Morgunblaðið - 20.07.1969, Blaðsíða 12
12
MORGUNIBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ l!9©9
rúmsloftið, gæti það ildast (oxi
derast) svo ákaft, að í þvi
kviknaði.
45. SÝNISHORNUM SAFNAÐ
Tunglfaramir tina nú þau
sýnishom af yfirborði tungls-
ins, sem þeim finnast markverð
ust. Allir geimfarar hafa feng-
ið staðgóða þjálfun í jarðfræði
rannsóknum og ferðazt viða í
þeim tilgangL T.d. til svæðisins
umhverfis Öskju.
Þegar tunglfaramir hafa lok
ið við að safna sýnishomunum,
ganga þeir frá þeim í öðrum
áðurnefndra kassa. Þeir mynda
hvert sýnishom um leið og þeir
tína það upp og einnig staðinn
þar sem það var tekið.
Næsta verk tunglfaranna verð
ur að koma fyrir litlum skjálfta
mæli til þess að mæla „tungl-
skjálfta". Rafhlöður mælisins
era knúnar sólarorku og er
gert ráð fyrir að hann sendi
upplýsingar til jarðar fram á
mitt ár 1970. Einnig koma þeir
fyrir endurvarpa, sem varpa á
laser geislum, frá jörðinni aft-
ur til baka. Gera þessar geisla-
mælingar vísindamönnum kleift
að reikna mijög nákvæmlega út
fjarlægðina milli jarðar og
tungls. Ráðgert er, að þetta
tæki starfi einnig marga mán-
uði.
46. UMHVERFIS
TUNGLFERJUNA.
Aldrin gengur nú umhverfis
tunglferjuna og tekur nær-
myndir af lendingar-„fótunum“
fjórum, og vegsummerkjum á
yfirborði tunglsins eftir útblást
urinn frá hreyfli ferjunnar. Á
meðan safnar Armstrong
fleiri svnishornum umhverfis
lendingarstaðinn. Tunglförun-
um er stranglega bannað að
fara lengra en 90 metra frá
tunglferjunni. Einstaka sýnis-
horn, sem Armstrong telur sér
staklega áhugaverð fyrir jarð-
fræðinga, setur hann í plast-
poka, og skráir á þá jarðfræði
legar upplýsingar, sem gætu
reynst mikilvægar, þegar sýn-
ishornin eru rannsökuð á jörð-
inni. Hann hefur 15 slíka plast
poka meðferðis.
47. SJÓNVARPAÐ TIL
JARÐAR. Þegar mælitækin eru
komin á sinn stað, sækja tungl
fararnir lítinn sjónvarpssendi
inn í tunglferjuna og næstu
mínútur verður sjónvarpað
beint frá tunglinu. Aldrin geng
ur um með sjónvarpsmyndatöku
vélina, og tekur m.a. myndir af
tunglferjunni á lendingarstað
hennar og Armstrong að störf-
um. Tekið verður á móti sjón-
varpssendingunum frá tungl-
inu á Spáni, í Ástralíu eða
Kaliforníu, eftir því hvaða hlið
jarðarinnar snýr að tunglinu,
þegar sent verður. Myndimar
berast síðan símleiðis til Hous
ton, þaðan sem þær era sendar
út í sjónvarpskerfi Bandarikj-
anna og um sjónvarpshnetti til
annarra landa.
48. TUNGLGÖNGU LÝKUR
Þegar sjónvarpsmyndatök-
unni Iýkur, hefur Armstrong
dvalizt rúmar tvær klukku-
stundir á tunglinu, en Aldrin
26 mínútum skemur. Þeir búa
sig nú undir að ljúka tungl-
göngunni. Aldrin klifrar upp
stigann og upp á pallinn við
dyr tunglferjunnar, og tunglfar
arnir hala kassana með jarð-
vegssýnishornunum um borð í
ferjuna. Talið er, að þeir verði
nú orðnir mjög þreyttir eftir
hin erfiðu störf í þungum og
fyrirferðarmiklum tunglbúning
unum. Þeir taka einnig með sér
í tunglferjuna tækið, sem notað
var til að að fanga efnisagnir frá
sólinni. Öll tækin, sem þeir
tóku jarðvegssýnishornin með
skilja þeir eftir.
