Morgunblaðið - 11.05.1969, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1969
23
ífólk í f réttunum
Josefína Baker á tröppum kastala sins í Sarlat í Frakklandi.
JÓSEFÍNA BAKER sem nú
er orðin 62ja ára, var hrakin
út úr húsi sinu fáklædd í
ausandi rigningu á dögunum,
og þar sat hún á náttkjólnum
í sjö klukkustundir, unz henni
var komið fyrir á sjúkrahúsi.
Það er haft eftir lækni, að
hún þjáist af taugabilun, og
bauð henni að hvílast um hríð.
Dómari nokkur hjálpaði
henni til þess að fá aftur að-
gang að heimili sínu, kastala,
sem nú hefur verið seldur til
að borga skuldir hennar, og
er henni heimilt að dvelja þar
í eldhúsinu (en þar hefur hún
haft aðsetur undanfarið) í
nokkra daga til viðbótar.
Sonur kaupandans læsti
hana úti í rigningunni á nátt
klæðunum og berfætta.
Jesefína vesalingurinn bjó
í kastalanum með fjölda töku
barna sinna, unz skuldheimtu
imennirnibhriifsuðu hann af
henni.
Búslóð hennar var einnig
seld nýlega á uppboði til þess
að afla henni fjár til að borga
skuldir sínar með.
Jósefína Baker hefur í
nokkur ár háð árangurslausa
baráttu til þess að fá aftur
yfirráð kastalans í hendur,
en það hefur ekki borið ár-
angur.
Myndir
Ameríkanar eyða 20 millj-
örðum gamalla franka á ári
til skemmtunar hermönnum
sínum í Vietnam. Dupont heit
ir Frakki, sem sér um allt
skemmtanahald þeirra.
Það eru ekki allir að
snobba niður á við
Kona Charles Percy, öldunga-
deildarþingmanns frá Ulinois,
kom inn á Penn Járnbrautar-
stöðina um daginn í versta snjón
um í New York, sagði til sín,
og bjóst við að komast með lest-
inni, sem þegar voru nokkur
þrengsl á.
Afgreiðslumaðurinn, sagði
strax, „Mér er alveg sama, hver
þér eruð. Það var allt upp
pantað fyrir þremur dögum.“
Þá kom Mike Mansfield, formað
ur meiri hluta öldungadeildar-
innar, og bauðst til að útvega
miðana, en allt ikom fyrir ekki.
AflgreiðtzOuimaðuirimn nieitaði.
En viti menn, þá koimiu Ed-
ward (Ted) Kennedy, öldungar
deildarþingmaður, og frú hans,
Joan. Þau sögðu: „Verið alveg
róleg, við skulum sjá um þetta
allt. Og áður en hann gæti sagt
meira, var afgreiðslumaðurinn
búinn að taka upp stimpilinn og
púðann.
„Fjóra miða takk“, sagði
Kennedy, og fékk þá.
Það sannar, að það borgar sig
að heita Kennedy.
Franski kvikmyndaleikarinn,
Alain Delon, 33 ára og kona
hans, Nathalie, 25 ára, fengu
skilnað í frönskum réttarsal, sex
tán stundum eftir að Delon kom
úr yfirheyrslum hjá lögreglunni
vegna morðs á lífverði hans (jú-
góslavneskum) Stephan Marko-
vic að nafni.
Samkvæmt franskri venju, lét
ekki dómarinn, Michel Oliver,
neitt uppi um skilnaðarorsakirn
ar, þótt hann segði sökina vera
hjá báðum. Nathaline fékk 2000
dali á mánuði og umráð yfir
dreng þeirra hjóna, sem er
fjögra ára gamall.
Bróðir hins myrta, Alexand-
er Markovic, fór til Belgrad dag
inn áður, eftir langar og strang-
ar yfirheyrslur, en hann mun
koma aftur til að fást við Fran-
cois Maratoni, korsíkanskan
veitingamann, sem sakaður er um
morðið á Markovic.
Erfingi Ameríska Standard
Oil fyrirtækisins, Peter Salm, hef
ur opinberað trúlofun sína með
Wiltrau, barónessu, von Furst-
enberg. Þau verða gefin saman
í hjónaband í Angermund í vest-
ur Þýzkalandi, sem er kastali
(nú hótel) í eigu föður brúðar-
innar.
Charles Bretaprins sem er
í Caimibriidige, er aflar sam-
vizkusamur við námið, hann
lætur ekki veður og vinda
aftra sér frá námi.
En námið er ekki eingöngu
þurr uppt-ugga, heldur getur
það verið með dýrðarljóma.
Um daginn var hann for-
maður dómnefndar, er skyldi
útnefna Ungfrú Háskólans
Peterhouse, sem er elzti hluti
skólans var eina kvöldstund
með hirðsvip.
Sextán þátttákendur voru í
fegurðarsamkeppninni og þar
með sextán minipils.
Charles prins var styrktur
með Peterhouse púns (tveim-
ur glösum), en það er romm
og appelsínusafi, og fórust
Itrnum embættisverkin með á
gætum, þótt erfitt væri að
velja. Hann krýndi tvítuga
stúlku, Susan Francis, ljós-
hærða og langleggjaða, og
var snar í snúningum.
