Morgunblaðið - 11.05.1969, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ 196®
„FISH&CHIPS
15°Io LAUNAKOSTNAÐUR - 25°/o HAGNAÐUR
AÐEINS OPIÐ 5 KLUKKUSTUNDIR Á DAG
BANDARÍSKA FYRIRBÆRIÐ ÁRIÐ 1969
MORGUNBLAÐIÐ hefur lagt
álierzlu á að fylgjast vel með
þeirri byltingu, sem átt hefur
sér stað í Bandaríkjunum í sölu
fiskrétta í gegnum svonefna
,JKish and Chips“-veitingastaði,
sem nú ryðja sér til rúms þar í
landi. Birtar hafa verið fréttir og
viðtöl við knnnnga menn.
Nýverið birti bandaríska mat-
vælatímaritið „Institutions“,
Magazine of the Service World,
ítarlega grein um þróun „Fish
and Chips“-markaðsins í Banda
ríkjunum. Þar er varpað skýru
ljósi á, hvers er að vænta í þess-
um efnum, greint frá helztu fyr-
irtækjum, fjármögnun, fram-
leigu og skilmálum, fjölda veit-
ingastaða í ársbyrjun og áætlað-
an í árslok 1969 og fleira.
í samanteknu yfirliti, sem birt
er hér að neðan, má m.a. sjá, að í
byrjun árs voru 13 fyrirtæki,
sem ráku eða framleigðu 141
„Fish and Chips“-veitingastaði.
í árslok er áætlað að á vegum
þessara fyrirtækja eða í tengsl-
um við þau, verði starfræktir
1941 „Fish and Chips“-veitinga-
staðir.
Framleiguverð — þýðing á
enska orðinu „franchise “cost“
— hvers veitingastaðar er frá
$1#.000 til $25.000, (eða íslenzk-
ar krónur 880.000 til 2.2 millj.
Framleigusamningar geta verið
mismunandi, en flestir bjóða
leigutaka upp á sömu eða svip-
aða þjónustu, sem felur m.a. í
sér rannsókn á hugsanlegri stað-
setningu veitingastaðar, bygg-
ingu og innréttingu, þjálfun, bók
hald, útvegun hráefna (fiskur,
kartöflur o.þ.h.) o.s.frv.
I kynningarbæklingum um
rekstur og framleigu „Fish and
Chips“-veitigastaða, samkvæmt
formúlum 13 framangreindra fyr
irtækja, eru spár um að reksturs
hagnaður geti orðið 20-34%.
Fyrirtækin taka framleigu-
þóknun 4—6% og 1—8% þóknun
vegna auglýsinga- og kynningar-
starfsemi fyrir viðkomandi veit-
ingastaði.
Flest leitast við að tengja starf
semina sem mest við Bretland,
m.a. með því að nota brezk nöfn
— London, Piccadilly, Union
Jack — innréttingum, sem er í
líkingu við brezkar bjórkrár,
London Times-umbúðum o. fl.,
sem teljast má til brezkra ein-
kenna.
Bandaríkjamenn vilja líta á
„Fish and Chips“-veitingastað-
ina, sem algjört brezkt fyrirbæri
þótt vitað sé, að íbúar hafnar-
bæja New England og víðar á|
austurströndinni hafi frá upp-
hafi landnáms þessara svæða
neytt „heimatilbúinna" fish and
chips rétta. Að sjálfsögðu eru
hvergi fleiri „Fish and Chips“-
veitingastaðir en á Bretlandi, en
þar eru þeir tugir þúsunda. Bret
ar eru því meistararnir í faginu,
bæði hvað áhrærir tækjaútbún-
að og matargerð. Upphafsmaður
„fish and chips“-öldunnar í
Bandaríkjunum var Bretinn
Haddon Salt, Esq. Árið 1965 opn-
aði hann sinn fyrsta „Fish and
Chips“veitingastað í Sausalito,
sem er í nágrenni San Fransisco.
Þarna á vesturströndinni hófst
bandaríska „fish and chips“-fyr-
irbærið, sem fer nú sem eldur í
sinu um Bandaríkin, eins
og sjá má af því, að á aðeins
einu ári mun veitingastöðunum
fjölga úr rúmlega 100 i meira cn
1000.
Ef árleg fiskþörf hvers veit-
ingastaðar er áætluð 70.000 pund
eða 32 tonn, hefur heildar fisk
þörf v-eitingastaðanna í ársbyrj
un verið 4.500 tonn, en miðaf
við að veitingastaðirnir verða
orðnir 1041 talsins í árslok, verð-
Framhald á bls. 14
H. SALT.ESQ.
ÞEGAR Haddon Salt Esq. kom
til Bandaríkjanna þeirra erinda
að selja fisk- og kartöflusteiking
artæki, varð hann þess snemma
áskýnja, að það var tilg>angsla>ust
að selja tækin án þess að kaup-
endum væri jafnframt kennt,
hvemig matreiða æitti fyrsta
flokks voriu með þeim. Einnig
uppgötvaði hann fljótle.ga þörf-
ina fyrir fagkunnáttu í að selja
og kynna bandarískum neytend-
um enska réttinn „fisih and
chips“, sem er einfaldlega fiukur
og kartöflur innbakað í olíum.