Einnig skilja þeir eftirbanda
riska fánann, smáfilmur með
kveðjum frá þjóðarleiðtogum
fjölda landa og fyrstu fótspor
manna á franuuidi hnetti. Á
neðri hluta ferjunnar, sem not-
aður verður sem skotpallur
fyrir efri hlutann og skilinn
eftir, er festur skjöldurinn
með undirskrift tunglfaranna
þriggja og Nixons, Bandaríkja
forseta.
Armstrong skilur tunglskó
sína eftir utan ferjunnar. Þeg-
ar hann hefur klifrað upp stig-
ann, er dyrunum lokað, tungl-
fararnir tengja búninga sína
súrefniskerfi ferjunnar, opna
dymar á ný og henda bakpok-
unum útbyrðis. Síðan læsa
þeir dyranum og loftþrýsting-
urinn í ferjunni er aukinn.
49. HVÍLD. Þegar klukkan er
42 mínútuur gengin í átta, hafa
dyr tunglferjunnar verið lok-
aðar nægilega lengi til þess að
tunglfararnir geti tekið af sér
glerhjálmana, og hleypt þrýst-
ingnum af búningunum. Þeir
fá nú að borða og hvíla sig í
f jórar klukkustundir og 40 mín
útur.
50. TUNGLIÐ KVATT. Að af-
loknum svefni og annarri mál-
tíð, losa tunglfaramir efri part
tunglferjunnar frá þeim neðri.
Hreyfill í efri hluta ferjunnar er
ræstur og hún þýtur á braut
Þessi skjöldur verður festur við einn lendingar-„fót“ tungl-
ferjunnar og. skilinn eftir á tanglinu. Á honum stendur: „Hér
stigu menn frá reikistjörnunni Jörðinni fyrst fæti á tunglið
í júlí 1969. Við komum í friði fyrir hönd alls mannkyns" Á
skildinum era nöfn tunglfaranna þriggja og Nixons, Banda-
ríkjaforseta.
umhverfis tunglið á ný. Tungl-
faramir stýra ferjunni sjálfir á
brautina í 111 km. hæð yfir
tunglinu. Þar mæta þeir Coll-
ins i stjómfarinu og tunglferj-
an er tengd því. Áætlað er að
þetta gerist kl. 9.23, að ísl. tíma
á mánudagskvöld. Ef hreyfill-
inn í efri hluta tunglferjunn-
ar bilár, hafa tunglfaramir
tveir enga von um að komast
til baka til jarðarinnar.
51. AFTUR f STJÓRNFARINU.
Armstrong og Aldrin skriða
nú um göngin inn í stjórnfarið
og taka með sér kassana með
jarðvegssýnishomuniun' og
geislarannsóknartækið. Þegar
þessu er lokið, er hlemminum,
sem lokar göngunum stjómfars
megin læst og tunglferjunni
skotið á braut umhverfis tungl
ið. Áhöfn Apollos—11 hefur nú
undirbúning undir að koma
geimfarinu á farbraut til jarð-
ar. Verður það væntanlega
gert um kl. 16 á þriðjud.ag.
Erfiðasta hluta tunglferðar-
innar er lokið og maðurinn hef
ur stigið fæti á framandi hnött.
Á þriðjudaginn verður haldið
áfram að segja frá heimferð
þremenninganna, Armstrongs
Aldrins og Collins.
„ORMINN
SJÖWVRRPSSEWD!-
LOFTNET
S 0MR'
M/ELIN6 hfí.
EFRI HLUTI
[ FERJUNMfVR
NEDRl HLUT|
í FERJUNAJAR.
LVERGElSLft
SPESILL
- ..... V
r-
\__________ _ ............ _ _
's UKA 10
' METR.fi R
"------'.7 TUMGLVE-GiS-.
- .rT
FLEST S9NIS- x
33 ME.T*fi.
FJARL'íGÐ
* /' 41.
r./
skjíiLFrfi*
mælir
... . •; • • -i
m
. <v&-.
" *"* ^,tr%
HoRW HEOflW
I
/
/
/ ■
■:*
. Vn
’SUÐVESTURHLUTl HAFS
RÓSEMINMAH
SUONVfiRPS _
UPPTÖKUVÉL’