Súsan hafði sjálf saumað
hvíta chiffon kjólin, sem hún
var í.
Prinsinn var afar riddara-
legur við stúlkuna og sagði:
„Ég vona,að þér hljótið einn
ig nafnbótina Ungfrú Al-heim
ur. Segja má, að prinsinn sé
að búa sig undir krýningar-
athöfn þá, er fram fer fyrsta
júlí, er Bretadrottning, móð-
ir hans fær honum au'kin
völd í Carnavon höll.
spakmœli
s^vikunnar
Það er ef til vill rangt af
okkuir að spyrja ekki Grikki
að því, 'hvort þeir vilji okk-
ur.
George Papadopoulos.
Sumir segja, að konur hafi
ekfki eins mikla seiglu og karl
ar. Ég get ekki dæmt um það,
því að ég h-ef áldrei verið
karl, en ég hef a.m.k. meiri
líkamlega seiglu en nokkur
annar hérna.
Indira Gandhi.
Vér eigum ekki annars kost
en að sigra.
Golda Meir.
Vill ekki utanríkisráðherr-
ainn vinsamlegast óska forsaet
isráðherranum til hamingju
fyrir hönd þinigd-eildarin-nar,
með að haifa loks fundið jafn-
ingj-a til að fást við. (Anguila).
Nigel Birch M. P.
Bretar björguðu bókstaflega
kampavínsiframleiðslunni í
fyrra.
Franskur kampavínsfram-
leiðandi.
Við ákváðum að giftast í
Gibraltar, því að það er rólegt
brezkt og vingjarnlegt.
John Lennon bitill.
Við erum ekki ásjáílegir í
svart-ihvíbu. í litasjónvarpi
myndu flestir okkar verða
hörmulegir úblits.
Balfour lávarður (er rætt
var um litsjónvarp frá lávarða
deildinni).
Það eina sem áynnist við
sjónvarp frá hvorri deildinni
sem væri, væri stóriminnkuð
sala á svefntöfl'um.
Boothby lávarður.
Harold Wilson.
Það er hægt að ræða um
velferð barna af elju, ein-
lægni og alúð, en það má ekki
gleyma því, að börn hafa líka
réttlætiskennd.
Quintin Hogg. M.P.
Við skulum vona, að Soam-
es málið verði ekki tuttugu og
sex vikna saga. Ókunnur höf.
f svipinn, vildi ég skipta á
Bandaríkjunum og Sovétríkj
unum fyrir Frakkland.
Gilbert Murray, M.P.
SPAKMÆLI VIKUNNAR
í þessum háskóla þarf ég
ekki að óttast mótmæli gegn
mér.
Nizon forseti í
háskóla Vatikansins.
Handverksmaðufinn til-
heyrir liðnum tíma. Hann er
ekki lengur nauðsynlegur
fjárhagnum.
Prof. Peter Druclter.
Ég sé engin merki um
framfarir.
Hertoginn af Edinborg
(um sérfræðinga).
Mér finnst lífið verða skrítn
ara, eftir því, sem lengra líð-
ur á það. Arthur Miller.
Mannfélagið virðist mér
eiga rétt á því að dæma úr
leik þá, sem ekki eru reiðu-
búnir til að leika eftir leik-
reglunum og hafa sýnt það.
Alec Muir, yfirlögregluþj.
Durham.
Iðnaðarhúsnæði til leigu
540 fermetra iðnaðarhúsnæði er til leigu, góð innkeyrsla. Á
sama stað er til leigu á efri hæð 260 fermetrar.
Upplýsingar í síma 32229 og 33298.
Rýmingarsolan Laugaveg 48
Verzlið þar sem úrvalið er mest, ódýrast og bezt.
Peysur, buxur, kjólar, kápur, pils, hárþurrkur, rafmagnshita-
púðar, svæfilsver o. fl. og fl.
Komið og skoðið í 50 kr. flokkinn, þar eru margar hillur fullar
af vörum á aðeins 50 kr. flíkin.
Gerið beztu kaup ársins.
RÝMINGARSALAN LAUGAVEGI 48.
Æðstu gæði
Fátt vekur yður yndi sem góð tónlist. Og nú orðið er
yður fátt auðveldara en að njóta hennar.
Philips-verksmiðjurnar eru stærsti framleiðandi hljóm-
tækja í Evrópu. Og frá Philips er hin fjölþætta Hi Fi-
hljómtækjasyrpa (High Fidelity International): plötu-
spilarar, magnarar, hátalarakerfi — allt nákvæmlega
samhæft til fullkomins flutnings.,
Hi Fi-syrpan er stílhrein og snotur, auðveld í upp-
setningu og verður yður til varanlegrar ánægju.
HIGH FIDELITY
PHIUPS
v3*
PHILIPS
í verzluninni Heimilistæki sf., Hafnarstræti 3, getið þér
reynt gæði Hi Fi-hljómtækjanna. Þar eru tækin öll
uppsett. Komið og reynið tóngæðin.
HEIMIUmi SE
HAFNARSTRÆTI 3, SlMI 2045S