rússar vilji ekki aðeins forðast
nýja innrás heldur vilji þeir einn
ig forðast róttæka breytingu á
ríkisstjórn Tékkóslóvakíu. Þess
ir heimildarmenn telja, að erfið-
leikar Rússa í deilunum við Kín
verja og fyrirhuguð heimsráð-
stefna kommúnistaflokka í júní
geri að verkum að Rússar vilji
eins og nú sé ástatt í lengstu
lög forðast að beita hervaldi gegn
Tékkóslóvakíu.
SVOBODA HARÐUR
Undanfama daga hefur verið
þrálátur orðrómur á kreiki um
að Rússar hafi fjölgað í herliði
sínu í Tékkóslóvakíu, og hefur
þessi orðrómur vakið mikinn ugg
í tékkóslóvakíska hermrm, en
hann hefur verið borirm til baka
Rússar munu hafa hótað að beita
heríiði til þess að bæla ndður nýj
ar andsovézkar mótmælaað-
gerðir. — Svoboda forseti
heimsætti tékkóslóvakiskar
herdeildir þrívegis í sáðustu
viku, og orðrómur hefur verið á
kreiki um að herinn taki lögin í
sínar hendur. Mikill fjöldi ungra
umbótasinna er nú í tékkósló-
vakíska hemum, sem Rússar gátu
eitt sinm betur treyst en herjum
annarra Varsjárbandalagsland-
anna.
Fyrstu áhrifin af hinum nýju
hömlum ríkisstjómarinnar voru
þau að tveimur framfarasinnuð-
um ritstjórum aðalmálgagns
kommúnistaflokksins Rude Pravo
Emil Sip og Zdislav Sulc, var
vikið frá og í stað þeirra voru
skipaðir tveir harðlínukommúnist
ar.
Samkvæmt óstaðtfestum fréttum
er Svoboda harðasti andstæðing
ur þvingana Rússa og er talið
að hann hafi neitað að verða við
kröfum þeirra um að vikja stjóm
Oldrich Cerniks frá völdum og
taka sjálfur við embætti forsæt-
isráðherra ti] að framkvæma ósk.
ir Moskvustjórnarinnar. Frá
þessu segir í greinarger'ð sem
dreift hefur verið í Prag vegna
ritskoðunarÍTnnar. Samkvæmt
greinargerðinni hefur herinn lýst
yfir vantrausti á stjórn Cerniks.
MANNABREYTINGAR?
í AFP-frétt frá Moskvu segir
að stjórnin í Prag hafi sent skrif
lega greinargerð til Kreml um
þær ráðstafanir er hún hyggist
framkvæma til að verða við kröf
um Moskvustjómarinnar í kjöl-
far mótmælaaðgerðanna gegn
Rússum. Um efni greirrargerðar-
innar er ekki vitað, en þar er
því áreiðanlega heitið, að rit-
skoðun verði komið á.
Frantisek Hamouz, aðstoðarfor
sætisráðherra Tékkóslóvakíu, fór
í dag til Moskvu tiT að sitja fund
í yfirstjórn Comecon, markaðs-
bandalags Austur-Evrópurikj-
anna. Um leið fara fram umræð-
ur í forsætisnefndinni, sem skip-
uð er 21 fulltrúa, um möguleika
á breytingum í flokksforystunni
AFP hermir, að fulltrúi í hér-
aðsnefnd flokksins á Vestur-
Mæri hafi reynt að svipta sig
lífi á föstudaginn með því að
kveikja í klæðum sínium. Líðan
mannsins, sem heitir Procek, mun
vera alvarleg, enda eru 60 prs.
l.ikama hans þakin brunasárum.
Verkalýðssambandið í Bæheimi
og Mæri hefur harðlega fordæmt
mótmælaaðgerðirnar gegn Rúss
um. í yfirlýsingu segir samband-
ið að þeir einir sem vilji smána
leiðtoga landsins með því að
sýna að þeir séu óhæfir stjórn-
endur hagnist á slíkum mótmæla
aðgerðum.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
W...WHAT
IF I GO
move youR legsAlinder:
TROV...LIKE VOU
WERE RIDING A
---, BICYCLE/
l ■
ÍÍI:
THI5 13 VERY STRAMSE,
MR.ATHOS ...WE SEEM ,
TO BESLOWINS oowní
Hreyfðu fæturna eins og þú sért að
bjóla Troy. Hvað . . . hvað ef ég sekk?
Hafðu ekki áhyggjur af því herra Troy,
ég er í rauninni töluvert sterk. (3. mynd)
Þetta er einkennilegt, herra A hos . . .
það lítur út fyrír að við séum að missa
ferð. Það er ímyndun fíflið þitt . . . vél-
arrúm. fulla ferð áfram. (3. mynd).
Heyrðuð þið til mín þarna niðri? Eg
sagði fulla ferð áfram.
ÍB-