Morgunblaðið - 09.04.1969, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1969
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 1D‘1QO
Voru tveir á fleka — Óðrum tókst
að svamla í land
SEX ára drengur drukknaði í
Elliðaánum klukkan rúmlega 17
i gær. Hafði hann verið á fleka
ásamt félaga sínum á svipuðum
aldri fyrir ofan stífluna við Ár-
bæ, er hann datt í vatnið. Maður
sem staddur var efst í Yztabæ
sá til drengjanna, bað börn að
kalla á hjálp, en fór að því búnu
til þess að bjarga, en árangurs-
laust. Dr-engurinn hafði ekki
fundizt í gærkvöldi, þrátt fyrir
mikla og erfiða leit.
Drengirnir voru að leika sér
á flekanum, sem er heimatilbú-
inn úr timbri og einangrunar-
plasti. Á honum voru og tvær
Is viö
Hornbjarg
SIGLINGALEIÐIN fyrir Horn
bjarg var um miðjan dag orðin
ófær af völdum íss. Hún er þó
alltaf fær öðru hverju, og virð-
ist eftir myndum að dæma, sem
þarna gangi ísrani út úr megin
ísnum, en hann er um 30 sjómíl
ur frá helztu annesjum. Gert er
ráð fyrir að ísinn mund þarna
aftur þokast frá, því að spáð er
sunnanátt.
uppblásnar hjórbarðaslöngur, en
þær voru bundnar við fiekann.
Tvær árar höfðu drengirnir á
flekanum. Maðurinn sem sá til
drengjanna lýsti því, sem hann
sá á þá leið, að fyrst hefði ann-
ar drengjanna fallið af flek-
anum. Hinn hefðu þá reynt að
rétta honum árina, en við það að
hann teygði sig, datt hann einn
ig í vatnið. Svömiuðu drengirnir
í vatninu og tókst, þeim, er síð-
ar datt að komast upp á hólma,
sem þarna er
Maðurinn bað börn, er voru
að leik í Yztabæ um að kalla á
lögreglu og sjúkralið, en hann
treysti sér ekki til þess að leggj
ast til sunds í köldu vatninu,
enda drengirnir við hólmann,
nokkuð langt úti og maðurinn
illa syndur. Hljóp maðurinn um
einn kílómetra upp með ánni og
Framhald á bls. 21
Lögreglumenn og björgunardeildarmenn draga fleka drengjanna á land. (Lj6sm. Mbl. Sv. Þ.)
Flestar verzlanir loka í tvo daga
Blöð munu ekki koma út
ALLSHERJARVERKFALL
verffur fimmtudag og föstudag,
Drengur beið bana
— í bílslysi d Snæfellsnesi
ATTA ára drengur beiff bana
í bílslysi nálægt Gerðubergi í
Eyjahreppi á Snæfellsnesi.
Drengur var staddur í geymslu
skúr, sem þama stendur við þjóð
veginn, en er hann hljóp út úr
skúrnum varð hann fyrir bíl, sem
ekið var framhjá skúrnum í sama
mund.
Hann mun hafa látizt fljótlega
eftir slysið og var líkið flutt til
Reykjavíkur. Ekki var talið rétt
að birta nafn hans í gær, og er
slysið enn í rannsókn hjá sýslu-
manninum í Stykkishólmi.
en allflest aðildarfélög ASÍ hafa
boffað verkföll þá tvo daga. —
Meðal þeirra er Verzlunarmanna
félag Reykjavíkur, þannlg aff
flestar verzlanir verffa lokaffar,
nema þar sem eigendur og fjöl-
skyldur þeirra geta stundað af-
greiðslustörf.
ASB, félag starfsstúlkna í
brauða- og mjóllkurbúðium, hef-
ur og boðað verkfall, svo að
mjólkurbúðir og bakari verða
lokuð og blöð koma eteki út.
Meðal þeirra félaga, sem boðað
hafa vinnustöðvun eru: Verka-
mannafélagið Dagsbrún, Verka-
kvennafélagið Framssókn, Iðja,
félag verksmiðjufólks í Reykja-
vík, Hið íslenzka prenitarafélag,
Bakarasveinafélag Islands, Félag
bifvélavirkja, Félag íslenzkra
rafvirkja, Félag jámiðnaðar-
manna, Múrarafélag Reytejavík-
ur, Trésmiðafélag Reykjavíkur o.
fl.
Þá munu heildverzlanir og
loka þessa tvo daga.
Sérstakar viðræður
iðnrekenda og Iðju
Atkvœðagreiðslu um verkbann lýkur
í kvöld — Iðja boðar átramhaldandi
verkfall hjá þremur fyrirtœkjum
IÐJA, félag verksmiðjufólks
í Reykjavík, hefur boðað
áframhaldandi verkfall hjá
þremur iðnfyrirtækjum í
Reykjavík í kjölfar tveggja
daga verkfallsins, sem hefst á
morgun. Þau fyrirtæki, sem
hér um ræðir eru Kassagerð
Reykjavíkur h.f., ísaga og
Umbúðamiðstöðin.
Þórunn og Vladimír Ashkenazy meff börnum sínum.
Heimsfrœgir listamenn á tónlistarhátíð hér:
jsland á aöeins skiliö það bezta“
Félag ísl. Iðnrekenda hefur
brugðizt við þessari verkfalls
boðun Iðju á þann hátt að
efna til atkvæðagreiðslu
meðal félagsmanna sinna um
verkbann á Iðju og verður að
boða það með 7 daga fyrir-
vara.
Á skírdag ræddu fulltrúar
iðnrekénda og iðnverkafólks sér-
staklega saman. Annar fundur
þessara aðila var haldinn í gær
og sennilegt er talið að þriðji
sérfundur þeirra verði í dag.
Á laugardag efndi Félag ísl.
iðnrekenda til almenns félags-
fundar vegna þeirrar ákvörðun-
ar Tðju að boða áframhaldandi
verkföll hjá hinum þremur of-
Framhald á bís. 21
segir Ashkenazy, sem er nýkominn úr tónlistarför, heldur
í dag f aðra — og hlakkar mikið til jólanna!
í SAMTALI við Mbl. í gær
skýrði Vladimír Ashken-
azy frá því, að vinur hans,
Daniel Barenboim, komi
til Islands sumarið 1970
ásamt öðrum heimsfræg-
um tónlistarmönnum, sem
taka þátt í alþjóðlegri tón-
listarhátíð, sem Ashken-
azy er að skipuleggja hér
á landi seinast í júní það
ár.
„Aðrir heimsþekktir
listamenn, sem ég hef fært
hugmyndina í tal við og
samþykkt hafa að koma
eru: Victoria de los Angel-
es, sópransöngkona, André
Previn, hljómsveitarstjóri,
og fiðluleikarinn Itzhaak
Perlman, auk eiginkonu
Barenboims, Jacqueline du
Pré, sellóleikara“.
Af þessari upptalningu
má sjá, að hér verður um
stórkostlegan tónlistarvið-
Framhald á bls. 24
Hrapaði
5 metra
Fimm ára drengur, Sæmund-
ur Jónsson, Hólabraut 7 í Hafn-
arfirði hrapaði í gær fram af
klettabelti í Hvaleyrarhöfða.
Var fallið um 4—5 metrar, en
drengurinn mun þó ekki hafa
meiðzt mikið. Þó var hann flutt-
ur í Borgarsjúkrahúsið, þar sem
gert var að sárum hans.
Sex ára drengur
drukknar í Elliðaánum