Morgunblaðið - 20.07.1969, Síða 7

Morgunblaðið - 20.07.1969, Síða 7
MORGUNB'LAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ H969 7 Hundar eru trygglr vinir Á síðustu strlðsárunum kynntist ég brezkum Majór, John Lee, sem hafði eignazt hvolp af skozku og íslenzku kyni. Kall- aði hann hvolpinn Snygg. Skömmu eftir, að hann fékk hvolpinn, frétti hann lát föður síns, en hann var búsettur i Suð ur-Afriku og átti þar miklar eignir. Fékk majorinn fri til að ráð- stafa eignum föður sins og hað hann mig að geyma Snygg á meðan. Mælti hann svo fyrir ef hann kæmi ekki aftur, mætti ég eiga hvolpinn, en ekki láta hann til annarra. og lóga honum að öðrum kosti. Fór svo að maj órinn kom ekki til íslands aft- ur. En i bréfi, sem hann skrif- aði mér, sagðist hann fara til N.—Afríku og frétti ég síðar að hann hefði fallið þar. Auðvitað þótti mér og allri fjölskyldunni svo vænt um hvolp inn, að ekki kom til mála að lóga honum. Ólst hahn svo upp hjá okkur, en var sérstaklega hændur að sonardóttur okkar, sem var þriggja ára. Ef hann ekki fylgdi mér, sem hann oft- ast gerði, þá lá hann á palli fyrir utan forstofudyrnar. Lóð- in var nokkuð stór og vel girt og þegar Ragnheiður litla kom út, stóð Snyggur upp og fylgdi henni og ef hún settist niður, lagðist hann hjá henni og beið þar til hún stóð upp. Ef hún nálgaðist hliðið á girðingunni, þá stanzaði hann og gelti þar til konan mín kom út. Þegar ég byggði Sundhöllina á Seyðisfirði, vann hjá mér raf virki, sem átti langt í mat og ók hann alltaf á hjóli úr og í mat. Svo bar til einn dag, að hjólið hans bilaði og lánaði ég honum þá mitt, því að ég átti skammt að fara. Þegar hann kom aftur, sagði hann: „Þetta er meiri fjandans hundurinn, sem þú átt. Hann fylgdi mér alla leið heim hágeltandi, og svo lá hann hjá hjólinu, þegar ég kom úr mat og fylgdi mér sígelt- andi, þar til ég skilaði hjólinu á sama stað og ég tók það, og nú liggur hann þar.“ Ég mátti eiga víst, ef ég fór á hjóli eða bíl, að Snyggur fann hvort sem var, og lá þar hjá, þegar ég kom að, ef ég var ekki á ferð, annars gerði hann vart við sig með gelti. Eitt sinn fórum við hjónin norður til Húsavíkur að heim- sækja dóttur okkar, sem bjó þar og báðum við vinkonu okkar að sjá um Snygg á meðan. Hann fékkst aldrei til að fylgja henni heim og varð hún alltaf að færa honum matinn, en Snygg ur lá alltaf við forstofudyrnar, þó að hann auðvitað hefðiskjól, sem hann lá alltaf í á næturnar. Eftir vikutíma komum við hjón in aftur heim með áætlunarbíl, og fór þá vinkona okkar, ásamt annari konu, að taka á móti okkur og gengu þær götu, sem lá meðfram lóðinni. Lá Snygg- ur þá, sem vanalega við for- stofudyrnar, en þegar hann sá þær uppi á götunni, stóð hann upp og fylgdi þeim þangað, sem bíllinn var vanur að stanza og lagðist þar á gangstéttina en konurnar löbbuðu fram og til baka, þar til bíllinn kom. Stóð þá Snyggur upp og byrjaði að dingla rófunni. Konan mín kom út á undan mér, og fagnaði hann henni vel, en stóð svo og veið við dyrnar á bílnum, þar til ég kom