Á aðeins 4 árum kom H. Salt
upp 100 veitingastöðum, sem
flestir eru reknir á framleigu-
gr.und'velli. I rekstri þeirra legg-
ur Salt sérstaka áherzlu á aug-
lýsingar, þjálfun og vörugæði.
Til starfa vili hann helzit fá
heimilislegt og samvizkusamt
fólk, sem tileinkar sér fljótt og
vel listina að steikja rétt.
Á vegum H. Salt fyrirtækisins
eru stairfandi 15 eftirlitiinaenn,
sem fylgjast stöðugt með veit-
ingastöðunum.
H. Salt-veitingastafKrnir eru
venjulegast staðsettir nálægt
íbúðarhverfum. Þeir eru flestir
opnir í 5. klst. á dag, frá 16.00—
21.00 og lokaðir á miánu-
dögum. 95% af sölunni taka kaup
endur með sér, þ.e. þeir neyta
ekki réttanna á staðnum. H. Salt
hefur svo til frá upphafi keypt
allan sinn fisk frá Sölumiðstöð
hraðfryistiihúsanna. í auglýsing-
um hefur hann lagt áiherzlu á, að
í ;H. Salt „fis'h and dhips“ væri
aðeins fyrsta flokks fiskur —
íslenzkur fiskur. —
LONDON
LONDON „Fish and Ohips“-veit-
ingastaðirnir eru á San Frans-
isco-svæðinu. Fyrirtækið var
stofnað af matvælaheiLdsala og
tækjaseljanda. Þekking þeirra
kom að góðum notum við stofn-
setningu „Fish and Chips“-veit-
ingastaða.
Þeir selja til framleigutaka,
sem hafa yfir að ráða 1200 feta
veitingastofu með 32 sætum, en
það er hagkvæmasta stærðin að
þeirra mati. London spáir að ár-
leg velta á slíkum stað gæti orðið
$100.000 (kr. 8.8 miilj.) og að
nettóhagnaður geti orðið 25.5%.
Veitingasitaðirniir eru málaðir
í rauðum, hvítum og bláum lit-
um og skreyttir með enskum
landslagsmyndum. Á matseðli
I^ondon sést að venjulegur „fish
and chips“-rétiur kostar 9® cent,
þ.e. kr. 87.00, „Fr;th and chips“
með rækjum kostar $1.5® eða kr.
140.00. Coca Cola flaskan koetar
15 cent, eða kr. 13.00. Kaffi kost-
ar sama.
UNION JACK
A S.L. sumri opnaði bandariska
fyrirtækið Gorton Corporaition
„Fish and Chips“-búð í Glouc-
ester, Mass., á austurströndinni,
undir nafninu Union Jack“. Á
sama tíma opnuðu tveir fram-
kvæmdamenn tvær hliðstæðar
verzlanir á San Fransisco-svæð-
inu og nefndu þær Union Jack.
Fljótlega voru þessi tvö fyrir-
tæki sameinuð.
Dagleg sala í Gloucester „Fish
and Chip®“-búðunum er frá
$500—$800, en kemst stundum á
toppdögum upp í $1200 eða kr.
105.000,—.
Gortons forðast að hafa síns
staði í bjórkrárstíl. Þess í stað
leytast hann við að hafa vinveit-
ingaitaðina, sem bjartasta.
Skreytingar eru í sterkum litum,
m.a. Union Jack fáninn, sem
er rauður, hvitur og blár. Þjón-
ustufólkið er einnig í búningum
með þessum litum.
Veitingastaðirnir á Californíu-
svæðinu eru í verzlunarmiðstöð v
um og er lögð áherzla á sölur til
fólks, sem tekur réttina með sér.
í sumiurn þeirra eru auk þess seld
ir fjölbreyttari fiskréttir og jafn-
vel kökur sem eftirréttur.
"FISH & CHIPS" VeitingastaSir í Bandaríkjunum árið 1969.
FYRIRTÆKI :
Alfie'S
Friar Fish
H.Salt, Esq.
Lancashire Lad
London
London Bridge
Mr.Fish & Chips
Ficcadilly
Rhödes
Rians (chain)
Union Jack
ASalstöSvar Fiöldi veitingastaða F ramleiguve r ð einstakra veitin^a-
■1- )a": 1 árslok staSa.
Houston, Texas 1 220 $10. 800
Torrence, Kalif. 1 200 $10.750
San Rafael Kalif. 96 276 $25.000
f framleigu er innifalið: Framleisu- þóknun. Auglýsinga- þóknun.
tæki greidd meS 3 ára fjármögnun 5% 3%
tæki greidd meS 4. 3% mánaðarlega 5% 5%
Engin fjármögnun 6% 2%
Redwood City, Kalif. 5 30
San Francisco 12 50 ($10.000 ($20.000
Los Angeles 6 56 ($18.700 ($21,400
New Port.Beach Kalif. 3 30 $22.500
Commerce City Colo. 3 26
San Francisco 10 40-50 $18. 000
Portland, Ore. I 3 -
Cloucester, Mass. 3 San Francisco. 100
SAMTALS: 141 1041.
HúsnaeSi, enduruppb. 4% 1%
kostn. ákveður heildarv.
20% fjármögnun 5% 2%
F jármögnungarmðguleikar
Leigutakar kaupa sig inn í fyrirtækiS.
TakmarkaSir fjár- '5% 8% fyrsta
mögnungarmöguleikai? áriS
3% næstu ár
á eftir.