út, hoppaði hann þá upp um hálsinn á mér og dans- aði í kringum mig, með gelti og fagnaðarlátum. Ég las nýlega í blaði, að „stórborgin" Reykjavík væri eina stórborgin á Norðurlöndum, sem bannaði hundahald. Það stendur einhvers staðar, að „ein dæmin séu verst“, og sannast það hér. Það veit enginn, hvers börn fara á mis við að umgangast ekki skepnur, ekki sízt hunda, en auðvitað á að hafa þá í bandi, þegar farið er með þá út á götu. — Jón Vigfússon Borgarhol.sbraut 60 Góðir vinir Hundavinafélagið endanlega stofnað á þriðjudagskvöld Þriðjudagskvöldið 22. júlí verð- ur haldinn framhaldsstofnfundur Hundavinafélagsins í súlnasal Hót- el Sögu og hefst hann kl. 8.30. Eins og kunnugt er af fréttum var fyrsti fundur félagsins haldinn í Hafnar- firði s.l. mánudagskvöld. Mættu þar um 400 manns, og gengu rösklega 200 strax í félagið. Ráðgert er, að félagssvæði félagsins verði Hafnar- fjörður, Garðahreppur, Kópavogur og Reykjavík ásamt nágrannahrepp um. Síðar má búast við, að fleiri félog til verndar hundum verði stofnuð víðsvegar um allt land. Á fundinum á Hótel Sögu á þriðju- dag, verður endanlega gengið frá lögum félagsins, og kosin stjórn þess. í ráði er einnig, að þarna verði fluttur fræðilegur fyrirlestur um hundahald, og hundaeigandi segir frá samskiptum sínum við þetta trygga húsdýr. Verður nánar sagt frá þessu í þriðjudagsblaði. Allir eru velkomn ir á fund þennan, og geta menn á staðnum gerzt félagar og verður tekið á móti félagsgjöldum en það hefur verið ákveðið kr. 100.00 Af fyrri fundarsókn í Hafnarfirði má ráða, að Reykvíkingar og menn úr nágrenninu muni fjölmenna á þenn an fund á Hótel Sögu á þriðju- dagskvöld kl. 8.30. Notið sjóinn og sólskinið! Fjöllin á tunglinu í TILEFNI af tunglför Apollo 11, birtum viff hér all sérstaeffa mynd, sem Annar Þórhallsdóttir tók af sólmyrkvanum 30. júní 1954. Var hún meff kassavél í Austurstræti og beindi henni aff sólu. Skyndi- lega bar tunglið fyrir, milli sólar og jarffar, og sá Anna þá tungl- fjaU á tunglinu og smellti af því mynd. Menn greina þetta fjall bezt meff því aff skoffa myndina aff ofan á hvolfi. Anna hefur staffiff í sambandi viff stjörnufræffinga út um allan heim vegna myndar- innar, og telja þeir flestir, aff vel geti veriff, aff fjall þetta hafi ver- iff í jaffri tunglsins, þegar þaff sveif framhjá. Fjalliff líktisf mjög hinum kunnu hringgígjum á tunglinu. Nákvæm tímasetning, þegar Anna tók myndina, er kl. 1.30 eftir hádegi 30. júní 1954. VIÐARÞILJUR Eik 250 x 24 cm Cullálmur 250 x 24 cm Spónlagðar með úrvals spæni, tvílakkaðar með plastlakki. Hagkvæmt verð, úrvals vara. Timburveizlunin Völundur Skeifan 19. Sími 18430 og 36780. ATIKA steypuhrœrivélar fyrirliggjandi. A. WENDEL H.F. Sörlaskjóli 26. — Sími 15464. Hljóðaus W.C.-kassi. nýkomið: W.C. Bidet Handlaugar Baðker Fætur f. do. W.C. skálar & setur. Fullkomin varahlutaþjónusta. Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra Einkaumboð fyrir Island HANNES ÞORSTEINSSON heildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.